Fréttablaðið - 18.06.2012, Síða 40

Fréttablaðið - 18.06.2012, Síða 40
18. júní 2012 MÁNUDAGUR20 sport@frettabladid.is SUND Aðeins fjórir íslenskir sund- menn eru öruggir með þátttöku- rétt á Ólympíuleikunum í Lund- únum í sumar, þar af aðeins tveir í einstaklingsgreinum. Afar lík- legt er að fjölga muni í hópnum í næsta mánuði, þegar Alþjóðasund- sambandið, FINA, gefur út hvaða sundmenn sem hafa náð OST-lág- mörkum (gömlu B-lágmörkin) fá boð um að keppa á leikunum. Ein þeirra sem bíður nú og vonar eftir boði er skriðsunds- konan Ragnheiður Ragnarsdóttir. Hún stefndi að því að ná svoköll- uðu OQT-lágmarki, sem er það eina sem tryggir sund- mönnum öruggan þátt- tökurétt á leikunum í sumar, í bæði 50 og 100 m skriðsundi en tókst ekki. Í raun var hún talsvert frá lágmarkinu á þeim mótum sem hún keppti á á vormánuðum. „Ég stefndi að því að synda vel á EM í maí en ég þurfti að glíma við veikindi og það tókst því ekki alveg eins og ætlað var. Ég varð því að treysta á tímana sem ég náði í desember og verð að vona að það dugi til,“ segir Ragnheiður í sam- tali við Fréttablaðið. Bíð bara og vona Það er mikil og hörð samkeppni í styttri vegalengdum í skriðsund- inu og alls ekki víst að tímarnir dugi Ragnheiði til. En hún er sjálf bjartsýn. „Fyrstu tölur koma í vikunni og þá fáum við betri hug- mynd um mína stöðu. En ég er mjög bjartsýn. Það er ekki eins og einhver hefði dáið en margir hafa talað þannig við mig,“ segir hún og bætir við: „Ég hef verið óheppin með heils- una í ár. Fyrst fékk ég lungnabólgu og svo veiktist ég á EM sem gerði það að verkum að ég varð algjör- lega orkulaus. En ef maður ætlar að hengja allar sínar tilfinningar á þetta þá er kannski ekki mikið annað eftir. Ég er ákveðin og bjart- sýn – bíð bara og vona og tek svo því sem að höndum ber.“ Ragnheiður keppti svo á Mare Nostrum-mótaröðinni í upphafi mánaðarins eins og margir aðrir íslenskir sundmenn. En engum þeirra tókst að ná OQT-lágmarki þar. „Ég leit á Mare Nostrum eins og æfingu fyrir mig. Ég vissi að ég myndi ekki gera neitt þar, enda búin að vera veik og orkulítil. En ég náði að æfa vel þar og er nú byrjuð að æfa hér heima eins og að ég sé að fara á leikana – að minnsta kosti þangað til annað kemur í ljós.“ Orðin langþreytt en ekki hætt Ragnheiður er 28 ára gömul og segist hafa ætlað sér að taka sér frí frá sundíþróttinni eftir Ólympíuleikana en að hún sé þó ekki hætt. „Ég er orðin þreytt eins og flestir að þeim íþróttamönnum sem hafa verið lengi að. Þessi langþreyta hafði örugg- lega sitt að segja varð- andi veikindi mín. En mér finnst enn svo gaman að synda og á erf- itt með að ímynda mér að segja algjörlega skilið við íþróttina. Ég er í sprettsundi og þarf því ekki mikinn tíma til að koma mér aftur í gang, ef ég held mér í góðu formi. Það væri því ekkert því til fyrir- stöðu að keppa aftur eftir tvö, þrjú eða fjögur ár.