Fréttablaðið - 25.08.2012, Blaðsíða 88
25. ágúst 2012 LAUGARDAGUR
sport@frettabladid.is
með leikmannahóp liðsins að und-
anförnu.
„Það hefur verið mikið bras á
öftustu línunni okkar,“ segir Þor-
lákur Árnason, þjálfari Stjörn-
unnar. Anna María Baldursdóttir
fékk rautt spjald í leik liðsins gegn
Breiðabliki á þriðjudaginn. Þá hafa
meiðsli einnig sett strik í reikn-
inginn, auk þess sem Eyrún Guð-
mundsdóttir getur ekki spilað þar
sem hún er barnshafandi.
„Það er því ekki alveg klárt
hvernig byrjunarliðið verður. En
ég er með góðan hóp og við verð-
um með sterkt byrjunarlið eins og
í öllum leikjum.“
Valur spilar besta fótboltann
Þorlákur á von á að mæta sterku
liði Vals í dag. „Valur hefur spilað
besta fótboltann í deildinni í sumar
og er bæði tæknilega sterkt lið og
skemmtilegt. Þetta verður spenn-
andi verkefni og við þurfum að
spila vel til að vinna þær.“
Leikurinn hefst klukkan 16.00 og
verður í beinni útsendingu á Stöð 2
Sport og Vísi. Upphitun hefst hálf-
tíma fyrr. eirikur@frettabladid.is
FÓTBOLTI Tvö lið með ólíka sögu
munu í dag mætast í úrslitaleik
Borgunarbikarkeppni kvenna
á Laugardalsvellinum. Annars
vegar Valur, sigursælasta lið frá
upphafi í sögu keppninnar, og
ríkjandi Íslandsmeistari Stjörn-
unnar sem hefur aldrei unnið bik-
arinn áður.
„Þetta kemur ekki til með að
skipta nokkru máli,“ segir Rakel
Logadóttir, leikmaður og einn
fyrirliða Vals, um sögu þessara
tveggja liða. „Hvað okkur varð-
ar skiptir sá fjöldi titla sem Valur
hefur unnið í gegnum tíðina engu
máli í dag. Við erum með nýtt og
gjörbreytt lið frá síðustu árum og
erum að skapa okkar eigin hefð.“
Valur er sem stendur í fjórða
sæti Pepsi-deildar kvenna með
27 stig en Stjarnan er í því öðru
með 32 stig – sex á eftir toppliði
Þórs/KA. Gunnhildur Yrsa Jóns-
dóttir, fyrirliði Stjörnunnar, segir
þó Stjörnuna ekki sigurstranglega
liðið í leiknum í dag, þrátt fyrir að
vera ofar í stigatöflunni.
„Bæði þessi lið eru með sterk-
an leikmannahóp en Valur er með
hefðina með sér og hafa oft komið
í þennan leik áður. Þetta eru tvö
jöfn lið og ég á von á skemmtileg-
um leik,“ segir hún.
Lykilleikmenn farnir
Valskonur hafa verið á miklu
skriði að undanförnu og ekki tapað
leik síðan 9. júlí. Síðan þá hafa
þær spilað átta leiki og unnið sex
þeirra, þar með talið Stjörnuna og
ÍBV, auk þess sem liðið gerði jafn-
tefli við Þór/KA.
„Spilamennska okkar hefur
verið góð og ég er sátt við hana.
Við höfum lært mikið í sumar
og bætt okkur eftir því sem liðið
hefur á það,“ segir Rakel en Valur
hefur þó misst nokkra lykilleik-
menn síðustu dagana. Danska
landsliðskonan Johanna Rasmus-
sen er aftur farin til síns liðs í Sví-
þjóð og þær Dagný Brynjarsdótt-
ir og Telma Björk Einarsdóttir eru
báðar farnar til Bandaríkjanna í
nám. „Þetta hefur verið smá púslu-
spil hjá okkur en nú fá ungir leik-
menn dýrmæta reynslu – sérstak-
lega af þessum leik,“ segir Rakel.
Mikið bras á varnarlínunni
Aðeins fimm félög hafa unnið
bikarkeppni kvenna síðan hún
fór fyrst fram árið 1981. Stjarn-
an getur bæst í þann hóp í dag en
það hafa þó einnig verið vandræði
DAGUR SIGURÐSSON skrifaði í gær undir nýjan samning við þýska úrvalsdeildarfélagið Füchse Berlin sem gildir
til 2017. Dagur tók við liðinu árið 2009 og hefur á stuttum tíma náð að gera það að einu sterkasta félagsliði Evrópu. Leik-
tíðin í þýsku úrvalsdeildinni hófst í gærkvöldi en Füchse Berlin mætir nýliðum Minden á heimavelli á morgun.
