Fréttablaðið - 18.08.2012, Síða 54
18. ágúst 2012 LAUGARDAGUR10
Skrifstofa Alþingis auglýsir eftir
sérfræðingi í alþjóðamálum í
stöðu alþjóðaritara.
Staðan er til eins árs.
Sjá nánar á starfatorg.is.
Vélvirkjar takið eftir!
Við óskum eftir að ráða vélvirkja til starfa í Garðabæ.
Starfið fellst í að þjónusta bæði minni og stærri
kælikerfi.
Gerð er krafa um að viðkomandi sé hress og eigi
auðvelt með að vinna með öðrum.
Það er kostur ef viðkomandi hefur reynslu af vinnu
við kælikerfi.
Áhugasamir sendi umsókn ásamt ferilskrá á
frost@frost.is
Upplýsingar um starfið er að finna á
www.frost.is
Árskógum 2, Breiðholti / Mjódd
Hjúkrunarheimilið Skógarbær
Eldhús
Matartækni/starfsmann vantar í 90% starf í eldhús/mat-
sal Skógarbæjar, um er að ræða vaktavinnu. Við leitum
eftir einstaklingi sem kann að baka, elda, talar íslensku,
er heilsuhraustur, jákvæður og hefur góða framkomu og
samskiptahæfileika.
Upplýsingar um Hjúkrunarheimilið Skógarbæ eru á heim-
síðu okkar skogar.is.
Ef nánari upplýsinga er óskað þá sendið tölvupóst til
olga@skogar.is
Umsóknir sendist með tölvupósti til olga@skogar.is
Olga Gunnarsdóttir
Næringarrekstrafræðingur
Forstöðumaður eldhúss
Star fsmenn
í plastdeild
Plastdeild (extrusion deild) framleiðir plastf ilmur úr
polýetýlen sem eru notaðar til framleiðslu áprentaðra og
óáprentaðra umbúða.
Unnið er á þrískiptum vöktum 5 daga vikunnar.
Vaktstjóri
í plastdeild
Starfslýsing:
Fylgjast með framleiðslu og gæðamálum.
Vaktstjóri ber ábyrgð á að f ilmur séu innan tilskyldra
framleiðslumarka.
Vaktstjóri ber ábyrgð á að hámarka nýtingu efna.
Vaktstjóri ber ábyrgð á merkingu framleiðsluvara ofl.
Hæfniskröfur:
Samviskusemi, stundvísi og reglusemi.
Nákvæm og skipulögð vinnubrögð.
Grunnkunnátta í íslensku og ensku nauðsynleg.
Star fsmaður
í plastdeild
Starfslýsing:
Starfsmaður í plastdeild aðstoðar vaktstjóra við hin
ýmsu verk t.d.:
Byrja framleiðslur.
Innpökkun á tilbúnum rúllum.
Frágang efnis ofl.
Hæfniskröfur:
Samviskusemi, stundvísi og reglusemi.
Nákvæm og skipulögð vinnubrögð.
Grunnkunnátta í íslensku og ensku nauðsynleg.
Upplýsingar um störf in veitir Arnar Þórisson framleiðslu-
stjóri plastdeildar í síma 897 8813. Umsóknir þurfa að
berast fyrir 23. ágúst n.k. á netfangið arnar@plastprent.is
eða á skrifstofu Plastprents. Umsóknareyðublöð er að
f inna á heimasíðu Plastprents www.plastprent.is
Plastprent er leiðandi fyrirtæki á umbúðamarkaði á Íslandi og
hefur í yfir 50 ár þjónað öllum sviðum atvinnulífsins. Hjá
fyrirtækinu starfar öflugur og samhentur hópur starfsmanna
sem þjóna viðskiptavinum bæði innanlands og erlendis.
Sérfræðingar í umbúðalausnum
Húsvörður – Staðarhaldari
Húsfélagið að Löngulínu 2 í Garðabæ vill ráða húsvörð -
staðarhaldara í hlutastarf (20-30%).
Verkefni staðarhaldara eru almenn þrif á sameign, umhirða
um lóð, bílastæði og bílageymslu auk minniháttar viðhalds og
endurbóta.
Staðarhaldari þarf að vera laghentur og útsjónarsamur og hafa
auga fyrir því sem betur má fara. Í húsinu eru 48 íbúðir í þremur
stigagöngum ásamt bílgeymslu.
Skriflegar umsóknir berist:
Eignaumsjón hf. Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík eða
afgreidsla@eignaumsjon.is
Umsóknarfrestur er til og með 26. ágúst 2012.