Fréttablaðið - 18.08.2012, Qupperneq 104
18. ágúst 2012 LAUGARDAGUR68
FÓTBOLTI Þegar þeir Gary Martin og Mark Don-
inger yfirgáfu Akranes í síðasta mánuði voru
þeir ekki vinsælustu mennirnir á Akranesi.
Þeir höfðu heldur ekki farið leynt með þá skoð-
un sína að þeim leiddist uppi á Skaga og þyrftu
breytingu á sínum högum.
Hana fengu þeir og báðir hafa blómstrað
með sínum nýju liðum. Annar hvor þeirra mun
svo standa uppi sem bikarmeistari í dag.
„Ein af ástæðunum fyrir því að ég fór í
Stjörnuna var möguleikinn á að komast í bik-
arúrslit. Það gekk eftir og ég get ekki beðið,“
segir Doninger og brosir út í annað.
Það er ekki hægt að segja annað en að
tímabilið hafi verið mikill rússíbani hjá þeim
félögum. Þeir taka undir það.
„Ef þú hefðir sagt við okkur fyrir nokkrum
vikum uppi á Akranesi að við myndum spila
bikarúrslitaleik á móti hvor öðrum hefðum
við sagt að þú væri bilaður,“ segir Donin-
ger og Martin hlær honum til samlætis
og hristir hausinn.
Martin var að spila ágætlega uppi á
Akranesi en Doninger fann sig ekki í
sumar. Hann hefur aftur á móti verið
óstöðvandi síðan hann kom til Stjörn-
unnar og skorar nánast í hverjum leik.
„Það vita margir hvað var í gangi en ég
vil ekki tala um það. Ég er að spila með betri
leikmönnum hjá Stjörnunni en hjá ÍA. Ég þarf
bara að tímasetja hlaupin mín rétt. Þetta er
miklu auðveldara og leikstíll Stjörnunnar hent-
ar mér miklu betur. Það var allt of mikill „kick
and run“-bolti upp á Akranesi,“ segir Donin-
ger.
Þó svo Martin hefði spilað vel uppi á Skaga
þá var lítið um bros og hann sendi stuðnings-
mönnum ÍA meira að segja einu sinni tóninn er
hann skoraði. Var með skilaboð á nærbolnum
sínum um að honum væri sama um hvað fólkið
í stúkunni segði um hann.
„Rúnar hefur gefið mér tækifæri til þess að
spila fremst, þar sem ég vil vera. Ég er þakk-
látur fyrir það og legg hart að mér. Ég hef spil-
að vel og er farinn að brosa aftur. Ég er mjög
hamingjusamur í KR og hef gaman af hverri
æfingu. Brosi mun meira en ég gerði enda ekk-
ert til að hafa áhyggjur af.“
Eins og sjá má á tölfræðinni sem fylgir
greininni hefur þeim gengið vel upp á síðkastið
en liðum þeirra hefur reyndar ekki gengið eins
vel í stigasöfnun á sama tíma. Einhverjir hafa
viljað túlka það á neikvæðan hátt en þeir gefa
lítið fyrir það.
„ÍA fékk sjö stig en KR fimm og Stjarn-
an fjögur. Það má ekki gleyma því að ÍA tók
öll tólf fyrstu stigin á tímabilinu með mig og
Mark í liðinu. Þeir standa sig því ekkert betur.
Okkur gengur betur og er alveg sama hvað
fólk segir,“ segir Martin ákveðinn.
Síðustu dagarnir fram að bikarúrslita-
leik eru oft lengi að líða en ekki hjá
hamingjusömu Bretunum í Reykjavík.
„Dagarnir fljúga hjá og maður er
í fótbolta fyrir þessa daga og slíkan
leik,“ segir Doninger
en ætlar hann að tækla
vin sinn fái hann tæki-
færi til þess í dag?
„Ég veit það ekki.
Það verður að koma í
ljós,“ segir Doninger
sposkur. „Ætli ég reyni
ekki bara að halda mig
fjarri honum. Mark er
harður,“ bætir Gary við
og hlær dátt.
