Fréttablaðið - 18.08.2012, Side 78
18. ágúst 2012 LAUGARDAGUR42
FISLÉTT ÚR FARSÍMA
EÐA SPJALDTÖLVU
MEÐ EINFALDRI
STROKU BEINT Á
SJÓNVARPSSKJÁINN
ideas for life
WWW.SM.IS
Krossgáta
Lárétt
1. Helvítis súkkulaðikaka (11)
9. Sé það níð mun ég styrkjast (6)
13. Guðdómleg kýr skýrir ríkidæmi býflugna (8)
14. Í fýlueggi finnur maður ólundarfugla (11)
15. Það má víst sleppa enninu í þessum
liðamótum (6)
16. Kolluverkur varir skamma stund (8)
17. Tja, graðir og ruglaðir skulu bræddir (9)
19. Hér hefst ferð Beach Boys til Cocomo (5)
20. Þjóð eystra er sem kusk í kringum nisti (7)
22. Kærleikskrókur ofan varar (9)
23. Ætli Atli ati finnska glervöru? (7)
25. Blanda drykk fyrir kjána (4)
26. Meðvitund um plott (6)
27. Það er grand að túra á slíkum bíl (2)
28. Ræðir hvort vit vafrar (9)
29. Má bjóða þér steik af fullorðnu, kæri landi? (9)
32. Sonur ristur í ræmur (12)
34. Hin 12 ára Dolores má ekki ryk sjá (6)
35. Sá gleypi að snyrta skegg doktor Ægis (9)
36. Get búist við að það sé best (5)
37. Heiðaland er efni frétta (6)
39. Mannlaus karlabrautin og moldríka liðið (15)
41. Með styrk og fljótfærni mun dallurinn birtast (6)
42. Rifrildisskræða er innlegg í umræðu (8)
43. Lem fjármálagaurana (12)
Lóðrétt
1. Heyri þyt rústa með þeim mislynda (8)
2. Æst leiðrétta Skuld (10)
3. Svartur blaðagalgopi er hvorki
hundur né spaði (9)
4. Sunguð sem fuglar um golfpinnafjör (6)
5. Fær rangar til baka og segir ljótt (6)
6. Finnið X (3)
7. Inngönguþreifingar vegna
þátttöku fyrir trétölur (15)
8. Einhverjar passar ör í önnum Hörpu (11)
9. Skákstig fyrir rafmagnsljósasveit (3)
10. Gróparker geymir lygnar (7)
11. Aur fyrir kraftinn gefur dugnaðinn (8)
12. Fer í dópvímu fyrir ho-ho-hold? (10)
18. Marri kóngur við saltan sjó (7)
21. Hraðsuða bræðir Snæfinn snöggt (8)
24. Þegar iðrun leggst við stillt
verður það óglatt (9)
25. Mikilvægt að maður noti lungun (10)
26. Maukar tá í virkjun (11)
27. Háskaleikirnir drepa alla hunda í vist (11)
30. Ekkert skipulag margfaldar með
minnst einu núlli (9)
31. Út og angur framkalla magasár (9)
33. Vilja alls ekki sleppa metingnum (8)
38. Teljið étandi hópa (5)
40. Fangaði frið (4)
Vegleg verðlaun
Lausnarorð
Ef bókstöfunum í skyggðu reitunum er raðað rétt saman birtist mikilvægt fyrirbæri sem
fær mann til að halda að sólarhringurinn hafi snúist við. Sendið lausnarorðið í síðasta
lagi 22. ágúst næstkomandi á krossgata@frettabladid.is merkt „18. ágúst“.
Lausnarorð síðustu viku var
Vikulega er dregið úr inn-
sendum lausnarorðum og fær
vinningshafi eintak af bókinni
Sumarhús með sundlaug frá
Forlaginu. Vinningshafi síðustu
viku var Ástríður Þorsteins-
dóttir, Reykjavík, og getur
hún vitjað vinningsins í
afgreiðslu 365, Skaftahlíð 24.
