Fréttablaðið - 18.06.2012, Page 6

Fréttablaðið - 18.06.2012, Page 6
18. júní 2012 MÁNUDAGUR6 gerir grillmat að hreinu lostæti! E N N E M M / S IA / N M 46 40 7 E N N E M TVÆR NÝJARBRAGÐTEGUNDIR Klæjar þig og svíður á milli tánna? Þá gætir þú verið með fótsvepp!Lamisil Once 1% húðlausn inniheldur 10 mg af terbínafíni (sem hýdróklóríð). Lamisil Once er einskammta meðferð við fótsvepp (tinea pedis). Ekki má nota Lamisil Once ef til staðar er ofnæmi fyrir terbínafíni eða einhverju öðru innihaldsefni lyfsins. Lamisil Once er eingöngu ætlað til útvortis notkunar. Lyfið er eingöngu ætlað til húðmeðferðar á fótum. Lamisil Once á ekki að nota á meðgöngu nema brýna nauðsyn beri til. Konur með barn á brjósti eiga ekki að nota Lamisil Once. Börn og unglingar undir 18 ára aldri eiga ekki að nota lyfið þar sem reynslu skortir af slíkri notkun. Lyfið á einungis að bera á einu sinni. Best er að bera Lamisil Once á húðina eftir sturtu eða bað. Lyfið verður að bera á báða fætur, jafnvel þótt einkenni sjáist einungis á öðrum fæti. Þetta tryggir eyðingu sveppsins. Hann getur leynst víðar á fótum þótt ekki sjáist nein merki um hann. Lamisil Once er mild lausn og ertir sjaldnast húðina. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lesið vandlega leiðbeiningarnar sem fylgja hverri pakkningu. Markaðsleyfishafi: Novartis Healthcare. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ. – drepur fótsveppinn, þarf aðeins að bera á einu sinni 15% afslátturGildir í verslunum Lyfju. Gildir í júní Þú grípur einfaldlega pakka af uppáhalds Maryland kexinu þínu og gætir um leið eignast glæsilegt grill. ER VINN INGS SKÍFA Í PAK KANU M ÞÍNU M? VINNUR ÞÚ GLÆSILEGT WEBER GRILL? 2 x Weber E310 kr. 132.990 28 x Weber Smokey Joe kr. 16.950 Ert þú sátt(ur) við störf sérstaks saksóknara? JÁ 64,7% NEI 35,3% SPURNING DAGSINS Í DAG: Hélst þú upp á þjóðhátíðardag- inn með einhverjum hætti? Segðu þína skoðun á Vísir.is. SAMFÉLAGSMÁL Bóluefni, bætt heilsugæsla og aukin menntun í heiminum á síðustu fjörutíu árum hefur dregið úr tíðni barna- dauða um meira en helming. Alþjóðlegur fundur um málefnið hófst fyrir helgi í Washington í Bandaríkjunum. Á fundinum koma saman fulltrúar frá meira en áttatíu ríkjum og fjöldi sérfræð- inga í þeim tilgangi að samhæfa aðgerðir til að draga enn frekar úr barnadauða. Ríkis stjórnir Eþíópíu, Indlands og Banda- ríkjanna leiða fundinn í samstarfi við Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNI- CEF. Markmið fundarins er að fá alþjóða- samfélagið til þess að taka höndum saman og minnka barnadauða niður í tutt- ugu af hverjum eitt þúsund lifandi fædd- um börnum í hverju landi fyrir árið 2035. Það þýðir að hægt verði að bjarga lífi 45 milljóna barna á næstu 23 árum og færa heiminn nær því endanlega markmiði að aftra því að börn deyi af orsökum sem vel mætti koma í veg fyrir. Í tilkynningu frá UNICEF kemur fram að enn látist milljónir barna undir fimm ára aldri á hverjum degi af orsökum sem hægt væri að koma í veg fyrir. Flest eru börnin í sunnanverðri Afríku og Suður-Asíu. Árið 2010 voru það 57 börnum af hverjum 1.000 lifandi fæddum. - sv Fulltrúar 80 ríkja koma saman í Washington til þess að ræða hvernig draga megi úr barnadauða: Lífi 45 milljóna verði bjargað næstu 23 árin BARNADAUÐI Enn deyja milljónir barna undir fimm ára aldri á degi hverjum af orsökum sem hægt er að koma í veg fyrir. FRÉTTABLAÐIÐ/AP LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Akureyri hafði í nógu að snúast um helgina. Þar fóru fram árlegir Bíladagar á vegum Bílaklúbbs Akureyrar. Á föstudagskvöld varð slys í svo- kallaðri drift-keppni, eða undan- rennu, þar sem