“ Ólympíuleikarnir verða settir föstudaginn 27. júlí næstkomandi og hefst keppni í sundi degi síðar. Keppt verður á hverjum degi í alls átta daga. eirikur@frettabladid.is HELGA MARGRÉT ÞORSTEINSDÓTTIR var töluvert frá sínum besta á Norðurlandamóti unglinga í sjöþraut í Sandnes í Noregi um helgina. Helga Margrét hlaut 5.645 stig en á best 5.878 stig. Helga Margrét er í kapphlaupi við tímann til að ná lágmarki fyrir Ólympíuleikana í London. Lágmarkið er 5.950 stig en síðasti dagur til að ná því er 8. júlí. Ef maður ætlar að hengja allar sínar tilfinn- ingar á þetta þá er kannski ekki mikið annað eftir. RAGNHEIÐUR RAGNARSDÓTTIR SUNDKONA ÚR KR Allt um leiki helgarinnar er að fi nna á 0-1 Atli Viðar Björnsson (28.), 0-2 Guðjón Árni Antoníusson (63.), 0-3 Hólmar Örn Rúnarsson (69.), 1-3 Guðmundur Steinars- son, víti (71.), 1-4 Atli Guðnason (86.), 2-4 Arnór Ingvi Traustason (92.) Skot (á mark): 12-11 (6-7) Varin skot: Ómar 1 - Gunnleifur 4 KEFLAVÍK (4-3-3): Ómar Jóhannsson 4 – Magnús Þór Magnússon 5, Haraldur Freyr Guðmundsson 6, Gregor Mohar 4, Jóhann Benediktsson 5 – Arnór Traustason 7, Einar Orri Einarsson 5, Frans Elvarsson 6 – Jóhann B. Guðmundsson 5 (84., Bojan Ljubicic -), Guðmundur Steinarsson 6 (77., Ísak Þórðarson), Hilmar Eiðsson 4 (77., Magnús Þorsteinsson -). FH (4-3-3): Gunnleifur Gunnleifsson 6 – Guðjón Antoníusson 7, Guðmann Þórisson 7, Brynjar Guðmundsson 7, Danny Thomas 6 – Bjarki Gunn- laugsson 6, Pétur Viðarsson 7, Hólmar Örn Rúnars- son 8 (75., Emil Pálsson -) – Ólafur Páll Snorrason 7 (82., Albert B. Ingason), Atli Guðnason 8*, Atli V. Björnsson 7 (86., Jón Ragnar Jónsson -). Nettó-völlur, áhorf.: 995 Gunnar Jarl Jónsson (6) 2-4 Ekki eins og einhver hefði dáið Ragnheiður Ragnarsdóttir er bjartsýn á að komast inn á Ólympíuleikana í Lundúnum þó svo að hún hafi verið talsvert frá sínu besta á vormánuðunum. Hún æfir nú eins og að hún sé á leið á leikana í sumar. VONGÓÐ Ragnheiður Ragnarsdóttir æfir nú eins og að hún sé að fara á leikana í Lundúnum í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Fjórar íslenskar sundkonur eru öruggar með þátttökurétt á Ólympíuleik- unum í sumar. Þar af hafa Eygló Ósk Gústafsdóttir og Sarah Blake Bateman tryggt sig inn í sínum einstaklingsgreinum en þær eru einnig í boðssunds- sveitinni sem tókst að komast inn í 4x100 m fjórsund. Hrafnhildur Lúthersdóttir er líka í sveitinni og nánast öruggt að hún komist inn í 200 m bringusund og á hún einnig góðan möguleika í 100 m bringusundi, enda tímar hennar í greinunum rétt utan við OQT-lágmörkin. Eva Hannesar- dóttir, skriðsundskonan í boðsundinu, á hins vegar minni möguleika í sínum greinum og þá er nánast útilokað að Erla Dögg Haraldsdóttir komist inn. Enginn karl hefur náð OQT-lágmarki fyrir leikana. En Jakob Jóhann Sveinsson (100 m bringusund) og Anton Sveinn McKee (1500 m skriðsund) hafa komist næst því og eiga að sögn Harðar Oddfríðarsonar, formanns Sundsambands Íslands, fína möguleika á sæti á leikunum. Árni Már Árnason kemur einnig til greina en á minni möguleika, þrátt fyrir ágætan tíma í 50 m skriðsundi. Líklegasta niðurstaðan er að 5-7 íslenskir