Fréttablaðið - 25.08.2012, Side 42
Hugbúnaðarsérfræðingur
Styrkur okkar felst í öflugu og sveigjanlegu kerfi sem
ræður við mikið gagnamagn og gríðarlegan fjölda notenda.
Þú kemur að öllum þáttum hugbúnaðarferlisins og færð
að móta vöruna í samvinnu við öflugustu hugbúnaðar-
sérfræðinga landsins. Þekking og reynsla af C#, .NET MVC
og SQL er kostur en þó ekki skilyrði.
Grafískur vefhönnuður
Góð hönnun skiptir sköpum til að ná árangri og okkur vantar
reynslubolta sem geta unnið náið með vörustjórum og
viðskiptavinum við að útfæra einfaldar og fallegar lausnir.
Þú munt taka þátt í hönnunarferlinu frá A til Ö og setur
punktinn yfir i-ið. Góður skilningur á veftækni er kostur auk
mikils metnaðar í hönnun notendavæns vefviðmóts.
Hugbúnaðarprófari
Ef þér finnst ekkert skemmtilegra en að hakka í kerfum,
leita að villum og tryggja að gögnin séu í lagi þá ert þú
nákvæmlega týpan sem við erum að leita að. Þú munt gegna
veigamiklu hlutverki við að tryggja að varan sé tilbúin til
afhendingar. Gott auga fyrir nytsemi hugbúnaðar og hæfni
til að setja sig í spor notenda er kostur.
Viðmótsforritari
Getur þú hugsað út fyrir kassann og leyst það sem á að vera
óleysanlegt? Kerfið okkar þarf að vera hægt að aðlaga að
hvaða útliti sem er og okkur vantar vefforritara sem þora að
taka áskoruninni! Ef þú kannt að láta IE8 haga sér vel ásamt
því að gera sniðuga hluti með CSS og jQuery þá viljum við
fá þig um borð.
Vörustjóri hugbúnaðar
Viltu taka þátt í að þróa netbanka framtíðarinnar?
Vörustjórar skilgreina þróunarstefnu Meniga kerfisins
ásamt því að vinna náið með viðskiptavinum okkar í að
þróa og aðlaga vörur okkar að þörfum þeirra. Þú þarft að
hafa gott auga fyrir nytsemi veflausna, brennandi áhuga á
nýjungum og metnað til að útfæra bestu notendaupplifun
sem völ er á.
Gagnagrunnssérfræðingur
Gögnin okkar eru þungamiðjan í Meniga kerfinu. Gagna-
magnið er gríðarlegt og úrvinnslan mjög áhugaverð. Þú
munt koma að hönnun vöruhúss gagna og tengingu þess við
önnur kerfi. Þekking á MS SQL og reynsla af hönnun vöru-
húsa gagna er kostur.
Meniga er brautryðjandi í þróun nýrrar kynslóðar heimilisfjármálalausna
(Personal Finance Management) fyrir netbanka á heimsvísu. Meðal
viðskiptavina eru bankar og fjármálastofnanir í 8 löndum og sífellt fleiri
bætast í hópinn. Meniga er með starfsstöðvar í Stokkhólmi og Reykjavík.
Nánari upplýsingar um Meniga á www.meniga.is og www.meniga.com
Úrvalslið í stórsókn
Vegna stóraukinna umsvifa erlendis leitar Meniga að öflugum
liðsmönnum til að styrkja hugbúnaðarþróun fyrirtækisins.
Við þurfum öflugt fólk til að taka þátt í framþróun á netbankalausnum okkar til að
tryggja áframhaldandi forystu okkar á því sviði á heimsvísu. Meniga vinnur að fjöl-
mörgum þróunarverkefnum sem reyna á skapandi hugsun, greiningarhæfileika og
úrlausn flókinna viðfangsefna. Meðal verkefna eru hönnun og þróun nýjunga í Meniga
kerfinu, forritun farsíma- og spjaldtölvulausna, hönnun gagnagrunna og vöruhúsa
gagna, útfærsla á gervigreind og aðlögun lausna okkar að netbönkum víða um heim.
Umsóknir með starfsferilskrá skal senda á net-
fangið atvinna@meniga.is. Nánari upplýsingar
veitir Viggó Ásgeirsson (viggo@meniga.is) í síma
820-6494.
Umsóknarfrestur er til og með 9 september
Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir
sem trúnaðarmál og þeim svarað.
Viðurkenningar:
• Frumkvöðull ársins 2011 – Viðskiptablaðið
• Besta tæknilausnin – Best of Show -
Finovate Europe 2011
• Besta tæknilausn ársins – Banking IT-Innovation 2011 -
Business Engineering Forum
• Besti íslenski vefurinn – Íslensku vefverðlaunin 2010
Við lofum:
• Spennandi og krefjandi hugbúnaðarverkefnum
• Tækifæri til að læra, vaxa og þroskast í starfi
• Fjölskylduvænu og góðu vinnuumhverfi
• Skemmtilegum vinnustað
• Góðum starfskjörum
• Besta kaffi sem völ er á
Við leitum að fólki með:
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Ódrepandi metnað
• Áhuga á fjármálalausnum
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Getu til að starfa í alþjóðlegu umhverfi
Meniga - Ofanleiti 2 - 103 Reykjavík - Sími 571-0066 - meniga@meniga.is - www.meniga.is