Fréttablaðið - 03.10.2012, Page 38
3. október 2012 MIÐVIKUDAGUR34
MORGUNMATURINN
„Mér finnst gaman að horfa á
heimildarmyndir um klikkað og
skrítið fólk og á ýmsa þætti sem
eru sýndir á sjónvarpsstöðinni
Animal Planet.“
Hrefna Rósa Sætran, kokkur og veitinga-
staðaeigandi.
www.hugarfar.is I hugarfar@hugarfar.is I sími 661-5522
Samtök um sorg og sorgarviðbrögð
NÝ DÖGUN
www.nydogun. is www.sorg. is sorg@sorg. is
Vetrarstarf Nýrrar dögunar hefst n.k. fimmtudagskvöld
4. október kl. 20:30 í safnaðarheimili Háteigskirkju.
Fyrirlesari sr. Svavar Stefánsson.
Þann 11. október fer af stað stuðningshópur
fyrir aðstandendur sem verður vikulega á
fimmtudögum kl. 20 í Fella- og Hólakirkju.
Einnig verður opið hús þriðjudagskvöldið
23. október og 27. nóvember kl. 20 í Breiðholtskirkju.
Húsið opnar kl. 19:00 þar sem fólk getur komið,
spjallað og fengið kaffi.
Allir velkomnir.
stuðningur við aðstandendur
Dublin
87.900 kr.*
*m.v. 2 fullorðna í tvíbýli á Hotel Camden Court með morgunmat.
Ég hef alltaf staðið í því að yrkja,
þetta er ekkert nýtt,“ segir Einar
Georg Einarsson sem komist hefur
í sviðsljósið undanfarið vegna
textagerðar á plötum sona sinna
Ásgeirs Trausta og Þorsteins í
Hjálmum. Fyrsta plata þess fyrr-
nefnda, Dýrð í dauðaþögn, hefur
slegið rækilega í gegn og trónað
nokkrar vikur í röð á toppi Tón-
listans.
„Á sínum tíma gerði ég mikið
af textum fyrir Óðin G. Þórarins-
son og þjóðlagasveit sem kallaði
sig Mýbit og fleiri. Árum saman
var ég svo veislustjóri hjá ýmsum
aðilum og flutti þá gjarnan frum-
samið efni,“ segir Einar Georg
og útskýrir aðspurður að sjálfur
hafi hann ekkert gefið út af efni.
„Nei, ekki enn. Ég var reyndar
einhvern tímann búinn að taka
saman efni í ljóðabók og ganga
frá henni til útgáfu, en svo var
ég bara ekkert ánægður með
hana þannig að ég hætti við það.“
Við leit á Google kemur í ljós að
Einar Georg var einn höfunda
áramótaskaupsins í Sjónvarpinu
1979 en hann segir það þó alls
ekki hafa verið einsdæmi. „Áður
en það kom til hafði ég verið mjög
mikið í útvarpinu og samið ára-
móta skaup þar ásamt Jónasi Jón-
assyni og fleirum í mörg ár. Það
voru alveg fullkomin ára móta-
skaup þótt grínið sæist ekki og var
löngu komin hefð fyrir því áður en
sjónvarpið kom. Þeir héldu bara
þessari hefð áfram.“
Einar Georg er íslensku kennari
og hefur kennt víða um land,
auk þess að vera skólastjóri á
nokkrum stöðum. Hann býr nú á
Laugarbakka í Miðfirði þar sem
hann kenndi í sjö ár þar til hann
lét af störfum fyrir þremur árum.
Hefur hann einbeitt sér meira að
yrkingunum síðan hann hætti að
kenna? „Ég er mikið í því að skrifa
og yrkja, en það fer bara ofan í
skúffuna,“ segir hann og hlær við.
„En ég stefni á að gefa út bók á
næsta ári og hef undanfarið ein-
beitt mér að því að yrkja í hana.“
Spurður hvort synirnir Þorsteinn
og Ásgeir Trausti hafi tónlistar-
gáfuna frá pabba sínum telur
Einar Georg aldrei gott að segja
hvaðan fólk hafi hæfileika. „Ég hef
auðvitað sungið eigið efni þegar
ég hef verið veislustjóri og samið
nokkur lög fyrir kóra, þannig að
kannski á ég einhvern þátt í því
hvaða braut þeir fetuðu.“
fridrikab@frettabladid.is
EINAR GEORG EINARSSON: STEFNI AÐ BÓK Á NÆSTA ÁRI
Semur texta fyrir synina
FEÐGAR Einar Georg, sem hér gæðir sér á kaffi og kruðeríi með syni sínum, nýstirninu Ásgeiri Trausta, hefur samið nokkur lög og
segist kannski hafa átt þátt í því hvaða braut synir hans fetuðu.
