Fréttablaðið - 18.08.2012, Síða 63

Fréttablaðið - 18.08.2012, Síða 63
LAUGARDAGUR 18. ágúst 2012 19 Kennari Verzlunarskóli Íslands óskar að ráða enskukennara í hlutastarf komandi skólaár. Hæfniskröfur: • Háskólapróf í viðkomandi grein. • Reynsla af kennslu á framhaldsskólastigi æskileg. • Hæfni í mannlegum samskiptum. Við bjóðum: • Góða vinnuaðstöðu. • Góðan starfsanda á framsæknum vinnustað. Nánari upplýsingar gefur Þorkell Diego yfirkennari thorkell@verslo.is, eða í síma 5 900 600. Umsóknarfrestur er til 25. ágúst og skal senda umsóknir ásamt ferilskrá til Verzlunarskóla Íslands, Ofanleiti 1, 103 Reykjavík eða á netfangið thorkell@verslo.is. Verzlunarskóli Íslands er framhaldsskóli með um 1240 nemendur. Skólinn er bekkjarskóli en nemendur ljúka prófum í viðkomandi námsáfanga um jól og vor. Nemendur geta valið á milli fjögurra mismunandi brauta og útskrifast með stúdentspróf af öllum brautum. Einnig býður Verzlunarskólinn upp á fjarnám. Verzlunarskólinn er mjög tæknivæddur og er aðstaða til náms og kennslu öll hin besta. Vantar þig vinnu? tug, gift kona og móðir með hreyfi nast aðstoðar við flestar athafnir d ka eftir persónulegri aðstoðamann 20-40 ára til starfa. starfa hjá mér starfa eftir hugmyn um sjálfsstætt líf og stuðla þar me m mínum til þátttöku í samfélagin gæði mín. Æskilegt er að umsækja ar sem ég hef eigin bíl til umráða. ndi þarf einnig að vera barngóður i, sveigjanleiki og virðing er lykillin þessu samstarfi. tækifæri og góð reynsla fyrir nema að vinna með fötluðum s.s. þroska nir, umsóknir og ferilskrá ásamt lum má senda á netfangið: na@simnet.is en einnig er hægt að 75-7377. Ég er fertug, gift kona og móðir með hreyfihömlun sem þarfnast aðstoðar við flestar athafnir daglegs lífs og óska eftir persónulegri aðstoðamanneskju á aldrinum 18-40 ára til starfa. Þeir sem starfa hjá mér starfa eftir hugmyndafræðinni um sjálfsstætt líf og stuðla þar með að tækifærum mínum til þátttöku í samfélaginu og auka lífsgæði mín. Æskilegt er að umsækjandi hafi bílpróf þar sem ég hef eigin bíl til umráða. Viðkomandi þarf einnig að vera barngóður. Jákvæðni, sveigjanleiki og virðing er lykillinn að farsæld í þessu samstarfi. Frábært tækifæri og góð reynsla fyrir nema sem stefna á að vinna með fötluðum s.s. þroskaþjálfa. Fyrirspurnir, umsóknir og ferilskrá ásamt meðmælum má senda á netfangið: asdisjenna@simnet.is en einnig er hægt að hringja í síma 775-7377. Umsóknarfrestur er til 25. ágúst. Ásdís Jenna Ástráðsdóttir Kórinn er í örum vexti og æfir á þriðjudögum kl. 17:30-19:30. Meðal verkefna í vetur eru Gloria eftir Vivaldi og Litla orgelmessan eftir Haydn í samstarfi við tvo aðra kóra. Áhugasamir hafi samband við Kára Allansson kantor kirkjunnar. kari@hateigskirkja.is Kammerkór Háteigskirkju auglýsir örfáar lausar stöður ! Kammerkórinn er skipaður menntuðum atvinnu- söngvurum og starfar að mestu á verkefnagrundvelli. Áhugasamir hafi samband við Kára Allansson kantor kirkjunnar. kari@hateigskirkja.is Kirkjukór Háteigskirkju auglýsir eftir söngfólki ! Réttingamaður óskast Bílamálun Sigursveins óskar eftir vönum réttinga- manni til starfa sem fyrst, góð laun fyrir duglegann mann. Umsókn sendist á bilamalun@bilamalun.is og upplýsingar eru í síma 5685360/ 5681981 Borgarstjórinn í Reykjavík auglýsir starf skipulagsfulltrúa Reykjavíkurborgar laust til umsóknar. Reykjavíkurborg Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynjanna í störfum og því að vinnustaðir borgarinnar endurspegli fjölbreytileika reykvísks samfélags. Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heimasíðu Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/storf. Hjá símaveri Reykjavíkurborgar í síma 4 11 11 11 eru veittar allar upplýsingar um þjónustu og starfsemi borgarinnar og símasamband við starfsmenn einstakra sviða og deilda. Hlutverk og ábyrgðarsvið Skipulagsfulltrúi Reykjavíkurborgar starfar á skipulags- og byggingarsviði Reykjavíkurborgar en mun tilheyra nýju umhverfis- og skipulagssviði frá 1. janúar árið 2013. Meðal helstu verkefna Umhverfis- og skipulagssviðs eru skipulagsmál, umhverfismál, umsjón fasteigna Reykjavíkurborgar, framkvæmdir, heilbrigðiseftirlit og byggingareftirlit. Skipulagsfulltrúi starfar skv. skipulagslögum nr. 123/2010. Hann hefur m.a. umsjón með skipulagsgerð, gefur út framkvæmdaleyfi og hefur eftirlit með þeim framkvæmdum. Skipulagsfulltrúi ber ábyrgð á gerð skipulagsáætlana, embættisafgreiðslum í umboði skipulagsráðs og eftirfylgni á stefnumótun og ákvörðunum ráðsins. Menntun og hæfniskröfur Umsækjendur skulu hafa framhaldsmenntun á háskólastigi í skipulagsfræði, arkitektúr eða skyldum greinum skv. ákvæðum skipulagslaga nr.123/2010. Umsækjendur skulu hafa heimild ráðherra til starfsheitisins samkvæmt lögum um löggildingu starfsheita sérfræðinga í tækni-og hönnunargreinum nr. 8/1996. Umsækjendur skulu hafa sérhæft sig á sviði skipulagsmála með námi eða vinnu í a.m.k. 2 ár. Reynsla af stjórnun og þekking á starfsumhverfi opinberrar stjórnsýslu er æskileg auk leiðtogahæfileika, frumkvæði í starfi, framsýni og skipulagsfærni. Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum. Hæfni til þess að tjá sig í ræðu og riti á íslensku, ensku og einu norrænu tungumáli. Góð almenn tölvukunnátta. Sviðstjóri umhverfis- og skipulagssviðs er næsti yfirmaður skipulagsfulltrúa. Um laun og starfskjör fer samkvæmt reglum um réttindi og skyldur stjórnenda hjá Reykjavíkurborg og ákvörðun kjaranefndar Reykjavíkurborgar. Umsókn skal færa inn á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/ storf, fyrir 10. september nk. Upplýsingar um starfið veitir Ólöf Örvarsdóttir, skipulagsstjóri Reykjavíkurborgar olof.orvarsdottir@reykjavik.is eða Bjarni Þór Jónsson, skrifstofustjóri bjarni.th.jonsson@reykjavik.is í síma 411 1111. Skipulagsfulltrúi www.kopavogur.is Heilsuleikskólinn Urðarhóll Laus er staða deildarstjóra á eldri deild. Starfið felur í sér að halda utan um stefnu skólans „Næringu, hreyfingu og listsköpun,” vera leiðandi í útinámi og umhverfismennt auk annarra starfa samkvæmt starfslýsingu. Á deildinni er metnaðarfullt fólk sem hefur m.a. unnið þróunarverkefnin „Breytt og fjölbreytt tónlistarstarf” og „Leikur að bókum.” Verkefnin eru fastur þáttur í starfi deildarinnar www.bornogtonlist.net og www.leikuradbokum.net Í leikskólanum starfar öflugur faghópur, foreldrasamstarf er gott og við höfum skýra starfsmannastefnu. Ef þú ert leikskólakennari með leiðtogahæfileika gefst tækifærið núna að ganga í lið með okkur. Umsóknarfrestur er til 24. ágúst n.k. www.kopavogur.is - laus störf. Nánari upplýsingar eru á vef Kópavogsbæjar auk þess er hægt að hafa samband við Sigrúnu Huldu Jónsdóttur, leikskólastjóra í síma 840 2686 Vilt þú vinna með metnaðarfullu og skapandi fólki ?
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.