Fréttablaðið - 18.08.2012, Side 98
18. ágúst 2012 LAUGARDAGUR62
lifsstill@frettabladid.is
TÆKNI Hópur svissneskra vísindamanna og ástr-
alskra hönnuða bar sigur úr býtum í klósettsam-
keppni sem stofnun Bills Gates og eiginkonu hans
Melindu stóð fyrir í Seattle.
Samkeppnin snerist um að búa til fram-
tíðarklósett sem þarf ekki að nota vatn eða
rafmagn til að sturta niður. Um 2,6
milljarðar manna hafa ekki aðgang að
almennilegri klósettaðstöðu og því var
ákveðið að ráðast í samkeppnina til að
bæta hreinlætisaðstöðu víða um heim.
Sigurklósettið var knúið áfram af sól-
arorku og sigurlaunin hljóðuðu upp á
um tólf milljónir króna. „Við gætum
ekki verið ánægðari með viðbrögðin
sem við fengum,“ sagði Bill Gates við
BBC.
BILL GATES Stofnandi Microsoft
stóð fyrir klósettsamkeppninni.
Unnu klósettkeppni
Parkour er jaðarsport sem
hægt er að æfa hvar sem
er. Iðkendur íþróttarinnar
hlaupa á hundruðum.
ÍÞRÓTTIR „Fyrir mér er parkour
það að nota umhverfið sem maður
hefur í kringum sig til að leika
sér,“ segir Tommi Þ. Guðmunds-
son, parkour-iðkandi með meiru.
Parkour er jaðarsport sem í
hugum marga snýst um að hlaupa
upp veggi, hoppa yfir grindverk og
fara í heljarstökk fram af húsþök-
um en að sögn Tomma er það miklu
meira. „Í stuttu máli snýst parkour
um að komast á milli staða á sem
áhrifaríkastan hátt og skemmta
sér í leiðinni. Það er hægt að æfa
hvar sem er því það eina sem þú
þarft ert þú sjálfur og þægileg föt,“
segir Tommi. Hann segir alla sem
hafa áhuga á geta byrjað að stunda
sportið og að ekki þurfi að vera í
sérstaklega góðu formi til þess að
byrja. „Ég hafði aldrei æft neitt
þegar ég byrjaði en maður kemst
alveg í form við að stunda þetta,“
segir hann. „Ég mæli samt ekki
með að fólk byrji á því að hoppa
fram af húsþökum,“ bætir hann
við og hlær. Aðspurður hvort ekki
sé mikið um meiðsli segir hann
svo ekki vera. „Ég hef aldrei slas-
að mig alvarlega á þessu. Eftir því
sem maður lærir meira þá lærir
maður sjálfkrafa að beita líkaman-
um betur sem auðveldar til dæmis
allar lendingar,“ segir hann.
Hægt er að æfa parkour á
nokkrum stöðum hérlendis og þar
á meðal er Fimleikafélagið Björk.
Óli Tómas Freysson er yfirþjálf-
ari þar og segir hann parkour
vera lífsstíl frekar en íþrótt. „Það
skiptir ekki máli hver er bestur
heldur snýst þetta um að koma
saman og leika sér,“ segir hann.
Óli er spretthlaupari en byrjaði í
parkour fyrir tveimur árum. „Við
fáum frí frá æfingum í september
og erum þá hvött til að fara í aðrar
íþróttir á meðan til að halda okkur
í formi. Ég hafði prufað alls konar
hluti áður en ákvað að skella mér
í parkour og varð strax ástfang-
inn af því og hef ekki getað hætt,“
segir hann. Hann telur iðkendur
hérlendis hlaupa á hundruðum
en svo virðist sem þeir séu helst
strákar undir þrítugu. Hann segir
sportið þó vera alveg jafn mikið
fyrir konur og hvetur þær til að
prufa að mæta á æfingu.