Nýtt nafn ritað á bikarinn?
Valur og Stjarnan eigast við í úrslitaleik Borgunarbikarkeppni kvenna á Laugar-
dalsvellinum í dag. Valur hefur langoftast unnið bikarinn, alls þrettán sinnum,
en Stjörnukonur eiga í dag möguleika á að vinna þessa keppni í fyrsta sinn.
FYRIRLIÐARNIR Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, Stjörnunni, og Valskonan Rakel
Logadóttir með bikarinn góða. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FRJÁLSÍÞRÓTTIR Um helgina fer fram
bikarkeppni FRÍ í 47. sinn og nú
á Þórsvelli á Akureyri. Fimm
sterkustu frjálsíþróttalið lands-
ins keppa og er búist við því að
tvö sigursælustu lið keppninnar
frá upphafi, FH og ÍR, muni berj-
ast um titilinn aftur nú. Þessi tvö
félög hafa unnið bikarinn langoft-
ast; ÍR nítján sinnum og FH átján
sinnum. ÍR hefur unnið bikarinn
síðustu tvö ár og náði því að taka
fram úr FH-ingum, sem ætla sér
sjálfsagt að rétta sinn hlut.
Það eru þó fjölmargir sterkir
keppendur í hinum þremur liðun-
um – Breiðabliki, HSK og keppnis-
liði Norðurlands. Ármann á einn-
ig sterkt frjálsíþróttalið en tekur
ekki þátt í þetta skiptið. Tveir
af sterkustu keppendum liðsins
eiga ekki heimangengt en Ásdís
Hjálmsdóttir keppti í vikunni
á demantamóti í Sviss og þá er
Helga Margrét Þorsteinsdóttir í
hvíld.
Ólympíufararnir Óðinn Björn
Þorsteinsson, FH, og Kári Steinn
Karlsson, Breiðabliki, verða meðal
keppenda sem og flestir aðrir
sterkustu frjálsíþróttakappar
landsins.
Helst ber þar að nefna hina
ungu Anítu Hinriksdóttur, 800 m
hlaupara úr ÍR, sem varð í fjórða
sæti á HM 19 ára og yngri fyrr á
árinu en Aníta er einungis sextán
ára gömul. Fjölmargir aðrir sterk-
ir keppendur taka þátt, svo sem
Einar Daði Lárusson, tugþrautar-
kappi úr ÍR.
Jónas Egilsson, framkvæmda-
stjóri FRÍ, á von á hörkukeppni á
milli ÍR og FH. „Það verður mikil
pressa á keppendum að ná árangri
og safna stigum fyrir sín lið. Ég
treysti mér ekki til að spá um
hvort liðið vinni bikarinn.“ - esá
Bikarkeppni Frjálsíþróttasambands Íslands haldin í 47. sinn á Akureyri:
FH og ÍR bítast aftur um titilinn
FJÖLHÆFUR Einar Daði Lárusson er lykil-
maður í keppnisliði ÍR. NORDICPHOTOS/GETTY
Valskonur geta unnið bikarinn fjórða árið í röð í dag þegar þær mæta
Stjörnunni í úrslitaleik á Laugardalsvellinum. Valsliðið er búið að vinna 14
síðustu bikarleiki sína eða alla bikarleiki síðan liðið steinlá 0-4 á móti KR í
bikarúrslitaleiknum 2008. Valur hefur slegið Stjörnuna út úr bikarnum öll
þrjú árin (5-0 í undanúrslitum 2009, 1-0 í úrslitaleiknum 2010 og 1-0 í 8
liða úrslitum 2011) og í raun fjögur ár í röð því Valur komst í bikarúrslitin
2008 eftir 5-1 sigur á Stjörnunni í undanúrslitunum. Valur er búinn að vinna
átta bikarleiki í röð á móti Garðabæjarliðinu eða síðan Stjarnan sló Val út í
bikarkeppninni fyrir tuttugu árum.
Þetta er þegar orðin næstlengsta sigurgangan í sögu bikarkeppni kvenna en
Valur á metið frá því að Hlíðarendadömur unnu 19 bikarleiki í röð á árunum
1984 til 1989.
