Fréttablaðið - 18.08.2012, Side 74

Fréttablaðið - 18.08.2012, Side 74
KYNNING − AUGLÝSINGHáskólar LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 20124 STÚDENTAÍBÚÐIR Í SVÍÞJÓÐ Margir Íslendingar stunda há- skólanám í Svíþjóð. Stúdenta- íbúðir eru við alla háskóla í Sví- þjóð en það getur verið erfitt að fá slíka íbúð. Á vefnum norden. org er hægt að fá upplýsingar um stúdentagarða á Norðurlöndum. Þar er bent á að nemendur ættu að skrá sig sem fyrst á biðlista eftir stúdentaíbúð þar sem erfiðast er að fá þær í upphafi námsins. Oft er auðveldara að fá leiguíbúð á minni stöðum. Upplýsingar um húseignafélög sem leigja út stúdentaíbúðir og upplýsingar um hvernig sótt er um stúdentaíbúðir á ýmsum svæðum, eru á vefsíðunni sok- studentbostad.se. Einnig er hægt að fara inn á vefsíðu hvers skóla fyrir sig til að fá nánari upp- lýsingar um stúdentaíbúðir á viðkomandi svæði. Bæði er hægt að fá íbúð eða herbergi með aðgangi að eldhúsi og baði. FYRSTI HÁSKÓLI ÍSLANDS Þann 17. júní árið 1911 var Háskóli Íslands stofnaður en hann var fyrsti háskóli landsins. Skólinn varð til við sameiningu Prestaskólans, sem stofnaður var árið 1847, Læknaskólans, sem stofnaður var 1876, og Lagaskólans, sem tók til starfa árið 1908. Fyrsta frumvarp til laga um stofnun háskóla á Íslandi var þó borið upp á Alþingi mun fyrr, eða árið 1881. Benedikt Sveinsson átti heiðurinn af því en hann sat á þingi sem konungskjörinn þingmaður. Háskóli Íslands tók til starfa í október 1911 og voru fjórar deildir innan skólans fyrst um sinn; guðfræðideild, lagadeild, læknadeild og heimspekideild. Flestir stunduðu nám í læknadeild eða 23 nemar. Enginn nemi stundaði nám í heimspekideild fyrsta árið. Skólinn var til húsa á neðri hæð Alþingishússins við Austurvöll til ársins 1940 en þá flutti hann starfsemi sína í aðalbyggingu Háskólans sem enn stendur í dag og er hluti af háskólasvæðinu. Fyrsti rektor Háskóla Íslands var Björn M. Ólsen, prófessor við heimspekideild. KYNJASKIPT NÁMSVAL Á vef Hagstofunnar má sjá að konur eru meirihluti nemenda á öllum skólastigum fyrir ofan grunnskóla, eða 55,9%. Kynja- skiptingin er einnig bundin við hinar ýmsu greinar en alls er 21 námsbraut þar sem eingöngu konur eru skráðar. Þar á meðal er námsbraut hjúkrunar- og móttökuritara, skólaliðabraut, tanntæknabraut, læknaritara- braut, ljósmóðurfræði, kjólasaum- ur, fótaaðgerðafræði og öldr- unarfræði. Brautir með körlum í miklum meirihluta eru 25 talsins. Þar má finna greinar eins og rafiðnfræði, véliðnfræði, múrara- iðn, mekatróník, netagerð og stál- smíði. Munurinn eykst svo eftir því sem menntunarstigið hækkar. Árið 2011 var hlutfall kvenna í háskólum 62% á móti 38% karla. Séu einstaka skólar skoðaðir sést að hlutfall kvenna í Háskóla Íslands var 65%, í Hólaskóla 77%, í Háskólanum á Akureyri 76%, á Bifröst 58%, í Listaháskóla Íslands 59% og í Landbúnaðarháskól- anum á Hvanneyri var hlutfallið 66%. Eini háskólinn sem skar sig úr þessum skólum og var með konur í minnihluta er Háskólinn í Reykjavík þar sem 40% nemenda eru konur. Sjá nánar www.opnihaskolinn.is eða hafðu samband við okkur í síma 599 6300 NÁMSBRAUTIR Verkefnastjórnun, APME (Applied Project Management Expert) Nám samhliða vinnu, kennt í fjarnámi og sam- svarar 24 ECTS einingum. Lögð er áhersla á tölulegar greiningar við ákvarðanatöku og stjór- nun rekstrar og verkefna. Náminu lýkur með alþjóðlegu IPMA prófi. Hefst 1. september Rekstrarstjórnun Ætlað þeim sem vilja bæta árangur við stjórnun rekstrar, svo sem í verslun, heildsölu, smáiðnaði og framleiðslu. Hefst 3. september Markaðssamskipti og almannatengsl Kennd eru undirstöðuatriði öflugs markaðsstarfs. Námið er hagnýtt og miðar að því að dýpka skilning nemenda og efla faglega þekkingu á viðfangsefninu. Námið er byggt upp í samstarfi við ÍMARK, SÍA og Almannatengslafélag Íslands. Hefst 5. september Verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun Námið er fjölbreytt og ætlað öllum sem vilja öðlast þekkingu og þjálfun á sviði verkefnastjórnunar og efla leiðtogahæfileika sína. Náminu lýkur með alþjóðlegu IPMA prófi. Hefst 10. september STYTTRI