Fréttablaðið - 18.08.2012, Side 26
18. ágúst 2012 LAUGARDAGUR26
Þ
essi vika fyrir Reykjavíkurmara-
þonið er alltaf dálítið skemmtileg
hjá mér, það vill svo vel til að ég
er í sumarfríi enda stíla ég upp á
það,“ segir Sigurður P. Sigmunds-
son hagfræðingur glaðlega meðan
hann fær sér sæti. Sigurður er meðal frum-
kvöðla í langhlaupum hérlendis, átti Íslandsmet
í maraþoni í þrjátíu ár og það síðasta, frá Berlín
1985, var ekki slegið fyrr en eftir 26 ár. Margir
leita til hans eftir góðum ráðum nú þegar þús-
undir eru í þann veginn að taka á sprett.
„Þegar Reykjavíkurmaraþonið byrjaði árið
1984 voru þátttakendur 214, þar á meðal nokkrir
útlendingar, og þótti alveg gríðarlega flott. Áður
höfðu um tveir tugir Íslendinga hlaupið mara-
þon, án þess að æfa reglubundið. Nú eru þeir
hátt í tvö þúsund, fólk á öllum aldri og af báðum
kynjum. Þetta hefur byggst upp jafnt og þétt,
sérstaklega eftir síðustu aldamót,“ segir Sig-
urður um þróun hlaupsins. Hann kveðst fagna
því hversu hreyfing sé orðin almenn í dag hvort
sem hún sé í formi hlaupa, hjólreiða, fjallganga
eða annars og segir fólk líta á hana sem lífs-
gæði. „Ég er oft fenginn til að leiðbeina fólki
um hreyfingu og þegar ég spyr það um tilgang-
inn kveðst það vilja eiga þess kost að upplifa
ævintýri eins og að ganga á Esjuna með vinnu-
félögum eða skreppa á Hornstrandir með fjöl-
skyldunni. Mér finnst þetta alveg frábært og
mikil bylting frá því sem áður var. Upp úr 1980
voru líkamsræktarstöðvar fáar en eru nú við
aðra hverja götu. Við þá sem ekki eru byrjaðir
að hreyfa sig vil ég segja; Það er aldrei of seint
að byrja og það er engin ástæða til að hræðast
það verkefni að taka þátt í almenningshlaupum.
Það skemmtilega við Reykjavíkurmaraþonið er
líka að þar er gott tækifæri til að láta gott af sér
leiða í þágu góðra málefna.“
Hlustaði á íþróttafréttirnar í sveitinni
Sigurður starfar sem sviðsstjóri fjármála- og
rekstarsviðs hjá Vinnumálastofnun og er með
afbrigðum frísklegur í fasi af 54 ára manni að
vera. Hann kveðst í æsku hafa verið sveita-
strákur. „Ég átti heima á Hörgslandi á Síðu til
12 ára aldurs. Foreldrar mínir voru ekki í íþrótt-
um heldur kviknaði áhuginn hjá mér af sjálfu
sér þegar ég var krakki. Ég fór að fylgjast með
íþróttafréttum og sat hugfanginn við útvarpið
þegar Örn Eiðsson fjallaði um afrek merkra
íþróttamanna í þáttum sínum. Var innan við
tíu ára þegar ég pantaði kennslubók um frjáls-
íþróttir sem Vilhjálmur Einarsson hafði gefið
út í félagi við Gabor Simony, ungverskan þjálf-
ara sem var hér á landi um tíma. Árið 1970 var
haldið fyrsta héraðsmót Ungmennasambands V-
Skaftafellssýslu og ég sigraði í fjórum greinum
af fimm í flokki 13 ára og yngri. Það hvatti mig
áfram.“
Til Hafnarfjarðar flutti Sigurður haustið
1969 og fór að taka þátt í fótbolta og handbolta
en um sextán ára aldurinn voru frjálsíþróttirn-
ar, sérstaklega hlaupin, komin í forgang. „Ég
fann fljótlega að lengri hlaup áttu vel við mig
og iðkaði þau á vegarköntum í nágrenni Hafnar-
fjarðar. Það þótti nokkuð skrítið því fáir voru að
hlaupa í þá daga og skilningurinn á því sem ég
var að gera ekkert sérlega mikill. Fólk var hissa
á að ég skyldi ekki bara vera í boltaíþróttunum.“
Sigurður hljóp sitt fyrsta maraþon 1981 í
Reykjavík, þá 24 ára, og þakkar Edinborg í Skot-
landi það að hann hafi orðið þokkalegur mara-
þonhlaupari, þangað fór hann í háskólanám í
hagfræði haustið 1978. „Ég kynnist mörgum
hlaupurum í Edinborg, allt annarri aðstöðu og
allt öðrum anda en hér. Þar þótti sjálfsagt að
leggja mikið á sig og keppa um hverja helgi,“
segir hann. Hann kveðst hafa hlaupið Wolver-
hampton-maraþon á síðasta vetri sínum í skól-
anum árið 1982 á tímanum 2:27,03 og bætt þar
með eigið Íslandsmet frá árinu áður í Reykjavík
sem var 2:31,33 klukkustundir. „Síðan bætti ég
Íslandsmetið á hverju ári, árið 1983 hljóp ég á
2:23,43 í New York, vorið 1984 var tími minn
2:21,20 í London og svo náði ég tímanum 2:19,46 í
Berlín haustið 1985. Það met toppaði Kári Steinn
Karlsson í fyrra á sama stað. Þú undrast kannski
hvers vegna ég man alla þessa tíma en við þurft-
um að setja á okkur alla millitíma þegar ég var
að hlaupa. Þá voru menn ekkert með Garmin-
tæki eins og núna, heldur var maður eins og
tölva og varð að muna allt.“
Þekktar sögur um blautar buxur
Þegar Sigurður kom úr hagfræðináminu kveðst
hann hafa verið fullur af krafti og áhuga á að
efla langhlaup hérlendis og meðal annars átt
dálítinn þátt í að móta Reykjavíkurmaraþonið.
