Fréttablaðið - 25.08.2012, Side 64

Fréttablaðið - 25.08.2012, Side 64
KYNNING − AUGLÝSINGKranar og kranaleigur LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 20124 Loftur er blár krani. Hann er ein af söguhetjunum í barnaþættinum Bubbi byggir. Loftur er ekki eins og flestir kranar því hann er lofthræddur. Hann er líka hræddur við margt annað eins og mýs, há- vaða og fuglahræðuna Hrapp sem er einnig pers- óna í þáttunum. Loftur er hikandi og huglaus og vantar alveg það sjálfstraust sem hinar pers- ónur þáttarins eru uppfullar af. Hann er yfir- leitt sannfærður um að hann geti ekki hluti en svo kemur í ljós að hann getur alveg gert þá þegar hann er dyggilega hvattur áfram af félögum sínum. Persónur þáttanna eru ýmist manneskjur, dýr eða vélar. Vélarnar sýna oft af sér barnalega hegð- un, eru óþolinmóðar og skilja ekki alltaf afleiðingar gjörða sinna. Bubbi er þá eins og foreldri þeirra og kennir þeim og hjálpar þeim að leysa vandamál sem þær hafa komið sér í. Í hverjum þætti fást Bubbi og félagar hans við ýmsar viðgerðir og smíðar. Lögð er áhersla á að finna lausnir við vandamálum og er helsti frasi Bubba: „Tekst að laga það?“ og þá svara félagarnir: „Held nú það!“ Nema Loftur, hann segir: „Uh, já, ég held það.“ Lofthræddi Loftur Loftur er lofthræddur krani sem er þekktur úr þáttunum um Bubba. Kvarnir ehf. er fyrirtæki með margþætta starfsemi en það samanstendur af fyr- irtækjunum Brimrás og Pöllum. „Hinar þekktu Brimrásaráltröpp- ur og –stigar hafa verið framleidd- ar í þrjátíu ár. Þetta er vara sem er framleidd hér á landi en er ættuð frá þýsku fyrirtæki. Við leigjum og seljum steypumót til uppsteypu ásamt undirsláttarefni, leigjum byggingarkrana og allar gerðir vinnupalla. Byggingarkranarnir sem við erum með eru galvaníser- aðir og hafa þá kosti að fljótlegt er að fella þá og reisa og færa á milli staða. Það hefur fallið mjög vel í kramið hjá bygg- ingarverktökum því þetta hefur s p a r a ð þ e i m bæði fjármagn og vinnu. Einstak- lingar hafa einnig nýtt sér þessa þjónustu,“ segir Ingólfur Örn Stein- grímsson, eigandi Kvarna. Margra ára framleiðsla Kvarnir hafa eins og áður segir í mörg ár framleitt tröppur, stiga og búkka undir framleiðsluheitinu Brimrás. „Áltröppurnar eru gæða- tröppur sem eru þannig unnar að þrepin eru soðin í en ekki hnoð- uð eða þrykkt með vélum eins og flestar innfluttar tröppur og stigar eru unnar. Það má einnig geta þess að við höfum möguleika á að sinna hinum ýmsu sérþörfum varðandi smíði á stigum. Lendi menn síðan í óhöppum með áltröppur frá okkur getum við í flestum tilfellum lagað það sem farið hefur úrskeiðis. Ál- búkkarnir frá okkur eru sérlega endingargóðir. Við vitum til þess að búkkar, stigar og tröppur frá fyrstu árum Brimrásar eru enn í notkun.“ Margþætt starfsemi Starfsvið Kvarna er breitt en fyrir- tækið flytur einnig inn sorpkvarn- ir og sorppressur. „Sorpkvarnirnar eru frá hinu heimsþekkta fyrirtæki In-Sink-Erator en það fyrirtæki var frumk vöð- ull í framleiðslu á s or p k v ör n- um. Við f ly t j- um líka inn um- búðapressur fyrir heimili en umbúðapressur minnka umfang þurra sorpsins. Í þessum umbúðapressum er hægt að pressa áldósir, pappír, plast og annað það sem til fellur af umbúðum. Þá má geta þess að við bjóðum upp á leigu á tónleika- og skemmtanasviðum svo það er ljóst að starfsemi fyrir- tækisins er fjölþætt,“ segir Ingólfur. Ingólfur og starfsfólk hans býður upp á að setja upp vörur frá fyrir- tækinu og keyra tæki og tól heim til fólks. „Þegar fólk er að fara að byggja hús getum við útvegað flesta hluti til uppsteypunar. Við erum með mót til að slá upp húsið, steypuíhluti, vinnupalla og krana.