Fréttablaðið - 18.08.2012, Side 110
18. ágúst 2012 LAUGARDAGUR74
PERSÓNAN
Nafn: Gunnar
Nelson.
Aldur: 24 ára.
Starf: Atvinnu-
íþróttamaður.
Foreldrar: Har-
aldur Dean Nelson,
pabbi minn, vinnur
hjá Mjölni, og mamma mín, Guðrún
Hulda Gunnarsdóttir, vinnur við
umönnun á Hrafnistu.
Fjölskylda: Fyrir utan foreldra
mína eru það systir mín, María
Dögg Nelson, og kærastan mín,
Auður Ómarsdóttir.
Búseta: Á Sogavegi.
Stjörnumerki: Ljón.
Gunnar Nelson skrifaði nýlega undir
samning við samtökin UFC og skipu-
leggur Mjölnir ferðir út á fyrsta bardaga
hans í september.
„Það er svolítið „kúl“ að vera með
Willis þarna,“ segir Ólafur Arn-
alds.
Tónlist hans hljómar í nýrri
kynningarstiklu fyrir vísinda-
tryllinn Looper sem verður
frumsýndur í Bandaríkjunum í
september. Hollywood-stjarnan
Bruce Willis fer með aðalhlut-
verkið í myndinni ásamt Joseph
Gordon-Levitt og koma þeir báðir
við sögu í stiklunni. Undir has-
arnum hljómar svo lag Ólafs sem
hann samdi upphaflega fyrir
dansverk breska balletthöfund-
arins Wayne McGregor. „Þetta
kom rosa vel út,“ segir Ólafur,
sem hefur áður samið tónlist við
stiklur en aldrei fyrir svona dýra
mynd. Hann virðist vera búinn
að koma ár sinni vel fyrir borð í
Hollywood því stutt er síðan hann
átti lag í myndinni vinsælu The
Hunger Games.
Spurður út í mögulegt sam-
starf hans og bresku leikkonunn-
ar Emmu Watson, sem er stödd
hér á landi við tökur á stórmynd-
inni Noah, varð heldur fátt um
svör hjá Ólafi. Watson hefur lýst
yfir aðdáun sinni á tónlist Ólafs
á Twitter-síðu sinni og orðrómur
er uppi um að hún vilji syngja lag
eftir hann. „Við erum búin að hitt-
ast og spá í músík,“ segir
hann en með henni á
landinu er vinur henn-
ar Ben Hammersley.
„Hann er rosalega
fær tónlistarmaður.“
Ólafur segir Wat-
son vera rosalega fína
manneskju. „Hún er
mjög jarðbundin og
það er ekkert
vesen á henni.
Þ e t t a e r
ósköp eðli-
leg stelpa.
- fb
Ólafur og Bruce Willis í stiklu
SAMAN Í STIKLU Tónlist Ólafs Arnalds
hljómar í nýrri stiklu við mynd Bruce
Willis, Looper.
Góð þátttaka verður í Reykjavíkurmaraþoninu í dag og mun stór hluti
þjóðarinnar reima á sig hlaupaskóna og taka þátt til styrktar ýmsum
málefnum. Í gær höfðu safnast hátt í 34 milljónir og láta þekktar per-
sónur sitt ekki eftir liggja.
Jón Gunnar Geirdal markaðsmaður var í fimmta sæti yfir þátttak-
endur í söfnuninni í gær með 358 þúsund krónur til styrktar Rjóðrinu
með tíu kílómetra hlaupi sínu. Sjónvarpsmaðurinn Björn Bragi Arnars-
son var ekki langt undan en hann hleypur heilt maraþon í fyrsta
sinn á ævinni. Markmið hans var að safna hálfri milljón fyrir
Krabbameinsfélagið og ætlaði hann að bæta við hundrað
þúsund krónum úr eigin vasa ef takmarkið myndi nást. Í
gær höfðu safnast 302 þúsund krónur og átti hann því
nokkuð í land. Leikarinn Friðrik Friðriksson hleyp-
ur einnig 42 kílómetra og hafði safnað 94 þúsund
krónum í gær fyrir Duchenne-samtökin á Íslandi.
