Fréttablaðið - 25.08.2012, Síða 94
25. ágúst 2012 LAUGARDAGUR62
Tómas Lemarquis fer með hlut-
verk í spænsku spennumyndinni
Painless sem sýnd verður á Tor-
onto International Film Festival
sem fram fer dagana 6. til 16. sept-
ember. Þetta er í annað sinn sem
mynd sem Tómas leikur í er sýnd á
hátíðinni, sú fyrri var Nói albínói.
„Myndin segir tvær sögur;
önnur gerist á tímum Francos og
hin í nútímanum. Minn karakt-
er er uppi á tímum Francos og er
notaður til þess að kvelja fanga og
fá upp úr þeim upplýsingar. Hann
finnur ekki til sársauka og áttar
sig þess vegna ekki á því að hann
sé að gera nokkuð rangt,“ útskýrir
Tómas.
Leikstjóri og handritshöfundur
myndarinnar er Juan Carlos Med-
ina og var förðunin í höndum sama
fólks og vann við Pan‘s Labyrinth.
Myndin var tekin upp í Barcelona
síðasta sumar og segist Tómas
hafa beðið í fimm ár eftir því að
tökur á myndinni hæfust. „Það
var leikstjóri sem ég þekki sem
benti framleiðandanum á mig og
þannig komst ég í samband við þá.
Tökum var frestað nokkrum sinn-
um og því beið ég í fimm ár eftir
því að þær færu af stað. Ég þurfti
að vera í góðu líkamlegu formi
fyrir hlutverkið og þurfti því að
byrja æfingar upp á nýtt nokkr-
um sinnum.“
Tómas túlkar persónu sína,
Berkano, á ólíkum aldursskeið-
um og tók það förðunarteymi um
átta klukkustundir að breyta leik-
aranum í gamlan mann. Tómas
þurfti síðan að vera í gervinu í tvo
sólarhringa. „Það tók svo langan
tíma að setja á mig gervið og þess
vegna var ákveðið að ég mundi
sofa í sílikonbúningnum um nótt-
ina. Þetta var eins og að vera með
kláðaduft um allan líkamann og ég
svaf lítið sem ekkert og fékk í kjöl-
farið brunasár á líkamann.“
Inntur eftir því hvort hann fari á
hátíðina segir Tómas það eiga eftir
að koma í ljós. „Mig langar mikið
til að fara enda er þetta stærsta
kvikmyndahátíð heims á eftir
Cannes. Þetta er svokölluð A-hátíð
og maður vill helst að myndirnar
sínar komist inn á slíkar hátíð-
ir enda opnar það manni margar
dyr.“ sara@frettabladid.is
PERSÓNAN
TÓMAS LEMARQUIS: EINS OG AÐ VERA MEÐ KLÁÐADUFT UM LÍKAMANN
Svaf heila nótt í búningi
GOTT GENGI Tómas Lemarquis fer með eitt af aðalhlutverkunum í myndinni Painless sem sýnd verður á Toronto International
Film Festival. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR BIRKISSON
Tómas býr sig nú undir tökur á tveimur kvikmyndum sem verða í lok árs.
Hann fer meðal annars með hlutverk í kvikmyndinni Paris, I Kill You sem er
í anda Paris, I Love you. Nokkrir hrollvekjuleikstjórar taka að sér að leikstýra
myndinni, þar á meðal Joe Dante sem leikstýrði Gremlins-myndunum, og
David R. Ellis, sem leikstýrði Scarface og Lethal Weapon.
Alls komu 22 leikstjórar að gerð myndarinnar Paris, I Love you og leik-
stýrði hver þeirra stuttu broti í myndinni. Meðal leikstjóranna voru Gérard
Depardieu, Wes Craven og Gus Van Sant. Meðal leikara voru Steve Buscemi,
Natalie Portman, Bob Hoskins, Elijah Wood og Maggie Gyllenhaal.
PARÍS, ÉG DREP ÞIG
„Þessi þjónusta er til víða um
heim og við ákváðum að prófa að
koma einni slíkri á laggirnar hér
því okkur fannst þetta vanta,“
segir Gerður Huld Arinbjarn-
ardóttir, önnur tveggja eigenda
Sambandsmiðlunar. Fyrirtæk-
ið er hið fyrsta sinnar tegundar
á Íslandi og er ætlað að aðstoða
fólk sem er í makaleit.
Þjónustan sem Sambands-
miðlun veitir er ætluð einstak-
lingum er hafa náð 25 ára aldri
og eru í makaleit. Þangað leitar
fólk sem hefur ýmist fengið nóg
af skemmtanalífinu, stefnumóta-
síðum, var að koma úr langtíma-
sambandi eða hefur miss maka
sinn og veit ekki hvernig á að
bera sig að. Þjónusta sem þessi
hefur lengi verið í boði í Banda-
ríkjunum og kallast þar „match-
making“.
