Fréttablaðið - 18.08.2012, Síða 6
18. ágúst 2012 LAUGARDAGUR6
E n g i h j a l l a 8 , 2 0 0 Kó p avo g i
Opið frá 11 - 20 alla daga
RÚSSLAND Marina Syrova, dómari
í Moskvu, var þrjár klukkustund-
ir að lesa upp dómsúrskurð yfir
þremur konum úr pönkhljómsveit-
inni Pussy Riot.
Þær höfðu efnt til uppákomu í
helstu kirkju rússnesku rétttrún-
aðarkirkjunnar í Moskvu í febrú-
ar síðastliðnum, þar sem þær fluttu
svokallaða pönkbæn með ákalli til
Maríu meyjar um að koma Vladim-
ír Pútín frá.
Pútín var þá forsætisráðherra,
en var tveimur vikum síðar kosinn
forseti Rússlands á ný.
Niðurstaða dómarans var sú að
konurnar þrjár hafi gerst sekar um
óspektir á almannafæri og ættu
fyrir vikið að dúsa tvö ár í fangelsi.
Fimm mánaða gæsluvarðhaldsvist
telst þó hluti afplánunarinnar.
„Konurnar létu stjórnast af trú-
aróvild og hatri,“ segir í úrskurði
dómstólsins. Þær hafi með þessu
sýnt trúuðu fólki lítilsvirðingu og
þar að auki ætlað sér að „koma
virðingarleysi sínu á framfæri,
ekki aðeins við prestana og gesti í
kirkjunni, heldur við aðra borgara
sem ekki voru viðstaddir í kirkj-
unni.“
Hundruð mótmælenda söfnuð-
ust saman fyrir utan dómsalinn og
voru tugir þeirra handteknir, þar á
meðal Garrí Kasparov skákmeist-
ari og fleiri leiðtogar rússneskra
stjórnarandstöðuhópa.
Víða um heim var efnt til mót-
mæla við rússnesk sendiráð meðan
á réttarhöldunum stóð, þar á meðal
hér í Reykjavík.
Meðal þeirra sem tóku þátt í mót-
mælum við rússneska sendiráðið
í Berlín var Marianne Birthler,
kona sem bjó í Austur-Þýskalandi
og tók þar þátt í andófshreyfingu
gegn stjórnvöldum: „Ég man þá
KJÖRKASSINN
Tveggja ára fangelsi fyrir
gjörning í kirkju í Moskvu
Þrjár konur úr rússnesku pönksveitinni Pussy Riot voru dæmdar í tveggja ára fangelsi. Þær hlógu við
dómsuppkvaðninguna. Fjöldi fólks var handtekinn fyrir utan dómsalinn. Mótmæli víða í borgum Evrópu.
PUSSY RIOT Í RÉTTARSAL Þær Yekaterina Samutsevich, Maria Alekhina og Nadezhda Tolokonnikova í glerbúri í réttarsalnum í
Moskvu í gær. NORDICPHOTOS/AFP
LÖGREGLUMÁL Um 150 manns tóku þátt í mótmæl-
um við rússneska sendiráðið í Garðastræti í gær
vegna réttarhaldanna yfir rússnesku pönksveitinni
Pussy Riot. Um hádegisbil voru meðlimir Pussy
Riot dæmdir í tveggja ára fangelsi fyrir helgispjöll
í rússnesku rétttrúnaðarkirkjunni í Moskvu.
Fjórir mótmælendur við sendiráðið sögðust í
gær hafa verið kærðir til lögreglu vegna sam-
bærilegra mótmæla við sendiráðið í júlí í sumar
þar sem rússneski fáninn var dreginn niður og
Pussy Riot-hetta dregin að húni. Sá verknaður
kann að varða við 95. grein hegningarlaga sem
fjallar meðal annars um refsingu við því að smána
erlenda þjóð.
