Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.08.2012, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 24.08.2012, Qupperneq 4
24. ágúst 2012 FÖSTUDAGUR4 NOREGUR Tæplega einu ári eftir að fjórir grímuklæddir menn rændu peningaflutningabíl við Skedsmo í Noregi hefur lögreglan fundið hluta þýfisins. Alls stálu ræn- ingjarnir tíu milljónum norskra króna eða rúmum 200 milljónum íslenskra króna. Einn hinna ákærðu vísaði lög- reglunni á felustað í skógi þar sem milljónir norskra króna voru grafnar. Voru peningarnir í litlum plastpokum, silfurpappír, plast- dollum og matarpokum og var allt geymt í svörtum plastpoka. - ibs Fundur eftir rán í Noregi: Tugir milljóna grafnir í skógi GENGIÐ 23.08.2012 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 207,9372 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 118,52 119,08 188,16 189,08 148,71 149,55 19,964 20,080 20,249 20,369 17,856 17,960 1,5071 1,5159 180,18 181,26 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is BLAÐALESTUR Í BÚRMA Ekki þarf lengur að fá samþykki fyrir blaðaskrifum fyrir fram. NORDICPHOTOS/AFP BÚRMA, AP Herforingjastjórnin í Búrma hefur afnumið beina rit- skoðun fjölmiðla í landinu. Þetta er nýjasta skrefið í frjálsræðisátt sem stigið hefur verið á síðustu misserum. Blaðamenn í landinu þurfa ekki lengur að fara með skrif sín til hins opinbera og fá samþykki fyrir birtingu, eins og þeir hafa þurft að gera í hálfa öld. Enn eru þó í gildi ströng lög sem gefa ríkinu heimild til að handtaka blaðamenn, setja á svartan lista eða stjórna hreinlega fjölmiðlum ef öryggi ríkisins er talið í húfi. - gb Búrmastjórn gengur lengra: Segir ritskoðun vera afnumda SKIPULAGSMÁL Útfærsla á rúmlega þrjú hundruð metra langri göngu- og hjólabrú yfir Foss voginn var kynnt í skipulagsnefnd Kópavogs fyrr í vikunni. Samkvæmt útfærslunni, sem arkitektarnir Jakob Líndal og Krist- ján Ásgeirsson í Alark kynntu, verður brúin þrjú hundruð og fimm metra löng, lágreist, og mun ná frá Kárs- nesi yfir að flug- brautarendanum Reykjavíkur- megin. Í miðjunni yrði sextán metra löng snúningsbrú til að hleypa bátum og öðrum fleyjum í gegn. „Um nokkurt skeið hefur verið rætt hér í Kópavogi um að leggja brú þarna yfir og höfum við heyrt að borgaryfirvöldum lítist vel á það,“ segir Birgir H. Sigurðsson, skipulagstjóri Kópavogsbæjar. Jakob Líndal bendir meðal annars á mikla landfyllingu Kópavogs- megin innan við hina áætluðu brú. Þar sé þegar búið að samþykkja nýtt bryggjuhverfi. Birgir skipulagsstjóri segir hug- mynd arkitektanna í áfram haldandi skipulagsvinnu á svæðinu. „Ekki er hægt að segja til um það á þessari stundu hvort og þá hvenær eitthvað verði af hug myndum í þessa veru – en vonandi skýrist það þegar lengra líður á haustið og vinnu sveitarfélaganna, Kópavogs og Reykjavíkur, miðar áfram,“ segir skipulagstjórinn. gar@frettabladid.is Áhugi fyrir göngu- og hjólabrú yfir Fossvog Hugmynd arkitekta um göngu- og hjólabrú yfir Fossvog fær góðar viðtökur. Skipulagsstjóri Kópavogs segir brú yfir voginn hafa verið rædda um nokkurt skeið og hann hafi heyrt að borgaryfirvöldum í Reykjavík lítist vel á málið. BRÚ YFIR FOSSVOG Þrjú hundruð metra brú tengir Reykjavík og Kópavog ef tillaga arkitekta í Alark verður að veruleika. Brúin á að vera lágreist til að trufla ekki útsýni. MYND/ALARK SNÚNINGSBRÚ Hugsað er fyrir siglingum í Fossvogi með snúningsbrú. MYND/ALARK JAKOB LÍNDAL LÖGMENN BREIVIKS Geir Lippestad og Vibeke Hein Bæra svara spurningum blaðamanna. NORDICPHOTOS/AFP NOREGUR, AP Dómur