sundmenn verði á Ólympíuleikunum í sumar. Jakob og Anton komast líklega inn 1-0 Rafn Andri Haraldsson (75.), 2-0 Guð- mundur Pétursson (93.). Skot (á mark): 10-7 (7-2) Varin skot: Ingvar 2 - Óskar 4 BREIÐABLIK (4-3-3): Ingvar Þór Kale 6 – Gísli Páll Helgason 5, Sverrir Ingi Ingason 5, Renee Troost 5, Kristinn Jónsson 6 – Finnur Orri Margeirsson 7, Andri Rafn Yeoman 6, Olgeir Sigurgeirsson 4 (75. Rafn Andri Haraldsson -) – Haukur Baldvinsson 4 (87. Jökull Elísabetarson -), Petar Rnkovic 5, Árni Vilhjálmsson 4 (60., Guðmundur Pétursson 8*). GRINDAVÍK (5-4-1): Óskar Pétursson 4 – Matthías Örn Friðriksson 4 (46. Paul MacShane 3), Loic Ondo 4, Ólafur Örn Bjarnason 7, Mikael Edlund 5, Ray Anthony Jónsson 5 – Marko Valdimar Stefáns- son 5, Alex Freyr Hilmarsson 4 (88. Scott Ramsay -), Óli Baldur Bjarnason 5 (56. Pape Faye 4), Alexander Magnússon 5 – Tomi Ameobi 5. Kópavogsvöllur, áhorf.: 456 Vilhjálmur Þórarinss. (7) 2-0 1-0 Kjartan Henry Finnbogason, víti (29.), 1-1 Viðar Örn Kjartansson (40.), 2-1 Haukur Heiðar Hauksson (58.), 3-1 Baldur Sigurðs- son (88.) Skot (á mark): 11-11 (5-6) Varin skot: Hannes Þór 4 - Ismet Duracak 2 KR (4-3-3): Hannes Þór Halldórsson 7 – Haukur Heiðar Hauksson 7, Grétar Sigfi nnur Sigurðsson 6, Rhys Weston 6 (46., Egill Jónsson 6), Guðmundur Reynir Gunnarsson 6, – Bjarni Guðjónsson 6, Atli Sigurjónsson 7*, (65., Baldur Sigurðsson 7), Viktor Bjarki Arnarsson 5 – Þorsteinn Már Ragnars- son 7 (90., Emil Atlason -), Óskar Örn Hauksson 7, Kjartan Henry Finnbogason 6. SELFOSS (4-3-3): Ismet Duracak 5 – Ivar Skjerve 5, Stefán Ragnar Guðlaugsson 6, Endre Ove Brenne 5, Robert Sandnes 6 – Babacarr Sarr 6, Jon Andre Royrane 5 (87., Abdoulaye Ndiaye), Moustapha Cisse 4 (76. Ólafur Karl Finsen -) – Tómas Leifsson 5 (65., Joe Tillen 5), Jón Daði Böðvarsson 5, Viðar Örn Kjartansson 7. KR-völlur, áhorf.: 999 Þorvaldur Árnason (6) 3-1 EM 2012 í fótbolta: A-RIÐILL Grikkland - Rússland 1-0 1-0 Giorgios Karagounis (45+.) Tékkland - Pólland 1-0 1-0 Petr Jirácek (72.) LOKASTAÐAN 1. Tékkland 3 2 0 1 4-5 6 2. Grikkland 3 1 1 1 3-3 4 3. Rússland 3 1 1 1 5-3 4 4. Pólland 3 0 2 1 2-3 2 B-RIÐILL Portúgal - Holland 2-1 0-1 Rafael van der Vaart (11.), 1-1 Cristiano Ronaldo (28.), 2-1 Cristiano Ronaldo (74.) Danmörk - Þýskaland 1-2 0-1 Lukas Podolski (19.), 1-1 Michael Krohn-Dehli (24.), 1-2 Lars Bender (80.) LOKASTAÐAN 1. Þýskaland 3 3 0 0 5-2 9 2. Portúgal 3 2 0 1 4-3 6 3. Danmörk 3 1 0 2 4-5 3 4. Holland 3 0 0 3 1-4 0 Undankeppni HM 2013: Pólland - Litháen 26-22 Pólland vann samanlagt, 50-39. Tékkland - Rússland 27-31 Rússland vann samanlagt, 54-49. Portúgal - Slóvenía 26-27 Slóvenía vann samanlagt, 58-52. Hvíta-Rússland - Slóvakía 24-25 Hvíta-Rússland vann samanlagt, 50-49. Austurríki - Makedónía 30-27 Makedónía vann samanlagt, 53-51. Noregur - Ungverjaland 31-27 Ungverjaland vann samanlagt, 54-52. Bosnía og Hersegóvína - Þýskaland 33-24 Þýskaland vann samanlagt, 60-57. Svartfjallaland - Svíþjóð 20-18 Svartfjallaland vann