Fréttablaðið - 18.08.2012, Side 73
KYNNING − AUGLÝSING18. ÁGÚST 2012 LAUGARDAGUR
Endurmenntun Háskóla Ís-lands býður nú upp á nám í undirstöðuatriðum hug-
rænnar atferlismeðferðar. Námið
er einkum ætlað háskólamennt-
uðu fagfólki innan heilbrigðis-,
félags- og menntavísinda. Það
kemur einnig að góðu gagni þeim
sem eiga mikil samskipti við fólk í
sínu starfi, svo sem stjórnendum
stofnana og fyrirtækja.
„Markmið námsins er að auka
innsýn og skilning fólks á eigin
hegðun og líðan sem og annarra,
út frá fræðikenningum og með-
ferðarlíkani hugrænnar atferlis-
meðferðar,“ útskýrir Anna Valdi-
marsdóttir, kennslustjóri náms-
ins, og bætir við: „Þetta er þó ekki
eiginlegt meðferðarnám heldur
frekar hugsað í fyrirbyggjandi til-
gangi. Með náminu öðlast nem-
endurnir hæfni til þess að leið-
beina fólki á rétta braut í átt til
sjálfshjálpar, með aðferðum þeim
sem hugræn atferlismeðferð bygg-
ir á.“
Samtalstækni
Námið er sérstaklega miðað að
því að þekkja einkenni kvíða, dep-
urðar og þunglyndis. „Námskeið-
in sem við bjóðum upp á fjalla um
grunnlögmál hegðunar og aðferðir
atferlismeðferðar til að hafa áhrif
á eigin hegðun og annarra. Meðal
annars er kynnt samtalstækni sem
notuð er í hugrænni atferlismeð-
ferð,“ segir Anna.
Samtalstæknin byggir á því að
hjálpa einstaklingi að átta sig á að
hann geti farið aðra leið eða tekið
betri ákvarðanir til að láta sér líða
betur – ekki með því að segja við-
komandi til heldur spyrja hann
opinna spurninga sem sýna að
hann býr sjálfur yfir lausnum.
„Spurningunum er hagað þann-
ig að viðkomandi komist sem oft-
ast sjálfur að niðurstöðunni. Þess
má geta að þessi viðtalsaðferð er
kennd við gríska heimspekinginn
Sókrates sem spurði fólk á torgum
Aþenu og leiddi það þannig á rétta
braut í lífsviðhorfum sínum.“
Meðal annarra námskeiða er
tveggja daga námskeið um streitu
og hvernig maður getur dregið
úr álagi. Streita er mismunandi
eftir aldri og stöðu. Skólabörn og
námsfólk fást til dæmis við annars
konar streitu en fólk á efri árum.
Við erum hörð við okkur sjálf
Eins verður rætt um kvíða og end-
urskoðun eigin hugsunarháttar, í
eigin garð og annarra. „Markmið-
ið er ekki að verða Pollýanna held-
ur frekar að viðurkenna að sumt er
erfitt, en af sanngirni – ekki síst í
eigin garð. Við komum oft fram við
okkur sjálf af meiri hörku en aðra.
Eins og einhver sagði: Ef vinur
minn myndi tala við mig eins og
ég tala stundum við sjálfan mig þá
værum við ekki vinir lengur.“
Auk þess verður talað um leiðir
til að meta á hvaða stigi þunglyndi
er. „Depurð göngum við öll í gegn-
um en þeir sem hafa mikil sam-
skipti við fólk þurfa að þekkja ein-
kenni þess þegar depurð er komin
á næsta stig og fólk þarf á faglegri
hjálp að halda,“ segir Anna og
bætir við: „Eins verður fjallað um
sjálfsmynd, sjálfsmat, sjálfsstyrk-
ingu og svokallaða vakandi athygli
eða gjörhygli sem kallast „mind-
fulness“ á ensku og hefur rutt sér
mikið til rúms á síðustu árum.“
Góður andi mikilvægur
Kennsla fer fram í sjö tveggja daga
lotum, á föstudögum og laugar-
dögum. Þrjár lotur verða kenndar
á haustmisseri og fjórar á vormiss-
eri. Námið er því hægt að stunda
með vinnu. Kennsla hefst í októ-
ber og henni lýkur í mars. „Við
fáum mjög góða sérfræðinga til að
kenna en auk þess er handleiðsla í
litlum hópum eftir hverja kennslu-
lotu. Þá getur fólk rætt reynslu sína
í hvernig það er að beita þessum
aðferðum í starfi sínu. Þar gefst
einnig gott tækifæri til að kynn-
ast samnemendum sínum en það
teljum við afar mikilvægt og leggj-
um áherslu á góðan anda og traust
innan hópsins,“ segir Anna.