Fyrirtækið veitir tvenns konar
þjónustu sem einstaklingar geta
skráð sig í; sambandsmiðlunar-
klúbbinn og VIP-áskrift. Fyrri
kosturinn veitir afslátt á upp-
ákomur á borð við hraðastefnu-
mót, hópstefnumót og fyrirlestra.
Seinni kosturinn er sérhæfðari
og persónulegri og sér félags-
ráðgjafi um að para einstaklinga
saman. Hátt í hundrað manns
hafa skráð sig í Sambandsmiðlun-
arklúbbinn og um fimmtíu manns
í VIP-áskriftina og hafa viðtök-
urnar verið mun betri en Gerður
og meðeigandi hennar, Rakel Ósk
Orradóttir, þorðu að vona.
„Við höfðum unnið mikla rann-
sóknarvinnu áður en við fórum af
stað og vissum því að fólki þótti
hugmyndin góð, en móttökurnar
hafa samt verið betri en við þorð-
um að vona. Vonandi getum við
aðstoðað einhverja við að finna
ástina,“ segir hún og bætir við:
„Við erum þegar byrjaðar að
senda fólk á stefnumót og nokk-
ur pör hafa farið á fleiri en eitt.“
Heimasíða Sambandsmiðlunar
er www.sambandsmidlun.is.
- sm
Aðstoða fólk við makaleitina
SAMBANDSMIÐLARAR Gerður Huld
Arinbjarnardóttir og Rakel Ósk Orradóttir
aðstoða einstaklinga við að finna ástina.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Nafn: Gunnar
Ragnarsson
Aldur: 23 ára.
Starf: Frístundaleið-
beinandi og söngvari.
Foreldrar: Ragnar
Gunnarsson og
Sveindís Hermanns-
dóttir.
Fjölskylda: Tvær
yngri systur, Sjöfn og
Ragnheiður.
Búseta: 101
Reykjavík.
Stjörnumerki: Krabbi.
Gunnar er söngvari
nýstofnuðu sveitar-
innar Grísalappalísu
sem spilar í kvöld
klukkan 21 á Hemma
og Valda.
„Nú er plöggarinn loksins far-
inn að plögga sjálfum sér,“ segir
markaðsmaðurinn, hugmynda-
smiðurinn og frasakóngurinn
Jón Gunnar Geirdal sem nýverið
stofnaði sitt eigið fyrirtæki, Ysl-
and.
Ysland er markaðssetningarfyr-
irtæki sem sérhæfir sig í kynning-
um, viðburðahaldi og samskiptum
við fjölmiðla fyrir ýmis fyrirtæki
og stofnanir. Jón Gunnar segir
sjálfur að fyrirtækið sé staður
þar sem hugmyndir og viðburðir
öðlast aukið líf.
Jón Gunnar hefur lengi sinnt
þessum störfum í hjáverkum sam-
hliða starfi sínu hjá markaðsdeild
N1. Eftir helgi verður hann loks-
ins sinn eigin herra, eitthvað sem
Jón Gunnar hefur langað til lengi.
„Fyrirtækið er bara ég, farsíminn
og fartölvan. Þetta er svona hin
almenna ódauðlega hugmynda-
vinna og mottóið mitt er „love all
serve all“,“ segir Jón Gunnar glað-
ur í bragði, en hann hefur komið
sér fyrir í skrifstofuhúsnæði á 12.
hæð í Turninum í Kópavogi.
Jón Gunnar hefur meðal ann-
ars séð um markaðssetningu
á íslenska Expó-skálanum og
á myndunum Svartur á leik og
Okkar eigin Osló. Næst á verk-
efnalistanum er kvikmyndin Frost
sem verður frumsýnd 7. septem-
ber. Hann er með mörg járn í eld-
inum og óttast ekki að sitja auðum
höndum í vetur. „Það er nóg að
gera og ég er tilbúinn að vera að
vinna allan sólarhringinn enda er
ég vinnualki í mér.“ - áp
Frasakóngurinn gerist atvinnuplöggari
ATVINNUPLÖGGARI Jón Gunnar
Geirdal ætlar að gefa hugmyndum og
viðburðum aukið líf í nýju markaðs-
setningarfyrirtæki sínu Ysland.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
www.baendaferdir.is
Sp
ör
e
hf
.
s: 570 2790
A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R
3. - 15. október
Travel Agency
HAUST 9
& Spánn
Fararstjóri: Soffía Halldórsdóttir
Hálft fæði og allar skoðunarferðir innifaldar
Suður-Frakkaland