Fréttablaðið - 25.08.2012, Blaðsíða 8
25. ágúst 2012 LAUGARDAGUR8
NEYTENDUR Vefnotendur geta beitt
ýmsum aðferðum til að verjast aug-
lýsingum netþrjóta sem vilja hafa
fé af grunlausum íslenskum net-
notendum. Á stærsta netsölutorgi
landsins, Bland.is, eru notendur
hvattir til að vera vakandi og nota
almenna skynsemi í viðskiptum á
vefnum eins og annars staðar.
„Bland.is er langstærsta sölu-
torg Íslands á netinu og við fullyrð-
um að það heyri til algjörra und-
antekninga að fólk reyni að villa á
sér heimildir og svíkja út peninga
og vörur,“ segir Anna María Jóns-
dóttir, þjónustustjóri Bland.is. Erf-
itt geti reynst að koma í veg fyrir
allar auglýsingar sem eru svokall-
að „spam“ eða í ætt við ruslpósta.
„Starfsfólk okkar bregst þá strax
við og tekur viðkomandi auglýsingu
út og bannar notandann.“
Fréttablaðið hefur fjallað um
erlenda tölvuþrjóta sem villa á sér
heimildir og reyna að hafa af fólki
fé. Lúmskar aðferðir þrjótanna eru
hins vegar til þess að blekkja þá
sem þekkja ekki nægilega vel til í
svona netmarkaðsviðskiptum.
Bland.is býður upp á ýmsar leiðir
fyrir notendur til að staðfesta vel-
vilja sinn eða til að tilkynna hugs-
anlega skúrka. Til dæmis er boðið
upp á hnapp við auglýsingar sem
hringir viðvörunarbjöllum vef-
stjóra. „Þannig læturðu okkur vita
ef um vafasama aðila gæti verið að
ræða og við athugum málið strax,“
segir Anna María. - bþh
Ýmsar leiðir eru fyrir netnotendur til þess að verjast netþrjótum:
Varúð skal viðhöfð á vefnum
SAMKEPPNISMÁL Áfrýjunarnefnd
samkeppnismála hefur staðfest
þá niðurstöðu Samkeppniseftir-
litsins að leggja 390 milljóna króna
stjórnvaldssekt á Símann fyrir
misnotkun á markaðsráðandi stöðu
á farsímamarkaði.
Það var Nova sem kærði Símann
fyrir að verðleggja lúkningargjöld
milli símafyrirtækja of hátt.
Í úrskurði nefndarinnar segir að
brotið teljist alvarlegt „í ljósi yfir-
burðastöðu áfrýjanda og hvernig
hann beitti henni til að láta sam-
keppnisaðila og viðskiptavini
þeirra í raun greiða fyrir að hann
gæti haft hærri framlegð úr sínum
rekstri“.
Málið teljist einnig varða mik-
ilvæga hagsmuni „og jafnframt
verður að hafa í huga að áfrýjandi
var áður í einokunarstöðu á mark-
aði og hefur ítrekað verið sektaður
fyrir misnotkun á markaðsráðandi
stöðu á grundvelli samkeppnis-
laga“.
Samkeppniseftirlitið hafði lagt
fimmtíu milljóna króna sekt til
viðbótar á Símann í málinu vegna
misvísandi upplýsingagjafar til
eftirlitsins. Þeirri niðurstöðu snýr
áfrýjunarnefndin hins vegar. Þótt
í úrskurðinum segi að Síminn hafi
gefið ónákvæmar upplýsingar
og það hafi ekki í öllum tilvikum
verið útskýrt þá nægi það ekki til
viðurlagaákvörðunar.
Síminn sendi frá sér yfirlýsingu
vegna málsins í gær þar sem veru-
legum vonbrigðum var lýst með
niðurstöðuna. Þar sagði að áfrýj-
unarnefndin hefði hunsað óháð
mat virtra prófessora í samkeppn-
isrétti við lögfræðideild Kings-
háskóla í London. Síminn telur
að háttsemin hefði verið eðlileg á
samkeppnismarkaði og hyggst vísa
málinu til dómstóla. - sh
Áfrýjunarnefnd Samkeppnismála staðfestir sekt fyrir misnotkun á markaðsráðandi stöðu:
Síminn sektaður um 390 milljónir króna
MARGSEKTAÐUR Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Símans, sendi starfsmenn sína
nýverið á námskeið um samkeppnislöggjöfina. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
DANMÖRK Starfsmenn í fyrir-
tækinu Danisco í Árósum í Dan-
mörku mega ekki lengur fylla
kaffibollann upp að börmum, að
því er danskir fjölmiðlar greina
frá.
Nú gilda nefnilega bandarískar
öryggisreglur í fyrirtækinu þar
sem það hefur verið selt banda-
ríska fyrirtækinu DuPont.
Fylli menn kaffibollann er
hætta á að þeir brenni sig á fingr-
unum eða að það skvettist úr boll-
anum á gólfið, að því er haft er
eftir talsmönnum fyrirtækisins.
Danisco er ekki eina fyrirtæk-
ið í Danmörku þar sem alþjóðleg-
ar öryggisreglur gilda. Hjá vind-
myllufyrirtækinu Vestas mega
starfsmenn ekki ganga í stiga án
þess að styðja sig við handrið. - ibs
Viðvörun til starfsmanna:
Barmafullur
kaffibolli þykir
slysavaldur
AKUREYRI Nýtt hjúkrunarheim-
ili verður tekið í notkun á Akur-
eyri í lok þessa mánaðar. Pláss er
fyrir 45 íbúa á heimilinu.
Brit Bieltvedt, framkvæmda-
stjóri Öldrunarheimila Akureyr-
ar, segir í viðtali við Akureyri
vikublað að heimilið muni stór-
bæta aðstöðu íbúanna. Núverandi
húsnæði í Kjarnalundi og Bakka-
hlíð standist ekki nútímakröfur.
Haft er eftir Brit að ekki sé verið
að fjölga rýmum í bænum heldur
eingöngu verið að bæta aðbúnað
þeirra sem fyrir eru. - sv
Nýtt hjúkrunarheimili opnað:
Bætir aðstæður
íbúa á Akureyri
VEISTU SVARIÐ?
1 Hvað heitir forseti Suður-Afríku?
2 Yfir hvaða vog er áætlað að reisa
göngubrú?
3 Hver skoraði tvö mörk fyrir KR
gegn FH?
SVÖR:
1. Jacob Zuma. 2. Fossvog. 3. Baldur
Sigurðsson.
Starfsfólk okkar bregst
þá strax við og tekur
viðkomandi auglýsingu út og
bannar notandann.
ANNA MARÍA JÓNSDÓTTIR
ÞJÓNUSTUSTJÓRI BLAND.IS