verður kveð- inn upp í Noregi í dag yfir Anders Behring Breivik, sem játað hefur að hafa myrt 77 manns í Ósló og á Úteyju síðasta sumar. Að sögn lögmanna hans ætlar Breivik eingöngu að áfrýja úrskurði ef dómstóllinn kemst að þeirri niðurstöðu, að Breivik sé ósakhæfur, sem þýddi að hann yrði settur á sjúkrahús í ótilgreindan tíma. Verði hann úrskurðaður sak- hæfur og dæmdur í fangelsi hyggst Breivik ekki áfrýja dómnum. - gb Dómur yfir Breivik í dag: Áfrýjar aðeins ef ósakhæfur ÞÝSKALAND Nær helmingur tyrk- neskra innflytjenda í Þýskalandi, eða 46 prósent, vill að múslímar verði þar í meirihluta, að því er könnun á vegum stofnunarinnar Info GmbH í Berlín leiðir í ljós. Er þetta þrettán prósentustiga aukn- ing frá árinu 2010. Alls líta 52 prósent innfluttra Tyrkja á samkynhneigð sem sjúkdóm. Í Þýskalandi búa nú 2,7 milljónir manna af tyrkneskum uppruna. Aðeins 25 prósent þeirra eru með þýskt vegabréf. Könnunin tók til 1.011 Tyrkja sem búa í Þýskalandi, að því er kemur fram á fréttavef Kristilega Dagblaðsins í Danmörku. - ibs Innflytjendur í Þýskalandi: Múslímar verði í meirihluta ÞJÓNUSTA Borgarráð samþykkti í gær að breyta reglum þannig að heimila megi dvalarheim- ilum aldraðra á skilgreindum íbúðarsvæðum að vera með vín- veitingar. Skipulagstjóri borgarinnar hefur sagt að borgin sé bundin af því að Hrafnista sé á skilgreindu íbúðarhúsnæði og þar megi ekki heimila vínveitingar. Það verði lagfært með breytingum á aðal- skipulagi eftir áramót. Pétur Magnússon, forstjóri elliheim- ilisins Hrafnistu, óskaði í kjöl- farið eftir tímabundinni undan- þágu svo hefja mætti vínveitingar fyrr í endurnýjuðum matsal þess. „Flestir íbúar öldrunarheimila hafa sjaldnast tök á að fara út frá heimilunum og því mjög ósann- gjarnt og óskiljanlegt að árið 2012 ætli Reykjavíkurborg að mismuna íbúum öldrunarheimila um þjónustu, einungis eftir því hvar öldrunarheimilin eru stað- sett,“ segir í bréfi forstjórans. „Reglurnar eru of þröngar að þessu leyti og því einfaldast að breyta þeim,“ segir í tillögu full- trúa Sjálfstæðisflokksins sem samþykkt var í gær. - gar Borgarráð breytir reglum svo Hrafnista þurfi ekki að bíða skipulagsbreytinga: Opnað á vínveitingar á elliheimilum MATSALURINN NÝI Verið er að breyta matsalnum á Hrafnistu í kaffihús og stefnt að því að opna í byrjun septem- ber. Þar eiga bæði að fást pönnukökur með rjóma og léttvín. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN UMHVERFISMÁL Samtökin World Future Council hafa tilnefnt stefnumörkun Íslands um vernd hafsins gegn mengun frá landi, og á sviði fiskveiðistjórnunar, til svokallaðra Framtíðarstefnuverð- launa. Alls eru tilnefningar 31 talsins frá 22 ríkjum og svæðum. Áætlunin um varnir gegn mengun sjávar var gerð innan vébanda alþjóðlegrar fram- kvæmdaáætlunar gegn mengun hafs frá landi, sem Ísland átti þátt í að koma á fót. Tilkynnt verður um úrslitin í september. - shá World Future Council: Stefnumörkun Íslands tilnefnd VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 34° 22° 22° 17° 23° 20° 18° 18° 24° 19° 30° 22° 32° 15° 22° 27° 19° Á MORGUN 3-8 m/s. FIMMTUDAGUR Hæg norðlæg eða breytileg átt. 1010 10 9 9 8 11 12 12 6 13 4 3 6 4 3 3 6 6 8 2 3 13 11 10 8 8 11 12 9 9 8 LITLAR BREYTINGAR í vændum næstu daga en vindur mun áfram blása af norðri með lítils háttar úrkomu norðan og austan til á landinu. Sunnan til verður nokkuð bjart og þurrt að mestu og hitatölur enn þá tveggja stafa. Elísabet Margeirsdóttir veður- fréttamaður

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.