Stefán Eiríksson lögreglustjóri sagði í samtali
við Fréttablaðið að mótmælendurnir fjórir hefðu
aðeins verið boðaðir til skýrslutöku í næstu viku.
„Við fengum engin skrifleg gögn en það var óein-
kennisklæddur lögreglumaður sem sagði okkur
það að við hefðum verið kærðar. Í rauninni vitum
við ekkert meira,“ segir María Lilja Þrastardóttir
sem er ein þeirra sem segist sæta kæru vegna mót-
mæla. Hún kveðst telja að rússneska sendiráðið
standi ekki að baki kærunni heldur íslenska ríkið.
Stefán segir fyrirhugaða skýrslutöku vegna
atviksins sem varð í júlí. „Þau voru bara boðuð
til skýrslutöku í næstu viku. Það er það eina sem
átti sér stað,“ sagði Stefán um samskipti lögreglu-
mannsins og mótmælendanna. Spurður hvort mót-
mælendunum hefði verið sagt að þeir hefðu verið
kærðir segir Stefán: „Nei, ekki eftir því sem ég
best veit.“ - bþh
Fjórir mótmælendur segjast hafa verið kærðir til lögreglu vegna mótmæla í júlí:
Mótmæli við sendiráð Rússa
FRELSIÐ PUSSY RIOT Margir komu saman til að mótmæla
mannréttindabrotum í Rússlandi. Lögregla var með mikinn við-
búnað og Garðastrætinu var lokað að hluta. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
tíma þegar við vorum í stjórnar-
andstöðu,“ segir hún. „Þau boð sem
bárust frá útlöndum voru okkur
mjög mikilvæg. Við vissum að það
sem við vorum að gera naut við-
urkenningar og að það var til fólk
sem var tilbúið til að styðja okkur
og fylgjast með því hvað yrði um
okkur. Þetta er ástæðan fyrir því
að við erum hér núna.“
Í Barcelona á Spáni komu tugir
mótmælenda saman í litskrúðug-
um fötum, sungu og dönsuðu við
lög Pussy Riot fyrir utan kirkjuna
Sagrada Familia.
Og í Úkraínu notuðu fjórar
konur keðjusög til að saga niður
stóran trékross á aðaltorgi höfuð-
borgarinnar Kiev: „Krossinn er
tákn kúgandi trúarfordóma sem
ýta undir einræði. Nú vilja þeir
sem tilbiðja krossinn stinga sak-
lausum í fangelsi,“ sögðu þær.
gudsteinn@frettabladid.is
MATVÆLI Matvælastofnum varar
við neyslu á kræklingi sem safn-
að er í Hvalfirði. Sýni af sjó sem
voru tekin í Hvalfirði í lok síð-
ustu viku, til greiningar á eitr-
uðum þörungum, leiddu í ljós að
dynophysis-þörungar sem geta
valdið eitrun voru yfir viðmið-
unarmörkum.
Á heimasíðum Matvælastofn-
unar og Hafrannsóknastofnunar
má sjá upplýsingar frá niður-
stöðum vöktunar á eitruðum
þörungum á nokkrum stöðum
við landið. Neytendum, sem
ætla að tína krækling, er bent á
kynna sér niðurstöðurnar áður
en lagt er af stað í slíka ferð.
- shá
Tínsla er varhugaverð:
Kræklingur úr
Hvalfirði getur
valdið eitrun
VARHUGAVERT Þörungar eitra skelfisk
hluta úr ári. MYND/KARL
Ætlar þú að fylgjast með ensku
deildinni í knattspyrnu í vetur?
JÁ 32,8%
NEI 67,2%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Skiptir það þig máli hvar þú
kaupir matvörur?
Segðu þína skoðun á visir.is
MENNTUN Í haust hefja um þrett-
án hundruð nýnemar nám við
Háskólann í Reykjavík. Ari
Kristinn Jónsson, rektor skól-
ans, setti skólann á fimmtudag
en hópurinn sem hefur nám við
skólann í haust er sá stærsti frá
stofnun skólans árið 1998.
