Fréttablaðið - 18.06.2012, Síða 37

Fréttablaðið - 18.06.2012, Síða 37
MÁNUDAGUR 18. júní 2012 17 Þökkum stuðninginn V E R K E F N I S S T J Ó R N S Ö F N U N A R I N N A R H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA / L JÓ S M . R A G N A R T H . Fyrirtæki sem lögðu fram fé til söfnunarinnar: 365-miðlar Advania AFL-sparisjóður Alcan á Íslandi Alcoa Fjarðaál Arion banki Bergur-Huginn Bónus Brauðgerð Kr Jónssonar & Co Brim Eggert Kristjánsson Eimskip Ísland Eskja Eyrir Invest Félag eyfirskra kúabænda Flugleiðahótel Fóðurblandan Gjögur Guðmundur Runólfsson Gullberg Hraðfrystihús Hellissands Hraðfrystihúsið Gunnvör Hvalur Hvíta húsið Höldur Icelandair Group Ísfélag Vestmannaeyja Íslandsbanki Íslandspóstur JÁVERK Kaupfélag Skagfirðinga KEA Kjarnafæði Kornax Landsnet Loðnuvinnslan, Fáskrúðsfirði Marel Iceland Mjólkurfélag Reykjavíkur Mjólkursamsalan N1 Norðlenska matborðið Norvík Oddi Olíudreifing Olíuverslun Íslands Rammi Rarik Reitir fasteignafélag SAH Afurðir Samherji Samkaup Samskip Samtök atvinnulífsins Samtök afurðastöðva í mjólkuriðnaði Síldarvinnslan Skinney – Þinganes Sláturfélag Suðurlands Suðurverk VB landbúnaður Veritas Capital Vinnslustöðin Vífilfell Þorbjörn Ögurvík Ölgerðin Egill Skallagrímsson Auk ofangreindra fyrirtækja lögðu eftirtaldir einstaklingar fram fé til söfnunarinnar: Dagmar Kristín Hannesdóttir Eiríkur Jónsson Elsa Sveinsdóttir Guðjón Snæfeld Magnússon Guðrún Erna Guðmundsdóttir Jón Magnússon Katrín María Magnúsdóttir Lilja Margrét Möller Oddný Rafnsdóttir Stefán Guðmundsson HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Mánudagur 18. júní 2012 ➜ Tónlist 20.00 Þýski spunatónlistarmaðurinn Christoph Schiller og hljómsveitin Fer- steinn halda tónleika í gamla Bernhöfts- bakaríi, Bergstaðastræti 14. 21.00 Jussanam og hljómsveit halda tónleika í Gamla bíói í tilefni af því að eitt ár er liðið frá því Jussanam fékk íslenskan ríkisborgararétt. Miðaverð kr. 2.500. 21.00 Tónlistarmennirnir Varði, Deborah Charles og Grímaldin skemmta á Café Rosenberg. 21.00 Jussanam Trio spilar brasilískan djass á Radisson 1919. Aðgangseyrir er kr. 1.500. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is og einnig er hægt að skrá þá inni á visir.is. Tríó saxófónleikarans Ósk- ars Guðjónssonar kemur fram á næstu tónleikum djasstónleikaraðarinnar á KEX Hosteli, Skúlagötu 28, á morgun. Auk hans skipa tríóið gítarleikarinn Eðvarð Lárusson og trommuleikar- inn Matthías Hemstock. Tríóið mun meðal annars flytja eigin útsetningar á tónlist úr Dýrunum í Hálsa- skógi eftir Thorbjörn Egner. Tónleikarnir hefjast klukk- an 21 og standa í um tvær klukkustundir með hléi. Aðgangur er ókeypis. Óskar á KexinuBækur ★★★ ★★ Kattahirðir í Trékyllisvík Elísabet Jökulsdóttir Viti menn Í hjarta veraldar Á Ströndum ræður tíminn í öllu sínu veldi, sá tími sem það tekur ölduna að falla að landi, skriðuna að hrynja úr fjallinu, selinn að stinga upp kollinum, eggið að klekjast út. Tíminn sem það tekur að vakna og sofna. Tíminn frá því ég hafði verið hér síðast og tíminn þar til ég kæmi aftur. Tíminn geymdur í hjarta mínu. (bls. 15) Í bókinni Kattahirðir í Tré- kyllisvík segir af ferðalagi höfundar norður á Strandir til að gæta katta bróður síns. Inn í frásögnina flétt- ast upprifjanir frá löngu liðnum tíma, öðrum heimsóknum þangað norður, ást og einsemd, skáld- skap og skemmtilegu fólki. Bókin skiptist í fimm kafla, einn kaflinn inniheldur söguna af ferðalaginu í tíma og rúmi, hinir fjórir eru ljóð sem spretta upp úr náttúru og dýralífi, daglegu lífi á hjara veraldar, fólkinu í hreppnum, fornum ástum og leit að tilgangi. Elísabet er einna persónulegust núskrifandi höfunda á Íslandi. Það er hennar eigið líf sem hér er til umfjöllunar og engin fjöður dregin yfir það. Hún er nokkurs konar Þórbergur samtímans, kryfur sjálfa sig og líf sitt, leitar svara við eigin lífsgátu í gegnum samskipti sín við fólk og náttúru. Strandirnar eiga sérstakan stað í hjarta hennar og í einsemd kyrrðarinnar fer hún með lesandann í ferðalag um sögu sína þar í nútíð og samtíð, um leið og náttúran sjálf, fegurðin og tignin ráða lögum og lofum í textanum og lesandinn sér og finnur áhrif hennar á skáldið, sogast með inn í þennan heim sem gjarnan er sagt að sé á hjara veraldar en er kannski, eins og Elísabet bendir á, í hjarta veraldar. Ljóðin eru að mestum hluta náttúrustemningar og persónulýs- ingar. Knappar myndir sem varpað er upp eins og myndum á skjá, án orðskrúðs og málalenginga: Alda fellur að alda fellur frá í huganum öldurót. (Á göngu bls. 42) Kattahirðir í Trékyllisvík er án nokkurs vafa besta bók Elísabetar. Einlægur og hófstilltur texti þar sem undir krauma ástríður, von- brigði og gamlar sorgir en um leið nýr þroski, sátt og sú fullvissa að lífið sé harla gott, þrátt fyrir allt. Friðrika Benónýsdóttir Niðurstaða: Besta bók Elísabetar. Einlægur og fallegur texti og knöpp ljóð með sterku mynd- máli sem fara með lesandann í ferðalag inn í hjarta veraldar. Þorgerður Ingólfsdóttir kórstjóri var útnefnd Borgarlistarmaður ársins 2012 við nokkra viðhöfn í Höfða í gær. Jón Gnarr borgarstjóri veitti Þorgerði af þessu tilefni ágrafinn stein, heiðurs- skjal og viðurkenningarfé. Menningar- og ferðamálaráð útnefn- ir ár hvert borgarlistamann Reykja- víkur. Við athöfnina söng Hamra- hlíðarkórinn undir stjórn Þorgerðar í Höfða. Í greinargerð fyrir valinu segir að Þorgerður hafi unnið ómetanlegt frumkvöðlastarf í tónlistar- og menn- ingaruppeldi fólks. Hún stofnaði kór Menntaskólans við Hamrahlíð árið 1967 og Hamrahlíðarkórinn árið 1982. Heiðruð fyrir ómetanlegt starf ÚR HENDI BORGARSTJÓRA Jón Gnarr afhenti Þorgerði Ingólfsdóttur viðurkenn- ingar fyrir ómetanlegt starf hennar. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.