Fréttablaðið - 29.06.2012, Blaðsíða 27
AUGLÝSING: SPORTLÍF KYNNIR
Katrín Edda Þorsteinsdóttir útskrifaðist síð-
asta laugardag með B.Sc. gráðu í vélaverk-
fræði frá Háskóla Íslands. Meðfram náminu
hefur hún lagt stund á líkamsrækt af kappi
og náð góðum árangri á skömmum tíma með
miklum æfingum og hjálp frá Pink Fit-fæðu-
bótarefnunum.
„Sportlíf styrkir mig og ég fæ öll þau fæðu-
bótarefni sem ég þarf frá þeim. Mikilvægt er
að huga vel að næringunni sem maður inn-
byrðir og Pink Fit-línan er góð til þess,“ segir
Katrín. Á rúmu einu ári hefur hún keppt á fjór-
um módel-fitness mótum. Þar á meðal var
bikarmót í nóvember 2011 þar sem hún lenti
í fyrsta sæti og Íslandsmótið í fitness í apríl
2011 þar sem hún lenti í þriðja sæti. Árang-
urinn er því ekki slæmur miðað við að ein-
ungis rúmt ár er frá því að Katrín byrjaði að
æfa fitness.
Fimleikar
Áður en Katrín byrjaði í líkamsræktinni æfði
hún fimleika, en fyrir nokkrum árum fótbrotn-
aði hún og varð að hætta. „Ég var vön stífum
æfingum í fimleikum og vantaði eitthvað til að
fylla upp í tómarúmið sem skapaðist. Líkams-
ræktin veitir mér þá útrás sem ég þarf og kom
því í stað fimleikanna.“
Æfingar
Katrín æfir alla jafna sex sinnum í viku undir
leiðsögn Konráðs Gíslasonar, einkaþjálfara í
World Class. Fyrir mót æfir hún tvisvar á dag
og verður fjöldi æfinga þá 12-13 æfingar á
viku. „Nú í sumar er ég að vinna í Heilsu-
húsinu í Kringlunni og fer í ræktina um hálf
sjö þegar ég er búin. Stundum tek ég auka-
brennsluæfingar á morgnana ef ég nenni.
Þegar ég æfi fyrir mót fer ég bæði kvölds og
morgna.“
Pink Fit og mataræði
Katrín notar Pink Fit-línuna frá Sportlífi og segir
hana afar hentuga. „Hjá Sportlífi er hægt að
fá svokallað Pink Fit-box sem inniheldur 21
skammt af Ultra Loss Shake, Eat Control-töfl-
urnar, Active Fat Burner-brennslutöflurnar og
Pink Fit-brúsa. Ég tek til dæmis Active Fat-
burn-fitubrennslutöflurnar sem auka grunn-
brennslu líkamans. Í þeim eru L-carnitine,
króm, grænt te og koffín ásamt fleiri efnum.
Blandan er mjög fín til að minnka matarlystina,
auka brennsluna og hraða efnaskiptunum.“
Annað mikilvægt fæðubótarefni sem Katrín
tekur er Ultra Loss-prótínhristingur en einn
skammtur af honum inniheldur aðeins 99 kal-
oríur og því sérstaklega hentugur fyrir þá sem
vilja létta sig.
„Ég drekk hann alltaf á milli stóru máltíðanna
en þegar ég æfi mikið bæti ég smá aukaprótíni
út í. Hristingurinn kemur þannig í stað máltíða.
Hann inniheldur öll helstu vítamín og steinefni
auk prótíns, amínósýra og trefja sem bæta
meltinguna og gefa seddutilfinningu. Það gæti
verið erfitt í fyrstu að venja sig á að drekka
einn hristing sem millimáltíð en ætti þó ekki að
vekja svengdartilfinningu þar sem hann er full-
ur af góðri næringu. Ég gæti aldrei stundað alla
þá hreyfingu sem ég stunda án nauðsynlegr-
ar orku.“ Katrín tekur einnig Eat Control-trefja-
töflur þrisvar á dag fyrir máltíð. „Þær eru með
krómi sem jafnar blóðsykurinn. Insúlíntre-
fjarnar draga svo í sig vökva sem gerir
það að verkum að maður finnur fyrr fyrir
seddutilfinningu þegar maður borðar.“
Hvað mataræði snertir hefur Katrín ekki farið
hefðbundnar leiðir, en fyrir sex árum tók hún
ákvörðun um að hætta að borða kjöt. „Það
voru svið í kvöldmatinn heima og mér hafði
alltaf fundist óþægilegt að borða dýr og ákvað
þarna að hætta því. Ég hélt samt fiski inni og
eftir að ég byrjaði að æfa fyrir fyrsta mótið
mitt fór ég að borða kjúkling og hef haldið því
áfram. En allt rautt kjöt er enn úti.“
Vellíðan er markmiðið
Í haust fer Katrín til Þýskalands í framhalds-
nám í vélaverkfræði sem setur strik í reikn-
inginn hvað æfingar varðar. „Ég veit ekki
hvort ég hef tíma fyrir keppni. Ég hef ekki
endilega sett mér nein markmið hvað fit-
ness-keppni snertir, enda er það ekki aðal-
atriðið hjá mér. Fyrst og fremst snýst þetta
um að mér líði vel og sé líkamlega og and-
lega sátt við sjálfa mig. Eins vil ég forð-
ast öfgar en það er auðvelt að fá rang-
hugmyndir um sjálfan sig í þessu sporti. Á
keppnisdögum er fituprósentan undir 10%
og það getur verið freistandi að halda að
það sé eðlilegt ástand. Þá er mikilvægt að
gera sér grein fyrir því að raunveruleikinn
er annar.“ Katrín segir að það sem hún hafi
lært varðandi æfingar og mataræði geri
það að verkum að hún stundi nú heilbrigð-
an lífsstíl og hreyfingu.
Sjá nánar á visir.is/lifid
GÓÐUR ÁRANGUR Á STUTTUM TÍMA
Katrín Edda byrjaði að æfa fyrir sitt fyrsta fitness-mót fyrir rétt rúmu ári. Árangurinn hefur vægt til orða tekið verið ótrúlegur, en á þessum
skamma tíma hefur hún tekið þátt í fjórum mótum og varð í fyrsta sæti á bikarmótinu í módel-fitness í fyrra.
Katrín Edda mælir með Pink Fit
boxi sem inniheldur 21 skammt af
Ultra Loss Shake, Eat Control-töfl-
urnar, Active Fat Burner-brennslu-
töflurnar og Pink Fit-brúsa.
MYND/GVA