Fréttablaðið - 18.08.2012, Page 76
18. ágúst 2012 LAUGARDAGUR40
ÆVIÁGRIP
J
ørgen Hammer kom til
Íslands árið 1968 til að
vinna að deiliskipulagi
fyrir Reykjavíkurborg.
Nú, rúmlega fjörutíu árum
seinna er hann aftur í
Reykjavík og lítur yfir far-
inn veg.
„Við vorum fengnir til að vinna
að aðalskipulagi Reykjavíkur, sem
var ætlað að gefa vexti borgarinn-
ar ákveðinn ramma og opna fyrir
útbreiðslu byggðar í austurátt.
Í þessu skipulagi voru Sæbraut,
Kringlumýrarbraut og Miklabraut
hugsaðar sem stórar æðar sem
myndu opna fyrir stærra svæði í
Reykjavík,“ segir Hammer.
Hann bendir á að aðalskipulag-
ið hafi verið unnið á uppgangs- og
umbrotatímum.
„Á sjötta og sjöunda áratugnum
fóru Íslendingar að þéna vel á sjáv-
arútveginum og þessir miklu fjár-
munir sem streymdu inn í landið,
urðu til þess að fólk vildi byggja
fleiri hús og stofna nýjar verslan-
ir,“ segir Hammer.
Hammer telur fjárfesta oft ein-
blína á miðborgarsvæði til upp-
byggingar og það sé brýnt að beina
þeim annað.
„Fjárfestar hugsa gjarnan á
hefðbundnum nótum og halda oft
að það sé aðeins hægt að fjárfesta
í miðbænum. En ef allir fjárfesta
í miðbænum mun miðbærinn að
endingu hverfa undir stór hús og
víðfeðm bílastæði. Miðbærinn
getur aldrei uppfyllt þær þarfir
um fermetrapláss sem nútímaborg
hefur.“
Þarna myndist þörf fyrir ný
byggingarsvæði sem bera betur
stórhýsi.
Beina fjárfestum frá bænum
„Það er ákaflega mikilvægt að
beina fjármagninu að nýjum stöð-
um, stöðum sem eru spennandi og
huggulegir. Á þann hátt er hægt
að vernda borgarrými eins og
miðbæinn, sem svæði með ákveð-
inn byggingarstíl sem hefur í för
með sér lakara aðgengi fyrir bíla,“
segir Hammer.
Hann bendir á að í aðalskipulag-
inu sem hann vann á sínum tíma
hafi verið unnið út frá þessum
hugmyndum.
„Við vildum skipuleggja Reykja-
vík þannig að hægt væri að bjóða
upp á ný svæði til að byggja upp
verslunar- og þjónustukjarna.
Þetta varð síðar að raunveruleika
með tilkomu Kringlunnar. Kringl-
an létti miklu álagi af miðbænum
en það var einmitt það sem við
lögðum upp með. Með þessari nýj-
ung gat fólk keyrt alveg upp að
húsi til að versla. Það létti á kröf-
unum um frekari bílastæði í mið-
bænum,“ segir Hammer.
Miðbærinn tengdist höfninni
Teymið sem Hammer vann með
setti einnig fram tillögur að fram-
tíðarskipulagi miðborgarinnar.
„Við lögðum til að miðbærinn
og höfnin myndu tengjast betur
í framtíðinni en þau gerðu. Hug-
myndin var að lyfta Geirsgötunni
upp á aðra hæð, svo hægt væri
að ganga úr miðbænum, undir
umferðina og niður að höfn. Við
sjáum ákveðin merki um þetta
enn á þaki pakkhússins norðan við
Tollhúsið.“
Þakið er hannað sem fjögurra
akreina vegur. Vegurinn átti að
taka við umferð af Sæbraut og
leiða hana á Mýrargötu án þess að
hindra umferð gangandi vegfar-
enda að höfninni.
„Það hefði verið gaman að sjá
miðbæinn og höfnina vaxa betur
saman. Slík tenging hefur reynst
vel annars staðar og aukið gæði
miðbæjarsvæða ýmissa borga því
höfnin er spennandi staður,“ segir
Hammer og lætur sig dreyma.
„Þannig væri kannski hægt
að ganga verslunar- og göngu-
götur sem lægju niður að höfn.
Þar væri síðan hægt að fara út að
borða á fiskveitingastöðum með
útsýni yfir höfnina. En höfnin
hefur aldrei fengið tækifæri til að
vaxa saman við miðbæinn. Bær-
inn snýr bakinu í höfnina og hún
er hálfpartinn lokuð af, fyrst með
þungri umferð á Geirsgötu, svo
með stórhýsum eins og Tollhúsinu,
Hafnarhúsinu þar sem Listasafn
Reykjavíkur er nú og fleiri háum
dökkgráum byggingum. Stutt frá
þessum húsum er svo Vesturgata,
sem skartar fallegri röð af timb-
urhúsum. Andstæðurnar skera í
augun,“ segir Hammer.
Nokkur heilræði
Hammer segist ekki vilja setja sig
á háan hest og koma með tillögur
að betra fyrirkomulagi í bænum
enda sé miðborgarskipulag afar
flókið fyrirbæri. Hann hefur hins
vegar nokkur góð og almenn ráð
sem hann er tilbúinn til að veita.
„Mér finnst mjög mikilvægt að
haldið sé í gamlar hefðir. Í hinum
alþjóðlega heimi er fólk farið að
upplifa sömu hlutina aftur og aftur
og víðar og víðar um allan heim.
