Fréttablaðið - 18.08.2012, Page 64

Fréttablaðið - 18.08.2012, Page 64
18. ágúst 2012 LAUGARDAGUR20 Fasteignir 15303 - Fullbúið skrifstofuhúsnæði óskast á leigu fyrir umboðsmann barna Ríkissjóður óskar eftir að taka á leigu skrifstofuhúsnæði fyrir umboðsmann barna. Miðað er við að húsnæðið verði tekið á leigu til 5 ára, fullbúið til notkunar, án lauss búnaðar. Gerð er krafa um staðsetningu á póst¬númerasvæðinu 101, 103, 105 eða 108. Til staðar þarf að vera gott aðgengi, næg bílastæði og góð tengsl við almenningssamgöngur. Húsrýmisþörf stofnunarinnar er áætluð um 135 fermetrar og er um að ræða hefðbundið skrifstofuhúsnæði. Frekari upplýsingar um þær kröfur sem húsnæðið verður að uppfylla verða aðgengilegar á heimasíðu Ríkiskaupa www.rikiskaup.is þriðjudaginn, 21. ágúst, 2012. Fyrirspurnir varðandi verkefni 15303 skulu sendar á netfangið utbod@rikiskaup.is og verða svör birt á vef Ríkiskaupa. Fyrirspurnarfrestur rennur út 24. ágúst 2012, en svarfrestur er til og með 28. ágúst 2012. Leigutilboðum þar sem fram kemur stærð, ástand og stað- setning húsnæðis, ásamt leiguverði, skal skila til Ríkiskaupa, Borgartúni 7, 105 Reykjavík, eigi síðar en þriðjudaginn 4. september 2012. Kópavogsbær ÚTBOÐ Kópavogsbær óskar eftir tilboðum í: Endurgerð á göngu- og hjólastíg meðfram Hafnarfjarðarvegi í Kópavogi. Í útboðinu fellst breikkun á göngu- og hjólastíg meðfram Hafnarfjarðarvegi frá Borgarholtsbraut að undirgöngum undir Hafnarfjarðarveg við Kópavogsdal. Útboðsgögn verða seld í Þjónustuveri Kópavogsbæjar Fannborg 2 (1.hæð) frá og með þriðjudeginum 21. ágúst 2012 á kr 5.000. Þegar útboðsgögn eru keypt skal skrá samskiptaaðila bjóðanda í útboði. Tilboðum skal skila fyrir kl.: 11:00 5. september 2012 til þjónustuvers Kópavogs, Fannborg 2 (1. hæð). Ný útboð í auglýsingu hjá Reykjavíkurborg: • Kaup á mælistöð og tækjum til mælinga á loftgæðum, útboð nr. 12837. • Reglubundið viðhald pípulagna 2012 – Hverfi 1, 2 og 3, útboð nr. 12879 • Reglubundið viðhald pípulagna 2012 – Hverfi 4 og 5, útboð nr. 12880. • Reglubundið viðhald pípulagna 2012 – Hverfi 6 og 7, útboð nr. 12881 • Reglubundið viðhald pípulagna 2012 – Hverfi 8, 9 og 10, útboð nr. 12882. Allar nánari upplýsingar er að finna á www.reykjavik.is/utbod. Rekstur líkamsræktarstöðvar í nýrri viðbyggingu við Sundhöll Selfoss Sveitarfélagið Árborg auglýsir eftir samstarfsaðila vegna reksturs líkamsræktarstöðvar í nýrri viðbyggingu við Sundhöll Selfoss sem stendur til að reisa. Helstu forsendur eru: - Stærð gólflatar fyrir líkamsræktarstöð getur verið allt að 1200 fm. - Möguleiki er á sameiginlegri afgreiðslu og/eða búningsklefum Ekki er um bindandi tilboð að ræða heldur viðræður um eignar- og rekstrarform en sveitarfélagið vill að mögulegur rekstraraðili geti tengst hönnunarferlinu frá upphafi. Áhugasamir sendi tölvupóst á Ástu Stefánsdóttur, framkvæmda- stjóra Sveitarfélagsins Árborgar, asta@arborg.is eða hafi samband í síma 480-1900 fyrir 31.ágúst nk. Sveitarfélagið Árborg áskilur sér rétt til að hafna öllum aðilum. F.h. Strætó bs. er óskað eftir tilboðum frá verktökum í akstur almenningsvagna fyrir Samband sveitarfélaga í Eyjarfirði og Þingeyjarsýslum: Akureyri – Sigurfjörður og Akureyri – Húsavík – Þórhöfn. Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu. Útboðsgögn á geisladiski verða seld á 5.000 kr. frá 21. ágúst 2012 í þjónustuveri Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík. Tilboðum skal skila eigi síðar en: Kl. 11:00 þann 5. október 2012 til Eyþings - Sam- bands sveitarfélaga í Eyjarfirði og Þingeyjarsýslum, Strandgötu 29, 600 Akureyri. Ertu í stuði? Hófst þú nám í rafiðngrein, raf- eða rafvélavirkjun, rafveituvirkjun eða rafeindavirkjun en laukst því ekki? Ertu að starfa við þær greinar þrátt fyrir að hafa ekki lokið sveinsprófi? Hefur þú hug á að ljúka því námi sem þú hófst? Kynningarfundur verður á Stórhöfða 27 mánudaginn 20. ágúst 2012 kl. 17:00. (Gengið inn Grafarvogs megin) “Ertu í stuði?” er verkefni sem ætlað er að finna leiðir til að meta þá færni sem þátttakendur hafa aflað sér í námi og starfi. Markmiðið er að þátttakendur ljúki sveinsprófi. Nánari upplýsingar er hægt að fá á heimasíðu Fræðsluskrifstofu rafiðnaðarins www.fsraf.is eða í síma 580 5252 Einstaklega glæsilegt einbýlishús við Ásvallagötu í Reykjavík er til sölu. Húsið er 176,6 m2 að stærð, tvær hæðir, ris auk manngengs háalofts. Sér inn- gangur er á jarðhæð og auðvelt fyrir handlagna að gera þar sér íbúð en á jarðhæð er m.a. baðherbergi og eldhús. Aðalhæðin skiptist í forstofu, þrjár stofur og eldhús. Á efri hæð er baðherbergi, hjónaherbergi og auk tveggja annarra herbergja. Tvennar svalir (austur og suður) eru á húsinu auk þess sem lítill garðskúr er á baklóð. Húsið er byggt árið 1926. Nánari upplýsingar fást hjá Guðrúnu Helgu Brynleifsdóttur hrl., skiptastjóra, gudrun@lr.is, eða í síma 515-7400. Glæsilegt einbýli í Vesturbænum
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.