Búnar að vinna fjórtán bikarleiki í röð
FÓTBOLTI Mývetningurinn Baldur
Sigurðsson hefur verið áber-
andi síðustu daga. Um síðustu
helgi tryggði hann KR 2-1 sigur á
Stjörnunni í úrslitum bikarkeppn-
innar með marki á lokamínútum
leiksins og í fyrrakvöld skoraði
hann tvö mörk í 3-1 sigri á FH í
uppgjöri toppliða deildarinnar.
Með sigrinum sá KR til þess
að það yrði áfram spenna í topp-
baráttu deildarinnar þar sem FH
hefði með sigri náð átta stiga for-
ystu á toppnum auk þess að eiga
leik til góða.
„Þetta var virkilega falleg
vika,“ sagði Baldur við Frétta-
blaðið í gær. „Og virkilega
ánægjulegt að hafa ekki afhent
FH-ingum titilinn á silfurfati. Nú
eru sex leikir eftir af tímabilinu
sem verða allir eins og bikarúr-
slitaleikir fyrir okkur.“
Hann segir virkilega góða
stemningu ríkja í herbúðum KR
núna. „Það er talsvert skemmti-
legra að mæta á æfingar eftir sig-
urleiki en hitt. Það var til dæmis
mjög erfitt að tapa fyrir Val [fyrr
í mánuðinum] og því óskandi
að við höldum áfram á þessari
braut.“ - esá
Baldur bestur í 16. umferð:
Virkilega falleg
vika að baki
Lið 16. umferðar
Markvörður:
Árni Freyr Ásgeirsson, Keflavík
Varnarmenn:
Daníel Laxdal, Stjörnunni
Kennie Chopart, Stjörnunni
Elís Rafn Björnsson, Fylki
Miðjumenn:
Jón Daði Böðvarsson, Selfoss
Jon Andre Royrane, Selfoss
Baldur Sigurðsson, KR
Jónas Guðni Sævarsson, KR
Sóknarmenn:
Emil Atlason, KR
Kristinn Ingi Halldórsson, Fram
Viðar Örn Kjartansson, Selfoss
SMALINN Baldur Sigurðsson hefur
skorað mikilvæg mörk fyrir KR í síðustu
leikjum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
HÚSBÍLL TIL SÖLU
Til sölu vel með farinn
5 manna Fíat húsbíll
• Árgerð 91 (skoðaður 2012) • Díselvél (2500)
• Nýjir loftpúðar • Endurnýjuð gasmiðstöð
• Hjólagrind • Nýjir rafgeymar
• Ný dekk • Ekinn 143.000 km.
VERÐ KR. 1.500.000
Bíllinn er til sýnis að
Vesturhrauni 3, Garðabæ.
Upplýsingar í 771-2004 og 480-0000
KÖRFUBOLTI Íslenska karlalands-
liðið í körfubolta átti aldrei mögu-
leika á móti sterku liði Svart-
fellinga í Niksic í undankeppni
Evrópumótsins í gærkvöldi.
Svartfellingar unnu leikinn á
endanum með 18 stigum, 85-67,
eftir að hafa komist mest 25 stig-
um yfir í fyrri hálfleiknum.
Svartfellingar skoruðu tíu af
fyrstu ellefu stigum fjórða leik-
hlutans og komust í 70-46 en
strákarnir náðu að laga stöðuna
í lokin. Íslenska liðið hefur þar
með tapað tveimur leikjum í röð
og þremur af fyrstu fjórum leikj-
um sínum í riðlinum.
Sundsvall-mennirnir Hlynur
Bæringsson og Jakob Örn Sig-
urðarson voru atkvæðamestir í
íslenska liðinu, Hlynur með 19
stig og Jakob með 15 stig. Haukur
Pálsson og Jón Arnór Stefánsson
skoruðu báðir 13 stig. - óój
Evrópukeppni í körfubolta:
Erfitt kvöld í
Svartfjallalandi
HLYNUR BÆRINGSSON. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Leiknir R. - Víkingur Ó. 1-1
0-1 Arnar Sveinn Geirsson (11.), 1-1 Kristján Páll
Jónsson (87.).
Þróttur R. - ÍR 1-0
1-0 Arnþór Ari Atlason (11.).
STAÐAN EFSTU LIÐA Í DEILDINNI:
Þór 16 10 2 4 29-19 32
Víkingur Ó. 18 10 2 6 26-17 32
Fjölnir 17 7 8 2 36-17 29
Þróttur R. 18 7 6 5 25-23 27
KA 17 7 5 5 31-25 26
Víkingur R. 17 6 6 5 24-19 24
Haukar 17 6 6 5 16-20 24
1. DEILD KARLA
ARNAR SVEINN GEIRSSON Skoraði sitt
fyrsta mark síðan í júní. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN