Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.08.2012, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 24.08.2012, Qupperneq 16
24. ágúst 2012 FÖSTUDAGUR16 „Í sannleika sagt upplifi ég lífið ekki sem röð tímamóta heldur sem eitt streymi. Þess vegna hef ég aldrei haldið upp á afmælið mitt en núna er ég að brjóta regluna því ég held að það sé ágætt að halda upp á fimm- tíu og hundrað ára afmælin fyrir vini til að vera ekki fúll,“ segir tónskáld- ið Atli Ingólfsson. Hann varð fimm- tugur þann 21. ágúst síðastliðinn og býður í opið hús í kvöld í Norðurpóln- um. „Ég kalla þessa uppákomu listahá- tíðina Ofboð þar sem ég vildi bjóða öllum sem vilja gleðjast með mér,“ segir hann. Á fjölskrúðugri dag- skránni verða útsetningar og tónverk eftir skáldið í bland við óvæntar upp- ákomur. „Það verða leiknar eldgaml- ar útsetningar síðan ég var tuttugu og fimm ára og listakonan Jeann- ette Cast ioni frumsýnir myndbands- verk sem hún gerði við tónverk eftir mig,“ segir hann og á við verkið Elsku Borga mín, sem kórinn Hljómeyki flutti í Skálholti 2009. „Síðan veit ég ekki meir. Það er það skemmtilega við þetta. En ég veit að það verður opin dagskrá fyrir þá sem vilja troða upp og nokkrir hafa skráð sig,“ segir hann kátur og bætir við að viðburðarstjórn sé í höndum Bergljótar Haraldsdóttur. Þessa stundina er Atli við smíð á píanókonsert fyrir hinn margrómaða Víking Heiðar Ólafsson meðal ann- arra verkefna. Hann segir það vera mikil forréttindi að vinna sem tón- skáld. „Jú, það er það skemmtilegasta sem ég geri og ég er ótrúlega þakk- látur fyrir það. Ég veit ekki hvern- ig á því stendur að ég er svona láns- samur.“ Atli hefur komið víða að á feril sínum. Hann hóf nám í tónsmíðum við Tónlistarskólann í Reykjavík og lagði svo land undir fót. „Ég flutti til Míl- anó árið 1985 og þremur árum síðar til Parísar. Ég flutti heim árið 2005 og hafði þá búið lengst af í Bologna á Ítalíu.“ Þar nam tónskáldið fag sitt og hefur frá námslokum árið 1990 haft lifibrauð af tónlistinni. „Ég var svo lánsamur að lifa á tónsmíðum í fimm- tán ár eftir útskrift og á Íslandi hef ég kennt meðfram við Listaháskóla Íslands og Tónlistarskóla Kópavogs,“ segir hann. Úti vann hann eftir pönt- unum og var alltaf með eitthvað á prjónunum frá Frakklandi, Svíþjóð og Þýskalandi. „Stór hluti verkefnanna var samt alltaf frá Íslandi.“ Aðspurður hvort hann sé klassískt tónskáld segir hann erfitt að skil- greina þá stefnu en klassíski tíminn var á átjándu öld. „Ég svara samt yfirleitt þessari spurningu á þá leið að ég geri hljóðskúlptúra en ekki söluvænlega tónlist.“ Þannig höfðar hann til lítilla hópa víðs vegar. „Ég sel ekki tíu þúsund eintök af disk á einum stað heldur bara nokkra tugi á mörgum stöðum í heiminum,“ segir hann. Öllum er velkomið að samgleðj- ast með honum frá klukkan hálf átta í kvöld að Sefgörðum 3 og segir hann hinn heimsfræga plötusnúð Stephan Stephensen leika lokatóna kvöldsins. hallfridur@frettabladid.is timamot@frettabladid.is Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, MARINÓS SIGURBJÖRNSSONAR Heiðarvegi 12, Reyðarfirði. Margrét Einarsdóttir Steinunn Marinósdóttir Sigurður V. Benjamínsson Einar Marinósson Ólafía K. Kristjánsdóttir Sigurbjörn Marinósson Sigríður St. Ólafsdóttir Marinó Már Marinósson Sigríður Lísa Geirsdóttir Guðný Soffía Marinósdóttir Haraldur Kr. Haraldsson Gauti Arnar Marinósson Hulda Sverrisdóttir afabörn og langafabörn. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, EINAR KRISTINN SIGURÐSSON lést sunnudaginn 5. ágúst í Holtsbúð, Vífilsstöðum Garðabæ. Bálför hefur farið fram. Anna Kristjánsdóttir Guðrún Einarsdóttir Marta Hildur Richter Sigurður Einarsson Þórhildur Bjarnadóttir Kristján Ari Einarsson Jóhanna Ingvarsdóttir afabörn og langafabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN ÁRNI HARALDSSON Hringbraut 2b, Hafnarfirði, lést á Landspítalanum Landakoti þriðjudaginn 21. ágúst. Jarðarförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 31. ágúst kl. 15.00. Sigurlaug Líndal Karlsdóttir Kristín Líndal Hafsteinsdóttir Hörður Oddgeirsson Karlotta Líndal Hafsteinsdóttir Sigurður Friðfinnsson Guðmundur Örn Jónsson Edith Poikane Guðbjörg Jónsdóttir Hallgrímur Atlason Grétar Jónsson Sigrún Jónsdóttir Rúnar Haraldur Jónsson barnabörn og langafabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, ORMUR ÓLAFSSON Safamýri 54, lést á Hrafnistu Reykjavík að morgni 22. ágúst. Alfa Guðmundsdóttir Ólafur Ormsson Ágúst Þór Ormsson Ingibjörg Kristinsdóttir Gunnlaugur Óskar Ágústsson Anna Heiður Heiðarsdóttir Sveinn Fjalar Ágústsson Jóna Rún Gísladóttir Sverrir Rafn Ágústsson Hrefna Fanney Matthíasdóttir Freyja Ágústsdóttir og langafabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, HERMÍNA ÞORVALDSDÓTTIR Goðabraut 16, Dalvík, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri laugardaginn 18. ágúst. Útför hennar fer fram frá Dalvíkurkirkju laugardaginn 25. ágúst kl. 13.30. Hörður Sigfússon Valur Harðarson Sigrún Friðriksdóttir Ásgerður Harðardóttir Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson Sigríður Harðardóttir Jón Sigurgeirsson Leifur Kristinn Harðarson Steinunn Jóhannsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, KRISTÍN JÓHANNSDÓTTIR lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi þann 20.08.2012. Sigurjón Kristjánsson Bryndís Guðmundsdóttir Kristín Björk Kristjánsdóttir Kristján Davíð Sigurjónsson Brynjar Vignir Sigurjónsson Aðalbjörg Kristín Sigurjónsdóttir Elsku sonur okkar, bróðir, mágur, barnabarn og frændi, ÓLAFUR GAUTI ÓLAFSSON Þorláksgeisla 12, Reykjavík, lést þriðjudaginn 21. ágúst. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju föstudaginn 31. ágúst kl. 13.00. Ólafur Steinþórsson Sjöfn Sigbjörnsdóttir Reynir Logi Ólafsson Eydís Eir Björnsdóttir Steinþór Örn Ólafsson Kristín Birna Ólafsdóttir Mark Johnson Sigbjörn Brynjólfsson Kristín Jónsdóttir Sólveig Aðalbjarnardóttir Agnes Sjöfn, Hrafnkell Logi og William Rökkvi ÓLAFUR HAUKUR SÍMONARSON leikskáld og rithöfundur, á afmæli í dag. „Það er aldrei nóg af Gauragangi.“65 ATLI INGÓLFSSON: HELDUR UPP Á FIMMTUGSALDURINN MEÐ LISTAHÁTÍÐ Fagnar afmæli í fyrsta sinn LISTAHÁTÍÐIN OFBOÐ Atli heldur upp á afmæli sitt í fyrsta sinn og býður öllum sem vilja gleðjast með honum á listahátíðina Ofboð í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Merkisatburðir 24. ágúst 1903 Alþingi samþykkti heimild til að kaupa jarðirnar Vaglir og Hallormsstað til „skógarfriðunar og skógargræðslu“ en þar eru nú stærstu skógar landsins. 1906 Símskeytasamband við útlönd var opnað. 1968 Norræna húsið í Reykjavík var vígt. 1993 Uppþot hófst á Litla-hrauni. Fjörutíu fangar mótmæltu í sólarhring hertum öryggisráðstöfunum vegna tíðra stroka. 2001 Helgi Símonarson lést 105 ára og 345 daga, þá langlíf- asti íslenski karlmaðurinn. Alda Ingibergsdóttir sópransöngkona fagnar hálfrar aldar afmæli í dag með tónleikum í Hafnarborg í Hafnarfirði. Þar flytur hún allar sínar uppáhaldsperlur með dætrum sínum Ásdísi og Lindu Guðmundsdætrum og Hauki Steinbergssyni tenór. Um undirleik sjá píanóleikararnir Helga Bryndís Magnúsdóttir og Aðalheiður Þorsteinsdóttir og Greta Salóme Stefánsdóttir fiðluleikari. „Dansíþróttafélag Hafnarfjarðar ætlar svo að dansa fyrir mig,“ segir hún glöð. Hún kveðst ekki hafa skipulagt margt annað fyrir sjálfan afmælisdaginn. „Ég ætla ekki að gera neitt annað. Ég hef allavega ekki hugsað út í það. Vikan hefur öll farið í að græja þetta en ég verð með teiti heima eftir tónleikana fyrir vini og fjölskyldu,“ segir Alda sem syngur stórar aríur og íslenskar perlur frá klukkan hálf níu í kvöld. Aðgangs- eyrir er krónur 2.500 og rennur allur ágóði til Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna. Aríur á afmælistónleikum Ég held að það sé ágætt að halda upp á fimmtíu og hundrað ára afmælin.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.