Fréttablaðið - 25.08.2012, Blaðsíða 96
DREIFING: dreifing@postdreifing.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 VÍSIR
Ritstjórn: 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Mest lesið
FRÉTTIR AF FÓLKI
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meiri Vísir.
Hálft ár fram í tímann
Forsala er hafin á tónleikaferð Of
Monsters and Men um Bretland
sem hefst reyndar ekki fyrr en í
febrúar á næsta ári, eða eftir um
hálft ár. Níu tónleikar hafa verið
bókaðir þar í landi í febrúar og
mars en plata Nönnu Bryndísar
Hilmarsdóttur og félaga, My Head
is an Animal, kemur út í Bretlandi á
mánudaginn. Lagið Little
Talks hélt toppsæti
sínu á Írlandi þessa
vikuna eftir að hafa
náð efsta sætinu í
síðustu viku. Meðal
þekktra flytjenda í
sætunum fyrir
neðan Of Mon-
sters and Men
eru Florence
and the
Machine,
Taylor
Swift og
Lykke Li.
Breakbeat
laugardagskvöld kl. 22r skvöld l.
Óður í íslenskt skyr
Fjölmargir svöruðu kalli Russells
Crowe á samskiptavefnum Twitter
í gær þegar hann spurði hvort
nokkurs staðar í heiminum, annars
staðar en á Íslandi, væri hægt að fá
skyr. Crowe er nú að venjast lífinu
heima hjá sér á ný enda nýfarinn af
Íslandi. Það má með sanni segja að
hann hafi stimplað sig inn í huga
Íslendinga á meðan á dvöl hans
stóð enda lifði hann meðal inn-
fæddra í Fossvoginum á milli þess
sem hann gisti í húsbíl á tökustað
Hollywood-myndarinnar Noah.
„Það lítur allt út fyrir að ég hafi
yfirgefið Ísland háður skyri,“ segir
Crowe í Twitter-skeyti sínu. Þetta er
auðvitað allt saman mjög jákvætt
og geta Íslendingar
lýst Russell Crowe
sem miklum
„Íslandsvini“.
- fb, bþh
1 Aldagömul ráðgáta leyst í
Noregi
2 Breivik sakhæfur – lífstíðar
fangelsi
3 Fundu gleymdar
útrýmingarbúðir
4 Reyndu að smygla sæhestum
úr landi
5 Sagði túlkun lögreglunnar á
umferðarlögunum ranga