Fréttablaðið - 29.06.2012, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 29.06.2012, Blaðsíða 2
29. júní 2012 FÖSTUDAGUR2 SAMKEPPNI Útivist er þema fyrstu ljósmyndasamkeppni sumarsins sem Fréttablaðið efnir til meðal lesenda sinna. Þeir eru hvattir til að senda sem fjölbreytilegast- ar myndir af viðfangsefnum sem tengjast útivist með einum eða öðrum hætti. Besta myndin verður birt á for- síðu Fréttablaðsins og aðrar verð- launamyndir inni í blaðinu. Þá fær myndasmiður bestu myndar tvo flugmiða með Wow-air í verðlaun en í önnur og þriðju verðlaun eru leikhúsmiðar fyrir tvo í Borgar- leikhúsið. Skilafrestur fyrir myndirnar er miðvikudagurinn 4. júlí klukkan 12 og þær skal senda á netfangið ljosmyndasamkeppni@frettabla- did.is. Þessi keppni eru sú fyrsta í röð fjögurra sem Fréttablaðið efnir til í sumar. Þema hverrar keppni verður kynnt er nær dregur. Útivist er þema fyrstu ljósmyndasamkeppni Fréttablaðsins af fjórum í sumar: Forsíðumynd og flugmiðar með Wow-air í fyrstu verðlaun VERÐLAUNAMYND Þessi mynd bar sigur úr býtum í páskamyndasamkeppni Fréttablaðsins í apríl. MYND/HULDA RÓS HÁKONARDÓTTIR DÓMSMÁL Ellefu prófmál, sem ætlað er að skýra réttarstöðu þeirra sem hafa gengis- tryggð lán, hafa verið valin og fara fyrir hér- aðsdóm á næstunni. Frá þessu greindi Einar Hugi Bjarnason lögmaður á fundi um fjár- mögnunarsamninga, sem Samtök atvinnulífs- ins, Samtök iðnaðarins og Samtök verslunar og þjónustu héldu í gær. Einar Hugi sat í samráðshópi fjögurra lög- manna sem tilnefndir voru annars vegar af umboðsmanni skuldara og hins vegar af Sam- tökum fjármálafyrirtækja. Hópurinn greindi meðal annars þau álitaefni sem nauðsynlegt þótti að láta reyna á fyrir dómi. Þau voru 21 talsins. Þá átti hópurinn að velja mál sem þóttu hentugust til að bera undir dómstóla. Í hverju máli reynir þó aðeins á nokkur álitaefnanna. Þess vegna þurfti að velja ellefu mál; sex sem tengjast lánum einstaklinga og fimm sem tengjast málum fyrirtækja. Náðst hefur samkomulag við héraðsdóm- stóla, með hjálp innanríkisráðuneytisins, um að þessi mál fái flýtimeðferð. Tvö þeirra hafa þegar verið þingfest, og önnur verða þingfest í haust. Gert er ráð fyrir að dómur verði fall- inn í þeim öllum fyrir jól. Auk þess hefur verið rætt um að málin fái sams konar meðferð fyrir Hæstarétti. Gangi það eftir gæti endanleg niðurstaða verið komin í öll málin næsta sumar. - þeb Mál sem reyna á mismunandi álitamál vegna gengistryggðra lána til dómstóla: Ellefu prófmál fá flýtimeðferð fyrir dómi FJÖLMENNT Á FUNDI Troðfullt var á fundinum í gær- morgun, enda margir sem gengislánadómarnir snerta. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA MANNRÉTTINDI Ísland lýsir yfir óhug og þungum áhyggjum af stöðu mannréttindamála í Sýr- landi og hvetur til þess að mögu- legum kerfisbundnum brotum, sem kunni að reynast glæpir gegn mannkyni, verði vísað til Alþjóð- lega sakamáladómstólsins. Fjöldi ríkja gaf út sameigin- lega yfirlýsingu þess efnis á fundi Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna í gær og var Ísland hluti af henni, að því er segir í frétt utanríkisráðuneytisins. Tilefnið