Fréttablaðið - 18.08.2012, Page 4
18. ágúst 2012 LAUGARDAGUR4
SUÐUR-AFRÍKA, AP „Lögregla, hættu
að skjóta eiginmenn okkar og
syni“ stóð á spjaldi sem eiginkon-
ur námuverkamanna í Suður-Afr-
íku báru í gær.
Þær efndu til mótmæla eftir að
tugir námuverkamanna höfðu látið
lífið í átökum við lögregluna utan
við Lonmin-platínunámuna, sem er
skammt frá bænum Marikana.
Átökin hófust á föstudaginn fyrir
viku, eftir að námuverkamennirnir
fóru í verkfall til að krefjast betri
kjara. Um tíu námuverkamenn
höfðu fallið í átökunum fram á mið-
vikudag, en þá gripu lögreglumenn
til vopna og skutu 34 menn til bana,
auk þess sem 78 særðust.
Blóðbaðið gekk fram af lands-
mönnum og Jacob Zuma forsæt-
isráðherra hraðaði sér heim frá
Mósambík, þar sem hann var
staddur á ráðstefnu. Hann sagðist
hneykslaður á þessu „tilgangslausa
ofbeldi“ eins og hann orðaði það.
Námuverkamennirnir í Lonmin
hafa búið við kröpp kjör, fengið
lág laun og margir búið í hrörleg-
um kofum. Sum barna þeirra þjást
af langvinnum sjúkdómum vegna
mengunar frá leku skolpræsakerfi.
- gb
Blóðbað í tengslum við verkfallsaðgerðir námuverkamanna í Suður-Afríku vekur hörð viðbrögð:
Lögreglan skaut tugi námuverkamanna
NÁMUVERKAMENN Í BARDAGAHUG Þeir syngja og dansa vopnaðir sveðjum og bar-
eflum utan við Lonmin-námuna rétt hjá bænum Marikana í Suður-Afríku. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
GENGIÐ 17.08.2012
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
206,8445
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
119,24 119,80
187,26 188,18
147,39 148,21
19,791 19,907
20,077 20,195
17,761 17,865
1,5000 1,5088
179,90 180,98
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR
SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
FÉLAGSMÁL Stjórn Öryrkjabanda-
lags Íslands skorar á Alþingi að
lögfesta samning Sameinuðu
þjóðanna um réttindi fatlaðs
fólks. Þetta var samþykkt á aðal-
stjórnarfundi bandalagsins í
fyrradag.
Samningurinn var undirrit-
aður af Íslands hálfu árið 2007.
Öryrkjabandalagið telur nauð-
synlegt að lögfesta hann einnig
eins og gert var við Mannrétt-
indasáttmála Evrópu. „Þannig
tryggjum við mannréttindi fyrir
alla í raun,“ segir í fréttatilkynn-
ingu.
Bandalagið vill lögfesta samn-
inginn nú þegar en hins vegar
telur það einnig þörf á því að end-
urskoða íslenska þýðingu samn-
ingsins. Þar er „bæði um að ræða
hreinar rangfærslur og misskiln-
ing á hugtakinu fötlun“, segir í
fréttatilkynningu. - bbi
Áskorun frá öryrkjum:
Samningur SÞ
verði lögfestur
DANMÖRK Rannsókn á láti ungs
manns í tígrisdýrabúrinu í dýra-
garðinum í Kaupmannahöfn
fyrr í sumar er lokið án þess að
málsatvik séu að fullu skýr.
Maðurinn, sem var tvítugur,
braust inn í dýragarðinn í skjóli
nætur í júní og fór rakleiðis
að tígrisdýrabúrinu þar sem
hann hitti fyrir þrjá tígra. Hann
fannst svo morguninn eftir, lát-
inn af völdum bitsárs á hálsi.
Við krufningu fundust
ummerki um hassneyslu, en
ekkert sem gat skýrt hvað
manninum hafði gengið til með
athæfi sínu. - þj
Rannsókn á mannsláti lokið:
Dauði í tígris-
dýrabúri veldur
heilabrotum
RÁÐGÁTA Lítið er vitað um af hverju ungur
maður stökk inn í tígrisdýrabúrið þar sem
hann var drepinn. NORDICPHOTOS/AFP
Níræður sviptur ökuleyfi
Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði
bifreið í gær, þar sem grunur lék á
ölvunarakstri. Bílnum var ekið yfir á
öfugan vegarhelming, þannig að bif-
reið sem kom úr gagnstæðri átt þurfti
að hægja á sér og víkja. Ökumað-
urinn, tæplega níræður karlmaður,
var ölvaður. Hann var handtekinn og
sviptur ökuréttindum.
LÖGREGLUFRÉTTIR
E n g i h j a l l a 8 , 2 0 0 Kó p avo g i
Opið frá 11 - 20 alla daga
FRÉTTASKÝRING
Hvaða reglur gilda um staðgengla
fyrir ráðherra sem staddir eru
erlendis?
Nokkur umræða hefur verið í fjöl-
miðlum um yfirfærslu forsetavalds
haldi forseti utan. Það að handhaf-
ar forsetavalds fylgi forseta út að
brottfararhliði og handsali gjörn-
inginn er töluvert formlegra en
þegar ráðherrar fara af landi brott.