Mest fjölgar nýnemum í tölv-
unarfræðideild og í tækni- og
verkfræðideild. Það helst hugs-
anlega í hendur við að atvinnu-
lífið hefur kallað eftir tækni-
menntuðu fólki.
- bþh
Háskólinn í Reykjavík:
Aldrei fleiri ný-
nemar við HR
STJÓRNSÝSLA Oddný G. Harðardótt-
ir, fjármálaráðherra, vill höfða mál
gegn eftirlitsstofnun EFTA (ESA)
vegna sölu á byggingum í Keflavík
til Verne Global, sem rekur þar
gagnaver. Þetta kom fram í frétt-
um Stöðvar 2 í gærkvöld.
ESA komst að þeirri niðurstöðu
í síðasta mánuði að Verne hefði
hlotið ríkisaðstoð í gegnum kaup-
in á byggingum á gamla varnar-
svæðinu á Miðnesheiði árið 2008.
Sagði stofnunin söluvirði bygging-
anna hafa verið lægra en það sem
ESA taldi hafa verið markaðsvirði
þeirra.
Á ríkistjórn-
arfundinum
í gærmorgun
kynnti Oddný
tillögu um að
Ísland höfðaði
mál gegn ESA
fyrir EF TA-
dómstólnum.
Úrskurður
ESA í júlí var
á þann veg að
220 milljóna króna mismun þyrfti
ríkið að endurheimta frá Verne.
Auk þess þyrfti ríkið að fá því sem
næmi fasteigna- og gatnagerðar-
gjöldum sem Reykjanesbær hefur
veitt Verne undanþágu frá.
Fjármálaráðuneytið sendi frá
sér tilkynningu í júlí. Þar segir
að við meðferð málsins hjá ESA
hafi íslensk stjórnvöld gert hreint
fyrir sínum dyrum og sýnt fram á
hvernig staðið var að sölunni. Það
var gert í gegnum opið söluferli.
Byggingar voru seldar hæstbjóð-
anda sem var Verne Global.
Fréttastofa Stöðvar 2 segir aðra
ráðherra ekki hafa gert athuga-
semd við tillöguna. Því er líklegt
að málið verði útkljáð fyrir EFTA-
dómstólnum. - bþh
Fjármálaráðherra lagði til við ríkisstjórn að ESA yrði stefnt fyrir EFTA-dómstólinn:
Oddný vill höfða mál gegn ESA
ODDNÝ G.
HARÐARDÓTTIR
Allir fá vonandi skólavist
Allir undir átján ára hafa fengið
skólavist í menntaskólum landsins og
býst menntamálaráðherra við því að
allir eldri nemendur fái einnig inni í
skóla. Framhaldsskólar hafa því upp-
fyllt lögbunda skyldu sína um að veita
öllum undir átján ára aldri skólavist.
MENNTAMÁL
Á síðasta ári sóttu samkynhneigðir um leyfi til
Moskvuborgar um að fá að halda gleðigöngur
árlega næstu hundrað árin. Borgaryfirvöld vísuðu
umsókninni frá sér og gáfu jafnframt út bann við
göngum samkynhneigðra, sem á að gilda í heila
öld. Í júní síðastliðnum staðfesti héraðsdómur í
Moskvu þetta bann, og í gær staðfesti hæstiréttur
borgarinnar svo bannið. Nikolaí Alexejev,
þekktasti baráttamaður Rússlands fyrir rétt-
indum samkynhneigðra, ætlar nú með málið til
Mannréttindadómstólsins í Strassborg. Mann-
réttindadómstóllinn dæmdi rússnesk stjórnvöld
árið 2010 til að greiða sektir fyrir að banna
göngur samkynhneigðra árin 2006 til 2008.
Gleðigöngur bannaðar í heila öld