er skýrsla rannsóknarnefndar mann- réttindaráðsins um meint mann- réttindabrot í Sýrlandi, þar með talin fjöldamorðin í El-Houleh. - sh Ísland ályktar um Sýrland: Slegin óhug yfir ofbeldisverkum GRÆNLAND Gígur, sem er 600 km í þvermál og stærri en Danmörk, myndaðist á Grænlandi þegar loftsteinn, sem var þrír kílómetr- ar í þvermál, hrapaði þar fyrir þremur milljörðum ára. Þetta er niðurstaða rannsóknar danskra vísindamanna, að því er greint er frá á vef danska ríkisút- varpsins. Gígurinn er sagður sá stærsti í heimi. Loftsteinninn lenti á jörðunni með 20.000 km hraða á sekúndu. Talið er að flóðbylgjan sem fylgdi í kjölfarið kunni að hafa verið talsvert yfir 100 m að hæð, farið hringinn í kringum hnöttinn og mætt sjálfri sér. - ibs Stærsti loftsteinsgígur heims: Risagígur á Grænlandi SPURNING DAGSINS 1 1 -0 5 6 8 / H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA www.ms.is ...hvert er þitt eftirlæti? ...endilega fáið ykkur SKIPULAGSMÁL „Mér finnst að Jón Sigurðsson, okkar sameiningar- tákn, eigi að fá að vera þarna í friði,“ segir Marta Guðjónsdóttir, fulltrúi Sjálfstæðisflokks í skipu- lagsráði Reykjavíkur. Marta er and- víg því að listaverkið Svarta keilan verði á Austurvelli. Skipulagsráðið samþykkti fyrir sitt leyti á miðvikudag að „Svarta keilan, minnisvarði um borgaralega óhlýðni“ verði á hellulögðu torgi á horni Kirkjustrætis og Thorvald- sensstrætis. Verk Santiagos Sierra hefur verið á Austurvelli frá því í janúar. Sierra bauð borginni verk- ið að gjöf með því skilyrði að það yrði áfram á Austurvelli. Listasafn Reykjavíkur lagði til að gjöfin yrði þegin og menningarráð borgarinn- ar tók undir það. Hugmyndin var að Svarta keilan yrði framvegis í suðvesturhorni vallarins en ekki beint framan við Alþingishúsið. Alþingi lýsti sig hins vegar andvígt staðsetningu Svörtu keilunnar á Austur velli yfirhöfuð þar sem verk- ið spillti heildarmynd Austurvallar. Marta segir afstöðu sína byggjast á því að Austurvöllur sé sögufræg- ur staður sem hafi verið vettvangur margra stórra atburða. Þar sé ekk- ert annað en blóm, tré og gras og síðan styttan af Jóni Sigurðssyni. „Þegar styttunni var komið fyrir þar var það hugsun manna að þarna væri aðeins ein stytta og að hún yrði af Jóni Sigurðs- syni. Það er alls ekki við hæfi að við séum að koma fyrir einhverju sundrungartákni á þessum stað því Jón Sigurðsson var og er sam- einingartákn þjóðarinnar,“ segir Marta sem kveður enn fremur óásættanlegt að þiggja listaverk með skilyrðum um staðsetningu. Hafþór Yngvason, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur, segir nýja staðarvalið koma til móts við sjónar mið Alþingis. Þá tekur hann ekki undir skilgreiningu Mörtu Guðjónsdóttur á eðli listaverks- ins. „Það er ekki sundrungartákn heldur lýðræðis- tákn sem minnir á grundvallarprin- sipp lýðræðis- ins – að valdið liggur hjá fólk- inu endanlega. Þess vegna þarf það að vera nálægt þinghúsinu sem er okkar helsta tákn um lýðræði,“ segir safnstjór- inn. Marta hefur aðra sýn. „Þetta listaverk á að vera tákn um hrun- ið og búsáhaldabyltinguna en hvað var fólk að biðja um í búsáhalda- byltingunni? Það var að biðja um lýðræðisumbætur. Síðan þegar tekin er ákvörðun um staðsetningu þessa listaverks er fólkið sem bað um lýðræðisumbæturnar ekki spurt hvar verkið eigi að vera. Þá á bara að taka ákvörðunina í lokuðum bak- herbergjum.“ gar@frettabladid.is Vill ekki „tákn um sundrungu“ hjá Jóni Skipulagsráð samþykkir að Svarta keilan verði við horn Austurvallar. Santiago Sierra gefur listaverkið sem minnisvarða um borgaralega óhlýðni. Fulltrúi Sjálf- stæðisflokks segir óviðeigandi að velja sundrungartákni stað á Austurvelli. SVARTA KEILAN Ef samþykkt skipulagsráðs verður staðfest í borgarráði stendur granítverk Santiagos Sierra ekki lengur andspænis aðalinngangi Alþingis heldur verður flutt á horn Kirkjustrætis og Thorvaldsensstrætis. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR MARTA GUÐ- JÓNSDÓTTIR HAFÞÓR YNGVASON Kristján Freyr, er þér sýningin afar hugleikin? „Já, það er alveg deginum ljósara.“ Kristján Freyr Halldórsson er verslunar- stjóri Bókabúðar Máls og menningar en þar fer fram sýning á verkum Hugleiks Dagssonar. DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur ákært þrjá pólska karlmenn fyrir að flytja til landsins 8,6 kíló af amfetamíni um miðjan apríl. Mennirnir, tveir 29 ára og einn 22 ára, komu til Íslands með flugi frá Varsjá 15. apríl. Tveir þeirra komust óáreittir í gegnum toll- inn í Leifsstöð og héldu í átt til Reykjavíkur með leigubíl. Þegar fíkniefni fundust í farangri þess þriðja áttuðu yfirvöld sig þegar í stað á því að hann hefði ekki verið einn á ferð og eltu félagana tvo uppi. Þeir voru handteknir á leið inn í borgina. Í farangri hvers og eins fund- ust þrír brúsar utan af Johnson‘s- sturtusápu og tveir merktir Gillette-raksápu – alls fimm- tán pakkningar – allir fullir af amfetamíni. Fjórði maðurinn, Pólverji búsettur hér á landi, var handtekinn í kjölfarið og úrskurð- aður í gæsluvarðhald ásamt hinum þremur. Hann er ekki ákærður í málinu. Ákæran verður þingfest í Héraðs dómi Reykjavíkur í dag. - sh Stórfellt amfetamínsmygl: Smygluðu dópi í sápubrúsum BANDARÍKIN, AP Heilbrigðislöggjöf Baracks Obama Bandaríkjafor- seta og Demókrataflokksins stenst stjórnarskrá. Hæstiréttur Banda- ríkjanna dæmdi í málinu í gær. Obama sagði í gær að úrskurð- ur hæstarétt- ar væri „sigur fyrir fólk um allt landið“. Með löggjöf- inni er nánast öllum Banda- ríkjamönnum gert að hafa heil- brigðistryggingu, en annars þurfa þeir að borga sektir. Repúblikanar hafa haldið því fram að með laga- setningunni hafi þingið gengið of langt og farið út fyrir valdsvið sitt. Alls voru 26 ríki meðal þeirra sem stefndu alríkinu fyrir hæsta- rétt. Þau töldu að alríkið væri að setja íþyngjandi lög fyrir ríkin. Frá og með 2014 munu trygg- ingafyrirtæki þurfa að borga sjúkrakostnað fólks. Dómurinn klofnaði í afstöðu sinni. - þeb Hæstiréttur í Bandaríkjunum: Heilbrigðislög Obama standa BARACK OBAMA Það er ekki sundr- ungartákn heldur lýðræðistákn sem minnir á grundvallarprinsipp lýðræðis- ins – að valdið liggur hjá fólkinu endanlega. HAFÞÓR YNGVASON SAFNSTJÓRI LISTASAFNS REYKJAVÍKUR.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.