Þeir félagar eru sam-
mála um að leikurinn
verði skemmtilegur á
að horfa og búast jafn-
vel við markaflóði.
„Leikurinn gæti vel farið í framlengingu í
stöðunni 3-3 eða 2-2. Bæði lið kunna að sækja
og eru með fullt af góðum sóknarmönnum.
Þetta verður örugglega skemmtilegt,“ segir
Doninger en Stjörnunni hefur ekki gengið eins
vel að verjast í sumar og KR.
„Ég hlakka til þess að spila þennan leik.
Ég er í frábæru liði og það er magnað að spila
með strákum eins og Óskari Erni. Þeir eru svo
góðir að ég sagði við Mark í gríni að ég væri
líklega lélegastur í liðinu,“ sagði hinn síbros-
andi Martin og bætti við.
„Við erum báðir miklir keppnismenn og það
verður ekkert gefið í leiknum. Við ætlum báðir
að vinna.“ henry@frettabladid.is
BARÁTTA BRETANNA UM BIKARINN
Skagamennirnir fyrrverandi, Gary Martin og Mark Doninger, verða á ferð með sínum nýju félögum, KR og
Stjörnunni, í bikarúrslitaleiknum í dag. Þessir miklu félagar, sem yfirgáfu ÍA í júlí, segjast vera mun ham-
ingjusamari í borginni en þeir voru á Akranesi. Þeir ætla sér báðir stóra hluti í leiknum í dag.
FÓTBOLTI Þeir Gary Martin og
Mark Doninger bjuggu saman
á Akranesi í um tvö ár. Bíllausir
og nánast aðeins með félagsskap
hvors annars. Það reyndist þeim
ekki alltaf auðvelt.
„Annað árið var ekkert að gera
hjá okkur nema fara heim eftir
æfingar. Ég pakkaði tvisvar ofan
í tösku bara að gamni mínu. Svona
mikið leiddist mér,“ segir Martin
og viðurkennir að þeir hafi verið
orðnir hálfþunglyndir. „Við töluð-
um ekki um annað en að fara heim
til Englands og það var líka komið
á það stig að við þoldum ekki
hvorn annan og gátum vart talað
saman á stundum,“ segir Martin
en þeir eru samt fínir félagar í
dag og tala saman nær daglega.
Umgangurinn á milli er þó minni
enda hafa þeir verið að kynnast
mörgu nýju fólki.
„Það er mjög gaman í borginni
og við erum þannig týpur að við
þurfum að vera í kringum annað
fólk. Einangrunin á ekki vel við
okkur og það er ekkert leyndar-
mál að okkur líður betur og það
sést líka á okkar leik og öllu fasi,“
segir Martin og Doninger tekur af
honum orðið.
„Það er gaman að hanga með
strákunum í Stjörnuliðinu. Fara
í bíó, á kaffihús, golf eða spila
póker. Það er allt í einu eitthvað að
gera og ég kann við samheldnina
í Stjörnuhópnum. Þar standa allir
saman og hjálpa hver öðrum. Það
hefur verið vel tekið á móti mér.
Það er auðveldara að spila betur
og njóta leiksins þegar manni líður
betur utan vallar eins og það er hjá
mér núna.“
Martin þarf ekki að spila aftur
upp á Skaga í sumar en næsti leik-
ur Stjörnunnar í deildinni er uppi
á Skaga.
„Ég hlakka til þess að spila þar
aftur. Gaman að mæta gömlum
félögum og vonandi verður tekið
vel á móti mér. Ég gaf allt sem ég
gat er ég spilaði með ÍA og það er
að stórum hluta mér og Gary að
þakka að liðið komst upp. Vonandi
verða móttökurnar fínar.“ - hbg
Gary Martin gerði ýmislegt til að drepa tímann uppi á Akranesi:
Pakkaði tvisvar ofan í tösku því
ég hafði ekkert betra að gera
HRESSIR Í HÖFUÐBORGINNI Martin og Doninger una sér vel á höfuðborgarsvæðinu
og líður talsvert betur þar en uppi á Akranesi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SAMAN UPPI Á
SKAGA:
Gary Martin - 3
mörk í 12 leikjum
Mark Doninger - 1
mark í 8 leikjum
Samanlagt: 4 mörk
í 20 leikjum
Gary Martin og Mark
Doninger í sumar
Gary Martin og Mark Doninger hafa báðir
skorað mun meira síðan þeir fóru frá ÍA en hér
fyrir neðan má sjá samanburð á markaskorun
leikmannanna í sumar.
