Fréttablaðið - 29.06.2012, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 29.06.2012, Blaðsíða 42
29. júní 2012 FÖSTUDAGUR26 sport@frettabladid.is DAVÍÐ JÓNSSON , frjálsíþróttamaður úr Ármanni, vann í gær til bronsverðlauna í kúluvarpi á Evrópumeistaramóti fatlaðra í frjálsum íþróttum í Stadskanaal í Hollandi með kasti upp á 11,21 metra. Áður hafði Helgi Sveinsson tryggt sér silfurverðlaun í spjótkasti og Matthildur Ylfa Þorsteins- dóttir í langstökki. Íslendingar hafa lokið keppni á mótinu og eru væntanlegir til landsins í kvöld. Bestir í 1. til 8. umferð Pepsi-deildar karla: Hér á eftir fer listi yfir þá leikmenn sem eru með hæsta meðaleinkunn hjá Fréttablaðinu í fyrstu átta umferðum Pepsi-deildar karla af þeim mönnum sem hafa fengið einkunn fyrir sex leiki eða fleiri. Hæsta meðaleink. í Pepsi-deild karla: 1. Atli Guðnason, FH 7,00 2. Rúnar Már Sigurjónsson, Valur 6,75 3. Björn Daníel Sverrisson, FH 6,71 4. Guðjón Árni Antoníusson, FH 6,63 5-7. Jóhann B. Guðmunds., Keflavík 6,50 5-7. Kennie Knak Chopart, Stjarnan 6,50 5-7. Kristinn Jónsson, Breiðablik 6,50 8. Guðmann Þórisson, FH 6,43 9-11. Óskar Örn Hauksson, KR 6,38 9-11. Babacar Sarr, Selfoss 6,38 9-11. Ármann Smári Björnsson, ÍA 6,38 12-13. Sindri Snær Jensson, Valur 6,33 12-13. Freyr Bjarnason, FH 6,33 14. Kári Ársælsson, ÍA 6,29 15-18. Bjarni Guðjónsson, KR 6,25 15-18. Haraldur F. Guðmunds., Kef. 6,25 15-18. Arnór Ingvi Traustason, Kef. 6,25 15-18. Finnur Orri Margeirs., Breiðab. 6,25 19. Garðar Jóhannsson, Stjarnan 6,17 20-24. Daníel Laxdal, Stjarnan 6,14 20-24. Christian Steen Olsen, ÍBV 6,14 20-24. Halldór Orri Björns., Stjarnan 6,14 20-24. Páll Gísli Jónsson, ÍA 6,14 20-24. Kristján Hauksson, Fram 6,14 25-27. Alexander Scholz, Stjarnan 6,13 25-27. Pétur Viðarsson, FH 6,13 25-27. Jón Daði Böðvars. Selfoss 6,13 28-38. Hannes Þór Halldórsson, KR 6,00 28-38. Atli Jóhannsson, Stjarnan 6,00 28-38. Kjartan Henry Finnbogas., KR 6,00 28-38. Viðar Örn Kjartansson, Selfoss 6,00 28-38. Ingimundur Óskars., Fylkir 6,00 28-38. Frans Elvarsson, Keflavík 6,00 28-38. Guðmundur Steinars., Keflavík 6,00 28-38. Þorsteinn Már Ragnarsson, KR 6,00 28-38. Bjarki Gunnlaugsson, FH 6,00 28-38. Haukur Páll Sigurðsson, Valur 6,00 28-38. Alexander Magnús., Grindavík 6,00 FÓTBOLTI FH-ingar eru á toppnum eftir fyrstu átta umferðir Pepsi- deildar karla og enginn á meira í því en Atli Guðnason sem hefur farið á kostum með FH-liðinu í upphafi sumars. Atli er efstur í einkunnagjöf Fréttablaðsins með 7,0 í meðaleinkunn sem er frábær frammistaða hjá þessum 27 ára gamla stærðfræðikennara. Maður leiksins í fimm leikjum Besti leikur sumarsins hjá Atla var í 8-0 stórsigrinum á FH en hann fékk þá 9 í einkunn. Atli skoraði eitt mark og lagði upp tvö í þeim leik. Atli hefur þó skarað fram úr í mun fleiri leikjum enda verið kosinn maður leiksins fimm sinnum í umferðunum átta. Atli, sem verður 28 ára gam- all í haust, var valinn besti leik- maður Íslandsmótsins 2009 þar sem hann kom að 22 mörkum FH- liðsins en það gekk ekki eins vel hjá honum síðustu sumur. Atli kom samtals að 24 mörkum FH undan farin tvö tímabil eða aðeins tveimur mörkum meira en allt sumarið 2009. Fann 2009-gírinn Atli fann hins vegar 2009-gírinn seinni hluta síðasta sumars þegar hann kom að ellefu mörkum í seinni umferðinni eftir að hafa ekki átt þátt í marki fyrstu ellefu umferðir sumarsins. Atli hefur síðan tekið upp þráðinn í sumar og hefur þegar komið að 9 mörk- um í fyrstu átta umferðunum. Atli hefur skorað þrjú mörk sjálfur en hann hefur