Fréttablaðið - 03.10.2012, Side 18

Fréttablaðið - 03.10.2012, Side 18
3. október 2012 MIÐVIKUDAGUR18 timamot@frettabladid.is „Þetta eru málefni sem allir eiga að láta sig varða,“ segir Árni Stefán Árnason, dýraréttarlögfræðingur og svokallaður sendiherra Íslands á alþjóðlega degi dýranna sem verður haldinn hátíðlegur á morgun. Þetta er í fyrsta sinn sem alþjóðlega degi dýranna er fagnað hér á landi. 4. október er hátíðardagur verndardýr- lings dýranna, heilags Frans frá Ass- isi, en dagurinn var í fyrsta sinn skil- greindur á ráðstefnu vistfræðinga í Flórens á Ítalíu árið 1931. Upphaflegt markmið dagsins var að vekja athygli á dýrategundum í útrýmingarhættu en Árni segir að í dag snúist dagurinn meira um að berjast fyrir bættri velferð og með- ferð dýranna. „Þetta er í fyrsta sinn sem þessi dagur er haldinn hátíðlegur hér á landi undir þessum formerkjum. Dag- urinn á ekki síst að beina sjónum að því hvernig við förum með dýr í dag og hvernig við getum bætt búfjár- hald,“ segir Árni og á þá við til dæmis í matvæla- og fataframleiðslu. Árni vill vekja athygli Alþingis á hvernig dýravelferð er háttað hér á landi en hann fullyrðir að mörgu sé ábótavant í þeim efnum. Hann gagn- rýnir þá helst verksmiðjubúskap- inn og tekur sem dæmi eggjafram- leiðslu þar sem hænur eru lokaðar inni margar saman í litlum rýmum til að verpa. „Evrópusambandið hefur til dæmis nýlega bannað þessa með- ferð á hænum í eggjaframleiðslu en hér á landi breytist þetta ekki. Nýleg- ar rannsóknir sýna að dýrin standa miklu nær okkur í erfðafræðilegum skilningi en talið hefur verið. Það þýðir að dýr eru fullfær um að upp- lifa vellíðan og þjáningu eins og við.“ Í tilefni af degi dýranna verður hátíðardagskrá í Fríkirkjunni í Hafn- arfirði og hefst hún klukkan 20. Árni hvetur sem flesta til að mæta enda verður þetta létt og stutt kynning á alþjóðlega degi dýranna sem og tón- listaratriði og upplestur. Árni segir morgundaginn setja nýjan tón fyrir dýravernd á Íslandi en nánari upplýsingar má finn á vef- síðunni Dagurdyranna.is eða á World- animalday.co.uk. alfrun@frettabladid.is ALÞJÓÐLEGI DAGUR DÝRANNA: HÁTÍÐARSTUND Á MORGUN Berjast fyrir bættri velferð og meðferð á húsdýrum BERST FYRIR MÁLLEYSINGJANA Árni Stefán Árnason, dýraréttarlögfræðingur og sendiherra Íslands á alþjóðlega degi dýranna, hvetur alla til að hugsa til dýranna á morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN ZLATAN IBRAHIMOVIC, sænskur landsliðsmaður í knatt- spyrnu og leikmaður Paris Saint-Germain, er 31 árs í dag. „Meiddur Zlatan eru vondar fréttir fyrir öll lið.“ 31 Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞURÍÐUR JÓNSDÓTTIR áður til heimilis að Aratúni 2, Garðabæ, lést á blóðmeinadeild Landspítalans við Hringbraut aðfaranótt sunnudags 30. september. Útförin fer fram frá Landa- kotskirkju föstudaginn 5. október kl. 15.00. María Gísladóttir Margrét Gísladóttir Pétur Grétarsson Guðjón Gíslason Gísli Jón Gíslason Kristín Helgadóttir Kristín Gísladóttir Valdimar Grímsson barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT STEINGRÍMSDÓTTIR Brúnavegi 9 – Hrafnistu, Reykjavík, lést á Landspítalanum miðvikudaginn 26. september. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 4. október kl. 13.00. Árni Gunnarsson Sjöfn Óskarsdóttir Vilborg Gunnarsdóttir Gunnar Aðalsteinsson Guðrún Erla Gunnarsdóttir Þorgrímur Páll Þorgrímsson barnabörn og barnabarnabörn. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSLAUG ÁSMUNDSDÓTTIR áður til heimilis að Álfalandi 4, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Eir mánudaginn 1. október. Jarðarförin verður auglýst síðar. Ásmundur Stefánsson Guðrún Guðmundsdóttir Þór Stefánsson Hulda Ólafsdóttir Ása Stefánsdóttir Jens Kvist Christensen barnabörn og barnabarnabörn. Elskuð eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, SIGURBJÖRG ÁRMANNSDÓTTIR lést þann 25. september síðastliðinn á hjúkrunarheimilinu Sóltúni. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Hjartans þakkir til starfsfólks göngudeildar Parkinson á Fossvogssjúkrahúsi, heimahjúkrunar og starfsfólks hjúkrunarheimilisins Sóltúni deild 3 d. Guð blessi ykkur öll og ómetanleg störf ykkar. Þórarinn Hrólfsson Tryggvi Þórarinsson Ingibjörg Ingólfsdóttir Hrólfur Þórarinsson Katrín Guðmunda Einarsdóttir Sigþór Þórarinsson Matthildur Helgadóttir barnabörn og barnabarnabörn. Móðurbróðir okkar, HAFSTEINN SIGURJÓNSSON matsveinn, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 13. september 2012. Bálför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Hjalti Gunnarsson Ámundi Gunnarsson Sigurjón Gunnarsson Kristbjörg Gunnarsdóttir Ásgeir Gunnarsson Bróðir minn og frændi okkar, RAGNAR ÁGÚSTSSON útgerðarmaður og vélstjóri, Halakoti, Vatnsleysuströnd, verður jarðsunginn frá Kálfatjarnarkirkju, Vatnsleysuströnd föstudaginn 5. október 2012 kl. 15.00. Magnús Ágústsson Guðfinna Guðmundsdóttir Kjartan Egilsson Ragnar Már Kjartansson Hlynur Örn Kjartansson Tara Pétursdóttir Natalía Marín Hlynsdóttir Pétur Ragnar Hlynsson DAGSKRÁ Í FRÍKIRKJUNNI Í HAFNARFIRÐI Inngangsorð: Árni Stefán Árnason, sendiherra alþjóðlega dags dýranna á Íslandi Tónlist: Unnur Birna Björnsdóttir fiðluleikari Ljóðalestur: Birgitta Jóns- dóttir alþingismaður les Tónlist: Ragnheiður Gröndal söngkona Kattasamsærið: Guð- mundur Brynjólfsson les úr samnefndri bók sinni Tónlist: Bræðrabandið Erindi um verndardýr- ling dýranna, heil- agan Frans frá Assisi: Linda Rán Ómarsdóttir djáknakandídat Tónlist: Anna Sigríður Helgadóttir söngkona Ljóðalestur: Kristján Hreinsson ljóðskáld les úr ljóðum sínum Tónlist: Margrét Eir Hjartardóttir söngkona Dýrasaga: Ragnheiður Elín Clausen les Bænastund: Bryndís Val- bjarnardóttir prestur flytur bæn fyrir dýrin Kvikmyndin Djöflaeyjan í leikstjórn Friðriks Þór Frið- rikssonar var frumsýnd. Myndin var gerð eftir bókum Einars Kárasonar, Þar sem djöflaeyjan rís og Gulleyj- unni. Fyrir frumsýningu mynd- arinnar var brotist inn í húsakynni Íslensku kvikmyndasamsteyp- unnar og óttast var að frumsýningu mynd- arinnar yrði frestað í kjölfarið en svo var ekki. Leikarar voru meðal annars Baltasar Komákur og Ingvar E. Sigurðsson. ÞETTA GERÐIST: 3. OKTÓBER 1996 Djöflaeyjan frumsýnd Merkisatburðir 1542 Gissur Einarsson vígður biskup í Skálholti og er hann fyrsti íslenski biskupinn í lúterskum sið. 1884 Kristjánsborgarhöll númer tvö brennur. 1903 Danakonungur samþykkir ákvörðun danska þingsins um heimastjórn á Íslandi. 1932 Írak fær sjálfstæði frá Bretlandi. 1975 Þyrla Landhelgisgæslunnar hrapar í Skálafelli. 1990 Endursameining Þýskalands: Þýska alþýðulýðveldið er lagt niður og sameinað Sambandslýðveldinu Þýskalandi. Dag- urinn er þjóðhátíðardagur Þjóðverja. 1994 O.J. Simpson sýknaður af ákærum um morðin á eigin- konu sinni Nicole Brown Simpson og Ronald Goldman.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.