Íslenski rithöfundurinn og blaðamaðurinn Mikael
Torfason hleypur öllu styttra eða tíu kílómetra og
hafði safnað 94 þúsund krónum fyrir Umhyggju. Ekki
má gleyma parinu Þorbjörgu Öldu Marinósdóttur, mark-
aðsstjóra Skjásins, og Karli Sigurðssyni, borgarfulltrúa
Besta flokksins. Þorbjörg, betur þekkt sem Tobba Marinós,
hafði safnað 21 þúsundi fyrir Stígamót og skákaði kærastanum
sem var með 13 þúsund til styrktar Krafti. - hþt
Þekktir hlaupa maraþon
HLAUPA TIL GÓÐS
Tobba Marinós og Björn
Bragi Arnarsson eru á
meðal þeirra er hlaupa
til góðs í dag.
Dönsk hönnunarstofa sem nefnist
Lop Furniture framleiðir kolla sem
þykja furðu líkir Fuzzy-kollinum
sem hannaður var árið 1970 af Sig-
urði Má Helgasyni. Vöruhönnuður-
inn Svana Lovísa Kristjánsdóttir
heldur úti blogginu Svartáhvítu og
vakti hún fyrst athygli á málinu á
síðu sinni á miðvikudag.
Sigurður Már hafði ekki heyrt
af málinu þegar Fréttablaðið hafði
samband við hann og gat þar af
leiðandi lítið tjáð sig um það. Hann
segir Fuzzy-kollinn þó að mestu
hafa fengið að vera í friði frá því
hann leit fyrst dagsins ljós.
„Ég veit að fólk hefur gert svona
kolla handa börnum sínum en ann-
ars hefur hann að mestu verið lát-
inn í friði. Ég veit um eitt dæmi
þar sem danskt fyrirtæki var með
svipaðan koll á sölusýningu og það
var spurt hvort um íslenska kollinn
væri að ræða, ég veit ekki hvort
það var sami aðili og er hér á ferð,“
segir hann.
Fuzzy-kollurinn hefur farið víða
og nýverið keypti The American
Scandinavian Foundation í New
York einn slíkan af Sigurði Má. Þó
Sigurður sé orðinn sjötíu og þriggja
ára er hann langt því frá hættur að
skapa og var hann meðal þátttak-
enda í Hönnunarmars í ár þar sem
hann sýndi lampa úr gleri og viði.
„Ég er ekki hættur og bý enn þá til
kollinn frá a til ö. Velgengni hans er
eins og mesta lygasaga.“
„Eftirlíkingar hafa alltaf verið til
en nú fyrst er þetta að verða vanda-
mál,“ segir Svana Lovísa sem gerði
hönnunarstuld að umfjöllunarefni
lokaritgerðar sinnar frá LHÍ. Hún
tekur fram að mikill munur sé á
því þegar fólk föndrar eftirlíkingu
til einkanota og að framleiða eftir-
líkingu til almennrar sölu. „Þetta
er tvennt ólíkt. Hið síðarnefnda
er ólöglegt og sýnir um leið mikið
virðingarleysi fyrir vinnu annarra.“
sara@frettabladid.is
SIGURÐUR MÁR HELGASON: BÝ ENN ÞÁ TIL KOLLINN FRÁ A TIL Ö
Eftirlíking af Fuzzy skýtur
upp kollinum í Danmörku
VINSÆLL KOLLUR Sigurður Már Helgason hannaði kollinn Fuzzy árið 1970. Danskt
fyrirtæki að nafni Lop Furniture hannar koll sem þykir furðu líkur Fuzzy.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
LÍKT EFTIR ÍSLENSKRI HÖNNUN
Árið 2010 hannaði söngkonan
Beyoncé buxur fyrir tískumerki sitt
Dereon sem þóttu afskaplega líkar
buxum frá E-label, sem söngkonan
keypti í Topshop sama ár.
Umdeild regnhlíf hönnuðarins
Sruli Recht dúkkaði upp í sölu á
netinu sem hönnun annars manns í
desember árið 2010.
Í janúar árið 2010 flutti mbl.is
frétt af því að bíræfnir hönnunar-
þjófar höfðu stolið hönnun hinnar
íslensku skegghúfu eftir Vík Prjóns-
dóttur og hafið fjöldaframleiðslu á
henni.
Herðatrénu Krumma, sem
hannað er af Ingibjörgu Hönnu,
hefur einnig verið stolið og eftir-
líkingin seld á samskiptasíðunni
Facebook.