„Guðmundur er búinn að vera í biðstöðu
undan farið og bíður þess eins að fá kallið. Við
vonumst til þess að geta farið með honum til
Frakklands í janúar þegar aðgerðin verður
framkvæmd og fylgja honum svo eftir í
endur hæfingarferlinu,“ segir Örn Marinó
Arnarson kvikmyndagerðarmaður. Hann og
Þorkell Harðarson munu fylgja Guðmundi
Felix Grétarssyni eftir þegar græddir verða á
hann nýir handleggir.
Guðmundur Felix missti báða handleggi
rétt fyrir neðan axlir í vinnuslysi árið 1998.
Hann hefur síðan þá haldið í vonina um að
komast í handaágræðslu á sérhæfðu sjúkra-
húsi í Frakklandi. „Verkefnið mun taka
rúm tvö ár því það er sá tími sem það tekur
taugarnar að vaxa úr hans líkama og fram í
fingurgómana. Það er sex klukkutíma gluggi
sem gefst frá því að gjafi finnst og þar til
Guðmundur þarf að vera mættur í aðgerðina
þannig við þurfum að vera fljótir á staðinn
þegar það gerist,“ segir Örn Marinó sem
rekur framleiðslufyrirtækið Markell Produc-
tions ásamt Þorkeli.
Þeir munu svo fljúga reglulega til Lyon
næstu tvö árin og fylgja Guðmundi eftir í
endurhæfingarferlinu. Aðspurður segist Örn
Marinó hlakka til að takast á við verkefnið.
„Guðmundur er svo jákvæður og brattur
og við hlökkum mikið til að takast á við verk-
efnið. Við búumst við erfiðleikum líka því
aðgerðin tekur á. Álagið er þó allt á Guðmundi
fram að frumsýningu, þá verðum við undir
pressu.“ - sm
Fylgja Guðmundi Felix eftir í aðgerð
LANGT VERKEFNI Örn Marinó Arnarson og Þorkell
Harðarson ætla að fylgja Guðmundi Felix Gíslasyni eftir
þegar græddar verða á hann hendur.
„Pabbi átt stóran þátt í því að kveikja áhuga minn á að
yrkja. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á því sem hann
hefur ort,“ segir Þorsteinn Einarsson, söngvari Hjálma,
um áhrif föður síns, Einars Georgs, á starfsval sitt. „Sam-
starf okkar byrjaði þannig að ég tók bara einhverja texta
sem ég fann hjá honum og samdi lög við þá, en svo
hefur þetta þróast þannig í seinni tíð að ég hef stundum
beðið hann sérstaklega um að yrkja texta fyrir mig.“
Þið hafið verið að koma fram saman bræðurnir, ekkert
dottið í hug að hafa pabba ykkar með ykkur? „Það er alveg
spurning. Hann er búinn að vera í þessu í marga áratugi og
kann þetta.“
ALLTAF HAFT ÁHUGA Á LJÓÐUNUM HANS PABBA
Tæplega 23.500 manns hafa séð
kvikmyndina Djúpið síðan hún var
frumsýnd 21. september og geta
aðstandendur hennar því vel við
unað.
Til samanburðar hafa aðeins
tæplega 5.200 manns séð spennu-
tryllinn Frost sem var frumsýndur
tveimur vikum fyrr. Þetta kemur
fram í nýjustu tölum SMÁÍS, Sam-
taka myndrétthafa á Íslandi, frá
síðasta mánudegi. Tekjurnar af
Djúpinu nema 30,5 milljónum króna
en tekjurnar af Frost eru tæpar 6,5
milljónir.
Djúpið, í leikstjórn Baltasars
Kormáks, hefur fengið fyrirtaks
dóma, þar á meðal fjórar stjörnur
hér í Fréttablaðinu, en viðbrögðin
við Frosti í leikstjórn Reynis Lyng-
dal hafa verið heldur dræmari. Til
að mynda hlaut hún einungis eina
stjörnu af fimm mögulegum hér
í blaðinu. Þess má geta að Djúpið
verður framlag Íslendinga til
Óskars verðlaunanna sem verða
afhent í Hollywood á næsta ári.
Þriðja íslenska myndin sem hefur
verið í bíó að undanförnu er Ávaxta-
karfan í leikstjórn Sævars Guð-
mundssonar. Um 10.600 manns hafa
séð þessa barnamynd síðan hún
var frumsýnd 31. ágúst og nema
tekjurnar 7,9 milljónum króna. - fb
Djúpið miklu vinsælli en Frost
DJÚPFRYSTING Kvikmyndin Djúpið hefur notið mun meiri vinsælda en Frost hér á
landi.