Umsóknarfrestur er til 5. sept-
ember en frekari upplýsingar um
námið má nálgast á heimasíðunni
www.endurmenntun.is.
Hugræn atferlismeðferð
Í endurmenntunardeild Háskóla Íslands er nú boðið upp á nám í undir-
stöðu atriðum hugrænnar atferlismeðferðar. Námið er hugsað fyrir stjórnendur
fyrir tækja og fagfólk sem vinnur mikið með fólki.
Anna Valdimarsdóttir, kennslustjóri endurmenntunarnáms Háskóla Íslands. MYND/GVA
Kennarar frá Harvard
Þrír sérfræðingar frá Harvard, einum virtasta há-
skóla heims, munu halda námskeið hjá Endur-
menntun Háskóla Íslands á haustmisseri. Um er að
ræða þrjú námskeið í stjórnun, samningafærni og
upplýsingatækni sem hafa öll verið kennd við end-
urmenntunardeild Harvard við
góðan orðstír.
Við þróun haustnám-
skeiða fyrir stjórnend-
ur og sérfræðinga á Ís-
landi var ákveðið hjá
Endurmenntun að út-
víkka framboðið og leita
að kennurum út fyrir
landsteinana. Mark-
mið Endurmenntunar er
ávallt að bjóða það besta
og því var leitað til sérfræðinga hjá Harvard.
Betri stjórnun
Margaret Andrews kennir námskeiðið Managing
Yourself and Leading Others sem verður haldið í lok
september. Þetta námskeið er ætlað þeim sem vilja
kryfja eigin stjórnunarstíl og bæta hæfni sína til að
stjórna, hafa áhrif og leiða einingu á árangursrík-
an hátt. Andrews er aðstoðardeildarforseti á sviði
stjórnunar við Harvard Extension sem hefur að
auki langa reynslu af kennslu og stjórnun við bestu
háskóla Bandaríkjanna.
Samningafærni
Á námskeiðinu Negotiation Skills: Strategies for
Increased Effectiveness með Diana Buttu lögfræð-
ingi og kennara við Harvard þjálfa þátttakendur
samningaaðferðir sem nýtast við mismunandi að-
stæður. Buttu hefur meðal annars verið lögfræði-
legur ráðgjafi og tekið þátt í
samningaviðræðum í deil-
um Ísraela og Palestínu-
manna auk þess sem hún
er eftirsóttur álitsgjafi í
bandarískum fjölmiðlum.
Hagnýtar leiðir í upp-
lýsingatækni
Þátttakendur námskeiðs-
ins Enterprise Information
Technology: Strategies for Complex System Imple-
mentation fá fræðslu og kynningu á þeim tólum og
tækjum sem auka skilning á upplýsingakerfum fyrir-
tækja og hvaða hagnýtar leiðir í upplýsingatækni má
nota til úrlausna á viðskiptatengdum vandamálum.
Kennari er Dr. Zoya Kinstler sem kennir við Harvard
og er sérfræðingur í upplýsingatæknilausnum. Hún
hefur einnig 20 ára reynslu í verkefnum á sviði upp-
lýsinga- og samskiptatækni í stórfyrirtækjum.
Öll kennsla fer fram á ensku og skráning fer fram
á vef Endurmenntunar, endurmenntun.is, eða í síma
525 4444.
SKAPAÐU ÞÍNA
EIGIN FRAMTÍÐ
TAKTU SKREFIÐ
Námsráðgjöf og upplýsingar:
sími 525 4444 endurmenntun.is
NÁMSBRAUTIR Á HAUSTMISSERI
HUGRÆN ATFERLISMEÐFERÐ
– NÁM Í UNDIRSTÖÐUATRIÐUM
HELGARLOTUR
UMSÓKNARFRESTUR TIL 5. SEPTEMBER
NÁM TIL LÖGGILDINGAR FASTEIGNA-,
FYRIRTÆKJA- OG SKIPASALA
STAÐNÁM - FJARNÁM
ENN TEKIÐ VIÐ UMSÓKNUM
LEIÐSÖGUNÁM Á HÁSKÓLASTIGI
STAÐNÁM – FJARNÁM
ENN TEKIÐ VIÐ UMSÓKNUM