Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.08.2012, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 25.08.2012, Qupperneq 10
10 25. ágúst 2012 LAUGARDAGUR greinar@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is og Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is DÆGURMÁL: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ: Elín Albertsdóttir elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is SPOTTIÐ ÞORSTEINN PÁLSSON AF KÖGUNARHÓLI ÞORSTEINS PÁLSSONAR Söngfólk óskast Blandaður kór óskar eftir söngfólki í allar raddir. Æft er á mánudögum kl 19:00 til 21:00. Ýmislegt framundan, þátttaka í kóramóti, og fl. Upplýsingar í síma 897-9595 Ingunn. Email: ingunnsi@simnet.is Steingrímur J. Sigfússon efnahagsráðherra skrif-aði athyglisverða grein í Financial Times á dögun- um til að auka hróður Íslands. Þar beindi hann sjónum manna eink- um að tvennu: Annars vegar benti ráðherrann á mikilvægi neyðarlaganna frá október 2008. Það er kórrétt að þau eru til marks um velheppn- aðar, fumlausar og rétt tímasett- ar ákvarðanir þegar gjaldmiðill landsins hafði hrunið og bank- arnir fallið. Neyðarlögin komu í veg fyrir að bankarnir lokuðu og atvinnulífið stöðvaðist. Það var afrek eftir þau ósköp sem á undan voru gengin. Hins vegar benti ráðherrann á hversu vel efnahagsáætlun Alþjóðagjald- eyrissjóðsins reyndist. Eftir hrunið og fram að því að áætl- unin var sam- þykkt vörðust íslensk stjórn- völd í vök. Áætl- unin gaf Íslend- i ng u m h i ns vegar tækifæri til þess að standa á eigin fótum í varnarbaráttunni með öflugum en stranglega skilyrtum stuðningi annarra ríkja. Þó að margt hefði mátt fara betur í framkvæmdinni skilaði áætlunin árangri. Það skemmtilega við þessa grein er að jafnvel yngstu menn muna að Steingrímur J. Sigfús- son var ásamt þingflokki sínum svo fullur efasemda um ágæti neyðarlaganna að hann gat ekki stutt þau. Þegar kom að samning- um við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn varð allt blátt fyrir augum hans. Fullveldi þjóðarinnar, efnahags- legu sjálfstæði og vinstri pólitík þótti standa slík ógn af þeim að nota þurfti sömu lýsingarorðin og flokksmenn hans og hann sjálfur nota nú um samningana sem hann er að gera um aðild að Evrópusam- bandinu. Greinin var skrifuð af stalli frelsara en minnti þó alveg eins á gamlan syndara. Í reynd var hún fremur skynsamleg lofgjörð um stefnumótun ríkisstjórnar Geirs Haarde þegar í óefni var komið fyrir fjórum árum. F agna ber viðleitni stjórnvalda í Suður-Afríku í að sporna við og vekja athygli á ofbeldi Ísraels í garð Palestínu með því að láta auðkenna sérstaklega vörur sem fram- leiddar eru í gyðingabyggðum vestan Jórdanar, og í Austur-Jerúsalem. Vakið hefur mikla reiði í Ísrael að vörur af þessum svæðum verði í Suður-Afríku eftirleiðis merktar og flokkaðar sem inn- flutningur frá hernámssvæðum í Palestínu, en ekki sem vörur frá Ísrael. Þannig greindi frétta- stofa BBC frá því að ísraelska utanríkisráðuneytið teldi auð- kenningu varanna „algjörlega óásættanlega“ og dæmi um „helbera mismunun“. Í yfirlýsingu sem ríkisstjórn Suður-Afríku sendi frá sér á miðvikudag segir hins vegar að ákvörðunin sé í samræmi við utanríkisstefnu landsins þar sem viðurkennd séu landamæri Ísraelsríkis líkt og þau voru dregin upp af Sameinuðu þjóðunum árið 1948. Þar með viðurkenni Suður-Afríka ekki hernumin landsvæði utan þess svæðis sem hluta af Ísrael. Þá sagði Jimmy Manyi, talsmaður stjórnvalda í Pretóríu, merk- ingu innfluttu varanna vera til þess að koma í veg fyrir að neyt- endur teldu varning af hernumdum svæðum eiga uppruna sinn í Ísrael. Stjórnvöld segjast ekki beina neinum tilmælum til fólks um hvernig það skuli haga innkaupum sínum, en auðkennið sé liður í því að gera neytendum betur kleift að stunda upplýst inn- kaup. Fólk viti þá hvenær vörur séu keyptar (eða ekki keyptar) frá ólöglegum landnámssvæðum Ísraela. Eðlilega sýna stjórnvöld í Suður-Afríku, þar sem áður var rekin aðskilnaðarstefna hvítra stjórnvalda, baráttu palestínsku þjóðarinnar skilning, enda býr hún við aðskilnaðarstefnu, ofbeldi og yfirgang Ísraels. Stjórnvöld hafa bent á að íbúar Suður-Afr- íku hafi notið stuðnings alþjóðasamfélagsins við að fá sínu