samanlagt, 41-40. Pepsi-deild karla FH 7 5 1 1 18-5 16 KR 7 5 1 1 15-9 16 ÍA 7 4 2 1 11-11 14 Stjarnan 7 3 3 1 14-12 12 Breiðablik 7 3 1 3 5-6 10 Valur 7 3 0 4 11-9 9 Fylkir 7 2 3 2 8-14 9 ÍBV 7 2 2 3 12-8 8 Keflavík 7 2 1 4 10-13 7 Selfoss 7 2 1 4 9-13 7 Fram 7 2 0 5 7-10 6 Grindavík 7 0 3 4 10-20 3 Undankeppni HM: Holland - Ísland 24-32 Mörk Íslands: Alexander Petersson 5, Kári Kristján Kristjánsson 5, Ólafur Gústafsson 5, Ólafur Bjarki Ragnarsson 4, Ólafur Stefánsson 4, Bjarki Már Elísson 4, Snorri Steinn Guðjónsson 2, Þórir Ólafs- son 2, Vignir Svavarsson 1. Varin skot: Björgvin Gústavsson 13. Hreiðar Levý Guðmundsson 4. ÚRSLIT HANDBOLTI Íslenska karlalandslið- ið í handbolta lagði Hollendinga að velli með átta marka mun ytra á laugardaginn. Ísland vann leikina tvo með 22 marka mun samanlagt og tryggði sér farseðilinn á heims- meistaramótið á Spáni í janúar. „Þetta var dálítið svipað og í fyrri leiknum. Þeir komust í 3-0 og við skoruðum okkar fyrsta mark ekki fyrr en eftir sjö mínút- ur. Þeir voru fastir fyrir í vörninni og markvörðurinn varði vel,“ segir Óskar Bjarni Óskarsson, aðstoðar- landsliðsþjálfari Íslands. Íslenska liðið leiddi með þremur mörkum í hálfleik 15-12 og landaði öruggum átta marka sigri 32-24. „Þetta var ágætis leikur og við kláruðum þetta með sóma. Hol- lendingarnir börðust og við feng- um góðan leik í undirbúningnum fyrir Ólympíuleikana,“ segir Óskar Bjarni. Koma saman í byrjun júlí Íslensku landsliðsmennirnir fá nú frí út mánuðinn en liðið hefur æft tvisvar á dag undanfarnar tvær vikur. „Nú fer hver í sína áttina en með æfingaáætlun frá Guðmundi. Svo hittumst við í byrjun júlí og þá byrjar ballið,“ segir Óskar Bjarni. Íslenska liðið mun æfa tvisv- ar á dag í júlí auk þess að spila á æfingamóti í Frakklandi um miðjan mánuðinn. Útlit er fyrir að Argent- ínumenn komi í heimsókn og spili tvo leiki skömmu fyrir brottför til London þann 25. júlí. Aðeins fimm- tán menn verða í Ólympíuhópnum og segir Óskar Bjarni ljóst að góðir menn muni sitja eftir með sárt ennið. „Sautján leikmenn hafa farið á önnur stórmót þannig að það verð- ur krefjandi en skemmtilegt verk- efni hjá strákunum að komast í fimmtán manna hópinn,“ segir Óskar Bjarni. Allir leikmenn Íslands komu við sögu í leiknum gegn Hollandi. Óskar Bjarki segir Ólaf Bjarka Ragnarsson og Ólaf Gústafsson hafa nýtt tækifærið sérstaklega vel. Nafnarnir leystu Arnór Atlason og Aron Pálmarsson, sem glíma við meiðsli, af hólmi á vinstri vængn- um í sókninni. Noregur og Svíþjóð úr leik Úrslit úr öðrum leikjum í undan- keppninni má sjá hér hægra megin á síðunni. Þjóðverjar sluppu með skrekkinn gegn Bosníu og Hersegó- vínu. Norðmenn og Svíar töpuðu og verða ekki með á Spáni. - ktd Íslenska karlalandsliðið í handknattleik lagði Hollendinga ytra um helgina: Farseðillinn til Spánar tryggður KOMNIR TIL SPÁNAR „Strákarnir okkar” tryggðu sér þátttökurétt á enn einu stórmótinu um helgina. DIENER/LEENA MANHAR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.