Fréttablaðið - 18.06.2012, Page 13

Fréttablaðið - 18.06.2012, Page 13
MÁNUDAGUR 18. júní 2012 13 Blaðamaður DV, Baldur Eiríksson, náði viðtali við Ármann Kr. Ólafsson, bæjar- stjóra í Kópavogi, í síðustu viku. Þar segir leiðtoginn að 23 pró- senta launahækkun bæjarfull- trúa hafi ekki verið launahækk- un heldur „leiðrétting“. Hann segir líka að sú eina og hálfa milljón á mánuði sem honum hefur tekist að hala sjálfan sig upp í hljóti að vera eðlileg laun „miðað við aðra í sambærilegum stöðum“. Ekki vitum við hverja hann ber sig saman við en mann grunar ýmislegt. Síðan reisir Ármann Kr. Ólafs- son sér eftirfarandi bautastein í íslenskri stjórnmálasögu: „Við skárum niður allskon- ar lúxus, sameinuðum skóla til dæmis og hagræddum á ýmsan hátt – ég man þetta ekki alveg akkúrat núna enda á leiðinni í flug.“ Stiglækkandi hækkun Hann er á leiðinni í flug. Nokkr- um dögum síðar fékk Ármann svo einhverja hroðalegustu útreið sem íslenskur stjórnmála- maður hefur fengið í seinni tíð í grein sem rituð var af Skafta Halldórssyni, kennara í Kópa- vogi. Skafti hefur staðið í eldlín- unni við að sameina skóla (lúx- usinn) á þeim kjörum sem við vitum að íslenskir stjórnmála- menn á borð við Ármann Kr. telja sér sæma að bjóða kenn- urum upp á og hann útskýrði í grein sinni þá ómældu vinnu og erfiði sem það hefur kostað starfsfólk skólanna að fram- fylgja hagræðingardyntum stjórnmálamannanna og krafð- ist þess í kjölfarið að laun sín yrðu „leiðrétt“ til samræmis við hið aukna álag. Kannski hefur einhver talað við Ármann. Kannski áttaði hann sig sjálfur á því að þetta hljómaði ekki alveg nógu vel hjá honum – ekki einu sinni þó að hann væri á leið í flug. Því að síðan hefur bæjarstjórinn skrifað grein eftir grein þar sem launahækkunin – eða leiðrétt- ingin – fer hríðlækkandi dag frá degi; úr 23 prósentum niður í sex og hálft fyrst og var í síð- ustu grein hans komin niður í þrjú og hálft prósent og verður í næstu grein sjálfsagt orðið að launalækkun. Við það situr. Hann er á leið- inni í flug. Sjálfstæðisflokkur- inn mælist með meira fylgi en nokkru sinni. Við síðustu kosn- ingar gerðu Kópavogsbúar að vísu tilraun til að hafna Sjálf- stæðisflokknum og allri þeirri ógnarmiklu steypu sem þeim flokki fylgir í allri merkingu. Allt kom fyrir ekki: vinstri flokkarnir linntu ekki látum fyrr en þeir höfðu komið Sjálf- stæðismönnum til valda á ný. Þannig er það reyndar ekki á landsvísu. Og það sem meira er. Aldrei í lýðveldissögunni hefur Sjálfstæðisflokkurinn og hliðar- flokkur hans Framsóknarflokk- urinn verið lengur utan stjórnar. Og ýmsir teknir að ókyrrast. En fylgi þeirra meðal almenn- ings virðist fara sívaxandi enda fylgja nú loforð um iPad hverj- um þeim sem tileinkar sér dag- lega Íslandssöguskrif Morgun- blaðsins. Allt bendir til þess að flokkurinn sé á leið í flug. Við sjáum eitthvert nýtt sjálfsöryggi í framgöngu liðsodda flokksins. Sérlegir talsmenn Sjálfstæðis- manna í fjármálasiðferði, þeir Guðlaugur Þór Þórðarson og Bjarni Benediktsson, koma hvað eftir annað í ræðustól Alþingis sárhneykslaðir og veifandi hönd- um eins og menn með málstað, til þess að lýsa yfir vandlætingu sinni út af framgöngu stjórn- valda í peningamálum. Allir láta eins og það sé eðlilegt. Guðlaug- ur