Fréttablaðið - 18.08.2012, Blaðsíða 41
ROKKABILLÝ Í ÞJÓÐMINJASAFNINU
Rokkabillý-tónleikar Langa Sela og Skugganna verður í Þjóð-
minjasafninu í kvöld kl. 20.00. Á eftir stígur Háskóladansinn
á svið og kennir gestum og gangandi rokkabillý-dansspor fyrir
rokkabillý-ballið sem stendur til kl. 22.00 í anddyri safnsins.
Suðurlandsbraut 6, 108 Reykjavík
1.250 kr
1.350 kr
HOLLT
OG GOTT
PHO víetnamskur veitingastaður Ármúla 21 - 108 Reykjavík - Sími: 588 6868
1.250 kr
Opið:
mán - föst Kl. 11 - 21
lau - sun Kl. 12 - 21
Hrífandi náttúra, einstök menning og
fjölbreytt dýralíf sem eiga varla sinn
líkan, ævintýraleg upplifun í einstöku
umhverfi. Við förum m.a. í Safariferð
á jeppum og skoðun villt dýr í sínu
náttúrurlega umhverfi. Sri lanka er
eyjan sem Sinbað sæfari og Marco
Polo heimsóttu á ferðum sínum. Við
kynnumst framandi og heillandi heimi
sem tekur á móti ferðalöngum með
opnum örmum.
Upprifjun fyrir SAMRÆMDU PRÓFIN í
september í 4., 7. og 10. bekk
NÁMSAÐSTOÐ
Öll skólastig - Réttindakennarar
Nemendaþjónustan sf www.namsadstod.is s. 557 9233
Við eigum bara daginn í dag, hvort sem við erum frísk eða alvarlega veik. Því ættu sem flestir að taka
fyrir einn dag í einu, njóta þess sem
lífið hefur gefið og lifa því til fulls.“
Þetta segir Áslaug Arna Sigurbjörns-
dóttir sem hyggst hlaupa tíu kílómetra
maraþon með Nínu Kristínu, systur
sinni, sem bundin er við hjólastól.
„Hugdettan þótti djörf í fyrstu en við
erum klárar í slaginn. Hlaupið verður
ugglaust strembið og svipað því að
hlaupa með manneskju í fanginu að
ýta Nínu í hjólastól á undan sér. Við
stefnum á Íslandsmet í tíu kílómetra
hjólastólahlaupi,“ segir Áslaug brött.
Nína Kristín safnar áheitum fyrir
Ljósið, endurhæfingar- og stuðnings-
miðstöð krabbameinsveikra og að-
standenda þeirra.
„Mamma greindist að nýju með
krabbamein í vor eftir að hafa áður
sigrast á brjóstakrabbameini. Hún leitar
mikið í Ljósið og það hefur reynst henni
vel. Því viljum við veg Ljóssins sem
mestan,“ segir Áslaug sem áður safnaði
áheitum fyrir NPA-miðstöðina sem bætt
hefur lífsgæði Nínu Kristínar mikið.
„Nína fæddist heilbrigð en byrjaði að
veikjast á öðru árinu. Hún er þroska- og
hreyfihömluð en gat gengið með stuðn-
ingi þar til í fyrra að veikindin ágerðust.
Þá fyrst kom í ljós að hún hafði verið
ranglega sjúkdómsgreind og í dag ríkir
óvissa um hvað hrjáir hana í raun.“
Áslaug segir alvarleg veikindi oft
feimnismál og utanaðkomandi skorti
stundum orð eða viðbrögð.
„Það er skiljanlegt en aðstandendum
er nauðsyn að tala um veikindin, bæði
til að létta á sál sinni og líða betur. Það
gerir illt verra að byrgja allt innra með
sér og um leið ágætt fyrir þá sem ganga
í gegnum það sama að vita að fleiri
standa í svipuðum sporum.“
Áslaug stundar laganám við Háskóla
Íslands og er formaður Heimdallar.
„Ég vil sjá Ísland blómstra. Ég er með
púlsinn á ungmennum minnar kynslóð-
ar sem líta frekar til framtíðar í ókunnu
landi en hér heima. Því þarf að gera
landið lífvænlegra og eftirsóknarvert á
ný. Ísland á vera land tækifæranna.“
Áslaugu líkar vel að hafa mikið á
sinni könnu. Hún segir dugnaðinn og
hjartalagið komið frá foreldrum sínum.
„Mér finnst gott að gera gagn fyrir
aðra og það fyllir mig einlægri gleði að
sjá systur mína blómstra. Ég væri ekki
sama manneskjan ef ég hefði ekki alist
upp með Nínu. Hún hefur kennt mér
þolinmæði, umburðarlyndi og aðra hlið
á lífinu sem svo dýrmætt er að eiga en
ekki allir fá að kynnast.“ ■ thordis@365.is
ALLT FYRIR MÖMMU
DUGNAÐARFORKAR Kærleikur, virðing og stuðningur hafa verið veganesti
systranna Áslaugar og Nínu frá blautu barnsbeini. Í dag gefa þær til baka.
VERTU MEÐ
Hver sem er getur
heitið á þá sem
hlaupa fyrir gott
málefni í Reykja-
víkur maraþoni
Íslands banka fyrir
upphæð að eigin
vali. Þannig er hægt
að hvetja hlaupara
til dáða og láta
jafn framt gott af sér
leiða.
Sjá nánar á www.
hlaupastyrkur.is.
METNAÐARFULLAR
Þrjú ár skilja þær systur
að í árum. Áslaug Arna
er 21 árs og Nína Kristín
verður 19 ára í ár. Hún
stundar nám við Fjöl-
brautaskólann í Ármúla.
MYND/GVA
Þjóðminjasafn
Íslands
vill vekja athygli á því að
Langi Seli og Skuggarnir
spila rokkabillý í safninu
í kvöld frá kl. 20.00-20.30.
Allir velkomnir – Aðgangur ókeypis