Fréttablaðið - 25.08.2012, Page 51
25. ágúst 2012 LAUGARDAGUR14
Skrifstofa Alþingis auglýsir eftir
sérfræðingi í alþjóðamálum í
stöðu alþjóðaritara.
Staðan er til eins árs.
Sjá nánar á starfatorg.is.
Lausar stöður við
Leirvogstunguskóla
Leikskólakennarar
Auglýst er eftir leikskólakennurum til starfa við Leirvogstunguskóla
fyrir næsta skólaár. Um er að ræða tvær 100% stöður.
Kjör eru skv. samningi Mosfellsbæjar við Félag leikskólakennara.
Til greina kemur að ráða starfsfólk með aðra menntun og reynslu.
Leirvogstunguskóli er um 40 barna leikskóli staðsettur í kyrrlátu
íbúðarhverfi og stutt er í fjölbreytta náttúru.
Upplýsingar um störfin veita skólastjórnendur Leirvogstunguskóla,
Gyða Vigfúsdóttir í síma 8916609 og Guðrún Björg Pálsdóttir í síma
5868648.
Umsóknarfrestur er til 10. september og umsóknum skal skilað
á netfangið leirvogstunguskoli@mos.is ásamt upplýsingum um
menntun og reynslu.
Við hvetjum karla jafnt sem konur til að sækja um störfin.
SAMBAND ÍSLENSKRA
SVEITARFÉLAGA
Starf sérfræðings í skólamálum
Samband íslenskra sveitarfélaga auglýsir laust til umsóknar
starf sérfræðings í skólamálum á lögfræði- og velferðarsviði
sambandsins.
Starf sérfræðings felst m.a. í að starfa ásamt skólamálafulltrúa
sambandsins og skólamálanefnd að margþættum og síbreytilegum
verkefnum, sem einkum varða leik-, grunn- og tónlistarskóla, og vinna
að hagsmunagæslu fyrir hönd sveitarfélaga á þeim sviðum. Á meðal
verkefna og áherslna eru umsýsla með endurmenntunarsjóðum kennara
og málefni leikskóla. Gert er ráð fyrir því að viðkomandi geti hafið störf
sem fyrst.
Krafist er háskólaprófs sem nýtist í starfi auk víðtækrar reynslu og
þekkingar á skólamálum og áhuga á málefnum sveitarfélaga. Gott
vald á íslensku máli í ræðu og riti og hæfni í framsetningu upplýsinga
er skilyrði. Góð kunnátta í ensku og a.m.k. einu Norðurlandamáli er
nauðsynleg, sem og góð tölvuþekking, bæði til öflunar og úrvinnslu
upplýsinga. Leitað er að hæfum einstaklingi, karli eða konu, sem hefur
til að bera frumkvæði, sjálfstæði, hæfni í mannlegum samskiptum,
nákvæmni í vinnubrögðum og forystu- og skipulagshæfileika.
Sérfræðingurinn vinnur undir yfirstjórn sviðsstjóra lögfræði- og velferðar-
sviðs sambandsins. Nánari upplýsingar veitir Guðjón Bragason, sviðs-
stjóri lögfræði- og velferðarsviðs, netfang: gudjon.bragason@samband.
is, eða Magnús Karel Hannesson sviðsstjóri rekstrar- og útgáfusviðs,
netfang: magnus.hannesson@samband.is eða í síma 515-4900.
Samband íslenskra sveitarfélaga er framsækinn vinnustaður sem
býður upp á opið vinnuumhverfi, samheldinn starfsmannahóp og
skapar starfsmönnum gott svigrúm til starfsþróunar. Umsækjendum
er bent á að frekari upplýsingar um Samband íslenskra sveitarfélaga
eru á heimasíðunni, www.samband.is. Þar er einnig að finna starfs-
mannastefnu sambandsins og starfslýsingu fyrir starfið.
Umsóknir, merktar Umsókn um starf sérfræðings í skólamálum,
berist eigi síðar en mánudaginn 10. september 2012 til Sambands
íslenskra sveitarfélaga, Borgartúni 30, pósthólf 8100, 128
Reykjavík, eða í tölvupósti til magnus.hannesson@samband.is.
SÖLU OG LAGERSTARF
Aðstoðarkona óskast í hálfsdagsstarf + ?, í snyrtivöru-
heildverslun. Starfið felst bæði í tiltekt og pökkun á
pöntunum, símsvörun og sölu og kynningum á vörum
fyrirtækisins í smásöluverslunum. Viðkomandi þarf að
hafa söluhæfileika, vera stundvís og áhugasöm,
með góða framkomu. Reyklaust fyrirtæki.
Umsóknir sendist á box@frett.is merkt “sala og lager”
Laus störf við jarðvinnu og hellulagnir
• Verkamaður og Vélamaður óskast til starfa
Upplýsingar gefur Elvar í síma 866-8125.
Netfang: elvar@gleipnir.is
LAGER - ÚTKEYRSLA
Heildverslun óskar eftir að ráða lagermann. Starfið
er býsna fjölbreytt og snýr til að mynda að móttöku
á vörum, tiltekt á pöntunum ásamt útkeyrslu svo
eitthvað sé nefnt.
Við leitum að samviskusömum einstaklingi með
góða og vandaða framkomu, er reglusamur og
hefur metnað til að takast á við krefjandi en jafn-
framt gefandi starf.
Reynsla er æskileg.
Um framtíðarstarf er að ræða.
Umsækjendur vinsamlega sendið
a) Ferilskrá
b) Mynd
á póstfangið lager082012@yahoo.com
Reyklaus vinnustaður.
Starfskraftur óskast á tannlæknastofu
Tannlæknastofan í Glæsibæ óskar eftir að ráða hæfileikaríkan
og jákvæðan einstakling í fullt starf.
Skilyrði er að viðkomandi hafi góða tölvukunnáttu og sé
reyklaus. Ennfremur þarf umsækjandi að hafa til að bera
skipulagshæfileika, frumkvæði, þjónustuvilja, hæfni í mannlegum
samskiptum og handlægni. Starfið er laust fljótlega.
Áhugasamir sendi umsókn á puti@puti.is
merkt „atvinnuumsókn“
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR/
SNYRTIFRÆÐINGAR
40-50% framtíðarstaða laus hjá
lækningafyrirtæki nú þegar
Nauðsynlegt er að viðkomandi sé ekki bundinn öðru starfi svo
hann geti tekið þátt í skiptimöguleikum. Mjög sjálfstætt reyk-
laust starf m.a. með börn. Ferill sem greinir í tímaröð menntun,
starfsreynslu og fjarvistir ásamt upplýsingum um tölvureynslu
(nauðsynleg), persónu- og fjölskylduhagi, launakröfur, hvers
vegna hlutastarf henti og meðmælendur auk valupplýsinga svo
sem veikindaupplýs. óskast strax á starfsumsokn@gmail.com.
Heimir & Kolla
vakna með þér í bítið
Fréttir, fróðleikur
og frábær tónlist
alla virka morgna
kl. 6.50 – 9.00
Þráinn á tökkunum og
Gissur með fréttirnar
Við leitum að einstaklingi með mikla reynslu af offsetprentun
og frágangi. Viðkomandi flarf að hafa mjög ríka þjónustu-
lund, góða hæfileika í mannlegum samskiptum
og getað unnið hratt.
Í boði er skemmtilegt og fjölbreytt starf í
fyrsta flokks umhverfi.
Umsóknir sendist á tölvupósti á hlynur@prentun.is
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Prentun.is / Stafræna prentsmiðjan er 12 ára gamalt fljónustufyrirtæki í fremstu röð í
prentiðnaði og hefur vaxið ört síðustu ár. Hjá fyrirtækinu starfa nú 8 manns í
skemmtilegu umhverfi með nýjum og öflugum tækjabúnaði til prentunar.
PRENTARI
óskast
prentun.is
Stafræna prentsmidjan ehf / Bæjarhraun 22 / 220 Hafnarfi rdi / Sími : 544 2100 / www.prentun. is
MEIRA SKÚBB
FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN ÚTVARP LÍFIÐ SJÓNVARP
- oft á dag