Þór hafði á sínum tíma milli- göngu um svimandi greiðslur flokknum til handa – og þáði sjálfur – frá FL-group og öðrum fjármálaflugfélögum. Og nú er hann á leiðinni í flug. Þeir valsa um sali Alþing- is eins og þeir stjórni þar öllu, neita að hleypa málum í atkvæðagreiðslu nema séu í samráði við LÍU (þ.e.a.s. samin og ráðið af LÍÚ). Og fulltrúar meirihlutans á Alþingi virðast ekki hafa í sér einurð til þess að höggva á þennan hnút og beita heimildum sem til eru til þess að knýja fram atkvæðagreiðslu. Fljúgum hærra Þetta var annars ekki góð vika fyrir flokkinn. Úr Keflavík tóku að berast hryllingssögur af því hvernig pótintátar flokks- ins sölsuðu undir sig Sparisjóð Keflavíkur og notuðu til ævin- týralegrar fyrirgreiðslu fyrir sig og sína. Það var ekki í tómarúmi. Eftir langvarandi valdatíð Sjálfstæð- isflokksins var svo komið að menn voru metnir af því hversu röskir þeir væru að krækja sér í fé – hvernig sem að því var farið, hvaðan sem það kom. Hug- myndafræðin bak við sparisjóð- ina var dæmd dauð og úrelt – fé án hirðis, kallaði Pétur Blöndal það og hvatti um leið hirðana til að slátra fénu, steikja það á teini og éta sjálfir. Þetta var hugmyndafræði auðhyggju, sérgæsku, ofstopa, kæruleys- is, hömluleysis, sjálfumgleði, græðgi, tillitsleysis, frekju og hroka. Hún smitaði marga og augljóslega strákana í Flokkn- um í Keflavík. Hún var ekki síst ríkjandi þessi hugmyndafræði vegna þess að hún átti sér öfluga útbreiðslumeistara í æðstu emb- ættum þjóðarinnar sem gáfu henni lögmæti og réttlætingu. Og hún er á leiðinni í flug. Hitt hvort af þessu flugi verður er svo aftur undir okkur sjálfum komið. Vinstri flokkarnir linntu ekki látum fyrr en þeir höfðu komið Sjálfstæðismönnum til valda á ný. Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur Í DAG Á leiðinni í flug AF NETINUÆviráðinn forseti Smám saman kemst mynd á baráttuna. Forsetaefnin hafa fengið meiri kynningu, einkum hjá Ríkisútvarpinu. Skoðanakannanir eru ekki eins fjarri veruleikanum og hingað til hefur verið. Ólafur Ragnar Grímsson hefur sótt fram og virðist munu ná endurkjöri. Kynning forsetaefna hefur ekki lyft neinu hinna nýju og gerir varla úr þessu. Við sætum því bara, að vangefnir kjósendur telja fæst forsetaefnin nógu sterk. Sennilega sitjum við uppi með gamlan forseta gamla og spillta Íslands næstu fjögur árin. Að minnsta kosti, ef ekki ævilangt. jonas.is Jónas Kristjánsson Ágrip af sögu hátíðar- halda 17. júní Ég sé að víða í bæjum landsins er slegið upp böllum eða tónleikum. Kannski er ráð að fara í Hafnarfjörð eða á Akranes. Það er sagt að nóg sé að hafa Gay Pride og menn- ingarnótt, en með fullri virðingu þá eru þetta ekki þjóhátíðardagar Íslendinga. Reyndar er það svo undanfarin ár að sautjándi júní hefur verið dæmi um prúðmann- lega framkomu meðan menn- ingarnótt virðist alltaf leysast upp í allsherjar drykkju og svínaríi. Þetta þurfa ekki að vera stór- tónleikar – slíkar samkomur eru ofmetnar. Ég man að þegar ég var strákur voru oftastnær þrjú böll í bænum á sautjándanum. Á einu spilaði vinsæl rokkhljómsveit fyrir unga fólkið, svo var annað þar sem harmonikkuleikur dunaði. blog.eyjan.is/silfuregils Egill Helgason

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.