“ Fyrirtækið flytur Ingólfur hefur mikla reynslu á þessum markaði en starfsemi Kvarna hófst árið 1995. Fyrir þann tíma vann hann hjá fyrirtækinu Pöllum frá 1982. „Við erum nýflutt með skrifstofurnar okkar ásamt hjólapallaleigunni, smávörulag- ernum og alla framleiðsluna í Akra lind 8 í Kópavogi. Öll starf- semi þungavöru er flutt í Álfhellu 9 í Hafnarfirði.“ Með þeim elstu í greininni „Við hjá Kvörnum leggjum áherslu á skjóta og góða þjónustu, fag- mennsku og heiðarleika. Við erum með þeim elstu í greininni hér á landi og höfum því mikla reynslu að bjóða. Viðskiptavinir okkar geta treyst á úrvals vörur og þjónustu.“ Nánari upplýsingar um fyrir- tækið og vörur þess má finna á www.kvarnir.is. Með langa reynslu að baki Kvarnir ehf. býður upp á fjölbreytta þjónustu. Hjá fyrirtækinu er hægt að leigja eða kaupa meðal annars vinnupalla og krana. Kvarnir hafa í mörg ár framleitt tröppur, stiga og búkka undir framleiðsluheitinu Brimrás. Þar er lögð áhersla á góða þjónustu. Ingólfur í Kvörnum býður góða og skjóta þjónustu. Hjá honum er hægt að leigja eða kaupa krana, vinnupalla, mót og margt fleira. MYND/GVA Vinnueftirlitið sér um nám-skeiðshald fyrir þá sem sækjast eftir vinnuvéla- réttindum. Málið er þó ekki svo einfalt því vinnuvél er ekki bara vinnuvél. Frumnámskeið „Réttindi á vinnuvélar skiptast í tvo flokka. Annars vegar er það frumnámskeið og svo grunnnám- skeið. Frumnámskeiðin eru haldin af Vinnueftirlitinu en grunnnám- skeiðin af ökuskólum. Frumnám- skeiðin veita mönnum réttindi til að taka próf á ýmsar vinnuvélar; dráttarvélar, lyftara upp að tíu tonnum, malbikunarvélar, valt- ara og krana og körfubíla með allt að 18 tonna lyftigetu ásamt fleiri vinnuvélum.“ Þegar búið er að sækja námskeið hjá Vinnueftir- litinu fer fólk í þjálfun á vinnustað undir leiðsögn kennara. Þegar henni er lokið er kallaður til próf- dómari frá Vinnueftirlitinu og verklegt próf er tekið á vinnuvél- ina á vinnustað viðkomandi. Nái hann tilsettum kröfum fær hann réttindi til að stjórna vinnuvél í þeim flokki vinnuvéla sem próf- ið var tekið á. Grunnnámskeið Sé farið beint á grunnnámskeið öðlast menn próftökurétt á allar vélar sem krafist er réttinda á. Byggingarkrananámskeið Sérnámskeið fyrir byggingarkrana eru haldin á vegum Vinnueftirlits- ins. Þau veita aðeins réttindi til að stjórna byggingarkrönum. Aukin vitund og betri tæki Á árum áður voru vinnuvélarétt- indi ekki litin eins alvarlegum augum. „Það er tilfinning mín að þessi mál séu í góðu horfi og margt hefur lagast á síðustu árum. Ég held það sé aukin vitund atvinnu- rekenda sem eru orðnir meðvit- aðri um öryggismál en áður. Eft- irlitið hefur í sjálfu sér ekki breyst mikið. Við förum eftir almennum Evrópureglum um öryggisbúnað og tæki. Tækin eru líka orðin betri og betur búin en áður. Það þarf próf á krana Magnús Guðmundsson deildarstjóri vinnuvéladeildar Vinnueftirlitsins segir vitundarvakningu hafa orðið á undanförnum árum varðandi réttindi á vinnuvélar og atvinnurekendur meðvitaðri um öryggismál en áður. Magnús Guðmundsson hjá Vinnueftirlitinu segir atvinnurekendur orðna meðvitaðri um öryggismál en áður. MYND/PJETUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.