Fréttablaðið - 25.08.2012, Page 46

Fréttablaðið - 25.08.2012, Page 46
LAUGARDAGUR 25. ágúst 2012 9 SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700 www.hagvangur.is Sölu- og markaðsfulltrúi Upplýsingar veitir:Inga Steinunn Arnardóttir inga@hagvangur.is Umsóknarfrestur er til og með 2. september nk. Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is Norræna ferðaskrifstofan óskar eftir að ráða sölu- og markaðsfulltrúa í nýtt og spennandi starf. Um tímabundna ráðningu er að ræða til júní 2013 með möguleika á framtíðarráðningu. Starfssvið: • Innleiðing á netsölu og markaðssetning á nýrri heimasíðu • Umsjón með gerð netbæklinga • Gerð markaðsáætlana • Þjónusta og sala til viðskiptavina, bæði einstaklinga og hópa • Önnur sölu- og markaðstengd verkefni Hæfniskröfur: • Háskólamenntun á sviði markaðsmála • Reynsla og þekking á markaðs- og kynningarmálum er skilyrði • Reynsla af netsölu og gerð bæklinga æskileg • Góð tölvukunnátta • Góð enskukunnátta í ræðu og riti • Frumkvæði og árangursdrifni Norræna ferðaskrifstofan var stofnuð árið 1988 og hefur frá þeim tíma verið aðalsöluaðili Smyril-Line hér á landi. Undanfarin ár hefur færst í vöxt að ferðaskrifstofan sjái um skipulag ferða erlendra ferðamanna hér á landi sem og að skipuleggja ferðir fyrir Íslendinga erlendis. Vantar þig vinnu? Ég er fertug, gift kona og móðir með hreyfihömlun sem þarfnast aðstoðar við flestar athafnir daglegs lífs og óska eftir persónulegri aðstoðamanneskju á aldrinum 25-40 ára til starfa. Þeir sem starfa hjá mér starfa eftir hugmyndafræðinni um sjálfsstætt líf og stuðla þar með að tækifærum mínum til þátttöku í samfélaginu og auka lífsgæði mín. Æskilegt er að umsækjandi hafi bílpróf þar sem ég hef eigin bíl til umráða. Viðkomandi þarf einnig að vera barngóður. Jákvæðni, sveigjanleiki og virðing er lykillinn að farsæld í þessu samstarfi. Um er að ræða 75% starf í vaktavinnu frá mánudegi til föstudags og svo vantar einnig aðra hvora helgi. Umsækjandi þarf að geta byrjað strax. Fyrirspurnir, umsóknir og ferilskrá ásamt meðmælum má senda á netfangið: asdisjenna@simnet.is en einnig er hægt að hringja í síma 775-7377. Ásdís Jenna Ástráðsdóttir Árskógum 2, Breiðholti / Mjódd Hjúkrunarheimilið Skógarbær félags- og tómstundastarf Starfskraftur óskast í félags- og tómstundastarf. Óskað eftir einstakling með góða hæfni í mannlegum samskiptum, sem hefur gaman af því að starfa með fólki og þjónusta í takt við þarfir heimilisfólks Skógarbæjar. Helstu verkefni: Almennt tómstunda- og félagstarf Hópastarf á hjúkrunardeildum heimilisins Í Skógarbæ eru 81 heimilismenn, 3 heilabilunardeildir, 2 hjúkrunardeildir og 1deild fyrir yngri hjúkrunarsjúklinga. Nánari upplýsingar veitir: Björg Óskarsdóttir bjorg@skogar.is Sími: 5102107

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.