Fréttablaðið - 24.08.2012, Page 46
24. ágúst 2012 FÖSTUDAGUR30
FÖSTUDAGSLAGIÐ
„Fyrsta lagið sem mér datt í hug
er We´re a Winner með Curtis
Mayfield and the Impressions.
Það er eins og að taka fjögur
skot í röð af sólskini.“
Steingrímur Karl Teague úr hljómsveitinni
Moses Hightower.
„Við erum náttúrulega með stór-
brotnustu og fjölbreyttustu leik-
mynd sem til er í íslenska lands-
laginu. Tökurnar hafa gengið
gríðarlega vel og þeir eru í skýjun-
um yfir þessu,“ segir Alfreð Gísla-
son, framleiðslustjóri hjá Pegasus,
sem heldur utan um tökur á nýju
myndbandi fyrir tónlistarmanninn
og plötusnúðinn David Guetta.
Guetta sá sér reyndar ekki fært
að koma til landsins í tengslum
við tökurnar en hann undirbýr nú
útgáfu nýjustu plötu sinnar, Not-
hing but the Beat 2.0, sem kemur
út þann 7. september næstkomandi.
Áætlað er að myndbandið komi
út í lok september en það er við nýj-
asta lag kappans, She Wolf (Falling
to Piece). Ástralska söngkonan Sia
Furler syngur í laginu. Alfreð gat
ekki staðfest hvort söngkonan væri
hér á landi né vildi hann gefa nokk-
uð upp um söguþráð myndbandsins.
Fréttablaðið hefur hins vegar heim-
ildir fyrir því að varúlfar leiki þar
lykilhlutverk. Bæði íslensk dýr og
leikarar koma fram í myndbandinu.
Tökur hafa staðið yfir undanfarna
daga meðal annars á Reykjanesi,
Langjökli og við Kleifarvatn og var
síðasti tökudagur í gær.
David Guetta er mjög þekktur
í danstónlistarheiminum. Hann
hefur unnið til fjölda verðlauna,
meðal annars Grammy- og MTV-
verðlauna, World Music Awards
og Brit Awards fyrir lög sín og
unnið með helstu tónlistar mönnum
heims. Þekktustu lög kappans eru
meðal annars When Love Takes
Over með Kelly Rowland, Gettin‘
Over You með Chris Willis, Fer-
gie og LMFAO og Sexy chick með
Akon.
Leikstjóri myndbandsins er hinn
bandaríski Hiro Murai en hann
hefur meðal annars gert mynda-
bönd fyrir sveitir á borð við Bloc
Party, St. Vincent, Scissor Sisters
og Azealia Banks. Um fimmtán
manna erlent tökulið er statt hér
á landi í tengslum við tökurnar og
alls koma um fimmtíu Íslendingar
að verkefninu.
Alfreð segir sumarið hafi verið
einstaklega gott fyrir starfsfólk
kvikmyndagerðabransans hér á
landi. „Ég hef verið í þessu síðan
árið 1997 og man ekki eftir öðru
eins. Það er búið að vera nóg að gera
og líklega efni í frétt.“
alfrun@frettabladid.is
TÖKUR Á REYKJANESI, LANGJÖKLI OG KLEIFARVATNI
David Guetta tekur upp
varúlfa-myndband á Íslandi
VARÚLFAMYNDABAND Plötusnúðurinn vinsæli David Guetta var ekki á landinu meðan tökur á myndbandi hans fóru fram.
Íslenska landslagið verður fyrirferðarmikið í myndbandinu ásamt íslenskum leikurum og dýrum. NORDICPHOTO/GETTY
Tónlistarmaðurinn Jakob Frímann
Magnússon er aðalsprauta Jack
Magnet-djasskvintettsins, sem
spilar nýtt efni í bland við eldra í
Hörpu á laugardagskvöld á Jazzhá-
tíð Reykjavíkur.
„Kvintettinn er kenndur við Jack
Magnet en hann fleytir rjómann
af því besta af sólóplötum mínum
sem hafa komið út undir ýmsum
nöfnum,“ segir Jakob Frímann.
