Fréttablaðið - 18.08.2012, Qupperneq 64
18. ágúst 2012 LAUGARDAGUR20
Fasteignir
15303 - Fullbúið skrifstofuhúsnæði
óskast á leigu fyrir
umboðsmann barna
Ríkissjóður óskar eftir að taka á leigu skrifstofuhúsnæði fyrir
umboðsmann barna. Miðað er við að húsnæðið verði tekið á
leigu til 5 ára, fullbúið til notkunar, án lauss búnaðar. Gerð er
krafa um staðsetningu á póst¬númerasvæðinu 101, 103, 105
eða 108. Til staðar þarf að vera gott aðgengi, næg bílastæði og
góð tengsl við almenningssamgöngur.
Húsrýmisþörf stofnunarinnar er áætluð um 135 fermetrar og er
um að ræða hefðbundið skrifstofuhúsnæði.
Frekari upplýsingar um þær kröfur sem húsnæðið verður að
uppfylla verða aðgengilegar á heimasíðu Ríkiskaupa
www.rikiskaup.is þriðjudaginn, 21. ágúst, 2012.
Fyrirspurnir varðandi verkefni 15303 skulu sendar á netfangið
utbod@rikiskaup.is og verða svör birt á vef Ríkiskaupa.
Fyrirspurnarfrestur rennur út 24. ágúst 2012, en svarfrestur er til
og með 28. ágúst 2012.
Leigutilboðum þar sem fram kemur stærð, ástand og stað-
setning húsnæðis, ásamt leiguverði, skal skila til Ríkiskaupa,
Borgartúni 7, 105 Reykjavík, eigi síðar en þriðjudaginn
4. september 2012.
Kópavogsbær
ÚTBOÐ
Kópavogsbær óskar eftir tilboðum í:
Endurgerð á göngu- og hjólastíg meðfram
Hafnarfjarðarvegi í Kópavogi.
Í útboðinu fellst breikkun á göngu- og hjólastíg meðfram
Hafnarfjarðarvegi frá Borgarholtsbraut að undirgöngum undir
Hafnarfjarðarveg við Kópavogsdal.
Útboðsgögn verða seld í Þjónustuveri Kópavogsbæjar
Fannborg 2 (1.hæð) frá og með þriðjudeginum 21. ágúst 2012
á kr 5.000.
Þegar útboðsgögn eru keypt skal skrá samskiptaaðila
bjóðanda í útboði.
Tilboðum skal skila fyrir kl.: 11:00 5. september 2012 til
þjónustuvers Kópavogs, Fannborg 2 (1. hæð).
Ný útboð í auglýsingu hjá
Reykjavíkurborg:
• Kaup á mælistöð og tækjum til mælinga á
loftgæðum, útboð nr. 12837.
• Reglubundið viðhald pípulagna 2012 –
Hverfi 1, 2 og 3, útboð nr. 12879
• Reglubundið viðhald pípulagna 2012 –
Hverfi 4 og 5, útboð nr. 12880.
• Reglubundið viðhald pípulagna 2012 –
Hverfi 6 og 7, útboð nr. 12881
• Reglubundið viðhald pípulagna 2012 –
Hverfi 8, 9 og 10, útboð nr. 12882.
Allar nánari upplýsingar er að finna á
www.reykjavik.is/utbod.
Rekstur líkamsræktarstöðvar í nýrri viðbyggingu
við Sundhöll Selfoss
Sveitarfélagið Árborg auglýsir eftir samstarfsaðila vegna reksturs
líkamsræktarstöðvar í nýrri viðbyggingu við Sundhöll Selfoss sem
stendur til að reisa. Helstu forsendur eru:
- Stærð gólflatar fyrir líkamsræktarstöð getur verið
allt að 1200 fm.
- Möguleiki er á sameiginlegri afgreiðslu og/eða búningsklefum
Ekki er um bindandi tilboð að ræða heldur viðræður um eignar-
og rekstrarform en sveitarfélagið vill að mögulegur rekstraraðili
geti tengst hönnunarferlinu frá upphafi.
Áhugasamir sendi tölvupóst á Ástu Stefánsdóttur, framkvæmda-
stjóra Sveitarfélagsins Árborgar, asta@arborg.is eða hafi
samband í síma 480-1900 fyrir 31.ágúst nk.
Sveitarfélagið Árborg áskilur sér rétt til að hafna öllum aðilum.
F.h. Strætó bs.
er óskað eftir tilboðum frá verktökum í akstur
almenningsvagna fyrir Samband sveitarfélaga í
Eyjarfirði og Þingeyjarsýslum: Akureyri –
Sigurfjörður og Akureyri – Húsavík – Þórhöfn.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
Útboðsgögn á geisladiski verða seld á 5.000 kr. frá
21. ágúst 2012 í þjónustuveri Reykjavíkurborgar,
Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík.
Tilboðum skal skila eigi síðar en:
Kl. 11:00 þann 5. október 2012 til Eyþings - Sam-
bands sveitarfélaga í Eyjarfirði og Þingeyjarsýslum,
Strandgötu 29, 600 Akureyri.
Ertu í stuði?
Hófst þú nám í rafiðngrein,
raf- eða rafvélavirkjun, rafveituvirkjun eða
rafeindavirkjun en laukst því ekki?
Ertu að starfa við þær greinar þrátt fyrir að
hafa ekki lokið sveinsprófi?
Hefur þú hug á að ljúka því námi sem þú hófst?
Kynningarfundur verður á Stórhöfða 27
mánudaginn 20. ágúst 2012 kl. 17:00.
(Gengið inn Grafarvogs megin)
“Ertu í stuði?” er verkefni sem ætlað er að finna leiðir
til að meta þá færni sem þátttakendur hafa aflað sér í
námi og starfi.
Markmiðið er að þátttakendur ljúki sveinsprófi.
Nánari upplýsingar er hægt að fá á
heimasíðu Fræðsluskrifstofu rafiðnaðarins
www.fsraf.is
eða í síma 580 5252
Einstaklega glæsilegt einbýlishús við Ásvallagötu í
Reykjavík er til sölu. Húsið er 176,6 m2 að stærð,
tvær hæðir, ris auk manngengs háalofts. Sér inn-
gangur er á jarðhæð og auðvelt fyrir handlagna að
gera þar sér íbúð en á jarðhæð er m.a. baðherbergi
og eldhús. Aðalhæðin skiptist í forstofu, þrjár stofur
og eldhús. Á efri hæð er baðherbergi, hjónaherbergi
og auk tveggja annarra herbergja.
Tvennar svalir (austur og suður) eru á húsinu auk
þess sem lítill garðskúr er á baklóð. Húsið er byggt
árið 1926.
Nánari upplýsingar fást hjá Guðrúnu Helgu Brynleifsdóttur
hrl., skiptastjóra, gudrun@lr.is, eða í síma 515-7400.
Glæsilegt einbýli
í Vesturbænum