Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.08.2012, Qupperneq 20

Fréttablaðið - 24.08.2012, Qupperneq 20
2 • LÍFIÐ 24. ÁGÚST 2012 Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Forsíðumynd Sem Johnson Útlitshönnun Arnór Bogason Auglýsingar Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is Lífið Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000 www.visir.is/lifid UMSJÓN Ellý Ármanns elly@365.is Kolbrún Pálína Helgadóttir kolbrunp@365.is HVERJIR VORU HVAR? Stuðið var á Marina hótelinu um síðustu helgi sem virðist vera heitasti bar bæjarins þegar fræga fólkið gerir sér dagamun. Þar var Steinunn Vala skartgripahönn- uður, Elín Reynisdóttir stjörnu- sminka og eiginmaður hennar Már Ormarsson sem starfar í Dubai. Þá mátti sjá Frank Pitt athafnamann, Lilju Nótt leikkonu, Arnar og Bjarka Gunnlaugssyni fótboltasnill- inga, Björk Eiðsdóttur ritstjóra og Svönu Friðriksdóttur upplýsinga- fulltrúa Wow-flugfélagsins, Tobbu Marínós og unnusta hennar Karl Sigurðsson Baggalútsmeðlim skemmta sér þetta líka stórvel. Ben Stiller, sem hefur gert það gott í Hollywood sem leikari, er staddur hér á landi í leit að hent- ugum tökustað fyrir væntanlega kvikmynd ásamt starfsfólki True North. Ben er duglegur að mynda nánast allt sem verður á vegi hans sem hann birtir síðan á Instagram-myndasíðunni sinni eins og sjá má hér. HOLLYWOODSTJARNA MYNDAR ÍSLAND Við þessa mynd skrifaði Ben: „Pos- sible location for the movie … must not fall off edge though“ sem þýðist á íslensku: Mögu- legur tökustaður fyrir myndina … má samt ekki detta af syllunni. Ben flaug með flugfélaginu Erni og myndaði flugvélina og auðvitað flug- manninn. Þarna er fylgdarlið stjörnunnar að finna hentugan tökustað. Ben kann að meta íslenska náttúru, það skín í gegn á myndunum hans. Sjonni var frábær tónlistarmaður, lagahöfundur og söngvari og eftir hann liggja mörg yndisleg, kraft mikil og grípandi lög. „Sjonni var svo hjartahlýr og vina- margur, alltaf brosandi og til í að rétta öðrum hjálpar- hönd og nú þegar við höfum hann ekki hjá okkur, þá finnum við fyrir honum í tónlist- inni hans.“ Tónlistarveisla Nú hafa vinir hans og tón- listarfólk sem hann starfaði með í gegnum tíðina flykkst saman og ætla að flytja lögin hans á tón- leikunum. Meðal þeirra eru Björgvin Halldórsson, Jógvan, Pálmi Sigur- hjartarson, en hann er jafnframt hljómsveitarstjóri, Hreimur Örn, Magni, Stefán Hilmarsson, Vignir Snær, Gunni Óla, Matti Matt, Soffía Karls, Guðrún Árný, Erna Hrönn, Bjarni Ara, Benni Brynleifs, Róbert Þórhalls og fleiri. „Ég held að það verði einstak- lega mikið hjarta í þessum sal þetta kvöld. Það hefur tekið á að undirbúa þetta og það er ljúfsárt að hlusta á lögin hans og röddina hans og það hvað við höfum öll misst mikið verður svo raunverulegt. En hann skildi eftir sig gjafir til okkar allra með tónlistinni sinni.“ Fann lagið í sorginni Í tilefni af tónleikunum dreif Þórunn sig í að klára síðasta lagið sem Sjonni samdi áður en hann lést. „Í desember á síðasta ári, í kjöl- far sérstaklega erfiðs tíma hjá mér í sorginni þar sem ég þráði svo heitt að geta heyrt eitthvað frá honum, gerðist svolítið einkennilegt. Ég opnaði tölvuna og allt í einu var opið þar upptökuforrit og demo af síðasta laginu sem hann samdi og var að vinna að þegar hann lést. Textinn var ókláraður en samt sem áður heyrist hann syngja línur sem voru eins og svar við spurningum mínum. Ég er nú búin að klára text- ann og reyndi að nota eins mikið af því sem hann var að syngja og ég gat og ætla að gefa út lagið en hans rödd mun hljóma með í laginu. Þakklát öllum sem koma fram Þetta er yndislegt lag og ég hlakka til að leyfa fólki að heyra það. En Vignir Snær er að vinna lagið með mér ásamt Vinum Sjonna sem sjá um hljóðfæraleik, undirspil og bakraddir. Nú eru æfingar á fullu fyrir tónleikana og ég er svo þakklát öllum sem eru að koma fram og heiðra minn- ingu hans á þennan hátt. Ágóði af tónleikunum mun síðan renna í Áfram, hvatn- ingarsjóðinn sem stofn- aður var fyrir börnin h a n s S j o n n a f jögur,“ segir Þórunn að lokum. SÍÐASTA LAGIÐ SEM SJONNI SAMDI Sjonni eins og við minnumst hans hefði orðið 38 ára næstkomandi miðvikudag, þann 29. ágúst. Að því tilefni ákvað Þórunn Clausen ásamt fjölskyldunni allri að halda minningartónleika fyrir hann í Borgarleikhúsinu. Hér má sjá aðeins brot af þeim frábæru listamönnum sem fram koma á minningartónleikunum Sjonna þann 29. ágúst í Borgarleikhúsinu. SOHO/MARKET Á FACEBOOK Grensásvegur 8, sími 553 7300 Opið mán–fös 12–18 og laugd 12–17 Aðeins 5 Útsölunni lýkur • 1.000,- • 1.500,- • 2.000,- • 2.500,- • 3.000,- verð Verðsprengja ALLT Á AÐ SELJAST komdu og gerðu frábær kaup Mikið rétt, Ben myndaði kortið líka.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.