Með honum á tónleikunum spila
þeir Einar Scheving, Jóel Pálsson,
Guðmundur Pétursson og Róbert
Þórhallsson. „Ég er að dýfa bæði
fingrum og tám í kraumandi pott
tónlistaráhrifa sem hafa mótað
mig og með mér í pottinum eru
risar. Ef við værum í frumskógi
Afríku á tímum Davids Livings-
tone væru ýmsir girnilegir bitar
í þessum potti og þá girnilegri en
Jack Magnet.“
Jack Magnet-kvintettinn kom
saman í Þjóðleikhúsinu á minn-
ingar tónleikum um Kristján Eld-
járn fyrr á árinu og leiddi til áfram-
haldandi samstarfs. „Okkur fannst,
og mörgum öðrum, óskaplega
skemmtilegt það sem þar gerðist.
Það var kveikjan að því að það var
hljóðritað nýtt efni og að þessum
tónleikum á Jazzhátíð Reykjavík-
ur,“ segir Jakob, sem er óviss hve-
nær ný plata lítur dagsins ljós. „Það
er enginn fastur meðgöngutími á
plötum eins og börnum. Ég vildi að
maður gæti sett í og níu mánuðum
síðar fæðist platan en þetta er ekki
svo einfalt.“ - fb
Dýfir sér í kraumandi pott
JACK MAGNET Jakob Frímann Magnús-
son verður í hlutverk Jack Magnet í
Hörpu á laugardagskvöld.
„Við höfum áralanga reynslu í
öllu sem viðkemur skemmtistaða-
rekstri og sjálfur byrjaði ég að
vinna sem barþjónn á Gauknum
þegar ég var átján ára gamall,“
segir Ásgeir Andri Guðmunds-
son, tónlistar- og viðburðarstjóri
Mánabars sem var opnaður við
Hverfisgötu 20 á menningarnótt.
Buddah bar var til skamms tíma
í húsnæðinu sem nú hýsir Mána-
bar og segir Ágeir að töluvert ólík
stemning ríki nú í húsinu.
„Okkur langaði að breyta til og
búa til stað þar sem hægt er að
spjalla saman í ró og næði. Stemn-
ingin þarna inni er lík þeirri sem
er á Götubarnum á Akureyri,
það er til dæmis engin tónlist á
staðnum nema einhver komi og
spili hana. Við erum með flygil á
efri hæðinni sem er opinn öllum
þeim sem kunna á píanó og svo
er líka pláss fyrir hljómsveit hér
inni,“ segir Ásgeir og bætir við
að um helgar verði plötusnúður
á staðnum sem muni spila gamla
tónlist í bland við nýja.
Staðurinn var tekinn í gagn-
ið á menningarnótt og viður-
kennir Ásgeir að það hafi staðið
á tæpasta vaði að næðist að klára
smíðavinnu í tæka tíð. „Ég held
við höfum sett Íslandsmet í niður-
rifi. Við byrjuðum á verkinu þann
20. júlí og lukum við það fimm
mínútum fyrir opnun. En þetta
hafðist með góðri trú og mikilli
vinnu.“
Nokkrir skemmtistaðir hafa
verið í húsinu undanfarinn ára-
tug en Ásgeir segist fullur bjart-
sýni um að Mánabar muni vegna
vel enda hafi mikið verið í staðinn
lagt. „Þessi staðsetning er frábær
og Mánabar er meira í anda þess
sem er að gerast annars staðar í
götunni. Ég er bjartsýnn á að við
munum ná upp vinalegri stemn-
ingu og svo erum við líka með
kurteisa dyraverði.“ - sm
Kurteisir dyraverðir á Mánabar
VINALEG STEMNING Mánabar á
Hverfisgötu var opnaður á menningar-
nótt. Ásgeir Andri Guðmundsson, tón-
listar- og viðburðarstjóri staðarins, segir
mikið lagt upp úr vinalegri stemningu.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FRÆGIR SEM HAFA UNNIÐ MEÐ DAVID GUETTA
- Snoop Dogg
- Nicki Minaj
- Madonna
- Flo Rida
- Akon
- Kelly Rowland
- Ludacris
- Usher
- Jennifer Hudson
- The Black Eyed
Peas
- Rihanna
FRÉTTIR
STÖÐVAR 2
Í BEINNI
FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN ÚTVARP LÍFIÐ SJÓNVARP
- oft á dag
JAZZHÁTÍÐ
REYKJAVÍKUR
18. ÁGÚST – 1. SEPTEMBER
www.reykjavikjazz.is
Z
20
12J
A Z
REYKJAV ÍK
norra na husid e
-
-