Fréttablaðið - 24.08.2012, Page 2
24. ágúst 2012 FÖSTUDAGUR2
... og rjómi
Brynjólfur, þvarr ykkur þrótt
til andmæla?
„Við erum þróttmiklir en það er
svona þegar borgin lætur borgarana
borga.“
Brynjólfur Óskarsson er vallarstjóri
Knattspyrnufélagsins Þróttar í Laugardal.
Endurbætur á bílastæðinu við völl liðsins
verða til þess að það minnkar mikið.
DÓMSMÁL Tveir karlmenn játuðu
fyrir dómi í gær að hafa ráðist inn
á heimili rúmlega sextugs manns
í Breiðholti fyrr í sumar, beitt
hann hrottalegu ofbeldi og rænt
af honum fé og öðrum eigum.
Mennirnir, Snorri Sturluson og
Daniel Arciszewski, héldu mann-
inum nauðugum í átta klukku-
stundir og bundu hann meðal
annars með límbandi og raf-
magnssnúru á höndum og fótum.
Ákærðu játuðu við þingfestingu
málsins í gær eftir að saksóknari
hafði fellt það út úr ákærulýsing-
unni að þeir hefðu hótað mannin-
um með haglabyssu hans. - sh
Bundu mann í Breiðholti:
Ofbeldismenn
játa á sig rán
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur fellt
úr gildi gæsluvarðhaldsúrskurð
Héraðsdóms Reykjaness yfir
grunuðum fíkniefnasmyglara.
Maðurinn er dæmdur í farbann í
staðinn.
Ákæra var gefin út á hendur
manninum í síðustu viku fyrir að
skipuleggja innflutning á samtals
rúmlega 900 grömmum af kókaíni
til landsins. Maðurinn hefur neitað
sök en kona sem ákærð er með
honum hefur játað.
Í greinargerð lögreglu segir að
upptökur af hleruðu samtali þeirra
á milli sýni að maðurinn hafi
staðið á bak við smyglið, en það
telur Hæstiréttur ekki nægja til
gæsluvarðhaldsvistar. - sh
Settur í farbann í Hæstarétti:
Dópsmyglari
úr varðhaldi
KOSNINGAR Utankjörfundarat-
kvæðagreiðsla vegna þjóðarat-
kvæðagreiðslu um stjórnarskrá
Íslands hefst á morgun. Atkvæða-
greiðslan sjálf fer fram laugardag-
inn 20. október. Kjósendur taka
afstöðu til þess hvort drög stjórn-
lagaráðs verði grundvöllur að
frumvarpi um nýja stjórnarskrá.
Að auki verða spurningar
lagðar fyrir kjósendur um hvort í
stjórnarskrá eigi að vera ákvæði
um að náttúruauðlindir, sem ekki
eru í einkaeigu, séu í þjóðareign,
um þjóðkirkju, um jafnt vægi
atkvæða, um að ákveðið hlutfall
kjósenda geti krafist þjóðarat-
kvæðagreiðslu og hvort í stjórnar-
skrá verði persónukjör til Al-
þingis heimilað í meiri mæli. - kóp
Utankjörfundur að hefjast:
Kosið um drög
að stjórnarskrá
SAKAMÁL Fjölmörg dæmi eru um að
á íslenskum vefsölutorgum finnist
auglýsingar erlendra þrjóta sem
hafa það eitt að leiðarljósi að hafa
peninga af fólki. Mikil umræða
hefur til að mynda skapast um það á
Bland.is hvort ekki sé hægt að koma
í veg fyrir að þrjótarnir fái að birta
auglýsingar sínar á vefnum. Ekki
hefur þó verið gripið inn í.
Einn notandi á Bland.is segist
hafa haft samband við vef stjórann
um leið og hann áttaði sig á því
að verið væri að spila með hann.
Engin svör fengust og svo virðist
sem ekkert hafi verið gert og
þrjóturinn fær að „ganga laus“ án
þess að við honum sé varað.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir
hefur forsvarsmaður Bland.is ekki
svarað Fréttablaðinu.
Margar ábendingar um svika-
auglýsingar hafa borist í kjölfar
umfjöllunar blaðsins um atvik þar
sem reynt var að svindla á notanda
Bland.is.
Ómögulegt getur verið að rekja
hvar þrjótarnir eru niður komnir.
Það þarf ekki endilega að vera að
þeir séu frá því landi sem þeir
segjast vera. Þá er mjög ólíklegt
að þeir noti sitt rétta nafn.
Þrjótarnir eru hins vegar ekki
alltaf á eftir vörum heldur þykjast
líka vera að selja þær. Á Bland.is
er auglýsing sem lesandi blaðsins
segir að sé svikamylla. Þar aug-
lýsir spænskumælandi notandi
dýrar Apple-vörur eins og síma
og spjaldtölvur. Þar biður hann um
að borguð séu 60 prósent uppsetts
verðs inn á reikning hjá erlendri
greiðsluþjónustu og þegar sá hluti
er kominn verði varan send til
viðkomandi. Það gerist hins vegar
ekki. birgirh@frettabladid.is
Koma ekki í veg fyrir
vefþrjóta á sölutorgi
Forsvarsmenn vefsölutorgsins Bland.is hafa ekki stöðvað netþrjóta og hafa ekki
varað notendur vefsins við. Þrjótarnir auglýsa eins og þeir vilja. Einn þeirra
þykist vera norskur fréttamaður sem vill flytja gamla og ódýra bíla til Noregs.
SVIK Margir hafa lent í því að vefþrjótar hafi samband við þá og reyni að hafa af
þeim fé. FRÉTTABLAÐIÐ/SAMSETT MYND
Sá þrjótur sem hefur gengið hvað harðast fram á Bland.is undanfarnar
vikur kallar sig „kaj202“ á sölutorginu. Hann kynnir sig svo sem Kaj Toeger
Pedersen og segist búa við Taasengötu 18 í Ósló í Noregi. Þrjóturinn hefur
stolið nafni norsks íþróttafréttamanns sem starfar fyrir NRK.
Svindlarinn reynir að kaupa bíla af notendum. Ef eigandi bílsins er fús til
að selja segist hann vilja flytja bílinn til Noregs og biður um að borgað sé
fyrir flutninginn á bílnum. Um leið og flutningsgjaldið hefur verið borgað
eiga peningar á biðreikningi hjá PayPal-greiðsluþjónustunni að flytjast til
þín.
Þannig hefur hann pening af fólki því eigandi bílsins fær aldrei greitt af
reikningi hjá PayPal. Greiðsluþjónustan PayPal býður ekki einu sinni upp
á biðreikninga. Upphæðin sem það kostar að flytja bílinn er hugsanlega á
bilinu 60 til 70 þúsund íslenskar krónur. Viðmælandi Fréttablaðsins áttaði
sig á því að verið væri að svindla á honum þegar hann uppgötvaði að
greiðslan fyrir flutningunum átti að fara á reikning í Barcelona á Spáni.
Svindlarinn stal nafni fréttamanns
Hjálm- og ljóslaus í símanum
Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði á
miðvikudag unga stúlku á ljóslausri
rafmagnsvespu. Hún var hjálmlaus
og að tala í síma. Henni var bent á að
koma hlutunum í lag og forráðamönn-
um hennar sent bréf vegna málsins.
LÖGREGLUFRÉTTIR
AKUREYRI Afmælisvaka, 150 ára afmælishátíð Akur-
eyrar, hefst formlega í dag. Hátíðarhöldin hefjast
klukkan tvö eftir hádegi með því að Íslandsklukk-
unni við Háskólann á Akureyri verður hringt 150
sinnum í tilefni afmælisins.
Hátíðin stendur yfir til 2. september. Meðal atriða
verður Götulistahátíðin Hafurtask, þar sem um 120
ungmenni leika listir sínar víðs vegar í miðbænum.
Þá mun hljómsveitin Bravóbítlarnir stíga á svið, en
hún hlaut fyrst athygli árið 1965 þegar hún hitaði
upp fyrir ensku hljómsveitina The Kinks á tón-
leikum í Reykjavík.
Á sjálfan afmælisdaginn, 29. ágúst, safnast skóla-
börn saman í miðbænum og gefa bænum einstaka
afmælisgjöf. Bæjarstjórn Akureyrar heldur hátíðar-
fund í Hofi og Afmæliskór Akureyrar flytur ný verk
nokkurra tónskálda sem tengjast bænum.
Einnig verður mikið um dýrðir seinni helgina, 30.
