Fréttablaðið - 25.08.2012, Side 46
LAUGARDAGUR 25. ágúst 2012 9
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Sölu- og markaðsfulltrúi Upplýsingar veitir:Inga Steinunn Arnardóttir
inga@hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og
með 2. september nk.
Umsóknir óskast fylltar út á
www.hagvangur.is
Norræna ferðaskrifstofan óskar eftir að ráða sölu- og markaðsfulltrúa í nýtt
og spennandi starf. Um tímabundna ráðningu er að ræða til júní 2013 með
möguleika á framtíðarráðningu.
Starfssvið:
• Innleiðing á netsölu og markaðssetning á nýrri heimasíðu
• Umsjón með gerð netbæklinga
• Gerð markaðsáætlana
• Þjónusta og sala til viðskiptavina, bæði einstaklinga og hópa
• Önnur sölu- og markaðstengd verkefni
Hæfniskröfur:
• Háskólamenntun á sviði markaðsmála
• Reynsla og þekking á markaðs- og kynningarmálum er skilyrði
• Reynsla af netsölu og gerð bæklinga æskileg
• Góð tölvukunnátta
• Góð enskukunnátta í ræðu og riti
• Frumkvæði og árangursdrifni
Norræna ferðaskrifstofan var stofnuð árið 1988 og hefur frá þeim tíma
verið aðalsöluaðili Smyril-Line hér á landi. Undanfarin ár hefur færst í vöxt
að ferðaskrifstofan sjái um skipulag ferða erlendra ferðamanna hér á landi
sem og að skipuleggja ferðir fyrir Íslendinga erlendis.
Vantar þig vinnu?
Ég er fertug, gift kona og móðir með hreyfihömlun sem þarfnast
aðstoðar við flestar athafnir daglegs lífs og óska eftir persónulegri
aðstoðamanneskju á aldrinum 25-40 ára til starfa. Þeir sem starfa
hjá mér starfa eftir hugmyndafræðinni um sjálfsstætt líf og stuðla
þar með að tækifærum mínum til þátttöku í samfélaginu og auka
lífsgæði mín.
Æskilegt er að umsækjandi hafi bílpróf þar sem ég hef eigin bíl til
umráða. Viðkomandi þarf einnig að vera barngóður. Jákvæðni,
sveigjanleiki og virðing er lykillinn að farsæld í þessu samstarfi.
Um er að ræða 75% starf í vaktavinnu frá mánudegi til föstudags
og svo vantar einnig aðra hvora helgi.
Umsækjandi þarf að geta byrjað strax.
Fyrirspurnir, umsóknir og ferilskrá ásamt meðmælum má
senda á netfangið: asdisjenna@simnet.is en einnig er hægt
að hringja í síma 775-7377.
Ásdís Jenna Ástráðsdóttir
Árskógum 2, Breiðholti / Mjódd
Hjúkrunarheimilið Skógarbær
félags- og tómstundastarf
Starfskraftur óskast í félags- og tómstundastarf.
Óskað eftir einstakling með góða hæfni í mannlegum
samskiptum, sem hefur gaman af því að starfa með fólki
og þjónusta í takt við þarfir heimilisfólks Skógarbæjar.
Helstu verkefni:
Almennt tómstunda- og félagstarf
Hópastarf á hjúkrunardeildum heimilisins
Í Skógarbæ eru 81 heimilismenn, 3 heilabilunardeildir,
2 hjúkrunardeildir og 1deild fyrir yngri hjúkrunarsjúklinga.
Nánari upplýsingar veitir:
Björg Óskarsdóttir
bjorg@skogar.is Sími: 5102107