SÍÐAN ÞEIR FÓRU AF
SKAGANUM:
Gary Martin með KR - 4 mörk í
5 leikjum
Mark Doninger með Stjörnunni - 5
mörk í 5 leikjum
Samanlagt: 9 mörk í 10 leikjum
FÓTBOLTI Bjarni Jóhannsson,
þjálfari Stjörnunnar, getur gert
þriðja félagið að bikarmeisturum
í dag þegar Stjarnan mætir KR
í úrslitaleik Borgunarbikarsins.
Bjarni gerði Eyjamenn að bikar-
meisturum 1998 og Fylkir vann
sinn fyrsta titil undir hans stjórn
árið 2001.
Fyrir ellefu árum voru Fylkis-
menn að spila fyrsta bikarúrslita-
leikinn í sögu félagsins og Bjarni
Jóhannsson er eini þjálfarinn sem
hefur gert lið að bikarmeisturum
í frumraun sinni í bikarúrslitum
síðan farið var að spila úrslita-
leikina á Laugardalsvellinum árið
1973.
Frá 1973 hafa átta félög bæst
í hóp þeirra sem hafa spilað til
úrslita í bikarkeppni karla og sjö
þeirra hafa þurft að sætta sig við
silfrið, þar á meðal Þórsarar í
úrslitaleiknum í fyrra.
Fjögur önnur félög, sem höfðu
leikið til úrslita í bikarnum fyrir
árið 1973, töpuðu einnig í sínum
fyrsta bikarúrslitaleik í Laugar-
dalnum en það eru ÍA (1974), ÍBV
(1980), KR (1989) og FH (1991). - óój
Frumraun liða í bikarúrslitum:
Bjarni er eini
gullþjálfarinn
BJARNI JÓHANNSSON Hefur unnið tvo af
þremur bikarúrslitaleikjum sínum sem
þjálfari. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Ég sagði við
Mark í gríni að
ég væri líklega
lélegasti mað-
urinn í liðinu
hjá KR.
GARY MARTIN
LEIKMAÐUR KR
Frumraun félaga í
bikarúrslitum frá 1973
Keflavík 1973 tap fyrir Fram
Víðir 1987 tap fyrir Fram
KA 1992 tap fyrir Val
Grindavík 1994 tap fyrir KR
Leifur 1998 tap fyrir ÍBV
Fylkir 2001 sigur á KA
Fjölnir 2007 tap fyrir FH
Þór Ak. 2011 tap fyrir KR
Stjarnan 2012 ???
Frá aðeins kr. 69.900 í 7 nætur
7 nátta ferð - ótrúleg kjör!
Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð á allra síðustu sætunum 21. ágúst í 7 nætur til eins
allra vinsælasta sólaráfangastaðar Íslendinga, Costa del Sol.. Þú bókar flugsæti og
gistingu og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir. Fjölbreytt önnur sértilboð
jafnframt í boði. Ath. takmarkaður fjöldi sæta og gistingar í boði - verð getur
hækkað án fyrirvara.
Kr. 69.900 - 7 nátta ferð
Verð m.v. 2 - 4 í herbergi / stúdíó / íbúð. Sértilboð 21. ágúst.
Roc Flamingo
Frá kr. 79.900 í 7 nætur með allt innifalið
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára, í fjölskylduherbergi.
Netverð m.v. 2 fullorðna í herbergi kr. 99.800 á mann. 21. ágúst í viku.
Ótrúle
g kjör
!
Stökktu til
Costa del Sol
21. ágúst