Fréttablaðið - 24.08.2012, Qupperneq 18
FÓLK|
HÚLADANS FRÁ HAVAÍ
Marina Celander kennir alvöru húladans í Kramhúsinu um helgina.
HELGIN
Sýningunni Fjarskablátt í Kirsuberjatrénu Vesturgötu 4 lýkur á
mánudag.
Á sýningunni sýnir Kristín Sigfríður Garðarsdóttir keramikhönnuður
teikningar ásamt verkum úr postulíni og leir sem unnin eru í gas-
brennslu og í hefðbundnum japönskum anagama-ofnum. Verkin vann
Kristín meðan hún dvaldi í Japan við The Shigaraki Ceramic Cultural
Park á síðasta ári.
Opið er í Kirsuberjatrénu frá klukkan 10 til 18 virka daga og milli
kukkan 11 og 17 um helgar.
FJARSKABLÁTT
■ KRISTÍN SIGFRÍÐUR SÝNIR Í KIRSUBERJATRÉNU
R eykjavík Distillery framleiðir nokkrar tegundir af víni. Þar á meðal líkjöra unna að hluta til úr íslenskum rabar-
bara, krækiberjum og bláberjum, og svo
ákavítissnafsa og einiberjasnafs. „Við erum
með fólk í hráefnatínslu víða um land. Oft
gerist það að brestur verður í uppskerunni
á einum stað meðan hún er í lagi á öðrum.
Við erum því með góðan hóp af öllum
hornum landsins í tínslunni. Ætli við tínum
ekki um það bil tonn af hverjum ávexti fyrir
sig,“ segir Snorri. Berin eru svo unnin á
mismunandi vegu eftir því hvaða vín tegund
þau eru notuð í. „Það er mismunandi
hvernig safinn er fenginn úr berjunum. Sum
eru soðin en önnur eru kaldpressuð.“
Snorri vill lítið gefa upp um vinnsluað-
ferðirnar, enda voru þær upplýsingar ekki
fengnar gefins og því um dýrmætt við-
skiptaleyndarmál að ræða. „Gríðarlega
margar prufur liggja að baki hverri tegund
sem við framleiðum í dag. Til dæmis
gerðum við þrettán uppskriftir að blá-
berjalíkjörnum áður en við duttum niður
á þá sem við framleiðum í dag.“ Nýlega
var nýr og glæsilegur eimunarpottur frá
Þýskalandi tekinn í notkun. „Potturinn er
smíðaður eftir aldagamalli hefð með marg-
breytileika í huga. Þegar við gerum áka-
vítissnafsana byrjum við að gera hreinan
vodka og í lokabrennslunni eru jurtirnar
settar út í. Ferskt kúmen og hvannarrót-
arfræ er svo látið liggja í vökvanum um
tíma. Hann er svo brenndur einu sinni enn
og þá fæst bragðið af jurtunum með.“
Á næstunni verður hugað að frekari
framleiðslu og vonast Snorri til að geta tek-
ið á móti gestum í brugghúsið í fram tíðinni.
„Við áætlum að geta boðið minni hópa vel-
komna til okkar í smökkun og skoðun. En
væntanlega verður það ekki fyrr en á næsta
ári.“ ■ vidir@365.is
UPPGANGUR Í
VÍNFRAMLEIÐSLU
ÍSLENSKT HRÁEFNI Snorri Jónsson eigandi 64° Reykjavík Distillery stendur
í ströngu þessa dagana. Uppskerutími berja er um þessar mundir, glænýtt
húsnæði var nýlega tekið í notkun og nýr eimunarpottur settur upp.
Um helgina verður námskeið í húla-
dansi frá Havaí í Kramhúsinu. Marina
Celander, gestakennari frá New York,
er komin til landsins, en dansinn hefur
ekki verið kenndur hér á landi fyrr.
Farið verður yfir grunnatriði dansins
og sögu hans.
SÉRFRÆÐINGUR Í HÚLADANSI
Hrefna Hallgrímsdóttir leikkona hafði
frumkvæðið að því að bjóða Marinu til
landsins. „Ég kynntist havaískum húla-
dansi í leiklistarnámi mínu í Banda-
ríkjunum. Þá tók ég dansinn sem valfag
og fannst það æðislegt. Við Marina
kynntumst svo í New York, en hún er
algjör sérfræðingur í þessum dansi,“
segir Hrefna og bætir við: „Margir rugla
saman húladansi og því að húla með
húlahring. Það er auðvitað ekki sami
hluturinn.“
Marina Celander er ættuð frá Svíþjóð
og Kóreu. Síðastliðin tólf ár hefur hún
tileinkað sér húladansformið. „Hún
hefur alltaf verið dansari og svo hefur
hún asískar rætur og er gift manni frá
Havaí. Þegar hún kynntist húladans-
inum kolféll hún fyrir honum,“ útskýrir
Hrefna. „Þetta er svo miklu stærri
heimur en við gerum okkur grein fyrir.“
TJÁNING OG TÚLKUN
Þeir sem dansa húladans segja sögu
með dansinum. „Söngur er mikilvægur
og textinn er túlkaður með hreyfing-
unum. Þetta er hálfgert tákn með tali,“
segir Hrefna hlæjandi. „Heilinn er
alveg á fullu allan tímann, en allir geta
dansað þennan dans.“
Marina og Hrefna vonast til að sjá
sem flesta á námskeiðinu. „Þetta er
frábært tækifæri til að öðlast algjörlega
nýja reynslu og kynnast öðrum heimi.“
Hægt verður að skrá sig á nám-
skeiðið alveg fram á síðustu stundu
eða meðan rúm leyfir, en pláss er fyrir
tuttugu nemendur á námskeiðinu.
■ halla@365.is
OPNAR NÝJAN HEIM
Marina er spennt að
kynna Íslendingum
heim húladansins og
vonast til að sjá sem
flesta um helgina í
Kramhúsinu.
BERIN KLÁR Í VÍNIÐ
Snorri skálar við Tryggva
Mathiesen í nýju hús-
næði Reykjavík Distil-
lery. Berjauppskeran á
borðinu, tilbúin fyrir vín
ársins 2012.
MYND/GVA
Hægt er að hafa samband við Rauðakrosshúsið í
Kópavogi í síma 554 6626 eða með tölvupósti á
kopavogur@redcross.is.
Ef þú eða einhver sem þú þekkir, hefur áhuga á að gerast
gestgjafi og njóta samveru með heimsóknavini Rauða
krossins hafðu samband við okkur.
Rauðakrosshúsið Hamraborg 11 opið virka daga kl. 9-15
sími 554 6626 kopavogur@redcross.is www.redcross.is/kopavogur
Ef þú vilt gerast heimsóknavinur og heimsækja aðra hafðu
einnig samband við okkur.
Gæti heimsóknavinur
gefið lífinu meiri lit?
Heimsóknavinir eru sjálfboðaliðar á ýmsum aldri sem rjúfa
einsemd og félagslega einangrun fólks með heimsóknum á
einkaheimili og stofnanir. Heimsóknavinir veita félagsskap
og hlýju m.a. með því að spjalla, lesa fyrir viðkomandi eða
fara í gönguferðir.
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432
Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir