Fréttablaðið - 25.08.2012, Side 2

Fréttablaðið - 25.08.2012, Side 2
25. ágúst 2012 LAUGARDAGUR2 Marshall, óttist þið ekki að þið séuð að kasta perlum fyrir svín? „Nei, ég er sannfærður um að Reykjavik Bacon Festival verður ein af perlum Reykjavíkur og þar verður ekki svínað á neinum.“ Marshall Porter er í Beikonfélagi Iowa- ríkis í Bandaríkjunum. Félagið tók þátt í Reykjavík Bacon Festival í gær og kom færandi hendi með 50 kíló af beikoni. LÖGREGLUMÁL Til stendur að senda mál Annþórs Kristjáns Karls- sonar og Barkar Birgissonar, sem grunaðir eru um manndráp á Litla-Hrauni, til ákærumeð- ferðar hjá Ríkissaksóknara „með haustinu“, eins og það er orðað hjá lögreglunni á Selfossi sem annast rannsókn málsins. Enn er beðið eftir endanlegri niðurstöðu úr krufningu Sigurð- ar Hólm Sigurðssonar, sem fannst látinn í klefa sínum á Litla-Hrauni um miðjan maí. Bráðabirgðanið- urstaða hennar gaf til kynna að hann hefði látist af völdum áverka sem honum hefðu verið veittir af mannavöldum. Rannsóknin er í fullum gangi, að sögn Elísar Kjartanssonar hjá rannsóknardeild lögreglunnar á Selfossi. Hún hefur verið mjög umfangsmikil, tugir hafa verið yfirheyrðir, bæði úr fangelsinu og utan þess, og málskjölin fylla að hans sögn heila hillu. Skammt er síðan Héraðsdómur Suðurlands, og í kjölfarið Hæsti- réttur, féllst á að leyfa sumum vitnum í málinu að njóta nafn- leyndar þegar og ef til þess kemur að þau gefi skýrslu fyrir dómi. - sh Lögregla hefur yfirheyrt tugi vegna rannsóknar á andlátinu á Litla-Hrauni: Til ákæruvalds með haustinu ANNÞÓR KRISTJÁN KARLSSON BÖRKUR BIRGISSON STJÓRNSÝSLA Bæjarráð Kópavogs hefur hafnað rúmlega sautján millj- óna króna tilboði sem barst í ein- býlishúsalóðina Hólmaþing 7 við Elliðavatn. Hjónunum Eiði Smára Guðjohn- sen og Ragnhildi Sveinsdóttur var úthlutað lóðinni sumarið 2005 en byggðu aldrei á henni og fengu lóð- ina endurgreidda hjá Kópavogsbæ í vor. „Með vísan til þess að undir- ritaður ásamt fjölskyldu sinni hefur ekki hug á að flytja til Íslands í nálægri framtíð óska ég hér eftir því að skila lóðinni,“ segir í bréfi Eiðs Smára til Kópavogsbæjar. Hólmaþing 7 er talin einstök byggingarlóð vegna staðsetningar sinnar. Samkvæmt mati á bæjar- skrifstofunum er virði hennar 19,9 milljónir króna. Í stað þess að aug- lýsa lóðina lausa til umsóknar var ákveðið fyrr í sumar að freista þess að fá hærra verð með því að fela tveimur fasteignasölum að selja lóðina hæstbjóðanda. Á fundi framkvæmdaráðs Kópa- vogs um miðjan þennan mánuð var lagt fram ríflega sautján millj- óna króna kauptilboð í lóðina. Það var frá Birni Jakobi Björns- syni, eiginmanni Agnesar Gunn- arsdóttir. Hún er dóttir formanns framkvæmdaráðs Kópavogs, Gunnars Birgissonar, bæjarfull- trúa úr Sjálfstæðisflokki. Gunnar vék af fundi við afgreiðslu fram- kvæmdaráðs sem ákvað að hafna tilboðinu. Bæjarráð staðfesti þessa afgreiðslu síðan á fimmtudag. Guðríður Arnardóttir, oddviti Samfylkingarinnar og fulltrúi í framkvæmdaráðinu, lagði til að hætt yrði við söluna í gegnum fast- eignasölurnar tvær og lóðin aug- lýst af bænum sjálfum og óskað eftir umsóknum um hana. Síðan yrði dregið á milli umsækjenda á hefðbundinn hátt og lóðin seld á áðurnefndar 19,9 milljónir. Fram- kvæmdaráð vísaði hins vegar málinu til bæjarráðs sem ákvað, að tillögu Ómars Stefánssonar úr Framsóknarflokki, að reyna til þrautar að selja lóðina á almenn- um markaði; fá á fleiri fasteigna- sölur að málinu og auglýsa lóðina sömuleiðis á vef bæjarins. Guðríður segir eftirgrennslan hafa leitt í ljós að Hólmaþing 7 hafi ekki verið aug- lýst í dagblöðum heldur aðeins á heimasíðu Remax og ekkert af hálfu Eignaborgar sem þó miðlaði fyrr- greindu tilboði til bæjarins. „Það er mjög sérkennilegt að við séum að fela þessum fast- eignasölum að selja lóðina í þeirri von að við fáum meira fyrir hana og svo auglýsa þær hana ekki einu sinni,“ segir Guðríður. „Ég tel langt í frá fullreynt að selja lóðina,“ bókaði Ómar á bæjar- ráðsfundinum. Samkvæmt tillögu hans er fasteignasölunum gefinn frestur til 30. september að selja lóðina. Verði lóðin óseld þá verð- ur hún sett í hefðbundna úthlutun. gar@frettabladid.is Deilur um lóð sem Eiður Smári skilaði Eiður Smári Guðjohnsen skilaði einbýlishúsalóð á besta stað við Elliðavatn sem Kópavogsbær úthlutaði. Eina tilboðið sem bænum hefur borist er sagt of lágt. Það er frá tengdasyni formanns framkvæmdaráðs sem vék er málið var afgreitt. HÓLMAÞING 7 „Án efa með fallegri byggingarlóðum sem í boði eru í dag,“ segir á söluvef Remax sem kveður staðsetningu lóðarinnar Hólmaþings 7 vera „ótrúlega“. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI GUÐRÍÐUR ARNARDÓTTIR GUNNAR I. BIRGISSON EIÐUR SMÁRI GUÐJOHNSEN ATVINNUMÁL Vinna hefst að nýju um mánaðamót hjá fiskvinnslu Vísis á Þingeyri og Húsavík eftir þriggja mánaða sumarlokun. 30 manns starfa í vinnslunni á Þing- eyri en um fjörutíu á Húsavík. „Við munum reyna að vinna eins mikið og hægt er,“ segir Andrés Óskarsson, fjármálastjóri Vísis, sem er með höfuðstöðvar í Grinda- vík. Síðasta vetur var vinnsla stop- ul á Þingeyri. Vegna vinnslustöðv- unarinnar varð starfsfólk að fara á atvinnuleysisbætur í tvo mánuði en átti einn mánuð í sumarfrí. - jse Fiskvinnsla Vísis í gang: Vinnsla hefst eftir sumarhlé ÍÞRÓTTIR Yfir eitt þúsund börn eru á biðlista hjá fimleikafélaginu Gerplu í Kópavogi og munu varla komast að í vetur. Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmda- stjóri Gerplu, segir að aðsókn barna og unglinga í fimleikaiðk- un hafi stóraukist síðustu ár og húsnæðið rúmi ekki fleiri. „Við erum auðvitað hæstánægð með aukinn áhuga á íþróttinni en um leið er leiðinlegt að geta ekki tekið við öllum,“ segir Auður. Um 1.400 iðkendur eru hjá Gerplu og húsnæðið algerlega fullnýtt. Forráðamenn Gerplu hafa átt í samskiptum við Kópavogsbæ vegna húsnæðismála. - þj Mikil aðsókn í fimleika: Þúsund börn eru á biðlista FIMLEIKAFJÖR Árangur Gerplukvenna hvetur eflaust marga til að iðka fimleika, en færri komast að en vilja. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Flugdólgur í fangelsi Lögregla fjarlægði í gærmorgun mann sem hafði verið með dólgslæti í flugvél í millilandaflugi. Á Reykjavíkur- flugvelli hélt maðurinn, sem var mjög ölvaður, uppteknum hætti og fékk því að gista fangageymslur. Ágreiningur um túlkun laga Lögreglan neyddist í gær til að hand- taka karlmann sem hafði í frammi hótanir í garð lögreglumanna vegna ágreinings um túlkun umferðarlaga. Hann var staðinn að því að aka gegn einstefnu, leggja á gangstétt og aka án öryggisbeltis. Hann þvertók fyrir brotin og snöggreiddist. Hann var svo fluttur á lögreglustöð en fékk að fara heim stuttu síðar, rólegri en enn ósáttur. LÖGREGLUFRÉTTIR NEW YORK, AP Tveir féllu og níu særðust