ökumaður missti stjórn á bíl sínum og endaði á öryggisgirðingu og utan brautar. Áhorfendur meiddust og einn var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild. Þrír menn ruddust inn á heimili á Akureyri og lömdu húsráðanda á laugardagskvöld. Árásin tengdist einhverjum deilum á milli aðila. Húsráðandi slapp með minniháttar meiðsl. Tilkynnt var um hópslags- mál á sunnudagsmorgun í miðbæ Akureyrar. Ölvað fólk fyllti götur bæjarins þegar skemmtistaðir lok- uðu. Lögreglan tók tvo fyrir ölvun við akstur. Annar þeirra ók á staur og utan í bifreið. Lögreglan sinnti útköllum vegna hávaða frá bílaumferð alla helgina. Talsvert var um spyrnukeppnir á götum bæjarins og nokkuð um að menn spóluðu í hringi með tilheyr- andi hávaða og látum. Milli tíu og fimmtán manns voru kærðir fyrir of hraðan akstur. Flestir voru tekn- ir á þjóðveginum í Öxnadal á leið til Akureyrar. Sá sem hraðast ók var á 173 kílómetra hraða. - bþh Lögreglan á Akureyri hafði afskipti af mörgum vegna óláta á Bíladögum: Mikill erill hjá lögreglu á Bíladögum AKUREYRI Fjöldi fólks sækir Akureyrar- bæ heim í tengslum við Bíladaga. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR GRIKKLAND, AP Nýi lýðræðisflokk- urinn lýsti í gærkvöldi yfir sigri í grísku þingkosningunum sem fóru fram í gær. Antonis Samaras, leiðtogi flokksins, sagði kosninga- úrslitin sigur fyrir alla Evrópu. Samaras sagði jafnframt að Grikkir hefðu kosið að vera áfram í evrusamstarfinu og segist ætla að mynda ríkisstjórn eins fljótt og hægt er. Þegar búið var að telja um sjötíu prósent atkvæðanna í gær- kvöldi hafði Nýi lýðræðisflokkur- inn fengið 30,1 prósent atkvæða en róttæki vinstriflokkurinn Syriza 26,5 prósent. Sósíalistaflokkur- inn Pasok hafði fengið tæp þrett- án prósent. Það þýðir að enginn flokkur hafði fengið meirihluta þingsæta. Nýi lýðræðisflokkurinn og Pasok munu því reyna að mynda ríkis- stjórn, en báðir flokkarnir eru fylgjandi björgunaraðgerðum frá Evrópusambandinu og Alþjóða- gjaldeyrissjóðnum. Syriza vill hafna björgunarláni frá Alþjóða- gjaldeyrissjóðnum með þeim niður skurði og skattahækkunum sem því fylgir. Allir þessir flokkar eru þó hlynntir veru Grikklands í Evrópu- sambandinu og notkun evrunnar, en talið var að mögulega þyrfti að reka Grikki úr evrusamstarfinu höfnuðu þeir björgunaraðgerðun- um. Fylgst hefur verið náið með kosningunum í Grikklandi, sem hafa verið taldar mjög mikilvæg- ar fyrir framtíð evrunnar og sam- starfsins innan Evrópusambands- ins. Niðurstöður kosninganna í gær hafa því að líkindum róað önnur Evrópuríki og fjármálamarkaði, að minnsta kosti tímabundið. „Það verða ekki fleiri ævintýri. Staða Grikklands innan Evrópu verður ekki sett í vafa. Fórnir grísku þjóðarinnar munu koma landinu aftur í blóma,“ sagði Sam- aras. Þá sagði hann að Grikkir myndu standa við skuldbindingar sínar, sem þykir merkja að hann vilji drífa í þeim niðurskurði sem krafist er af ríkinu á þessu ári. Þjóðverjar sögðu í gærkvöldi að mögulega myndu Grikkir fá frest til þess að mæta kröfum. thorunn@frettabladid.is Reyna að mynda meirihlutastjórn Nýi lýðræðisflokkurinn og sósíalistaflokkurinn Pasok munu reyna að mynda ríkisstjórn í Grikklandi. Lýðræðisflokkurinn fékk flest atkvæði í kosningunum. Leiðtogi flokksins sagði niðurstöður kosninganna sigur fyrir alla Evrópu. ATKVÆÐI GREITT Alexis Tsipras er leiðtogi Syriza, sem verður að líkindum stærsti stjórnarandstöðuflokkurinn á gríska þinginu. Flokkur hans hlaut rúmlega 26 prósent atkvæða, en hann vildi hætta við björgunaráætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. FRÉTTABLAÐIÐ/AP KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.