Algengt er að sjá iðkendur að
leik við Stjórnarráðið þegar mikið
er í gangi í miðbænum og eru því
allar líkur á að hægt verði að líta
listina með eigin augum þar í dag
í tilefni menningarnætur í Reykja-
vík. tinnaros@frettabladid.is
MEIRA LÍFSSTÍLL EN ÍÞRÓTT
FYRIR ALLA Tommi segir fólk ekki þurfa að vera í sérstaklega góðu formi til að byrja í parkour. Hér má sjá hann í miðju stökki í
myndbandinu fyrir Red Bull-keppnina. MYND/SIGURÐUR SVANSSON, RED BULL ÍSLAND
HEILSA Með því að borða tvær
handfyllir af valhnetum á dag
geta ungir karlmenn aukið styrk-
leika sáðfruma sinna. Þetta kemur
fram í rannsókn sem var birt í
tímaritinu Biology of Reproduc-
tion.
Samkvæmt rannsókninni juk-
ust gæði sáðfrumanna, bæði hvað
lögun snerti og hreyfanleika, hjá
þeim sem bættu valhnetum við
mataræði sitt í tólf vikur. Alls
tóku 117 karlar á aldrinum 21 til
35 ára þátt í könnuninni.
Talið er að fitan í hnetunum hafi
hjálpað til við breytingarnar sem
urðu á sáðfrumunum. Samkvæmt
vef BBC er ekki vitað hvort þess-
ar upplýsingar geti leitt til þess að
frjósemi karla verði meiri.
Hnetur styrkja sæði
TÍSKA Tollverðir lögðu hald á
tuttugu þúsund eftirlíkingar af
skóm Christians Louboutain í
Los Angeles á dögunum. Talið er
að verðmæti
skónna hlaupi
á milljörð-
um íslenskra
króna.
Skórnir
komu með
skipi frá Kína
og er talið að
þeir hafi átt
að fara í sölu á
vefverslun en
í staðinn verður skónum fargað.
Hönnun Louboutain er vinsæl
og auðþekkt á rauðum skósóla.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Louboutain verður fyrir hönnun-
arstuldi en fyrirtækið hefur sagt
fölsurunum stríð á hendur með
því að útbúa heimasíðu þar sem
taldar eru upp þær 3000 vefversl-
anir sem selja eftirlíkingar.
Teknir í
tollinum
HÖNNUNARSTULDUR
20 þúsund pörum af
fölskum Louboutain
skóm var fargað í L.A.
Engar keppnir hafa verið haldnar í parkour á Íslandi en keppt er í íþróttinni
um allan heim.
Red Bull á Íslandi styrkti Tomma í gerð á myndbandi til að taka þátt í
alþjóðlegri Red Bull-keppni sem haldin verður á Santorini á Grikklandi
í september. Nokkur hundruð myndbönd voru send inn og komust þrír
strákar og þrjár stelpur í aðalkeppnina. Tommi var því miður ekki meðal
þeirra sem komust í gegn, en í umsögn um myndband hans var sérstakt
hrós veitt fyrir að tengja íþróttina við náttúrufegurð Íslands. Myndbandið er
hægt að skoða á heimasíðunni http://vimeo.com/45996595 og hægt er að
skoða fleiri myndbönd af honum á síðunni youtube.com/tommigud.
KEPPT Í PARKOUR
SÆÐI Valhnetur
hafa góð áhrif á
sáðfrumur karla sam-
kvæmt rannsókninni.
HEILSA Börn á leikskólaaldri sem
hrjóta eru töluvert líklegri til að
eiga við agavandamál að stríða
ef marka má nýja rannsókn frá
Háskólanum í Ohio. Í rannsókn-
inni kemur einnig fram að börn
sem koma úr fátækari fjölskyld-
um eru líklegri til að hrjóta, og
eins börn sem voru höfð á brjósti
í mjög stuttan tíma eða alls ekki
neitt. Einnig er talið að börn sem
koma af heimilum þar sem mikið
er reykt eigi erfitt með að sofa
hljóðlaust.
Óþekkir hrjóta
HRJÓTA Börn sem hrjóta eru líklegri til
að verða óþekk.
EGGJARAUÐUR Í VIKU er hámark fyrir fólk sem þjáist af háu kólesteróli og
hjartasjúkdómum. Dr. David Spence við háskólann í Vestur-Ontario í Kanada segir að
mikil neysla á eggjarauðum geti verið jafn skaðleg hjartveikum og reykingar.
3