í gær eftir að maður á sextugsaldri hóf skothríð á götum New York-borgar, skammt frá Empire State-bygging- unni. Byssumaðurinn, Jeffrey Johnson að nafni, skaut Steven Ercolino, fyrrum samstarfsmann sinn, í höf- uðið og gekk burtu. Tveir lögreglumenn stöðvuðu manninn skammt frá og upphófst skothríð. Johnson féll og níu slösuðust. Michael Bloomberg, borgar- stjóri New York, sagði í ávarpi í gær að ekki væri útilokað að sumir hefðu særst af völdum lögreglu- mannanna. Sjónarvottum bar ekki saman um hvort Johnson hefði hleypt af byssu sinni á undan lögreglu, eða hvort hann hefði aðeins beint vopninu að mönnun- um. Raymond Kelly lögreglustjóri sagði hins vegar að lögregluþjónarnir hefðu ekki átt aðra valkosti. Fréttir herma að Johnson hafi verið sagt upp störfum í fyrra hjá hönnunarfyrirtækinu Hazan Imports, þar sem hann hafði unnið í sex ár. Eftir uppsögnina hafi hann borið kala til hins látna með fyrrgreindum afleiðingum. Þetta er þriðja mannskæða skotárásin í Bandaríkj- unum á stuttum tíma, en fyrir skemmstu myrti kyn- þáttahatari sex síka í Wisconsin-ríki og í júlí létust tólf eftir skotárás í kvikmyndahúsi í Colorado. - þj Tveir látnir og níu særðir eftir enn eina mannskæða skotárás í Bandaríkjunum: Voðaverk framið við Empire State BYSSUMAÐUR Í VALNUM Jeffrey Johnson skaut fyrrum sam- starfsmann sinn til bana, en féll síðar fyrir hendi lögreglu- manna. Níu borgarar særðust í skotbardaganum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SUÐUR-AFRÍKA, AP Flóðhesturinn Solly, sem hafði setið fastur í sundlaug í Limpopo í Suður-Afr- íku í þrjá daga, drapst í gær áður en björgunarsveitir gátu náð honum upp úr. Solly, sem var fjögurra vetra karldýr, hafði rambað út í sund- laugina á þriðjudag eftir að hafa verið hrakinn frá hjörð sinni. Þó flóðhestar séu syndir komst hann ekki aftur upp á bakkann. Þrautir hans vöktu mikla athygli og var meðal annars sjónvarpað frá lauginni. Þrátt fyrir að mikið hefði verið lagt í björgunaraðgerðir, örmagn- aðist Solly sem var hífður líflaus upp úr lauginni. - þj Harmleikur í sundlaug: Flóðhesturinn Solly drapst HÍFÐUR Á BROTT Dýralæknir sést hér stýra brottflutningi Solly úr sundlauginni. Dauði hans olli sorg í Suður-Afríku. FRÉTTABLAÐIÐ/AP DANMÖRK Óvíst er hvort hægt verður að saksækja þá sem ollu skemmdum á bráðamóttöku sjúkrahússins í Óðinsvéum í vik- unni þar sem slökkt var á eftir- litsmyndavélum. Hátt í sextíu manns rudd- ust inn í sjúkrahúsið í þeim til- gangi að jafna um sjúkling sem var verið að sinna vegna skot- og hnífstungusára. Þeir brutu þar allt og brömluðu og ógn- uðu starfsfólki áður en lögregla stökkti þeim á flótta. Sem stendur er einn ungur maður í gæsluvarðhaldi vegna uppákomunnar. - þj Óspektir á bráðamóttöku: Spítaladólgar gætu sloppið SPURNING DAGSINS Hver tími er 60 mínútur og kennt er tvisvar í viku á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17:30 í leikfimissal Hvassaleitisskóla. Námskeiðið er tólf vikur. Kennari er Birgitta Sveinbjörnsdóttir danskennari. Skráning er hafin á námskeiðið sem hefst þriðjudaginn 4. september. Upplýsingar og skráning í síma: 899-8669. Suðræn sveifla er skemmtileg líkamsrækt fyrir konur á öllum aldri. Námskeiðið byggist upp á mjúkri upphitun, latin dönsum eins og Cha Cha, Jive, Salsa og fl., kviðæfingum og góðri slökun.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.