Fréttablaðið - 25.08.2012, Page 63
KYNNING − AUGLÝSING Kranar og kranaleigur25. ÁGÚST 2012 LAUGARDAGUR 3
Fyrirtækið Armar ehf. var stofnað árið 1999 og sinnir fjölbreyttri starfssemi. Armar
leigja meðal annars út vinnu lyftur í
öllum stærðum og jarð vélar og reka
umfangsmikla útleigu á krönum og
steypumótum. Fyrirtækið býður
upp á gott úrval krana í öllum
stærðum og gerðum. Alfreð Karl
Alfreðsson sölustjóri segir Arma
bjóða að mestu leyti krana í útleigu
frá þýska fyrir tækinu Liebherr. „Við
erum að mestu leyti að leigja krana
til ýmissa byggingaverktaka hér-
lendis. Við sjáum stærstum hluta
þeirrar greinar fyrir krönum og
höfum gert það undanfarin ár. Af
og til eru einstaklingar að leiga
krana af okkur, til dæmis ef þeir eru
að byggja sjálfir. Við höfum einnig
verið að selja krana en útleiga
þeirra er langstærsti hluti starfs-
semi okkar.“
Ör vöxtur undanfarin ár
Auk útleigu á krönum og steypu-
mótum leigja Armar líka út vinnu-
lyftur í öllum stærðarflokkum og
mikið úrval jarðvéla, til dæmis jarð-
ýtur og gröfur. Armar voru upphaf-
lega til húsa í Suðurhrauni í Hafnar-
firði og samanstóð vélarkostur-
inn af einum glussa krana í byrjun.
Fyrir tækið stækkaði jafnt og þétt
næstu árin samhliða auknum um-
svifum. Árið 2001 voru tíu vinnu-
lyftur keyptar og árið 2003 var
starfsemi fyrirtækisins flutt í Dals-
hraun í Hafnarfirði. Árið 2005 var
tækjafloti fyrirtækisins kominn í
rúmlega 100 vélar. Í dag skiptist
fyrirtækið í þrjár einingar, Armar
Vinnulyftur, Armar Jarðvélaleiga
og Armar Mót og kranar og er
starfsemi fyrirtækjanna á þremur
stöðum í Hafnarfirði og Reykjavík.
Leiga krana að aukast
Miklar sveiflur hafa verið á bygg-
ingamarkaði undanfarin tíu ár að
sögn Alfreðs. „Það var mikill upp-
gangur hér á landi eftir árið 2000
eins og allir landsmenn sáu. Eftir
hrun varð eðlilega mikil dýfa í
útleigu krana hjá okkur eins og
öðrum enda hægðist mjög mikið
á öllum byggingaframkvæmdum.
Undanfarin eitt til tvö ár höfum
við þó séð góða aukningu í útleigu
krana og starfsemin gengur vel
núna.“
Armar ehf. er umsvifamesta
fyrir tækið á sviði kranaleigu hér-
lendis. Kranar frá þeim hafa komið
að flestum stærri verkefnum hér-
lendis undanfarin ár, meðal ann-
ars við bygginu tónlistarhússins
Hörpu. „Nú er til dæmis verið að
byggja nýja stúdentagarða í Vatns-
mýrinni og þar eru sex kranar, þar
af fjórir frá okkur.“ Kranarnir eru
leigðir út í mislangan tíma eftir
verkefnum. Stysti leigutíminn er
yfirleitt tveir mánuðir en hann
getur farið upp í nokkur ár, eins
og við byggingu Hörpu. Þótt mest
sé að gera í byggingageiranum yfir
sumar tímann eru kranarnir í út-
leigu allt árið. Mörg verkefnanna
taka meira en ár í byggingu auk
þess sem stærstur hluti kostnaðar
útleigunnar snýr að flutningi og
uppsetningu kranans, frekar en að
leigunni sjálfri.
Kranarnir eru leigðir út án starfs-
manna og er öllum stýrt frá jörð-
inni með fjarstýringu. „Þeir dagar
er nánast liðnir að starfsmenn stýri
krönum í mikilli hæð. Nú er þeim
flestum stýrt frá jörðinni. Við sjáum
síðan um allt viðhald á krönum
okkar þannig að viðskiptavinir
okkar þurfa ekki að hugsa um það.
Maður frá okkur mætir bara á stað-
inn og klárar málið.“
Steypumót fyrir íslenskar
aðstæður
Armar eru líka umboðsaðilar á Ís-
landi fyrir stærsta steypumóta-
framleiðanda heims, Peri, sem er
af mörgum talinn framleiða bestu
steypumótin í heiminum í dag.
„Þetta eru úrvals steypumót sem
henta vel við íslenskar aðstæður.
Þau koma í stöðluðum einingum til
okkar og eru leigð út eftir þörfum
hvers og eins.“ Það eru að mestu
leyti byggingaverktakar sem leigja
steypumót en einstaklingar sem eru
að byggja sjálfir leigja þau einnig út.
Steypumót og kranar eru oft leigð út
saman enda eru mótin hálft tonn
að þyngd og ekki hægt að hreyfa án
þess að nota krana. Steypumótin
eru mislengi í útleigu enda bygg-
ingatími mislangur. „Tónlistar-
húsið Harpa var til dæmis fjögur ár
í byggingu en garðveggir í heima-
húsum taka kannski fimm daga.“
Nánari upplýsingar um krana-
leigu og steypumót Arma ehf. má
finna á armar.is.
Kranar fyrir öll verkefni
Útleiga krana og steypumóta er eitt sérsviða Arma ehf. Fyrirtækið er einn umsvifamesti aðilinn á markaðnum í dag.
Fjórir kranar frá Örmum ehf. eru nú í Vatnsmýrinni þar sem nýir stúdentagarðar eru í
byggingu. MYND/PJETUR
Útleiga krana og steypumóta er stór hluti starfsemi Arma ehf. Alfreð Karl Alfreðsson er sölustjóri hjá Örmum ehf. MYND/GVA