Fréttablaðið - 18.08.2012, Side 96
18. ágúst 2012 LAUGARDAGUR60 60
popp@frettabladid.is
Blaðakonan og tískutákn-
ið Anna Piaggi lést þann 7.
ágúst síðastliðinn. Piaggi
átti að baki langan feril
sem blaðamaður hjá ítalska
Vogue og var þekkt fyrir
litríkan og sérstæðan fata-
stíl sinn.
Sköpunargleði Piaggi fékk laus-
an tauminn í Vogue þar sem
hún skrifaði um tísku og mynd-
skreytti með myndblendi á
opnusíðu í tímaritinu. Hún not-
aði lengi vel eldrauða ritvél af
tegundinni Olivetti Valentine
við störf sín. Piaggi átti gott
safn fata, hatta og skófatnað-
ar og árið 2006 var haldin
sýning með fötum hennar
í Victoria og Albert-safn-
inu í London. Samkvæmt
sýningaskránni átti Piaggi
þá 2.865 kjóla og 265 skópör.
Litríkt tískutákn
LITRÍK Anna Piaggi á leið á tískusýningu
Missoni þann 19. júní í fyrra.
NORDICPHOTOS/GETTY
FALLEGAR FLÍKUR Sýning með flíkum Önnu Piaggi var sett upp í London árið 2006.
Hér má sjá brot úr fataskáp tískutáknsins.
Á SÝNINGARPALLINUM
Piaggi gekk sýningar-
pallinn hjá Missoni
tískuhúsinu síðasta
sumar.
Katie Holmes ku hafa flutt allt sitt
dót úr sameiginlegu húsi henn-
ar og Toms Cruise í Los Angeles.
Flutningamenn voru á fullu í vik-
unni samkvæmt heimildum Daily
Mail sem segir þetta vera vísbend-
ingu um að Holmes sé tilbúin til
að taka næstu skref í lífinu eftir
óvæntan skilnað við Cruise í júní.
Þrátt fyrir að ekki hafi verið
gott á milli hjónana fyrrverandi
fyrst eftir skilnaðinn í sumar
segja talsmenn þeirra að bæði
verði viðstödd fyrsta skóladag
dóttur þeirra Suri síðar í þessum
mánuði.
Mæðgurnar eru fluttar til New
York þar sem þær búa í lúxusíbúð
í Chelsea-hverfinu með nágranna
á borð við Marc Jacobs og söngv-
arann Lance Bass.
Holmes flytur
úr húsi Cruise
Poppstjarnan Britney Spears er
nýjasti dómarinn í amerísku sjón-
varpsþáttunum X-Factor og er
samkvæmt kynningarmyndbandi
nokkuð hörð í horn að taka í dóm-
arasætinu. Þar segir stjarnan,
sem hefur verið lýst sem hörðum
dómara, hreint út við einn ungan
mann: „Ég vil vita hver hleypti þér
á svið.“ Með henni í dómnefnd eru
Demi Lovato, L. A. Reid og Simon
Cowell sem situr við hlið Britney.
Keppendur þurfa greinilega að
vara sig á síðastnefnda tvíeykinu
þótt poppstjarnan taki fram að hún
noti uppbyggjandi gagnrýni.
Britney hörð
í X-Factor
DÓMARI Britney er nýr dómari í X-Factor.
NORDICPHOTOS/GETTY
Bíó ★★★ ★★
Hrafnhildur
Leikstjórn: Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir
Áfram Hrafnhildur!
Í þessari áhugaverðu
heimildarmynd fáum við
að fylgjast með Hrafnhildi,
ungri stúlku sem fæddist í
líkama drengs, en er nú í
miðju kynleiðréttingarferli
og hefur undanfarin ár
lifað sem kona. Áður
hét hún Halldór og
gekk í gegnum allar
þær andlegu raunir sem
maður getur ímyndað
sér að fylgi því að búa í
röngum líkama.
Hrafnhildur er heill-
andi karakter, listhneigð
og hæfileikarík, og eru
atriðin tengd saman með
verkum eftir hana sjálfa.
Þetta er óþvingað og kemur skemmtilega út. Viðtölin við aðstandendur hennar
eru bæði fyndin og falleg, en besta sena myndarinnar er tvímælalaust þegar
Hrafnhildur rekst á gamla vinkonu sem hefur ekki hugmynd um þessa líkamlegu
breytingu.
Það er RÚV-kempan Ragnhildur Steinunn sem leikstýrir og er þetta frumraun
hennar fyrir aftan myndavélina. Ekki er hægt að sjá annað en að hún sé jafnvíg
báðum megin vélar og nálgast hún viðfangsefnið af bæði virðingu og varkárni.
Þó dregur varkárnin á stöku stað úr áhrifamættinum og ekki er staldrað við
óþægilega hluti á borð við ónærgætna föðurbræður, þjáninguna sem leiddi til
fíkniefnaneyslu og hina lamandi óvissu þegar Hrafnhildi er tjáð að mögulega fái
hún ekki að fara í hina langþráðu aðgerð. Í stað þess er klippt yfir í næstu senu
eða hoppað mánuði fram í tímann.
Þessi 70 mínútna langa mynd hefði vel þolað að vera ögn lengri, og líklega
hagnast eilítið á því líka. Þrátt fyrir það er vel hægt að mæla með Hrafnhildi og
ég er handviss um að leikstýran á fullt inni. Haukur Viðar Alfreðsson
Niðurstaða: Falleg frumraun sem allir hafa gott af að sjá.
LEIK- OG SÖNGKONAN Jennifer Lopez og kærastinn hennar Casper Smart hafa verið saman í níu mánuði. Fregnir
herma að Lopez vilji gera hlé á sambandinu vegna þess að hún veit ekki alveg hvert það stefnir.9
Skráning og upplýsingar:
Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK Holtavegi 28 s. 588-8899 og á www.kfum.is
FEÐGAFLOKKAR Í VATNASKÓGI
Fyrir syni frá 7 ára, feður og jafnvel afa
24. til 26. ágúst
31. ágúst til 2. september
FAÐIR – SONUR Í VATNASKÓGI
Frábær möguleiki að vera saman í Vatnaskógi
Bátar – íþróttir – skógarferðir – leikir – Vatnaskógarkvöld-
vökur – kapellan – íþróttahúsið – hoppukastalarnir –
smíðastofan og allt hitt.