„Þá var veruleikinn allt annar en núna, engin
hlaupabretti, engir stígar utan vega og enginn
íþróttavöllur með gerviefnum,“ rifjar hann
upp. „Mér fannst sjálfsagt að skila minni
reynslu bæði til míns íþróttafélags, FH,
og víðar og hef verið að gera það með
því að þjálfa fólk og fræða auk þess að
vinna innan Frjálsíþróttasambandsins
að framkvæmd hlaupa. Þetta hef ég
gert með mjög glöðu geði og það gefur
mér mikið til baka enda hef ég kynnst
mörgu skemmtilegu fólki gegnum
hlaupin.“ Hann ætlar þó ekki að spretta
úr spori í dag. „Ég hef ekki tekið mikinn
þátt í hlaupum síðustu átta ár en er alltaf
að segja einhverjum til og verð bara á
hliðarlínunni.“
Skyldi Sigurður hafa lent í að hlaupa
með stein í skónum langar leiðir? „Ég
man ekki eftir því í maraþonhlaupi en í
hálfmaraþoni losnaði hjá mér skóreim og
ég þurfti að stoppa,“ svarar hann. Fleiri
smáatriði við lokaundirbúning langhlaupa
ber á góma. „Það er vandasamt að undir-
búa mataræðið rétt,“ tekur hann fram. „Menn
þurfa að gæta þess að drekka helst ekki seinna
en 50 mínútum áður en hlaupið er ræst, þá ná
menn að skila þeim vökva af sér. En það eru til
þekktar sögur um blautar buxur og ljósmynd-
arar hafa á stórmótum eins og Ólympíuleikum
og heimsmeistaramótum svolítið vakað yfir slík-
um óhöppum.“
Er að vinna í forgjöfinni
Á seinni árum kveðst Sigurður hafa snúið sér
að golfinu. „Ég er að vinna í forgjöfinni og er
kominn niður í fjórtán en draumurinn er að
komast undir tíu,“ segir hann brosandi og bætir
við að í golfinu séu margir gamlir frjálsíþrótta-
menn og hlauparar og eins spili hann oft með
Einari bróður sínum. Sigurður er nefnilega
elstur átta systkina og kveðst hafa drifið þrjá
bræður sína með sér í íþróttirnar, þar á meðal
Einar sem keppti fyrir Íslands hönd í 400 og 800
metra hlaupum. „Íþróttaáhuginn hefur tengt
okkur bræður vel saman,“ segir hann og er í
lokin spurður hvort hlaupagenin hans hafi erfst
áfram. „Ég á fjögur börn en þau hafa ekki lagt
keppnisíþróttir fyrir sig. Elsta dóttirin, Hrund,
29 ára, hefur hins vegar stundað crossfit um
árabil og er bæði með einkaþjálfarapróf og BA
í íþróttafræði frá HR. Diljá 18 ára og Karítas
16 ára voru töluvert í íþróttum þegar þær voru
yngri, svo á ég 20 mánaða strák, Hrannar Pétur,
sem er mjög sprækur og ég segi stundum í gríni
að honum sé ætlað að ná Íslandsmetinu í mara-
þonhlaupi aftur í fjölskylduna. Aldrei að vita
þar sem mamma hans, Valgerður Heimisdóttir,
er líka hlaupari og varð önnur kvenna í 55 kíló-
metra Laugavegshlaupinu í júlí síðastliðnum.“
Bylting frá því sem áður var
Þegar Sigurður P. Sigmundsson sást hlaupa í vegarköntum á áttunda áratugnum þótti það sérviskulegt. Nú eru allir úti að
hlaupa. Sigurður á sinn þátt í því, hann hefur verið óþreytandi að þjálfa og aðstoða við skipulagningu langhlaupa og er nýbúinn
að halda erindi hjá fyrirtæki í borginni í tilefni Reykjavíkurmaraþons þegar hann mætir í viðtal við Gunnþóru Gunnarsdóttur.
Aldrei hafa einstaklingar af jafn mörgum þjóðernum
verið skráðir til leiks og í ár
miðað við forskráningu, þeir
eru af 61 þjóðerni. Erlendir
þátttakendur Reykjavíkurmara-
þons hafa heldur aldrei verið
fleiri, eða 1.617. Í maraþon,
hálfmaraþon og tíu kílómetra
hlaup eru þegar skráðir fleiri en
tóku þátt í þeim vegalengdum í
fyrra en þá var sett þátttökumet
í þessum vegalengdum. 10.387
manns hafa forskráð sig í hlaup-
ið í ár og það er líka met.
Þátttakendur af
61 þjóðerni í ár
6.000
3.000
0
12.000
1984 1985 1986 1987 1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011
Þátttakendafjöldi í Reykjavíkur-
maraþoni frá upphafi
Árið 1992 detta
sjö kílómetra
hlaup út en
þriggja og tíu
kílómetra hlaup
koma í staðinn.
Árið 2005 fjölgar
þátttakendum í tíu
kílómetra hlaupum
um liðlega þúsund.
Árið 2006 bætist
Latabæjarhlaup-
ið, ætlað átta ára
og yngri, við þau
hlaup sem fyrir
voru.
Árið 2010
bætist boð-
hlaup við.
9.000
SIGURÐUR PÉTUR Man ekki til að
hafa hlaupið með stein í skónum
langar leiðir en í hálfmaraþoni losnaði
skóreim og hann þurfti að stoppa.