Fréttablaðið - 25.08.2012, Blaðsíða 20
25. ágúst 2012 LAUGARDAGUR20
Verðlaun fyrir 1. sætið eru farseðlar fyrir tvo til Evrópu með flug-
félaginu Wow Air. Þeir sem fengu 2. og 3. verðlaun hljóta gjafakort
með leikhúsmiðum fyrir tvo í Borgarleikhúsið. Dómnefndina
skipuðu Pjetur Sigurðsson, ljósmyndari Fréttablaðsins, Steinunn
Stefánsdóttir aðstoðarritstjóri og Sigríður Tómasdóttir ritstjórnar-
fulltrúi.
Í byggð og óbyggð en alltaf í sól
Svona er sumarið var þema fjórðu og síðustu sumarmyndakeppni Fréttablaðsins í ár. Ekki stóð á lesendum að taka þátt, enda
hafa margir landsmenn notið sólríkasta sumars í manna minnum og eflaust hafa þeir tekið óteljandi myndir, bæði heima og á
ferðum sínum. Sigurvegari nú var sá sami og síðast, Guðmundur Árnason, og prýðir mynd hans forsíðu blaðsins.
4. TIL 5. SÆTI Fred Schalk, sem er höfundur þessarar myndar, nefnir hana Gullteppi undir
Eyjafjöllum. Þess má geta að Drangurinn sem bærinn Drangshlíð heitir
eftir er á miðri myndinni.
4. TIL 5. SÆTI Gleðin skín úr augum þessara ungmeyja sem Tinna Stefánsdóttir
smellti mynd af í léttu svifi á trampólíni. Tinna átti líka fyrstu sigurmynd
sumarmyndakeppninnar, af konu á lofti yfir fjallstoppi, svo það er gangur
í henni.
3. SÆTI Kristín Guðrún Ásgeirsdóttir tók þessa listrænu mynd í Krossneslaug í Árneshreppi á Ströndum einn góð-
viðrisdaginn í sumar. Laugin er í flæðarmálinu og handan Trékyllisvíkur
blasir Reykjaneshyrnan við.
2. SÆTI Höfundur þessarar myndar er Kjartan Valgarðsson sem fór með 20 manna vinahópi á Hornstrandir í júlí
og gisti í Hornbjargsvita. Sonur hans Hallgrímur er í forgrunni, staddur á
Kálfatindum og horfir yfir Hornvík. Hvíti flekkurinn á vatninu eru fuglar á
flugi og húsin niðri við flæðarmálið sýna fjarlægðina.
Um leið og ég sá þemað Svona er sumarið fékk ég hug-myndina að myndefninu. Því fór ég í góðviðri um síð-
ustu helgi með tíkina Zóý heim til lítillar frænku minnar,
Birnu Einarsdóttur, og keypti ís á leiðinni. Birna og Zóý
stilltu sér upp og ég smellti af.“ Til fróðleiks bætir Guð-
mundur við að orðið zóý þýði líf á hebresku, tíkin hafi
nefnilega verið tekin með keisaraskurði á sínum tíma.
Hann kveðst eiga tvo aðra hunda en þeir hafi ekki verið
fúsir í fyrirsætustörfin því kanínur hafi verið í næsta húsi.
Guðmundur tók myndina á Nikon D-800, eins og sigur-
myndina í síðustu keppni. „Þetta er nú þokkalegur árangur
miðað við að hafa bara tekið myndir í eitt ár,“ segir hann
ánægður, enda fær hann flugmiða með Wow Air að laun-
um. - gun
Sælustund í sólinni
2. SÆTI
3. SÆTI 4-5. SÆTI
4-5. SÆTI