Fréttablaðið - 18.08.2012, Blaðsíða 56
18. ágúst 2012 LAUGARDAGUR12
www.vedur.is
522 6000
Sérfræðingur í
sjávarflóðafræðum
Veðurstofa Íslands auglýsir tímabundna
stöðu sérfræðings í sjávarflóðafræðum hjá
snjóflóðasetri Veðurstofunnar á Ísafirði. Um
er að ræða eins árs verkefni með möguleika á
framlengingu. Veðurstofa Íslands er opinber
stofnun og heyrir undir umhverfisráðuneytið.
Hjá stofnuninni starfa um 130 manns með
fjölbreytta menntun og starfsreynslu sem
spannar mörg fræðasvið. Auk þess starfa um
120 manns við athugana- og eftirlitsstörf
víðsvegar um landið.
Viðfangsefni Veðurstofu Íslands eru eðlis-
þættir jarðarinnar: Loft, vatn, snjór og
jöklar, jörð og haf. Hlutverk stofnunar innar
er öflun, varðveisla, úrvinnsla og miðlun
upp lýsinga. Starfsemin fer fram á fjórum
sviðum: Eftirlits- og spásviði, Athugana- og
tækni sviði, Fjármála- og rekstrarsviði og
Úrvinnslu- og rannsóknasviði og fellur starfið
undir síðastnefnda sviðið. Nánari upplýsingar
um stofnunina má finna á heimasíðu hennar
www.vedur.is
Á snjóflóðasetri Veðurstofunnar á Ísafirði
starfa nú sjö manns. Setrið er í Vestrahúsinu
á Ísafirði þar sem Háskólasetur Vestfjarða
er einnig til húsa sem og fjölmargar aðrar
rannsóknastofnanir og fyrirtæki. Vinnu-
staðurinn er því fjölmennur og lifandi.
Starfssvið
Öflun gagna og hönnun gagnasafns um
sjávarflóð á Íslandi
Áætlanagerð um annars vegar gerð líkana-
reikninga og hins vegar skammtíma- og
langtímaspár um sjávarflóð við strendur
Íslands
Samstarf við Háskólasetur Vestfjarða
um uppbyggingu námskeiða, kennslu og
hugsanlega leiðbeiningu nemenda við
meistaranámsbrautir
Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólapróf og framhaldsmenntun
á sviði raunvísinda og/eða verkfræði
Farsæl reynsla á sviði úrvinnslu mæligagna
Frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt
sem og í teymisvinnu
Hæfni í mannlegum samskiptum
Skipulagshæfni og nákvæmni
Kunnátta í íslensku mikilvæg
Reynsla af forritun og/eða líkanagerð
er kostur
Reynsla af kennslu er kostur
Laun taka mið af kjarasamningum ríkisins
og viðeigandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar um starfið veita Harpa
Grímsdóttir (harpa@vedur.is) og Borgar
Ævar Axelsson (borgar@vedur.is).
Umsókn um starfið skal fylgja ítarleg
starfs ferilskrá og kynningarbréf þar sem
gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rök-
stuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Umsóknir skulu berast Borgari Æ. Axelssyni
í tölvupósti á netfangið borgar@vedur.is
Umsóknarfrestur er til og með
10. september 2012.
Gildi Veðurstofunnar eru þekking,
áreiðanleiki, framsækni og samvinna.
Ráðningar hjá stofnuninni munu taka
mið af þessum gildum.
Á Vísi er hægt að horfa
myndskreyttan upplest
úr þessum sígildu
ævintýrum.
Hlustaðu á Dísu ljósálf
og Alfinn álfakóng á Vísi
á
ur
Ævintýrið um Dísu ljósálf kom fyrst út á íslensku árið 1928
í þýðingu Árna Óla og hefur margsinnis verið endurprentað.
Dísa ljósálfur er ein klassískra sagna hollenska meistarans
G.T. Rotman, sem fylgt hafa íslenskum börnum í tugi ára.