Fréttablaðið - 25.08.2012, Qupperneq 26
25. ágúst 2012 LAUGARDAGUR26
N
ú er loks komið að því, Mars-
jeppinn Curiosity, fullkomn-
asta rannsóknartæki sem
sent hefur verið út í geim, er
lagður af stað.
Eftir rúmlega tveggja
vikna undirbúning á yfirborði plánetunn-
ar rauðu, þar sem stýrikerfi hans var ræst
að nýju og hin ýmsu tæki og tól voru prufu-
keyrð, ók Curiosity af stað á miðvikudaginn.
Stuttur prufurúntur
Um var að ræða stuttan spöl. Hann ók rúma
fjóra metra áfram, tók svo 120 gráðu beygju
og bakkaði um tvo og hálfan metra. Það var
forsmekkurinn að því sem koma skal, en
næsta skref áður en haldið verður í áttina að
áfangastað, rótum Sharp-fjalls í Gale-gígn-
um, verður Curiosity ekið um 400 metra að
stað sem kallast Glenelg. Þar telja vísinda-
menn NASA að finna megi þrenns konar
jarðlög á sama stað, en sú ferð verður vænt-
anlega farin um miðja næstu viku.
Lendingin heppnaðist vel
Fram að þessu hefur allt gengið að óskum.
Lendingin, sem var áhættusamasti hluti
ferðarinnar og gríðarflókin í framkvæmd,
heppnaðist vel og hamskipti hugbúnaðar
Curiosity gengu hikstalaust fyrir sig og bún-
aðurinn virkar eins og til var ætlast.
Á síðustu dögum hafa NASA-menn meðal
annars rétt úr tæplega tveggja metra löngum
armi sem ber tuga kílóa þung rannsóknar-
tæki, meðal annars bor og fleira til að safna
jarðvegssýnum. Þá var milljón vatta leysi-
geisla skotið úr turni jeppans á stein (sem
er nú kallaður Coronation) sem er í um það
bil metra fjarlægð, en mælitæki Curiosity,
svokölluð ChemCam, greina bergið af litrófi
reyksins sem stígur af steininum af völdum
geislans. Prufukeyrslan gekk vel. Allt virk-
aði eins og til stóð og reyndis Coronation úr
basalti, eins og við var raunar búist.
Hið eina sem betur hefði mátt fara í ferl-
inu hingað til, er að annar tveggja vindmæla
hefur líkast til laskast við lendingu en það
ætti ekki að koma að sök við rannsóknirnar.
Var einhvern tíma líf á Mars?
Aðalverkefnið bíður þó enn því næstu vikur
verða öll tæki og tól prófuð áður en lagt
verður í hann. Curiosity mun verja næstu
tveimur jarðarárum í að greina setlög við
rætur Sharp-fjalls. Gale Gígurinn er um
155 kílómetrar í þvermál og miðað við aldur
gígsins og tilgátur um að vatn hafi eitt sinn
runnið á Mars, er líklegt að þar hafi verið
stöðuvatn í eina tíð.
Sharp teygir sig tæplega fimm kílómetra
upp frá miðju gígsins og getur þar að líta
margs konar setlög sem segja má að séu
eins konar uppflettirit yfir tímabil í jarð-
fræðisögu Mars.
Markmiðið er að fá úr því skorið hvort
örverur gætu einhvern tíma hafa þrifist á
Mars og bíða áhugamenn á jörðu, bæði lærð-
ir og leikir, eftir niðurstöðum.
Horft til framtíðar
Velgengni Curiosity hefur blásið nýju lífi í
geimferðaáætlanir NASA eftir nokkur miss-
eri þar sem fjárframlög til stofnunarinnar
hafa verið skorin hressilega niður. Í vikunni
voru meðal annars kynnt áform um að senda
aðra rannsóknarstöð, InSight, til Mars árið
2016. Það tæki mun ekki vera á hjólum, held-
ur verður það kyrrt á sama stað í um tvö ár
þar sem það mun meðal annars fylgjast með
skjálftavirkni og skorpuhreyfingum á Mars.
Í millitíðinni verður könnunarfarið Maven
sent til Mars. Því verður skotið á loft í lok
næsta árs og kemst á braut um Mars árið
2014 og mun rannsaka lofthjúp reikistjörn-
unnar.
