Fréttablaðið - 18.08.2012, Blaðsíða 82
18. ágúst 2012 LAUGARDAGUR46
KRISTJÁN SIGURÐSSON
til heimilis að Skarðshlíð 16c, Akureyri,
andaðist á Fjórðungssjúkrahúsi Akureyrar þann 4. ágúst
síðastliðinn. Jarðarförin hefur farið fram frá Lundarbrekku í
Bárðardal í kyrrþey að ósk hins látna.
Ragnhildur G. Guðmundsdóttir
og börn hins látna.
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
SIGURSTEINN GUÐBRANDSSON
Dalbraut 14, Reykjavík,
lést á Landspítalanum Landakoti
sunnudaginn 12. ágúst. Útförin fer
fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn
21. ágúst kl. 13.00.
Kristín Þórðardóttir
Erna Sigríður Sigursteinsdóttir
Haraldur Sigursteinsson Erla Ívarsdóttir
Garðar Sigursteinsson Elín Margrét Hárlaugsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur bróðir og frændi,
BIRGIR HELGI ÞÓRHALLSSON
Kirkeveien 57
Ósló,
lést 19. júlí á Diakonhjemmet Sykehus í
Ósló. Bálför hefur farið fram í kyrrþey frá
Berger Kirke.
Fyrir hönd barna og annarra vandamanna í Noregi,
Hrefna, Karl, Helgi og Selma Haraldsbörn
systkinabörn hins látna og fjölskyldur.
Hinn elskulegi og kæri
bróðir okkar, móðurbróðir okkar og frændi,
GÍSLI KRISTMUNDSSON
Efri-Brunnastöðum, Vatnleysuströnd,
sem lést á Hjúkrunarheimilinu Garðvangi,
Garði, 13. ágúst sl. verður jarðsunginn
frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn
21. ágúst kl. 15.00.
Elín Kristin Kristmundsdóttir
Anna Scheving Kristmundsdóttir
Hallgrímur Kristmundsson
Virgill Scheving Einarsson
Hannesína Schecing Skarphéðinsdóttir
Svanur Scheving Skarphéðinsson Brynja Hafsteinsdóttir
Kristmundur Skarphéðinsson Ingunn Lúðvíksdóttir
Elín Kristín Scheving Skarphéðinsdóttir
og börn.
Elsku eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, amma og systir,
ELÍSABETH ELSA HANGARTNER
ÁSBJÖRNSSON
andaðist í Freiburg, Þýskalandi,
mánudaginn 13. ágúst.
Guðmundur Karl Ásbjörnsson
Rannveig D. Guðmundsdóttir, Andreas Becher,
Natalía Ásdís Andreasdóttir, Margrit Hangartner,
Christa Jaeger
Við sendum innilegustu þakkir fyrir samúð
og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærs
eiginmanns míns, föður, tengdaföður,
afa og langafa,
ÞORSTEINS BERENTS
SIGURÐSSONAR
fv. flugumferðarstjóra,
Hlaðhömrum 2, Mosfellsbæ.
Ingunn Sigurðardóttir
Sigrún Þorsteinsdóttir Ólafur Sigurðsson
Jón Ólafur Þorsteinsson
Þorsteinn Ingi Kristjánsson
Kristín Eva Kristjánsdóttir
Arnar Berent Sigrúnarson
Katla Dimmey Þorsteinsdóttir
Daníel Berent Rink
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegrar
móður, tengdamóður, ömmu og langömmu,
DROPLAUGAR HELLAND
Vogatungu 13, Kópavogi.
Birgit Helland Hreinn Frímannsson
Arndís Inga Helland Óskar Þormóðsson
og fjölskyldur.
Innilegar þakkir þeim sem sýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og útför föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
GUÐMUNDAR ÞORSTEINSSONAR
lengst af til heimilis
á Fornhaga 15,
sem lést á Droplaugarstöðum 27. júlí.
Sigþrúður Guðmundsdóttir Birgir Guðjónsson
Kristján Guðmundsson Auður Andrésdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Móðir mín, tengdamóðir,
amma og langamma,
GERÐUR SIGURÐARDÓTTIR
kennari,
frá Sleitustöðum í Skagafirði,
lést á Hjúkrunarheimilinu Skjóli
þriðjudaginn 14. ágúst. Útförin fer fram
frá Dómkirkjunni að Hólum í Hjaltadal
laugardaginn 25. ágúst kl. 14.00.
Ragnhildur Björk Sveinsdóttir Eiríkur Oddur Georgsson
Þorgerður Hulda Frisch Peter Frisch
Hugrún Ösp Reynisdóttir Ólafur Kjartansson
Trausti Eiríksson, Helga Dagný Arnarsdóttir
Sverrir Ragnar og Lena Sóley.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför
MARGRÉTAR ÓLAFSDÓTTUR
Hörðukór 5.