Við sjáum alls staðar sömu bílana,
svipaðar byggingar og sömu ham-
borgarana og pitsurnar.
Þegar við komum sem ferða-
menn á nýja staði viljum við sjá
eitthvað nýtt, eitthvað spennandi
og framandi. Frá mínum sjónar-
hóli eru staðir framandi þar sem
tekist hefur að halda í gamlar
hefðir og menningu. Slíkir þætt-
ir eiga hins vegar verulega undir
högg að sækja,“ segir Hammer og
nefnir tvö dæmi.
Los Angeles og Santa Fe
„Í Bandaríkjunum hefur fólk haft
lítinn vilja til að stýra bæjarásýnd,
byggingamagni og arkitektúr í
sumum borgum. Þar eru til nokk-
ur dæmi um borgir þar sem fjár-
magnsöfl hafa haft mikil áhrif á
yfirbragð og ásýnd bæja. Útkom-
an er oft og tíðum há og stór hús á
stöðum sem þóttu hvað skemmti-
legastir og mest spennandi. En
þessum stóru byggingum fylgdi
mikill fjöldi bílastæða og allt í einu
varð ekkert eftir sem var spenn-
andi og skemmtilegt.
Líttu til dæmis á Los Angeles.
Þar er miðbærinn einn leiðinleg-
asti staður sem hægt er að hugsa
sér. Allt lífið færðist annað, til
dæmis á Venice Beach niður við
ströndina.“
Hammer segir Santa Fe í Nýju-
Mexíkó vera andstæðuna við þetta
en þar hefur verið lögð áhersla á
sérstöðuna í byggingarlist.
„Í Santa Fe hafa menn sett
ákveðnar kröfur um að allar bygg-
ingar í bænum þurfi að fylgja
byggingarhefðum púebló-indíána
í takt við menningararfinn. Þar
mega húsin ekki vera nema fjór-
ar hæðir og þau eiga öll að vísa til
ákveðinnar byggingarhefðar.
Vegna þessa hefur myndast
ákveðið samræmi í bænum og
fyrir vikið upplifir maður staðinn
sem framandi og spennandi. Santa
Fe er líka mjög vinsæll ferða-
mannastaður í Bandaríkjunum,
enda er borgin ólík öllum öðrum.“
Enga íhaldssemi
Hammer telur mikilvægt að rækt
við ræturnar og þjóðararfinn leiði
ekki til íhaldssemi. Byggingarlist
þurfi að þróast eins og allt annað.
„Mér finnst mikilvægt að ég
hljómi ekki eins og ég sé íhalds-
samur, því þegar ég tala um að
halda þurfi í gamla menningu og
siði er ég ekki að tala fyrir íhalds-
semi. Ég vil ekki að við endum sem
eitthvert Árbæjarsafn. Við þurfum
á endurnýjun að halda, en við verð-
um gera það með tilvísun í gamlar
hefðir, þannig að fólk sem kemur
til landsins finni fyrir því að hér
vinni fólk á annan hátt en annars
staðar og finnist landið sérstakt og
framandi.“
Hann segir þetta alls ekki
óþekkt á Íslandi.
„Þetta er eins og með íslensk-
una. Þið segið ekki „computer“
heldur tölva og þið segið geisla-
diskur en ekki „cd“. Þessa hugsun
þurfið þið að tileinka ykkur í bygg-
ingarstíl í ríkari mæli. Gott dæmi
um byggingu þar sem þetta er gert
er Fontana við Laugarvatn. Staður-
inn er hannaður þannig að húsið
vísar í gamlar íslenskar hefðir, þar
sem notað er torf og grjót að ein-
hverju leyti í bygginguna. Þetta
fær mann til að hugsa: „Spenn-
andi!“ Og svona hughrif fá fólk
líka til að vilja koma aftur til
landsins.“
Verðið að halda í það þjóðlega
Jørgen Hammer verkfræðingur var einn þeirra sem lagði grunninn að aðalskipulagi Reykjavíkur fyrir rúmum fjörutíu árum.
Hann er nú kominn aftur til Íslands, en í þetta skiptið sem ferðamaður. Hann sagði Katrínu Tinnu Gauksdóttur frá starfi sínu á
Íslandi á sjöunda áratugnum og hvaða augum hann lítur borgina núna. Hammer vill að Íslendingar haldi fastar í gamlar hefðir.
Í MIÐBÆNUM JØRGEN HAMMER Jørgen Hammer dvaldi á Hótel Vík þegar hann vann að aðalskipulagi Reykjavíkur á árunum
1968 til 1971. Hótelið gamla var í rauða reisulega húsinu sem er fyrir aftan Hammer á myndinni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Jørgen Hammer kom til Íslands árið 1968 og vann að aðalskipulagi Reykja-
víkur á árunum 1968-1971.
Þá starfaði Hammer fyrir verkfræðifyrirtækið Anders Nyvig, sem veitti ráð-
gjöf í borgar- og umferðarskipulagi. Hammer er menntaður verkfræðingur
en bætti við sig fjögurra ára listnámi eftir útskrift.
Til viðbótar við aðalskipulag Reykjavíkur hefur Hammer einnig komið að
aðalskipulagi í Þórshöfn í Færeyjum. Hann lagði einnig grunninn að tilhögun
almenningssamgangna í Borgundarhólmi, þar sem hann býr í dag.
Hammer starfar sem einn ræðismanna Íslands.