Fréttablaðið - 18.08.2012, Side 40
LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 2012
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000.
Umsjónarmenn auglýsinga: Sverrir Birgir Sverrisson, tp. sverrirbs@365.is, s. 512 5432.
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Einn þeirra nemenda sem útskrifuðust úr MBA-námi Háskóla Íslands síðasta vor
var Halldór Halldórsson, fyrrver-
andi bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar
og formaður Sambands íslenskra
sveitarfélaga. Halldór hafði lengi
stefnt á frekara framhaldsnám
og sá tækifærið opnast eftir að
hann ákvað að gefa ekki kost á
sér sem bæjarstjóri fyrir sveitar-
stjórnarkosningarnar 2010. „Ég
stundaði nám í stjórnsýslufræð-
um við Háskóla Íslands þegar
ég varð bæjarstjóri árið 1998. Ég
sá mér ekki fært að halda nám-
inu áfram á þeim tíma enda er
starf bæjarstjóra erilsamt starf.
Því ákvað ég að hætta í náminu
en var alltaf ákveðinn í að halda
frekari námi áfram eftir að starfi
mínu sem bæjarstjóri lyki. Vorið
2010 varð ljóst að ég myndi ekki
gefa kost á mér í áframhaldandi
starf og þá hóf ég leit að námi
næsta vetur.“
Halldór segist hafa skoðað
ýmsa möguleika um sumarið
en á endanum varð MBA-nám
við Háskóla Íslands fyrir valinu.
„Ég velti meira að segja fyrir mér
þeim möguleika að halda út fyrir
landsteinana. En á endanum
kaus ég námið við Háskóla Ís-
lands enda talsvert rask fyrir fjöl-
skylduna að flytja til útlanda.“
Ein helsta ástæða þess að Há-
skóli Íslands varð fyrir valinu að
sögn Halldórs var stefna skól-
ans að vera ávallt í fremstu röð
háskóla í heiminum. „Það freist-
aði mín líka að námið er að nær
öllu leyti kennt á íslensku. Þann-
ig sá ég fram á það að hópavinn-
an yrði meira gefandi. Reynd-
ar voru kennarar námsins bæði
íslenskir og erlendir og það var
mjög skemmtilegt að fá erlenda
fyrirlesara með innlegg í námið.“
Halldór segir MBA-nám-
ið hafa verið mjög skemmtilegt
og gefandi nám. En þótt námið
sem slíkt hafi verið skemmti-
legt segir hann samnemendur
sína hafa staðið upp úr og einn-
ig hversu góður og samhent-
ur hópurinn var. „Það var ótrú-
legt hvað þessi 25 manna hópur
náði vel saman á þessum tveim-
ur árum. Ég er búinn að eignast
marga góða vini og veit að tengsl-
in milli hópmeðlima munu vara
lengi áfram.“
Það voru eðlilega mikil við-
brigði fyrir Halldór að setjast á
skólabekk aftur en hann segir
samt tilfinninguna hafa verið
mjög góða. „Þetta var í raun æð-
isleg tilfinning og algjör sjálfs-
endurnýjun. Maður hefur svo
gott af þessu, að breyta svona
rækilega til. Sjálfur hafði ég
starfað sem bæjarstjóri í tólf ár
þannig að það var kominn tími
á breytingar.“
Námið hefur nýst Halldóri vel.
Strax á fyrsta misseri vann hann
verkefni í tengslum við nýstofn-
að fjölskyldufyrirtæki hans og
systkina sinna sem þjónust-
ar ferðamenn á Vestfjörðum.
Seinna í náminu vann hópur
Halldórs verkefni í tengslum við
markaðsgreiningu fyrir sama
fyrirtæki. „Oft þurftum við hins
vegar að leita til fyrirtækja vegna
verkefna en uppistaðan í náminu
er verkefnavinna og hópavinna.
Og talandi um vinnu, þá verð-
ur að geta þess að námið sem
slíkt er heljarmikil vinna sem
verður að taka af mikilli alvöru
svo maður fái eitthvað út úr því.
Samnemendur mínir lögðu alveg
gríðarlega mikið á sig og þetta
er ótrúlega duglegt fólk. Flest-
ir í hópnum eru fjölskyldufólk í
vinnu þannig að álagið gat verið
ansi mikið.“
Fram undan hjá Halldóri er
frekari uppbygging ferðaþjón-
ustufyrirtækis fjölskyldunnar
þar sem hann mun einblína á
stjórnun og skipulag fyrirtæk-
isins, ásamt því að sinna bók-
haldinu eins og hann hefur allt-
af gert. „Ég er síðan alltaf opinn
fyrir spennandi tækifærum í at-
vinnulífinu þótt ég sé ekki bein-
línis í atvinnuleit þessa dag-
ana.“ Halldór mælir hiklaust
með MBA-námi Háskóla Ís-
lands. Námið sé krefjandi og
erfitt en að sama skapi virkilega
hagnýtt. „Rétta hugarfarið verð-
ur þó að fylgja með. Þeir sem fara
í gegnum námið eru að taka við
ákveðnum kyndli sem þeir verða
að hlaupa með áfram. Námið er
gott og skilar miklu og nemend-
ur verða að sýna það líka, bæði í
náminu og úti í atvinnulífinu að
námi loknu.“
Samkenndin
stendur upp úr
MBA-nám Háskóla Íslands er tveggja ára
framhaldsmenntun. Námið er mjög krefjandi en
um leið skemmtilegt og gagnlegt.
Halldór Halldórsson, fyrrverandi bæjar-
stjóri Ísafjarðarbæjar, segir MBA námið
við Háskóla Íslands hafa verið mjög
skemmtilegt og gefandi. MYND/HEIÐA
MBA-námið í Háskóla Íslands er hagnýtt nám sem miðar
að því að efla frumkvæði, færni og forystueiginleika
MBA-námið í Háskóla Íslands:
• tækifæri fyrir þig til að efla persónulega færni á sviði rekstrar og stjórnunar
• sérstaklega miðað að íslensku atvinnulífi
• nám með alþjóðlegum blæ þar sem horft er á Ísland í alþjóðasamhengi
• tveggja ára metnaðarfullt og starfsmiðað meistaranám fyrir stjórnendur
• skipulagt samhliða starfi, kennt er á föstudögum og laugardögum aðra hvora helgi
www.mba.is
Skoraðu á þig
og taktu skrefið!
MBA-nám í Háskóla Íslands