S T Ú D E N T S P R Ó F
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12
13
14 15
16
17 18 19
20 21
22
23 24
25 26 27
28
29 30 31
32 33
34
35 36
37 38
39 40
41
42
43
G Ö N G U L A G Á F E N G I S V E R Ð
E L A S L Á Ð É I
T Í M A S K E K K J A T J F T
N S K R K Ö T L U G R U N N
A F T A N R O Ð I K Ú S É I
Ð B Í Ð A U R K A S T I N U
U L L A R S O K K A R U M T G
R R F V I L L S A K I R S
S U N D R A Ð I R A A N A Ð I
S N R U K L A U M A R S Ð
K D E Y F Ð R I A S F S A
R I K G N E K T A R D A N S A R
Ú R K U N I R N Í E
F J Ö L L Y N D I S Ö Ó N Á Ð U G
G L A A N A R K I S T A A L
A N D S N Ú I N N U K Í U
N U G S D R Ö R P Ó S T U R
G U N N A R S H Ó L M I Á T N
U N Ú Ó T Í Ð A R A N D A
R E I S U P A S S A I A Ð R
Á þessum degi fyrir réttum 35 árum, hinn 18. ágúst árið 1977, var suðurafríski mannréttindafrömuðurinn Stephen Biko handtek-
inn af lögreglu í borginni Port Elizabeth. Tæpum mánuði síðar fannst
Biko nakinn og hlekkjaður fyrir utan sjúkrahús í Pretoríu, nær dauða
en lífi eftir miklar misþyrmingar. Hann lést degi síðar vegna heila-
blæðingar en varð strax einn af
helstu píslarvottum réttindabar-
áttu þeldökkra Suður-Afríku-
manna gegn aðskilnaðarstefnu
stjórnvalda, Apartheid.
Biko hóf ungur afskipti af mann-
réttindamálum og var meðal
annars rekinn úr gagnfræðaskóla
fyrir vikið. Á háskólaárum sínum
hélt hann áfram að sinna þeim
málum og vakti athygli fyrir fram-
göngu sína. Árið 1968, þá 22ja ára
gamall, stofnaði Biko Stúdenta-
samtök Suður-Afríku, sem síðar
urðu að Samvitundarhreyfingu
svartra (BCM).
Eftir því sem vegur hans jókst
innan frelsishreyfingarinnar
fóru stjórnvöld að hafa afskipti af
honum. Árið 1973 var Biko bannað
að tjá sig opinberlega og þar að
auki var fjölmiðlum bannað að
vitna í orð hans.
Þrátt fyrir hömlurnar sem þess-
ar aðgerðir settu Biko áttu hann og BCM stóran þátt í að skipuleggja
mótmæli sem urðu síðar að uppreisninni í Soweto árið 1973, sem var
barin niður með vopnavaldi. Það varð til þess að stjórnvöld hertu enn
á aðgerðum gegn Biko. Hann var margoft handtekinn og þurfti að
dúsa í fangaklefa, oft mánuðum saman, án dóms og laga.
Það var svo þennan örlagaríka dag sem Biko var numinn á brott við
vegartálma lögreglu. Ástæða handtökunnar var meint brot á hryðju-
verkalögum. Við yfirheyrslur næstu daga beitti lögregla pyntingum
þar sem Biko var meðal annars barinn með kylfum og hlekkjaður upp
við gluggarimla í fangelsinu.
Hinn 11. september var Biko settur hlekkjaður og helsár í lögreglu-
jeppa og ekið með hann að fangelsinu í Pretoríu til aðhlynningar, en
hann lést af sárum sínum degi síðar. Krufning leiddi í ljós að bana-
mein hans hafði verið heilablæðing. Lögregla hélt því fram að meiðsl
Bikos væru eftir misheppnaða sjálfsmorðstilraun og síðar það ár voru
hinir grunuðu lögreglumenn hreinsaðir af öllum sakargiftum.
Á annan tug þúsunda sóttu jarðarför Bikos og hann varð að tákn-
mynd baráttunnar gegn Apartheid.
Árið 1997 gáfu fimm fyrrverandi lögreglumenn sig fram við sann-
leiksnefnd Suður-Afríku og játuðu að hafa orðið Biko að bana. Þeim
varð ekki að ósk sinni um sakaruppgjöf, en árið 2003 tilkynntu stjórn-
völd að þeir yrðu ekki saksóttir þar sem brotin voru fyrnd.
Biko var því miður einn af fjölmörgum sem mættu örlögum sínum
með þessum hætti. Að minnsta kosti 59 manns létust í haldi suðurafr-
ísku lögreglunnar, þeir síðustu árið 1990. - þj
Í ÞÁ TÍÐ: Árið 1977
Stephen Biko handtekinn
Mannréttindafrömuðurinn lést stuttu síðar eftir pyntingar lögreglu.
STEVE BIKO