órétti aflétt og hvetja íbúa landsins til að styðja baráttu palestínsku þjóðarinnar. Þá er ákvörðun Suður-Afríku ekki heldur sprottin upp úr neinu tómarúmi, því uppi hafa verið hugmyndir bæði í Danmörku og á Írlandi um að auðkenna „ísraelskar“ vörur með landtökumerki- miða. Sömuleiðis fá vörur frá landnemabyggðum Ísraela ekki sama tollaafslátt hjá Evrópusambandinu og vörur sem fram- leiddar eru í Ísrael. Þessu hafa Ísraelar líka mótmælt. Ísland var undir lok síðasta árs fyrst vestrænna ríkja til að viðurkenna sjálfstæði Palestínu og bættist með því í hóp þeirra 130 af 197 aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna sem gert hafa hið sama. Síðan þá hefur Taíland bæst í hópinn. Sú staða sem uppi er fyrir botni Miðjarðarhafs er óþolandi og sjálfsagt er að Ísland leggist á árar með Suður-Afríku í að upplýsa neytendur um raunverulegan uppruna varnings sem þaðan kemur. Þannig getur Ísland líka haldið áfram að sýna öðrum vestrænum ríkjum gott fordæmi í afstöðu til framferðis Ísraela með því að láta virðingu fyrir mannréttindum ráða för fremur en aðra hagsmuni. Framferði Ísraela má ekki láta óátalið: Sérmerkjum líka landnemavörur Óli Kristján Ármannsson olikr@frettabladid.is SKOÐUN Frelsari eða syndari? Í bók bókanna er mönnum kennt að fagna glataða syn-inum. Ekki hefði því komið á óvart þótt Morgunblað- ið hefði gert það fyrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins að klappa Steingrími J. Sigfússyni aðeins á öxlina og metið við hann að hann skyldi seint og um síðir gera alþjóðasamfélaginu grein fyrir mikilvægi þessara haldgóðu íhaldsráða sem hann fékk síðan tækifæri til að framkvæma á sinn hátt. Íhaldsaðgerðirnar í ríkisfjár- málum voru mildari en ella hefði orðið vegna þess að þeim átti að fylgja eftir með verðmætasköpun í orkufrekum iðnaði. Útfærsla skatt- kerfisbreytinganna og andstaða við orkufrekan iðnað í stjórnar- flokkunum veiktu hins vegar framkvæmdina. Eigi að síður skilaði hún árangri og var því rétt ráðin. Það var hins vegar misráðið að yfirgefa áætlunina á síðasta ári eins og ríkisstjórnin gerði og ráð- herrann hefði átt að geta um. Við stæðum vissulega betur að vígi ef áætluninni hefði verið fylgt betur. Hagvöxturinn væri þá í rík- ari mæli byggður á verðmæta- sköpun og minna mæli á eyðslu umfram efni. En það breytir ekki hinu að sjálfstæðismenn gætu, ef þeir vildu, skrifað þann árangur sem náðst hefur að einhverju leyti á sinn reikning. Það myndi styrkja Sjálfstæðis- flokkinn fremur en veikja í kom- andi kosningum að benda á hverjir sömdu við Alþjóðagjaldeyrissjóð- inn. En hvers vegna vilja helstu málsvarar hans ekki halda þessu merki á lofti? Glataða syninum var ekki fagnað Hafa verður í huga að ágreiningur var í Sjálfstæðisflokknum um efnahagsáætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Mótþrói Seðlabankans fór aldrei leynt þó að hann skrifaði á endanum undir. Sú aðstoð sem sjóðurinn og nokk- ur ríki Evrópusambandsins veittu og þau hörðu skilyrði sem henni fylgdu hafa hugsanlega þótt varpa skugga á efnahagsstjórn áratugar- ins þar á undan. Það er skiljanlegt. Hér verður hins vegar ekki bæði sleppt og haldið. Þar af leiðir að réttlátri hlutdeild í því sem vel var gert strax eftir hrun er fórnað fyrir ímynd liðinnar tíðar. Þetta er svipað og gerðist með öfugum póli- tískum formerkjum í sjávarútvegs- málum á tíunda áratugnum. Í byrjun hans lögfestu vinstri flokkarnir mjög hófsama markaðs- væðingu í sjávarútvegi sem kom í hlut Sjálfstæðisflokksins að fram- kvæma. Í gömlum skýrslum Efna- hags- og framfarastofnunarinnar kemur fram að sú breyting var for- senda þess efnahagsárangurs sem náðist á þeim tíma. Sú uppstokkun sem markaðs- væðingin leiddi til olli eðlilega umróti og misklíð meðan breyt- ingarnar gengu yfir. Vinstri flokk- arnir kusu heldur að róa á þau óánægjumið í atkvæðaveiðum en eigna sér hlut í því sem sannarlega olli þáttaskilum í efnahagsþróun- inni og þeir áttu upphafið að. Sjálf- stæðisflokkurinn naut þess. Öfug- snúningur í pólitík er því ekkert nýmæli. Nú er svo verið að koll- varpa fiskveiðikerfinu til að sýna trúmennsku við óánægjupólitík fortíðarinnar. Fórnir fyrir fortíðina
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.