Fréttablaðið - 25.08.2012, Side 35
FÓLK|HELGIN
Ragnheiður Skúladóttir hefur stýrt Lókal frá upphafi og segir þema verkanna í ár einkennast af mikilli
nánd við viðfangsefnin og nánd við
áhorfendur.
Í dag er frumsýning á verkinu Blokk
eftir Friðgeir Einarsson. Leiksýningin fer
fram á heimili hans á Háaleitisbraut 105
og fjallar um blokkahverfið sem Friðgeir
hefur rannsakað. Hljóðverk lista hópsins
Kviss búmm bang í samstarfi við Aðal-
björgu Árnadótturverður flutt milli
13 og 17. Það er unnið í samstarfi við
Svanahóp Stígamóta sem er stuðnings-
hópur kvenna sem brotist hafa út úr
vændi. Verkið varpar ljósi á raunveru-
leika vændisiðnaðarins.
Önnur verk eru Blue Boy frá Ír-
landi sem leikhópurinn Broken talkers
stendur fyrir og fjallar um meðferð
kaþólsku kirkjunnar á börnum og ung-
lingum. Einnig er írska leikverkið I Love
Alice sýnt. Það fjallar um konur um
sextugt sem lifað hafa í leynd með sam-
kynhneigð sína alla tíð, en hafa ákveðið
að koma út úr skápnum á gamals aldri.
Fjöldi annarra verka verður frumsýndur
og sýnd um helgina. Dagskrá Lókal og
nánari upplýsingar um sýningar og lista-
menn er að finna á www.lokal.is.
LEIKGLEÐI
Margt er um að vera á
leiklistarhátíðinni Lókal.
LEIKIÐ MEÐ NÁND Á LÓKAL
Leiklistarhátíðin Lókal er haldin um þessar mundir í fimmta sinn. Hátíðin
verður glæsilegri með hverju árinu og er um fjölda leiksýninga að velja.
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432
Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Haustmarkaður verður haldinn
á torginu í Árbæjarsafni á
morgun. Þar verður hægt að
kaupa ýmiss konar góðgæti
og varning en almenningur og
minni fyrirtæki geta sett upp
borð og selt afurðir sínar á
markaðnum. Þá verður einnig
haldin íslensk-tékknesk þjóð-
lagahátíð á safninu á morgun
þar sem hljómsveitin Osminka
leikur fyrir dansi, nemendur
Tónlistarskóla Kópavogs koma
fram og Þjóðdansa félagið
dansar á torginu.
Dagskráin hefst klukkan 13 og
stendur til klukkan 16. Frítt er
inn á safnið þennan dag og allir
velkomnir.
MARKAÐUR
Í ÁRBÆNUM
■ Frítt inn á fjöruga dag-
skrá í Árbæjarsafni á
morgun
É g hef lengi verið að hugsa um að gera eitthvað fyrir þá sem minna mega sín. Ætli það séu ekki um
tvö ár síðan ég fór að pæla í því hvað
ég gæti gert. Ég setti mig svo í samband
við starfsfólk Barnaspítala Hringsins í
gegnum vefsíðuna mína, Infront.is, og
spurði hvort ég mætti ekki halda grill-
veislu fyrir þau. Það var svo ákveðið að
blása til veislu í hádeginu næstkomandi
þriðjudag,“ segir Valþór Örn Sverrisson,
hópstjóri verslana hjá Tali.
Hugmyndin að því að hafa grillveislu
kom til eftir að Valþór hélt grillveislu
fyrr í sumar í tengslum við fótbolta-
leik sem var sýndur á EM og bauð fullt
af fólki í þá veislu. Honum fannst það
lítið mál og ákvað því að nota þetta
form til að láta gott af sér leiða. „Ég
fékk nokkur fyrirtæki í lið með mér
sem gefa veisluföngin. Myllan gefur
til dæmis pylsubrauðin og kleinurnar,
Ölgerðin gefur gos og Svala og Stjörnu-
popp gefur popp. Svo ætlar Hreimur
úr Landi og sonum að syngja fyrir gesti
og hann gefur vinnu sína. Flestir í þeim
fyrirtækjum sem ég talaði við voru til
í leggja eitthvað til málsins þannig að
þetta var ekkert flókið. Ef einhver er í
sömu pælingum og ég og á erfitt með
að framkvæma hlutina eða vantar hjálp
við eitthvað má hann senda mér póst á
infront@infront.is.“
Valþór sem er 29 ára er barnlaus en
segist hafa gaman af börnum og á litla
frændur og frænkur sem hann hittir oft.
„Eldri bróðir minn á tvær stelpur sem
ég passa oft og sæki á leikskólann. Ég
vann á leikskóla í þrjú ár og get ímynd-
að mér hversu erfitt það er að eiga veikt
barn sem þarf að liggja inni á spítala.
Þess vegna langaði mig að gera eitt-
hvað fyrir þau börn sem þurfa að liggja
á Barnaspítalanum. Ég vona bara að
þetta verði til þess að það komi bros á
nokkur andlit.“ ■ lilja.bjork@365.is
MEÐ GOTT HJARTALAG
FLOTT PARTÍ Valþór Örn Sverrisson skipulagði grillveislu fyrir börn sem
liggja á Barnaspítala Hringsins, foreldra þeirra og starfsfólk spítalans. Hann
hefur lengi langað til að láta gott af sér leiða á einhvern hátt.
HJARTAGÆSKAN
RÆÐUR FÖR Valþór
hefur blásið til grill-
veislu fyrir sjúklinga
Barnaspítala Hringsins á
þriðjudag. Hann vonast
til að veislan veki gleði
meðal barnanna.
MYND/PJETUR
Laugavegi 63
s: 551 4422 • laxdal.is
NÝJAR HAUSTVÖRUR,
GÆÐI-GLÆSILEIKI
OG GÓÐ VERÐ
laxdal.is
NÝ SENDING AF
VETRARFATNAÐI!
DRAGTIR, KJÓLAR, ALLT
FYRIR ODDFELLOW.
OPIÐ Á LAUGARDÖGUM 11:00-15:00.
Skipholti 29b • S. 551 0770
KVENNAFLOKKUR
Fyrir konur 18-99 ára
31. ágúst - 2. sept.
MÆÐGNAFLOKKUR
Fyrir mæðgur 6-99 ára
14.-16. sept.
VINDÁSHLÍÐ
Skráning og upplýsingar: Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK Holtavegi 28 s. 588-8899 og á www.kfum.is
BRENNÓ - KVÖLDVÖKUR - ÚTIVERA - SÖNGUR OG GAMAN
FRÁBÆRT TÆKIFÆRI FYRIR VINKONUR, DÆTUR,MÖMMUR OG ÖMMUR
Verslunin lokar
í dag kl. 17.00
Opnar í Smáralind
31. ágúst nk.
Jakkaföt
8.000 kr.
Buxur
3.000 kr.
Belti
1.500 kr.
Skyrtur
4.000 kr.
Sólgleraugu
500 kr.
Bolir
1.000 kr.
www.saft.is
RÆDDU UM ÞÁ
ÁHÆTTU SEM FYLGIR
ÞVÍ AÐ HITTA NETVIN