auk þess átt sex stoð- sendingar á félaga sína í FH. Rúnar Már í öðru sæti Það eru fleiri leikmenn að spila vel þótt Atli sitji í efsta sæti ein- kunnagjafarinnar. Í öðru sæti er Valsmaðurinn Rúnar Már Sig- urjónsson sem er efstur meðal miðjumanna deildarinnar. Næstu tveir eru síðan liðsfélagar Atli í FH, Björn Daníel Lárusson og bakvörðurinn Guðjón Árni Ant- oníusson sem er efstur meðal varnar manna. Guðjón spilar í vörninni en hefur engu að síður komið með beinum hætti að sex mörkum því hann er búinn að skora fjögur mörk og gefa tvær stoðsendingar. Fjórði FH-ingurinn inn á topp tíu, Guðmann Þórisson, er síðan efstur af miðvörðum Pepsi-deildarinnar. FH er eina liðið sem á fleiri en einn leikmann meðal tíu efstu í einkunnagjöf Fréttablaðsins en Valur, Keflavík, Stjarnan, Breiða- blik, KR, ÍA og Selfoss eiga öll einn fulltrúa. Það er hægt að sjá 40 efstu menn í einkunnagjöfinni hér til hliðar. ooj@frettabladid.is Enginn betri en Atli Guðna Atli Guðnason er efstur í einkunnagjöf Fréttablaðsins eftir fyrstu átta umferðir Pepsi-deildar karla. Atli er einn af fjórum FH-ingum inni á topp tíu listanum. ATLI GUÐNASON Hefur spilað vel með FH-liðinu í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN HANDBOLTI Guðmundur Guðmunds- son landsliðsþjálfari valdi í gær þá 19 leikmenn sem munu taka þátt í undirbúningi liðsins fyrir Ólympíu- leikana sem fara fram í London í júlí og ágúst. Ísland er þar í riðli með Argentínu, Bretlandi, Frakk- landi, Svíþjóð og Túnis. Guðmundur valdi 16 útileikmenn og þrjá markmenn í æfingahópinn en hann þarf að skera hópinn niður um fjóra menn fyrir leikana því hann fer væntanlega með fimm- tán menn út eins og til Peking fyrir fjórum árum. Fjórtán menn eru leyfðir á skýrslu en ólíkt því sem var fyrir fjórum árum þá má fimmtándi leikmaðurinn nú vera með liðinu í Ólympíuþorpinu. - óój Handboltalandsliðið á ÓL: Nítján berjast um 15 sæti SILFUR Íslenska landsliðið lenti í 2. sæti í Peking 2008. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM EKTA ÍSLENSKT GRILL F ÍT O N / S ÍA Undirbúningshópurinn: Markmenn: Aron Rafn Eðvarðsson Haukar Björgvin Páll Gústavsson Magdeburg Hreiðar Leví Guðmundsson Nötteröy Aðrir leikmenn: Alexander Petersson Fuchse Berlin Arnór Atlason AG Köbenhavn Aron Pálmarsson Kiel Ásgeir Örn Hallgrímsson Hannover-Burgdorf Bjarki Már Elísson HK Guðjón Valur Sigurðsson AG Köbenhavn Ingimundur Ingimundarson Fram Kári Kristján Kristjánsson HSG Wetzlar Ólafur Gústafsson FH Ólafur Bjarki Ragnarsson HK Ólafur I. Stefánsson AG Köbenhavn Róbert Gunnarsson Rhein-Neckar Löwen Snorri Steinn Guðjónsson AG Köbenhavn Sverre Andreas Jakobsson Grosswallstadt Vignir Svavarsson Hannover-Burgdorf Þórir Ólafsson KS Vive Targi Kielce FÓTBOLTI Breiðablik tryggði sér í gær sæti í átta liða úrslitum Borgunarbikars kvenna í knatt- spyrnu eftir 9-8 sigur gegn ÍBV í Eyjum að lokinni vítaspyrnu- keppni. Staðan að loknum venjuleg- um leiktíma var 3-3 og 4-4 eftir framlengingu en auk þess fór rauða spjaldið þrisvar sinnum á loft í leiknum. „Ég hugsa að þetta sé skrýtn- asti fótboltaleikur sem ég hef tekið þátt í,” sagði Fanndís Frið- riksdóttir Bliki sem skoraði tvö mörk í leiknum en hún á ættir að rekja til Eyja. „Það er örugglega ekkert vel séð að ég fari heim með sigur en ég er kampakát með þetta,“ sagði Fanndís hlæjandi. - ktd Blikar áfram eftir vítakeppni: Markaveisla og spenna í Eyjum KÆRKOMINN BIKARSIGUR Blika- stúlkur höfðu ekki unnið bikarleik síðan sumarið 2009. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.