Framhaldið er enn á huldu en veltur á
fjárframlögum til NASA. Barack Obama
Bandaríkjaforseti hefur skorað á NASA að
stefna að því að senda mannað geimfar til
Mars á fjórða áratug þessarar aldar og tals-
menn stofnunarinnar hafa lýst því yfir að
undirbúningur verði í samstarfi við geim-
ferðastofnanir annarra ríkja.
Heimildir: NASA.gov og
Stjörnufræðivefurinn,
www.stjornufraedi.is
Mars séður með augum Curiosity
Vísindamenn NASA eru nú að prufukeyra geimjeppann Curiosity og tækjabúnað hans á Mars. Í næstu viku verður farið í stuttan
könnunarleiðangur, en svo tekur alvaran við þar sem Curiosity verður í tvö jarðarár við rannsóknir á setlögum við rætur Sharp-
fjalls í Gale-gígnum. Markmiðið er að fá úr því skorið hvort einhvern tíma hafi verið lífvænleg skilyrði á plánetunni rauðu.
Geimferðalangurinn
1. Hér má sjá líkan sem sýnir stærð Curiosity
2. Lendingarstaður Curiosity í Gale-gígnum sést
á þessari mynd. Áfangastaðurinn er við rætur
Sharp-fjalls í um sjö kílómetra fjarlægð.
3. Curiosity ók af stað í vikunni og hér má sjá
hjólförin í sandinum á yfirborði Mars.
4. Hvert sem litið er blasir auðnin við.
5. Tækjaarmur jeppans nær um tvo metra og er
meðal annars útbúinn bor og öðrum tækjum
til sýnaöflunar.
MYNDIR/NASA
■ Langlíf hjátrú er við lýði hjá
NASA. Þegar tæki eru við það
að lenda á öðrum hnöttum,
til dæmis tunglinu eða Mars,
býður verkefnisstjóri öllum
í stjórnstöðinni upp á jarð-
hnetur. Þetta er rakið aftur
til ársins 1964 þegar Ranger
7 lenti á tunglinu eftir sex
misheppnaðar tilraunir NASA.
Við það tækifæri var boðið
upp á hnetur og hefur sá siður
haldist til dagsins í dag.
■ Þótt Curiosity sé um 900
kílógrömm að þyngd á jörðinni
er hann mun léttari á yfirborði
Mars, þar sem þyngdarkraftar
eru veikari. Þar vegur jeppinn
„einungis“ tæp 350 kíló.
Curiosity er sjöunda tækið sem
NASA kemur á Mars. Marslend-
ingar Rússa (áður Sovétmanna)
og Breta hafa mistekist á mis-
munandi stigum verkefnanna.
Opportunity-jeppinn, sem
lenti ásamt tvíbura sínum
Spirit fyrir átta og hálfu ári, er
enn í fullu fjöri í um þúsund
kílómetra fjarlægð frá Curiosity.
Spirit gaf upp öndina fyrir
rúmum tveimur árum. Mikill
munur er á Curiosity og hinum
lífseiga forvera. Opportunity er
mun minni og hefur ekki nema
brot af getu Curiosity. Þá gengur
hinn fyrrnefndi fyrir sólarorku
sem takmarkar vinnutíma
hans nokkuð, í samanburði við
Curiosity, sem er kjarnaknúinn.
Curiosity lenti á Mars eftir 567 milljón kílómetra ferðalag. Mars Reconnaiss-
ance orbiter-farið sem er á braut um Mars, tók myndina hér fyrir neðan af
lendingarhylki Curiosity á hraðleið að yfirborðinu í fallhlíf. Þegar nær dró var
ekki hægt að nota loftpúða til að taka af höggið við lendingu eins og við fyrri
verkefni. Þess í stað var notað eldflaugaknúið loftfar með krana sem slakaði
Curiosity niður á yfirborðið, sveif svo í burtu og brotlenti í öruggri fjarlægð. Eftir
allt þetta skeikaði aðeins um tvo kílómetra frá áætluðum lendingarstað.
Beint í mark – EÐA SVO GOTT SEMOpportunity Í FULLU FJÖRI EFTIR ÁTTA ÁR Molar UM MARS
ÁFANGASTAÐURINN FRAM UNDAN Curiosity
horfir í áttina að Sharp-fjalli, þar sem jeppinn
verður við jarðfræðirannsóknir næstu tvö árin.
Myndirnar sem NASA hefur borist frá Curiosity
hafa vakið mikla hrifningu um heim allan. Hér
að neðan má sjá nokkur sýnishorn.
1 2
3
4 5
MYNDIR/NASA