Samkvæmt upplýsingum frá
forsætisráðuneytinu gilda þó sér-
stakar og formlegri reglur um for-
sætisráðherra en aðra ráðherra.
Við ríkisstjórnarskipti er gefinn
út forsetaúrskurður þar sem tveir
staðgenglar eru tilteknir sem taka
sjálfkrafa við í fjarveru forsætis-
ráðherra.
Í tilfelli Jóhönnu Sigurðardóttur
er um að ræða í fyrsta lagi Stein-
grím J. Sigfússon og svo Össur
Skarphéðinsson.
Ef svo ber við að hvorugur þeirra
er á landinu, þarf sérstakan for-
setaúrskurð um staðgengil. Tillaga
berst forseta sem hann samþykkir
og svo er gjörningurinn bókaður í
málaskrá forsætisráðuneytisins.
Hvað varðar aðra ráðherra er
ferlið óformlegra. Þurfi ráðherra
að yfirgefa landið er honum frjálst
að velja sér staðgengil. Ráðuneyti
þess sem heldur utan sendir for-
sætisráðuneyti tilkynningu um að
ráðherra verði fjarverandi og hver
muni leysa hann af hólmi í fjarveru
hans.
Skiptin eru svo bókuð á næsta
fundi ríkisstjórnar ef svo hittir á.
Þurfa ekki handa-
band til að færa vald
Minni formfesta er um yfirfærslu valds þegar ráðherrar fara utan en í tilfelli
forseta Íslands. Einn forsetaúrskurður nægir ótímabundið til sjálfvirkrar yfir-
færslu til staðgengils forsætisráðherra. Önnur ráðuneyti hafa frjálsari hendur.
Fyrirkomulag yfirfærslu forsetavaldsins hefur verið í umræðunni undan-
farið. Að forminu til felur það í sér að handhafi forsetavalds fylgir forseta
á Keflavíkurflugvöll og fer með honum í gegnum öryggisskoðun og að
brottfararhliði. Í fréttum RÚV hefur meðal annars komið fram að forsætis-
ráðherra hefur lagt til að fylgd handhafa verði lögð af, en forsetaembættið
hafi lagst gegn þeim hugmyndum.
Í yfirlýsingu frá forsetaskrifstofu segir að handaband við brottför forseta sé
það form sem tryggi best að enginn vafi liggi á stað og stund við breytingar
á forsetavaldi. Ekki sé hægt að haga „þessum grundvallarþætti stjórnskipun-
arinnar“ á annan hátt nema með breytingu á stjórnarskrá eða að fram komi
haldbærar tillögur um aðra tilhögun sem tryggi örugga yfirfærslu.
Skiptar skoðanir um fylgd með forseta
RÍKISRÁÐSFUNDUR Á BESSASTÖÐUM Sú venja að handhafar forsetavalds fylgi for-
seta á flugvöllinn þegar hann fer utan er mun formlegra ferli en þegar ráðherrar
ríkisstjórnarinnar fara af landi brott.
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
32°
30°
28°
28°
29°
31°
25°
25°
26°
29°
30°
26°
32°
21°
33°
20°
18°Á MORGUN
8-15 m/s syðst,
annars hægari.
MÁNUDAGUR
5-10 m/s.
17
16
16
16
13
11
11
13
16
14
10
7
6
5
5
6
6
8
4
8
5
5
11
13
15
16
14
17
14
14
16
16
MARAÞON OG
MENNING Dagur-
inn verður líklega
einn sá allra líf-
legasti í Reykjavík
enda yfi r 10.000
manns sem taka
þátt í maraþoninu
og að því loknu
tekur við hin marg-
rómaða menning-
arnótt. Veðrið mun
án efa hjálpa til
við að gera daginn
góðan.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
Þannig er talsvert minni form-
festa tengd yfirfærslu ráðherra-
valds en forsetavalds. Ráðherrar
þurfa til að mynda ekki að hittast
og þaðan af síður að handsala yfir-
færsluna. Raunar er handabandið
við yfirfærslu forsetavalds frekar
táknrænt en nauðsynlegt og valdið
færist í raun sjálfkrafa þegar for-
seti yfirgefur landið.
Samkvæmt upplýsingum frá for-
sætisráðuneytinu hefur sú staða
komið upp að forseti yfirgefi landið
í embættiserindagjörðum, án fylgd-
ar og án þess að staðfesta yfirfærslu
með handabandi við annan hand-
hafa forsetavaldsins, til dæmis ef
enginn hinna síðarnefndu á heim-
angengt.
thorgils@frettabladid.is
VIÐSKIPTI Gengi krónunnar hefur
styrkst um hátt í ellefu prósent á
síðustu fimm mánuðum og hefur
ekki verið sterkara síðan í byrjun
síðasta árs. Mikil árstíðarsveifla
er í gengi krónunnar og því lík-
legt að hún muni veikjast aftur
með haustinu.
Þetta kemur fram í morgun-
korni Greiningardeildar Íslands-
banka. Gengisvísitala krónunn-
ar fór hæst í rúm 229 stig undir
lok mars en var í gær um 207
stig sem er hátt í ellefu prósenta
styrking á tæpum fimm mán-
uðum.
Mest hefur styrkingin orðið
síðustu vikurnar en frá því í byrj-
un júlí hefur hún styrkst um sjö
prósent. - jms
Gengisvísitalan um 207 stig:
Krónan hefur
styrkst töluvert