Fréttablaðið - 18.06.2012, Page 10

Fréttablaðið - 18.06.2012, Page 10
18. júní 2012 MÁNUDAGUR10 Hollusta í hvelli! Gamli, góði hafragrauturinn í handhægu máli sem auðvelt er að grípa með sér hvert sem er. Þú bætir við heitu vatni og hann er tilbúinn á tveimur mínútum. 1 HRISTA 2 HELLA 3 HRÆRA 4 HINKRA 5 HRÆRA 2 E N N E M M / S ÍA / N M 5 2 3 2 3 VERSLUN Lyfjastofnun hefur ákveðið að endurskoða ákvörð- un sína um að synja umsókn um undan þágu fyrir innflutningi á hampfræjum og hamppróteindufti. Lyfjastofnun hafði hafnað umsókninni á grundvelli þess að vörurnar væru báðar afurðir kannabisplöntunnar og meðhöndl- un þeirra óheimil á Íslandi. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Samtökum verslunar og þjónustu. Samtök verslunar og þjónustu kærðu fyrri ákvörðun Lyfjastofn- unar til velferðaráðuneytisins. Kært var á þeim forsendum að sala hampfræja og hamppróteindufts væri leyfileg á erlendum mörkuð- um og á innri markaði Evrópusam- bandsins. Enn fremur væri ein- ungis um að ræða matvörur sem á engan hátt geta falið í sér eigin- leika hampplöntunnar. Vörurnar falla þannig ekki undir löggjöf um ávana- og fíkniefni. Á grundvelli þessara athuga- semda og ábendinga hefur Lyfja- stofnun ákveðið að endurskoða fyrri ákvörðun sína. Stofnunin telur ekki forsendur fyrir því að fella umræddar vörur undir ákvæði laga um fíkniefni. - bþh Samtök verslunar og þjónustu kærðu ákvörðun Lyfjastofnunar til ráðuneytis: Leyft að selja afurðir kannabisplöntu SKYLDAR PLÖNTUR Hampfræ og hamppróteinduft eru vörur unnar úr kannabisplöntunni. UMHVERFISMÁL Ný lög um umhverfisábyrgð voru nýverið samþykkt á Alþingi. Með lögunum er greiðsluregla umhverfisréttarins, eða mengunarbótareglan svokallaða, inn- leidd í íslenskan rétt. Þetta er sú meginregla að sá sem veldur mengun bæti umhverfistjón sem af henni hlýst og beri kostnað af því. Lögin fela í sér innleiðingu á tilskipun Evrópusambandsins sem íslenska ríkinu ber skylda til að innleiða vegna EES-samningsins. Með lögunum er í fyrsta skipti settar hér á landi reglur um skyldur rekstraraðila sem ábyrgð bera á umhverfistjóni sem hlýst af starfsemi þeirra. Lögin gilda um umhverfis tjón sem hlýst af ýmissi leyfisskyldri atvinnustarfsemi sem og yfirvofandi hættu á umhverfistjóni af hennar völdum. Gildir ábyrgð slíkra rekstr- araðila óháð því hvort um gáleysi eða ásetning er að ræða. Að auki gilda lögin um umhverfistjón á vernduðum tegundum og náttúruverndar- svæðum og yfirvofandi hættu á slíku tjóni sem rekja má til annarrar atvinnustarfsemi en þeirrar sem er leyfis- skyld, hvort sem það hlýst af ásetningi eða gáleysi. Umhverfisstofnun fer með stjórnsýslu og eftirlit laganna. - shá Skyldur rekstraraðila vegna umhverfistjóns teknar inn í íslenskan rétt: Mengunarbótareglan innleidd FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT | 512 5100 | STOD2.IS Í kvöld á Stöð 2 KANADA Einn lést og þrír slösuðust þegar svið hrundi fyrir tónleika með hljómsveitinni Radiohead í Toronto í Kanada á laugardag. Sviðið hrundi um klukkustund áður en svæðið var opnað gestum. Strax varð ljóst að fólk hefði orðið undir og kallað á aðstoð. Sá sem lést var karlmaður á fertugsaldri, en ekki voru gefnar nánari upp- lýsingar um hann. Einn hinna slösuðu er alvarlega meiddur. Fjörutíu þúsund manns áttu miða á tónleikana, sem var aflýst vegna slyssins. - þeb Hætt við tónleika Radiohead: Einn lést þegar sviðið hrundi 1. Hvað heitir nýi tölvuleikurinn sem von er á frá CCP? 2. Í hvaða hverfi Reykjavíkur hækk- aði fasteignamat mest? 3. Hvað er merkilegt við Liu Yang? SVÖRIN 1. DUST 514. 2. Í Þingholtunum. 3. Hún er fyrsta kínverska konan sem fer út í geim. EVRÓPUMÁL Margt er líkt með aðstæðum í íslenskum landbún- aði nú og stöðu mála í Svíþjóð og Finnlandi þegar þau lönd sömdu um inngöngu í Evrópusamband- ið (ESB) á tíunda áratug síðustu aldar. Þetta segir José Manuel Silva Rodriguez, skrifstofustjóri land- búnaðarskrifstofu framkvæmda- stjórnar ESB, í viðtali við Frétta- blaðið. Silva er staddur hér landi til að kynna sér aðstæður og ræða við ráðamenn, hagsmunaaðila og bændur. Mikil áhersla hefur verið lögð á sérstöðu íslensks landbúnaðar í aðildarviðræðunum. Silva segir að sérstaða íslensks landbúnaðar sé margvísleg. „Aðstæður sem íslenskir bændur búa við, hvað varðar loftslag og landslag, eru afar sér- stæðar. Þar að auki er innlendur markaður lítill, landið afskekkt og einangrað og svo er það að öllu leyti norðan við 62. breiddar- gráðu.“ Þ a r v í s a r Silva til sér- lausnar sem S v í þj ó ð o g Finnland fengu á sínum tíma og felst í því að ríkjunum er heimilt að veita sérstaka styrki vegna heimskauta- landbúnaðar, landbúnaðar norðan við 62. breiddargráðu. Þeir styrk- ir geta numið allt að 35 prósentum umfram það sem öðrum aðildar- ríkjum er heimilt. Silva tekur þó ekki svo djúpt í árinni að segja að þær lausnir megi yfirfæra á Ísland í yfirstand- andi viðræðum. „Hverjar aðildarviðræður eru einstakar þar sem reynt er að ná sátt milli þarfa ESB og umsóknar- ríkisins. Þegar samningaviðræð- ur hefjast um landbúnaðarmál verða kröfur Íslands skoðaðar í grunninn. En þar sem við sjáum margar hliðstæður milli Finn- lands, Svíþjóðar og Íslands, verða niður stöður fyrri viðræðna okkur örugglega innblástur í viðræðun- um við Ísland.“ Vonir hafa staðið til þess að allir samningskaflar verði opnaðir fyrir árslok, og hefur Stefan Füle, stækkunarstjóri ESB, meðal ann- ars látið þau orð falla. Silva segir hins vegar erfitt að spá um slíkt. „Undirbúningurinn gengur vel og það myndi senda afar jákvæð skilaboð, en ýmsu er enn ólokið bæði hjá Íslandi og ESB. Það er því ómögulegt að segja nákvæm- lega fyrir um hvenær viðræður gætu hafist.“ Ríkjaráðstefna milli Íslands og ESB verður haldin í Brussel í lok vikunnar þar sem gera má ráð fyrir að fleiri samningskaflar verði opnaðir. thorgils@frettabladid.is Viðræður við Svía og Finna verði innblástur Skrifstofustjóri landbúnaðarmála hjá ESB segir sérstöðu Íslands liggja á mörg- um sviðum. Margar hliðstæður séu við aðstæður sem Svíar og Finnar fengu sér- lausnir út á á sínum tíma. Erfitt að segja hvenær landbúnaðarviðræður hefjast. JOSÉ MANUEL SILVA RODRIGUEZ HEFÐBUNDINN LANDBÚNAÐUR José Manuel Silva Rodriguez, skrifstofustjóri landbúnaðarmála hjá framkvæmdastjórn ESB, segir að sérstaða íslensks landbúnaðar sé margþætt og að vissu leyti hliðstæð við Finnland og Svíþjóð á sínum tíma. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.