Sérstakar þakkir færum við yndislegu
starfsfólki heimahlynningar og líknardeildar
Landspítalans í Kópavogi.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ólafur Þórðarson, Ragnar Pétursson og Hlín Pétursdóttir
„Hér er stórhátíð því hið árlega Íslandsmeistaramót í hrúta-
dómum er haldið í dag og hefst klukkan tvö,“ segir Jón Jóns-
son, þjóðfræðingur og ferðabóndi á Kirkjubóli við Stein-
grímsfjörð, um hrútaþuklið sem fer fram á Sauðfjársetrinu
í Sævangi. Keppt er í tveimur flokkum. Í öðrum keppa vanir
menn en hinn flokkurinn er fyrir óvana og hrædda, að sögn
Jóns. Þeir sem eru vanir að stiga hrúta keppa um Íslands-
meistaratitil og eiga Strandamenn titil að verja þetta árið
því Guðbrandur Sverrisson á Bassastöðum sigraði í fyrra.
En hvað gera hinir óvönu og hræddu? „Þeir dæma út frá
allt öðru en þeir vönu gera og án þess að koma nokkuð við
skepnuna. Þurfa bara að raða hrútunum frá eitt til fjögur
og þar skiptir rökstuðningurinn máli. Það kemur oft eitt-
hvað skemmtilegt út úr því, jafnvel kveðskapur,“ segir Jón
og fullyrðir að fólk sem enga tengingu hafi við sauðfjár-
rækt skemmti sér oft hið besta. „En svo er þetta alvara fyrir
bændurna, þeir gefa stig fyrir höfuðlag, fætur, hvernig
hryggvöðvinn liggur og alls konar atriði.“
Jón segir vegleg verðlaun í boði. Fyrir utan farandverð-
launagrip sem gerður er úr hvalbeini og rekaviði hafa fyrir-
tæki eins og hótel og veitingastaðir gefið vinninga, auk þess
eru listmunir og handverk í verðlaun og meira að segja ávís-
un á hrútasæði þegar að fengitíma kemur.
Fleira verður til skemmtunar og fróðleiks á hátíðinni, til
dæmis rúningur með gamla laginu og akstur með krakka í
dráttarvélakerrum. Kjötsúpa er á borðum í hádeginu og dýr-
indis kaffihlaðborð allan daginn. Jón tekur fram að veiting-
arnar séu seldar en enginn aðgangseyrir sé að skemmtun-
inni. Sauðfjársetrið er tíu ára í ár. Það er kona Jóns, Ester
Sigfúsdóttir á Kirkjubóli, sem veitir því forstöðu um þessar
mundir. Þar er opin sýning allt sumarið og oft eitthvað um
að vera þar fyrir utan og koma vel á annað þúsund manns
árlega í heimsókn. gun@frettabladid.is
Hrútasæði í verðlaun
SPEKINGSLEG Sverrir Guðbrandsson heldur í einn af hinum kollóttu
hrútum Strandamanna. Aftan við standa Guðbrandur Sverrisson,
Ragnar Bragason, Þórey Ragnarsdóttir og Barbara Guðbjartsdóttir.
MYND/JÓN JÓNSSON
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Laugardagur 18. ágúst
➜ Tónleikar
21.00 Söngkonan Jussanam da Silva heldur
tónleika með Agnari Má Magnússyni í ráð-
húsi Þorlákshafnar.
➜ Leiklist
21.00 Ferðaleikhúsið að Baldursgötu 37
sýnir nýja uppfærslu á Light Nights. Þjóðsög-
ur og margvíslegt íslenskt efni er á dagskrá
en leiksýningin er flutt á ensku. Aðgangseyrir
er frá kr. 1.500 til 2.500.
➜ Sýningar
14.00 Gunn Nordheim Morstøl opnar
myndlistasýningu í Mjólkurbúðinni í lista-
gilinu á Akureyri.
16.00 Listakonurnar Anna Hallin, Harpa
Dögg Kjartansdóttir og Valgerður Guðlaugs-
dóttir opna sýningu í Gallerí Ágúst. Sýningin
er sett upp í tilefni af fimm ára starfsafmæli
safnsins.
19.00 Jóna Hlíf Halldórsdóttir opnar sýn-
inguna Kjarni í ÞOKU sem er staðsett í kjall-
ara Hríms hönnunarhúss við Laugaveg 25.
➜ Hátíðir
10.00 Menningarnótt verður haldin hátíðleg
í Reykjavík. Þema hátíðarinnar að þessu
sinni er Gakktu í bæinn. Dagskrá má finna á
vefsíðunni menningarnott.is.
➜ Dansleikir
23.00 Stórdansleikur með hljómsveitinni
Span verður á Café Árhúsum á Hellu. Miða-
verð er kr. 1.500.