NÁMSKEIÐ Jákvæð sálfræði og starfsánægja Námskeið í tveimur hlutum sem er tilvalið fyrir þá sem vilja staldra aðeins við, skoða líf sitt í nýju ljósi, líta inn á við og horfa til framtíðar. Hefst 21. ágúst Verkefna- og tímastjórnun Farið er yfir ráð sem hjálpa til við að veita mikil- vægustu verkefnum á hverjum tíma athygli okkar, orku og forgang – og ljúka þeim á þeim tíma sem við höfum til umráða. Hefst 27. ágúst Árangursrík samskipti: Hlutverk stjórnenda Námið er hannað að alþjóðlegri fyrirmynd Farið er yfir vænlegar leiðir til að ná fram breytingum í samskiptamynstrum, samvinnu í hópum og ólíkum samskiptastílum. Hefst 29. ágúst Skuldabréf Námskeiðið tekur á flestum tegundum skulda- bréfa og verða eiginleikar þeirra skilgreindir. Hentar vel stjórnendum fjármála sem og starfs- mönnum fjármálasviða fyrirtækja. Hefst 30. ágúst NÁMSLÍNUR Verðbréfamiðlun I. hluti Nám til undirbúnings prófa í verðbréfamiðlun. Farið verður yfir grunnatriði lögfræðinnar og réttarreglur á þeim sviðum sem varða störf á fjármagnsmarkaði. Kennt í fjarnámi. Hefst 5. september Lífsviðhorf – Lífsstíll – Lífsgæði Árangursmiðað nám fyrir þá sem vilja efla persónulega færni og viðhorf, m.a. á sviði fjár- mála, heilsu, samfélagsábyrgðar og árangurs í samskiptum. Hefst 11. september Rekstrar- og fjármálanám Opna háskólans Hagnýtt nám fyrir þá sem vilja auka færni sína í fjármálum og rekstri lítilla og miðlungsstórra fyrirtækja. Hefst 18. september STJÓRNENDAÞJÁLFUN 7 venjur til árangurs Tveggja og hálfs dags vinnustofa þar sem fjallað er um árangur á vinnustað og persónulegan árangur hvers og eins. Þátttakendur tileinka sér aðferðir sem nýtast í starfi og daglegu lífi Hefst 5. september Ábyrgð og árangur stjórnarmanna Námslínan er ætluð stjórnarmönnum fyrirtækja og stofnana sem og þeim sem hyggjast gefa kost á sér til stjórnarsetu. Markmið námslínunnar er að efla faglegan grunn stjórnarmanna m.a. með þjálfun á sviði lagalegra, fjárhagslegra og siðferðilegra viðfangsefna. Hefst 12. september PMD – stjórnendanám HR Námið er hannað að alþjóðlegri fyrirmynd og lagað að íslenskum aðstæðum til að efla faglega þekkingu og færni stjórnenda. Hentar stjórnendum sem vilja bæta við menntun sína án þess að skuldbinda sig til langtímanáms. Hefst 20. september Excel námskeið Hagnýt námskeið fyrir þá sem vilja bæta þekkingu sína og færni í notkun Excel. Í boði fyrir byrjendur og lengra komna. Hefst 3. september Markviss fjármálastjórnun með Excel Helstu atriði skilvirkrar fjármálastjórnunar og hvernig hægt er að nota Excel til að leysa og setja fram fjármálaleg viðfangsefni og afstemmingar. Hefst 3. september Samningatækni Hagnýt og spennandi námskeið fyrir alla þá sem vilja auka færni sína í samningagerð og -viðræðum. Opni háskólinn býður upp á grunn- og framhaldsnámskeið. Hesft 6. september SQL gagnagrunnar Hagnýtt námskeið þar sem farið er yfir helstu atriðin við notkun á SQL gagnagrunni, s.s. að útbúa töflur og „view“, uppfærslur á gögnum og fyrirspurnir. 18. september Starfsmannasamtöl, launaviðtöl og samningatækni Fjallað um ákveðna þætti sem styrkja stjórnendur og sjálfstraust þeirra til að takast á við þessa mikilvægu þætti. Hefst 26. september Result-driven negotiations Result driven negotiations is an advanced semi- nar with focus on problem solving and cross- cultural negotiations. Hefst 4. október Rekstur samtaka og stofnana Námskeiðið er stutt kynning á rekstri almennra félagasamtaka og sjálfstæðra stofnana sem ekki eru arðsækin, eða „non-profit“. Sérstaklega verður fjallað um almenn félög og samtök, sjálf- seignarstofnanir, sparisjóði, samvinnufélög og lífeyrissjóði. Hest 25. október Líkanagerð fyrir rekstraráætlanir, arðsemis- mat og verðmat Markmið námskeiðsins er að þátttakendur nái færni í gerð reiknilíkana í Excel, fyrst og fremst á sviði fyrirtækjareksturs og fjármála. Hefst 31. október Nýttu þér fjölbreytt námskeið Opna háskólans í HR til að styrkja stöðu þína á vinnumarkaði og öðlast meiri þekkingu á þínu áhugasviði. Hér má sjá brot af námsframboði vetrarins. STÍGÐU SKREFIÐ
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.