ágúst til 2. september, og má þar nefna frumsýningu
á verkinu Borgarinnunni í Samkomuhúsinu, Exodus
raftónleika, Rökkurró í Lystigarðinum, kjötkveðju-
hátíðina Lyst með List og afmælistónleika í Gilinu
þar sem fram koma Akureyrarhljómsveitir liðinna
ára. Loks verður flugeldasýning á Pollinum. - sv
HRINGIR INN AFMÆLIÐ Íslandsklukkan við Háskólann á Akur-
eyri hringir inn stórafmæli bæjarins í dag.
SUÐUR-AFRÍKA, AP Meira en þúsund
manns komu saman á minningarat-
höfn um 34 námuverkamenn, sem
féllu fyrir hendi lögreglumanna í
síðustu viku.
Jacob Zuma, forseti landsins, tók
ekki þátt í minningarathöfnunum.
Hins vegar sendi hann frá sér yfir-
lýsingu þar sem hann hvatti lands-
menn til þess að hætta að beita
ofbeldi – svona almennt séð. Hann
hefur boðað rannsókn á því sem
gerðist.
„Ég vil ekki leggja dóm á þetta
atvik,“ sagði í yfirlýsingunni. „Það
gerir rannsóknardómnefndin.“
Á fimmtudaginn í síðustu viku
létu 34 námuverkamenn lífið þegar
lögreglan hóf skothríð á hóp manna
sem tók þátt í verkfallsaðgerðum til
að krefjast betri kjara fyrir námu-
verkamenn.
Vikuna þar á undan höfðu tíu
manns látið lífið í átökum lögreglu
og námuverkamanna, þar á meðal
nokkrir lögreglumenn.
Verkalýðsfélag námu- og bygg-
ingarverkamanna krefst þess að
óháð rannsóknarnefnd verði látin
skoða hvað gerðist: „Við treystum
ekki viðmiðunarskilmálum rann-
sóknarinnar, sem Zuma hefur
boðað til,“ segir Jeff Mphahlele,
framkvæmdastjóri verkalýðs-
félagsins. - gb
Suður-Afríkubúar minntust 34 námuverkamanna sem féllu fyrir hendi lögreglu:
Zuma hvetur til friðsemdar
MINNINGARATHÖFN Lögregla í bænum
Marikana hefur drepið hátt í 40 námu-
verkamenn á síðustu tveimur vikum.
NORDICPHOTOS/AP
SKIPULAGSMÁL Grafa á þrjá skurði
og 22 holur til að kanna hvort
sprungur eru á lóðinni sem ætluð
er undir nýtt fangelsi á Hólms-
heiði.
Samkvæmt leyfi sem byggingar-
fulltrúinn í Reykjavík veitir verður
grafinn einn 150 metra langur
skurður til að kanna hvort sprung-
ur eru á byggingareit. Ef sprungur
finnast verða grafnir tveir þrjátíu
metra langir skurðir til að rekja
stefnu sprungnanna. Til viðbótar
verða gerðar 22 stakar holur til að
kanna jarðvegsgerð og dýpi. - gar
Skurðgröftur á Hólmsheiði:
Sprunguleit á
fangelsislóð
Valt við að henda sígarettu
Ökumaður á þrítugsaldri missti
stjórn á bíl sínum á Garðskagavegi á
þriðjudag þegar hann var að henda
sígarettu út um þaklúgu bílsins.
Bíllinn valt tvo hringi og á þriðja
tug metra út af veginum og stór-
skemmdist. Sauma þurfti á annan
tug spora í höfuð ökumannsins og
allmörg í hægri hendi hans.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Akureyrarbær byrjar að fagna 150 ára afmæli sínu með pompi og prakt í dag:
Íslandsklukkunni hringt 150 sinnum
HEILBRIGÐI Katrín Jakobsdóttir,
mennta- og menningarmálaráð-
herra, veitti í gær Verzlunarskóla
Íslands Gulleplið, en það er viður-
kenning sem veitt er fyrir fram-
úrskarandi starf á sviði heilsu-
eflandi framhaldsskóla. Með því
á að stuðla að velferð og góðri
heilsu framhaldsskólanema.
Nemendur Verzló áttu frum-
kvæði að því að breyta vörufram-
boði í mötuneytinu. Þar er ekki
lengur hægt að fá gosdrykki og
sælgæti, en í staðinn er boðið upp
á hollan mat og drykk. - kóp
Vegtylla frá ráðherra:
Verzló hlaut
Gulleplið
SPURNING DAGSINS