➜ Tónlist
15.00 Tropicalia, sveit söngkonunnar Krist-
ínar Bergsdóttur, spilar á þriðju tónleikum
jazztónleikaraðar veitingastaðarins Munn-
hörpunnar í Hörpu. Aðgangur er ókeypis.
19.15 Glysrokkhljómsveitin Diamond Thun-
der spilar á skemmtistaðnum Dillon.
20.00 Menningarnæturtónleikar X977,
Ellefunar og Tuborg fara fram á Ellefunni.
Fram koma Ásgeir Trausti, Ultra Mega
Technobandið Stefán, Smutty’s 302, Agent
Fresco og Kiriyama Family auk Geira Sæm.
Aðgangur er ókeypis.
22.00 Elton John Tribute tónleikar verða
haldnir á Græna Hattinum Akureyri. Miða-
verð er kr. 1.500.
22.00 Ljótu hálfvitarnir halda tónleika á
Café Rosenberg. Aðgangseyrir er kr. 2.500.
23.00 Hljómsveitin Homo and the sapiens
heldur tónleika á Ob-La-Dí-Ob-La-Da Frakka-
stíg 8. Aðgangseyrir er kr. 1.000.
➜ Markaðir
12.00 Íbúasamtök Laugardals halda sinn
árlega útimarkað á Laugatorgi á horni
Laugalækjar og Hrísateigs. Á markaðnum má
kaupa allt milli himins og jarðar og boðið er
upp á skemmtilegar uppákomur.
➜ Útivist
14.00 Fuglavernd mun leiða fuglaskoðun
um friðlandið í Vatnsmýrinni alla laugardaga
í sumar. Gangan hefst við Norræna húsið og
er þátttaka ókeypis.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Sunnudagur 19. ágúst
➜ Leiklist
21.00 Ferðaleikhúsið að Baldursgötu 37
sýnir nýja uppfærslu á Light Nights. Þjóðsög-
ur og margvíslegt íslenskt efni er á dagskrá
en leiksýningin er flutt á ensku. Aðgangseyrir
er frá kr. 1.500 til 2.500.
➜ Opið Hús
13.00 Bærinn Krókur á Garðaholti í Garða-
bæ er opinn á sunnudögum í sumar. Krókur
er lítill bárujárnsklæddur burstabær sem var
endurbyggður úr torfbæ árið 1923. Hann
er staðsettur ská á móti samkomuhúsinu á
Garðaholti og stutt frá Garðakirkju. Aðgangur
er ókeypis.
➜ Uppákomur
13.00 Sveitasælan verður í algleymingi á
Árbæjarsafni. Gestum býðst innsýn inn í
horfinn heim gömlu sveitastarfanna og fá
tækifæri til að aðstoða heimilisfólkið í gamla
bænum við störf sín.
➜ Dansleikir
23.00 Dansleikur Félags eldri borgara verð-
ur haldinn í Stangarhyl 4. Danshljómsveitin
Klassík leikur létta danstónlist. Aðgangseyrir
er kr. 1.500 fyrir félaga FEB í Reykjavík en kr.
1.800 fyrir aðra gesti.
➜ Tónlist
14.00 Alexandra Chernyshova sópran og
Monika Abendroth hörpuleikari spila á
tónleikum í Hóladómkirkju. Aðgangur er
ókeypis.
14.00 Björg Þórhallsdóttir sópransöngkona,
Elísabet Waage hörpuleikari og Hilmar Örn
Agnarsson organisti spila á tónleikum á tón-
listarhátíð í Strandakirkju í Selvogi. Jafnframt
fer fram árleg uppskerumessa í kirkjunni
í umsjá sr. Baldurs Kristjánssonar sóknar-
prests.
16.00 Andrea Jónsdóttir leikur lög af hljóm-
plötum á Ob-La-Dí-Ob-La-Da Frakkastíg 8.
Aðgangur er ókeypis.
16.00 Elíza kemur fram á sumartónleikaröð
á heimili Uni og Jóns Tryggva í Merkigili á
Eyrarbakka. Aðgangur er ókeypis en frjáls
framlög eru vel þegin.
16.00 Arnhildur Valgarðsdóttir mun töfra
fram seiðandi tóna úr flyglinum á Gljúfra-
steini. Hún flytur tónlist eftir hinn tékk-
nesta Leos Janácek. Miðaverð er kr. 1.000.
17.00 Kvartettinn Kvika flytur þjóðlög, söng-
lög og sálma í Kaldalóni Hörpu.
➜ Leiðsögn
15.00 Ólöf K. Sigurðardóttir leiðir gesti um
sýningu Hreins Friðfinnssonar, Hús, í Hafnar-
borg. Aðgangur er ókeypis.
Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@
frettabladid.is og einnig er hægt að skrá
þá inni á visir.is.